Morgunblaðið - 30.11.2003, Side 53
AUÐLESIÐ EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 53
Netfang: auefni@mbl.is
ÞENGILL Otri Óskarsson
sem er 14 ára gamall, er að
jafna sig á Barnaspítala
Hringsins eftir að hafa nær
drukknað í Breiðholtslaug
11. nóvember. Á spítalanum
er hann kallaður
„kraftaverkamaðurinn“, því
læknarnir segja að batinn sé
líkastur kraftaverki.
Það þurfti að endurlífga
Þengil tvisvar sinnum eftir
slysið, fyrst á
sundlaugarbakkanum og
síðan á spítalanum. Þar var
hann tengdur við vél sem
hjálpaði súrefni og blóði að
streyma til hjarta og lungna
en lungu hans voru mikið
skemmd.
Þengill segir það ótrúlega
tilhugsun að hann hafi verið í
lífshættu. „Það er mjög
skrýtin tilfinning. Pabbi var að
lesa fyrir mig um það sem var
gert fyrir mig á spítalanum og
ég sagði bara ...vá.“
Þengill var meðvitundar-
laus þegar hann kom á
spítalann. Þar var hann
tengdur við öndunarvél og fór
á gjörgæslu. Síðan var líkami
hans kældur niður til að
minnka líkurnar á að heilinn
myndi skaðast.
Þengill liggur núna á
barnadeild og er að safna
kröftum. Hann man ekkert
eftir slysinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þengill á sjúkrahúsinu. Örið á hálsinum er eftir slöngur lungnavélarinnar.
Hjartað
stoppaði
tvisvar
FÓTBOLTAMAÐURINN David
Beckham frá Englandi fékk
orðu í þessari viku. Beckham
hefur verið aðalmaðurinn í
enska landsliðinu í mörg ár
en lék með félagsliðinu
Manchester United í mörg ár.
Nú spilar hann með Real
Madrid á Spáni.
Orðan er kölluð
„heiðursorða bresku
konungsfjölskyldunnar“. Það
var Drottningin í Bretlandi,
Elísabet, sem veitti Beckham
orðuna og sagði hann við það
tækifæri að hann væri mjög
ánægður með þennan
heiður. „Ég er mjög glaður að
hafa fengið orðu fyrir að spila
fótbolta. Það er nefnilega
það skemmtilegasta sem ég
geri,“ sagði Beckham.
Reuters
David Beckham og kona
hans, Victoria, voru í sínum
fínustu fötum.
Beck-
ham
fékk
orðu
KEFLVÍKINGAR gerðu sér
lítið fyrir og lögðu CAB
Madeira frá Portúgal,
99:88, í bikarkeppni Evrópu
á miðvikudag og var þetta
annar sigur Íslands- og
bikarmeistaranna í b-riðli
vesturdeildar keppninnar,
en þremur umferðum af sex
er lokið.
Staða Keflvíkinga er
vænleg, það er í efsta sæti
H-riðils keppninnar ásamt
Overanse frá Portúgal.
Keflavíkur-liðið hefur sýnt
kosti sína og galla í báðum
heimaleikjum sínum til
þessa, gegn liðum frá
Portúgal en Keflavíkingar
lögðu Overanse, 113:99, á
heimavelli á dögunum.
Bandaríkjamaðurinn Nick
Bradford í liði heimamanna
lét mest að sér kveða í
sókninni í gær, skoraði alls
29 stig en að mati margra
breytti varnarleikur Sverris
Þórs Sverrissonar í upphafi
síðari hálfleiks mestu. Hann
lék ekkert í fyrri hálfleik en
staðan í hálfleik var 41:39.
Það sem vekur mesta
athygli eftir sigur Keflvíkinga
gegn Madeira er að þeir
unnu án þess að ná tökum
á sterkustu vopnum sínum,
þriggja stiga skotunum.
Falur Harðarson, þjálfari og
leikmaður liðsins, sagði að
ekki væri hægt að beita
sömu leikaðferð í
Evrópukeppninni og liðið
beitir öllu jöfnu hér á landi.
„Við verðum að vera
skynsamir gegn þessum
liðum. Það vita það allir
sem sjá leiki með
evrópskum liðum að þar er
ekki stólað á þriggja stiga
skotin líkt og gerist oft hér á
landi. Við vitum hvað þarf og
sýndum það í þessum leik.
Við höfum náð markmiðum
okkar til þessa í keppninni,
vinna heimaleikina. Næst
leikum við gegn Toulon frá
Frakklandi á heimavelli og
ég hef trú á liðinu. Það er
alveg hægt að vinna það
lið,“ sagði Falur og bætti því
við að í ferð liðsins til
Portúgals í desember, þar
sem leiknir yrðu tveir leikir,
væri hægt að „stela“ að
minnsta kosti einum sigri.
Keflavík á
mikilli siglingu
í Evrópu-
keppninni
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Nordal Hafsteinsson á fullri ferð í Evrópuleiknum.
EDÚARD Shevardnadze,
forseti Georgíu, var hrakinn
frá völdum um liðna helgi. Þá
ruddist fjöldi fólks inn í
þinghúsið í höfuðborginni
Tblisi. Shevardnadze þurfti að
forða sér út úr byggingunni.
Fjölmenn mótmæli höfðu
staðið yfir í landinu vikum
saman. Fólkið sagði stjórnina
spillta. Og stjórnin var sökuð
um svik í kosningum sem
fram höfðu farið. Herinn og
öryggisveitir sneru baki við
Shervardnadze. Hann segir
að Bandaríkjamenn hafi
staðið á bak við mótmælin.
Þeir hafi viljað koma honum
frá völdum.
Stjórnarandstaðan hefur
tekið völdin í landinu. Foringi
hennar er Míkhaíl Saakasvili.
Hann skipulagði mótmælin.
Ákveðið hefur verið að kosið
verði á ný 4. janúar á næsta
ári. Saakasvili ætlar að gefa
kost á sér í
forsetakosningunum. Hann
verður frambjóðandi
stjórnarandstöðunnar. Víst er
talið að hann sigri.
Bandaríkjamenn hafa sagt
að þeir styðji nýju stjórnina í
Georgíu. Sá stuðningur er
mikilvægur. Georgía er
fátækt land og efnahagurinn
slæmur. Landsmenn binda
vonir við hjálp frá
Bandaríkjunum.
REUTERS
Edúard Shevardnadze segir
Bandaríkjamenn hafa skipu-
lagt mótmælin sem kostuðu
hann embættið.
Ný stjórn
í Georgíu