Morgunblaðið - 25.11.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAFSTEINN Rúnar Helgason, 18
ára knattspyrnumaður úr Reyni í
Sandgerði, er genginn til liðs við úr-
valsdeildarlið Grindavíkur. Haf-
steinn lék alla leiki Reynis í 3. deild-
inni í sumar og skoraði 4 mörk.
GRINDAVÍK hefur fengið til sín
annan ungan leikmann, Snorra Birg-
isson, 19 ára markvörð úr Víkingi
sem á að baki leiki með drengjalands-
liðinu.
ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði
KR í knattspyrnunni um árabil, tók
fram skóna og lék með Leiftra, liði
lögreglunnar í Reykjavík, á Íslands-
mótinu í innanhússknattspyrnu um
helgina. Leiftri, sem vann sig upp úr
4. deild mótsins í fyrra, missti naum-
lega af sæti í 2. deild, á markatölu.
BRYAN Robson fyrrum fyrirliði
enska landsliðsins í knattspyrnu var í
gær ráðinn knattspyrnustjóri enska
1. deildarliðsins Bradford City. Rob-
son hefur verið orðaður við mörg fé-
lög síðan hann var rekinn frá Middl-
esbrough fyrir tveimur árum. Til
stóð á dögunum að hann tæki við
þjálfun nígeríska landsliðsins en á
síðustu stundu hætti knattspyrnu-
samband Nígeríu við að ráða Eng-
lendinginn.
DAVID Gold, forseti Birmingham,
hefur sett allar áætlanir um stækkun
St Andrews, leikvangs félagsins, í
salt. Gold segir að félagið verði að
festa sig í sessi sem úrvalsdeildarlið
áður en farið erður í rándýrar breyt-
ingar á vellinum, ekki megi ana að
neinu og brenna sig á sama soðinu og
mörg önnur félög hafa gert á síðustu
árum. Gold og félagi hans, David
Sullivan, björguðu Birmingham frá
gjaldþroti fyrir áratug og hafa síðan
byggt það upp af yfirvegun.
EKKI vænkast hagur Leeds Unit-
ed, hvorki utan vallar né innan. Nú
bendir flest til þess að brasilíski varn-
armaðurinn Roque Junior verði frá
keppni um nokkurn tíma vegna
meiðsla í hásinum. Hann lék ekki
með Leeds gegn Bolton um helgina
eftir að hafa meiðst í landsleik við
Paragvæ í undankeppni HM í síð-
ustu viku.
MARIS Verpakovskis, hetja Letta
í umspilsleikjunum við Tyrki í und-
ankeppni EM í knattspyrnu, hefur
þegið boð frá Arsenal um að koma til
æfinga hjá félaginu. Verpakovskis
skoraði tvö mörk í leikjunum við
Tyrkja auk marksins sem tryggði
sigurinn á Svíum í riðlakeppninni
sem kom Lettum í umspilið. Hann
var til reynslu hjá Wolves í sumar en
féll ekki í kramið hjá David Jones
knattspyrnustjóra. Hann nagar sig í
handarbökin þessa dagana yfir að
hafa ekki gert samning við Lettann.
Þá er vitað að Brann hafði fylgst með
framherjanum um tíma en vonlaust
er talið að norska félagið eigi ein-
hvern möguleika í Verpakovskis eftir
velgengni síðustu vikna.
FÓLK
EGGERT Stefánsson, knatt-
spyrnumaður úr Fram, fór í gær til
reynslu hjá enska 2. deildarliðinu
Barnsley og æfir þar undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar næstu þrjár
vikurnar. Eggert er samningsbund-
inn Fram út næsta tímabil þannig að
ef honum tekst að heilla Guðjón með
frammistöðu sinni verður enska fé-
lagið að greiða fyrir hann en það
hefur þurft að halda að sér hönd-
unum í þeim efnum undanfarna
mánuði vegna bágrar fjárhagsstöðu.
Eggert er 24 ára varnarmaður og
hefur leikið 58 leiki með Fram í úr-
valsdeildinni, þar af 15 á síðasta
tímabili.
Eggert hjá
Barnsley í
þrjár vikur
Kátir krakkar að lokinni æfingu
hjá karatedeild Fylkis.
Elías Guðnason býr sig undir nákvæmt
högg, þó ekki fast, í magann á Hervari
Hlíðdal Þorvaldssyni, svona til að herða
hann aðeins.
Helga
Kristín
brosti sínu
blíðasta
þegar hún
skreið
fyrst í
mark í æf-
ingu þar
sem skríða
átti eftir
gólfinu.
Anton Pét-
ursson
kom fast á
hæla
hennar og
var fyrir
vikið ekki
eins blíður
á mann-
inn.
Og þá var komið að Hervari…
Það skiptust á skin og skúrir hjá félög-
unum Elíasi Guðnasyni og Hervari Hlíð-
dal Þorvaldssyni, sem er 7 ára. Í æfingu
þegar kýla á laust í eða í átt að mag-
anum náði Elías ekki alveg að reikna út
fjarlægðina. Hervari sárnaði sem von
var en öll él birtir upp um síðir, eftir að
Jón Hákon Bjarnason þjálfari ræddi við
kappann.
Í HEIMSÓKN HJÁ KARATEDEILD FYLKIS