Morgunblaðið - 30.11.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.11.2003, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Næturmyrkrið lagðist yfirReykjanesið og Vala-hnúkinn um nónbilið 1.desember 1878. Eins og um aldir og árþúsundir rökkvaði og kennileiti landsins máðust smám saman út í samfelldan sorta. En þetta var tímamótadagur á Reykja- nesinu og þótt það væri ekkert um veisluhöld eða tilhald á Valahnúkn- um, svo langt sem hann nú var frá öllum byggðum bólum, hefur áreið- anlega verið hátíðarsvipur á Arn- birni Ólafssyni vitaverði einni klukkustund eftir sólarlag þegar hann stóð í ljóshúsi hins nýbyggða Reykjanesvita og kveikti á olíulömp- unum 15 í ljóstæki hans, hverjum á eftir öðrum, því þetta var vígsludag- ur vitans og formlegt upphaf vita- þjónustu á Íslandi. Íslensk síðþróun í vitamálum Vitar höfðu logað árhundruðum saman á ströndum Evrópulanda þegar Reykjanesvitinn var byggður og hvernig stóð á þessu seinlæti í vitamálum hinnar norðlægu eyjar? Jú, landið var afskekkt, strjálbýlt og fámennt, efnahagur íbúanna oftast ekki ýkja beysinn og atvinnuhættir fábreyttir og frumstæðir. Þessar skýringar hafa oft heyrst og sést áð- ur í mati á fortíðinni, jafnvel svo oft að þær hljóma gjarnan sem klisja, en hvað vitana áhrærir eru ekki aðrar nærtækari. Það má auðvitað velta því fyrir sér hversvegna stjórnvöld í Danmörku höfðu ekki frumkvæði að vitabygg- ingum á Íslandi því Danir voru með- al fremstu vitaþjóða í Evrópu. En áhrif og atbeini danskra stjórnvalda hér á landi voru í raun ætíð takmörk- uð og það átti við á þessu sviði einnig. Og auk þess hafði stjórn danska rík- isins um langt skeið þá stefnu að byggja ekki vita fyrir almannafé annars staðar en þar sem þeir þjón- uðu almennri skipaumferð og leit þá einkum til hinna fjölförnu skipaleiða um sund og belti við Danmörku. Sveitarfélög í Danaveldi urðu að standa straum af innsiglingar- og hafnarvitum og vitum sem einkum komu fiskimönnum að notum. Það sem skýrir byggingu elsta Reykjanesvitans árið 1878 eru kröf- ur Íslendinga um siglingar milli- landaskipa að vetrarlagi. Þær áttu sér rætur í því að efnahagur lands- manna fór batnandi á síðari hluta 19. aldar eftir því sem sjávarútvegur efldist og þróaðist og verslun jókst. Þéttbýlisstaðir fóru að myndast og vaxa við ströndina þar sem þorsk- urinn í sjónum og krambúðir kaup- manna löðuðu til sín vaðmálsklætt sveitafólkið sem brá sér í skinnklæði sjómanna og sótti golþorska á fiski- miðin sem urðu að gullþorskum og síðan að kaffi, hveiti, silki, sirsi, tób- aki og tölum í krambúðum kaup- mannanna. Eitt af meginöflum nú- tímans komst á kreik – tískan. Það var annað lag á dönsku skónum í ár en í fyrra. Gaberdínið með öðru móti í vor en síðasta haust svo ekki væri nú minnst á slifsin og hattana. Það var alveg orðið ólíðandi að þurfa að þrauka allan veturinn án þess að það kæmi nýr varningur í verslanirnar. Það voru bæði kaupmenn og við- skiptavinir sammála um. Og það var ekki nóg að endurnýjast hið ytra með skæðum og klæðum. Sálartetrið þurfti líka sína hressingu og endur- lífgun. Já, einmitt, fréttir. Umræðu- efni. Það gat ekki náð nokkurri átt að það skyldu geta liðið þrír eða fjórir mánuðir án þess að tíðindi bærust utan úr þeim heimi handan úthafsins sem sífellt fleiri Íslendingar höfðu áhuga á. Það lá við að heilu stríðin færu fram hjá fólki og kóngar og keisarar gátu legið dauðir vikum og mánuðum saman áður en hægt var að segja svo mikið sem „jahá“ eða „jamm“ yfir því á Íslandi, hvað þá biðja vesalingnum fararheilla í eilífð- ina. Nei, það var ekki hægt að þola það lengur í þorpi og bæ að póst- skipið sigldi ekki yfir veturinn. En var þá ekki bara hægt að láta kaupskipin og póstskipið sigla á vet- urna? Nei. Norður í þetta órofa heimskautamyrkur stefndi enginn heilvita maður skipi. Jafnvel ekki þótt rausnarlegt endurgjald væri í boði því hvern fýsir að verða skip- reika við úfna, illviðrasama, mann- auða og koldimma strönd, en á því voru mestar líkur ef lagt var í svona háska töldu skipstjórar og forráða- menn skipafélaga. Þarna norðurfrá var hvergi ljósglætu að sjá og vind- gnauðið oftast svo mikið að það heyrðist ekki í brimgarðinum fyrr en rétt áður en komið var í hann. Hvernig á að varast svo fláa strönd? Hvað ef það væri viti, spyrja kaup- menn og póststjórn. Jú, það myndi breyta málinu svara skipstjórar og útgerðarmenn. Þó að það væri ekki nema einn svo það sé í það minnsta hægt að finna þennan Faxaflóa sem flestir fara til þarna uppi. Vitamál hefjast á Alþingi Með setningu stöðulaganna árið 1871 og stjórnarskránni sem Krist- ján IX Danakóngur hafði með sér til Íslands í sumarheimsókn sinni árið 1874 fékk Alþingi fjárveitingarvald og gat farið að taka sjálfstæðar ákvarðanir um framkvæmdir í land- inu. Fyrsta þingið sem þetta vald hafði kom saman í húsakynnum Lærða skólans í Reykjavík sumarið 1875 og þar hófust íslensk vitamál. Þetta upphaf fólst á rökréttan hátt í því að tveir þingmenn, þeir Snorri Pálsson þingmaður Eyfirðinga og Halldór Kristján Friðriksson þing- maður Reykjavíkur, fluttu frumvarp til laga um vitagjald þótt enginn væri vitinn. Hinir varfærnu þingmenn vildu með þessu tryggja fjárhagsleg- an grundvöll vitabyggingar og vita- reksturs áður en þeir legðu til að tekist væri á við þau verkefni. Frum- varp þeirra datt raunar upp fyrir á þessu þingi, en varð til þess að farið var að undirbúa byggingu á vita á Reykjanesi. Vert er að veita þingmönnunum tveimur og bakgrunni þeirra nokkra athygli, en báðir komu þeir af þétt- býlustu svæðum landsins þar sem uppgangur var í sjávarútvegi og verslun. Snorri Pálsson (1840–1883) hafði bæði fengist við verslunarrekstur og útgerð fiskiskipa við Eyjafjörð auk þess sem hann hafði verið forstöðu- maður fyrir Siglufjarðardeild „Hins eyfirzka ábyrgðarfélags“ sem var tryggingarfélag fyrir fiskiskip við Eyjafjörð. Snorri var því vel kunn- ugur því hversu torvelt það var að fá skip til að sigla til Íslands að vetr- arlagi. Hann var einnig vel kunnug- ur hættunum sem fylgdu því að sækja sjóinn við Ísland. Í lok maí 1875, aðeins nokkrum vikum áður en Snorri tók sæti á Alþingi í fyrsta skipti, fórst eitt af hákarlaskipum hans í aftakaveðri sem þá gerði við Norðurland og með því 11 menn. Alls fórust 25 manns úr nágrenni Snorra í þessu veðri, þar á meðal bróðir hans. Halldór Kristján Friðriksson (1819–1902) var kennari og yfirkenn- ari við Lærða skólann en auk þess bæjarstjórnarmaður í Reykjavík og alþingismaður um langt skeið. Áhugamál hans voru fjölþætt og hann lét víða að sér kveða í fé- lagsmálum, meðal annars var hann lengi forseti „Húss- og bústjórnar- félags suðuramtsins“, en ef að líkum lætur voru það einkum afskipti hans af bæjarmálefnum í Reykjavík sem ollu því að hann gerðist talsmaður vitabygginga því siglingaleysið yfir veturinn stóð orðið atvinnulífi í bæn- um fyrir þrifum. Reykjanesvitinn 1878 Vitagjaldsfrumvarp þeirra Snorra Pálssonar og Halldórs Kr. Friðriks- sonar varð til þess að farið var að huga að byggingu vita á Íslandi fyrir alvöru. Ekki er að sjá að komið hafi til álita að reisa fyrsta vita landsins annars staðar en á Reykjanesi, enda komu langflest skip úr hafi upp að suðvesturhorni landsins. Málið var borið undir C.F. Grove, vitamála- stjóra Dana, sem lýsti þeirri skoðun sinni að einmitt af fyrrgreindum ástæðum væri mikilvægt að hefja vitavæðingu Íslands á Reykjanesinu. Alþingismenn reyndust áhuga- samir um að byggja vita á Reykja- nesi með hliðsjón af hugmyndum danska vitamálastjórans en sameig- inlegir sjóðir landsmanna voru rýrir að vöxtum og þekking á vitatækni var engin í landinu. Því var leitað til Dana um aðstoð og það féll í hlut skáldsins Gríms Thomsens, sem var formaður fyrstu fjárlaganefndar Al- þingis, að greiða úr álitamálum í samskiptum Dana og Íslendinga á þessu sviði. Vitamál heyrðu undir danska flotamálaráðuneytið (Mar- ineministeriet) þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að danska rík- issjóðnum bæri engin skylda til að standa straum af kostnaði við vita- byggingu á Íslandi en þar sem áformaður viti myndi gagnast dönskum kaupskipum væri flota- málaráðuneytið tilbúið til að styrkja Íslendinga í þessari fyrirætlan. Varð sú niðurstaðan að hæfilegt framlag fælist í ljóshúsi úr eir og vitatæki, en vitabygginguna sjálfa yrðu Íslend- ingar að sjá um. Sumarið 1876 var notað til að kanna væntanlegt vitastæði á Reykjanesi og aðstæður til bygging- ar þar. Tveir undirforingjar af varð- skipinu Fyllu fóru þangað í könnun- arferð í lok maí og leist best á að byggja vitann á Valahnúk, yst á Reykjanesinu. Nóg var þar af hraun- grjóti til byggingarinnar, skrifuðu undirforingjarnir í greinargerð sinni, og rekaviður í fjörum sem bæði mætti nota við vitasmíðina og til eldsneytis. Vorið 1877 tilnefndi flotamála- ráðuneytið danskan verkfræðing, Alexander Rothe, til að undirbúa vitabygginguna á Reykjanesi og fór hann þá um sumarið til Íslands og tvær rannsóknarferðir á Reykjanes- ið áður en hann afhenti tillögu sína að vita og vitavarðarbústað á Reykjanesi. Bæði Alþingi og danska þingið samþykktu fjárframlög til verksins og 10. apríl skrifaði Nelle- mann Íslandsmálaráðherra Hilmari Finsen landshöfðingja og tilkynnti honum að samið hefði verið við Alex- ander Rothe um byggingu steinhlað- ins vita og vitavarðarbústaðar á Reykjanesi. Rothe og vinnuflokkur hans tóku til starfa 6. júní 1878. Með verkfræð- ingnum kom danskur múrarameist- ari, Lüders að nafni, sem hafði ann- ast byggingu Hegningarhússins við Skólavörðustíg árið 1872, en aðrir starfsmenn voru Íslendingar. Vita- stæðið hafði verið ákveðið á Vala- hnúk og Rothe gerði ráð fyrir að nota hraungrjótið sem þarna er gnótt af. En þegar Lüders múrara- meistari tók að láta hamra og meitla gnauða á grjótinu molnaði það og reyndist alveg ónýtt byggingarefni. Þá var tekið til bragðs að flytja stuðlaberg neðan úr fjörunni um all- langan veg sem ásamt ýmsum öðrum töfum varð til þess að vitabyggingin gekk nokkuð hægar en Rothe hafði gert ráð fyrir. Honum þótti til dæmis vinnukrafturinn helst til óáreiðan- legur því karlarnir áttu það til að þjóta fyrirvaralaust úr steinhögginu í fiskiróður eða heyskap, og svo var veðurfarið á þessum útkjálka með eindæmum örðugt og óhagstætt fannst honum. Kannski var eitthvað til í því. Frásögn Gríms Thomsens bendir til þess, en fjárlaganefndar- formaðurinn skáldmælti gerði sér ferð á Reykjanesið um sumarið að líta á vegsummerki og ritaði síðan í blaðið Ísafold sem hann ritstýrði um þessar mundir: Það er engin hægðarleikur að draga grjót að sjer upp á Valahnjúk- inn og það steina sem 6–10 manns þarf til að hnosa þar upp; ekki er heldur ládeyðan þar dagslega, þegar lenda þarf með eitthvað, sem til vit- ans þarf, svo sem kalk og steinlím, vistir og áhöld. Þá gekk langur tími til að ná í vatn, gjöra brautir, höggva Fyrsti vitinn á Íslandi Um þessar mundir eru liðin 125 ár frá því að fyrst var tendrað vitaljós á Valahnúk á Reykjanesi. Kristján Sveinsson segir frá til- drögum vitabyggingarinnar, fyrsta vitanum og fólki sem við þessa sögu kom. Reykjanesviti 2001. Arnbjörn Ólafsson Grímur Thomsen Halldór Kristján Friðriksson Snorri Pálsson Reykjanesviti byggður 1878. Í ljóshúsi vitans sjást hol- speglarnir sem voru við hvern hinna 18 steinolíulampa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.