Morgunblaðið - 30.11.2003, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 30.11.2003, Qupperneq 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/690 7361 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Lára Hallveig Lárusdóttir 436 6889/436 1291/848 1022 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Þeim er gjarnan lýst af utan-aðkomandi sem helvíti ájörðu, fátækrahverfunum í „guðsborginni“ Rio de Janeiro. Að ekkert því líkt fyrirfinnist, hvergi ríki önnur eins skálmöld, hvergi eins eld- fim blanda af örbirgð og glæpum. Þetta er týnda Brasilía, sú hlið á þessu stóra og fallega landi sem ferðamenn upplifa ekki. Sem er kannski engin furða, ekki á meðan innfæddir af öðrum þjóðfélagsstigum snúa líka bakinu við þessum hörm- ungum. „Brasilíska þjóðin er rækilega klof- in í þrjár stéttir. Hinir yfirlýstu og opinberu brasilíubúar – hinir hvítu – eru í efsta þrepinu og fulltrúar lands- ins út á við. Hin óskilgreinda milli- stétt kemur þar á eftir en þar fyrir neðan eru svo lægstu stéttirnar, týndu stéttirnar, sem enga rödd hafa.“ Skilgreining þessi á brasilísku þjóðinni er ekki fengin upp úr sænskri kennslubók í landafræði. Þetta eru orð Fernando Meirelles, liðlega fimmtugs kvikmyndagerð- armanns, leikstjóra myndarinnar Cidade de Deus eða Borg Guðs sem frumsýnd var hér á landi fyrir helgi. Orð sem hann mælti símleiðis við blaðamann Morgunblaðsins, norður yfir Atlantshafið, en hann var stadd- ur í heimaborg sinni, Sao Paulo. „Sjálfur tilheyri ég millistéttinni og þótt ég og mínir séum fullkomlega meðvitaðir um þetta ömurlega ástand sem stór hluti landa okkar þarf að lifa við þá óraði mig aldrei fyrir því að það væri nákvæmlega svo ömurlegt. Ekki fyrr en ég las bók Paulo Lins sem myndin er byggð á. Um leið og ég hafði lesið hana vissi ég að ég þyrfti að gera eftir henni kvikmynd. Ekki vegna áhuga míns á sögunni heldur einnig til að geta sýnt fleirum löndum mínum fram á hvað á sér stað, svo gott sem beint fyrir framan nefið á þeim.“ Umrædd bók er 700 síðna stílfærð- ar endurminningar manns sem sjálf- ur ólst upp í einu af fátækrahverfum Ríó og er því um að ræða lýsingar frá fyrstu hendi. Það segir millistétt- armaðurinn Meirelles hafa riðið baggamuninn, ráðið mestu um að hann hætti sér út í að fjalla um þenn- an heim sem hann sjálfur segist hafa þekkt svo lítið til. „Það skipti öllu máli að sagan skuli sögð frá fyrstu hendi.“ Vinsæl en umdeild Borg Guðs gerist á tímaskeiði er spannar eina tvo áratugi frá sjöunda áratugnum fram á níunda. Mið- punktur framvindunnar er drengur sem fyrir náð og miskunn listagyðj- unnar tekst að finna sér leið út af braut glæpa og glötunar. Ljósmynd- unin er hans ástríða og í gegnum lins- una fylgist hann með sínum nánustu vinum og kunningjum stráfalla hver af öðrum á vígvelli vímuefnanna, sal- ar, fíklar eða hvortveggja. „Myndin var harðlega gagnrýnd heima fyrir. Ekki hvað síst vegna þess að mörgum þótti óviðeigandi að dregin skyldi upp svo stíliseruð mynd af þetta myrkum veruleika. Ég var sakaður um að fegra ofbeldið, færa það í stílinn, jafnvel upphefja það. Þessi hvimleiða klisja sem eilíflega gerir vart við sig þegar höfundar of- beldisfullra en um leið raunsærra mynda hafa haft vit á að huga að list- rænu útliti.“ En þrátt fyrir að sæta þessari hörðu gagnrýni, hafa farið fyrir brjóstið á mörgum borgurum í siða- vandaðri kantinum sló myndin ræki- lega í gegn í Brasilíu. Segja má að hún hafi einnig farið sigurför um heiminn. Ekki eins og einhver Holly- wood-smellur, heldur hefur henni hvarvetna verið tekið ákaflega vel, verið sýnd á hverri kvikmyndahátíð- inni á fætur annarri og unnið þar til fjölda verðlauna. Auk þess hefur hún verið sýnd víðar en brasilískar myndir al- mennt, þ.m.t. hér á Ís- landi en það gerist sannarlega ekki oft að brasilísk mynd rati í al- mennar sýningar hér- lendis. Skýringin er einfaldlega sú að myndin hefur hlotið fá- dæma góðar viðtökur og gagnrýnendur keppast um að hlaða hana lofi. Þannig er hún með 80 stig af 100 mögulegum sam- kvæmt áætlun me- tacritic.com sem mælir viðhorf helstu gagn- rýnenda í Bandaríkj- unum. Á rottentom- atoes.com sem er sams konar vefur er hún með 92% af jákvæðum eða ferskum viðbrögðum gagnrýn- enda af 100% og á imdb.com þar sem notendum gefst kostur á að gefa kvikmyndum einkunn er hún með meðaltalið 8,6 í einkunn af 10, sem er 56. hæsta einkunnin. Snertir taugar fólks um allan heim Leikstjórinn hæverski segist eng- an veginn hafa búist við að myndin ætti eftir að fá þvílíkar viðtökur utan Brasilíu. Hélt hreinlega að viðfangs- efnið einskorðaðist of mikið við bras- ilískan veruleika og myndi ekki höfða til annarra. „En myndin virðist snerta taugar fólks mun víðar en lagt var upp með. Sem sýnir hversu mikinn áhuga og áhyggjur alþjóðasamfélagið, eða alla- vega hinn víðsýni og upplýsti hluti þess, hefur af vandamálum þriðja heimsins. Framtíð ungs fólks á að varða alla, hvar sem þeir eru nið- urkomnir í heiminum.“ Blaðamaður spyr Meirelles næst að því hvað hann vonast til að myndin skilji eftir í hugum íslenskra áhorf- enda. „Auðvitað vona ég að myndin sé upplýsandi og veki fólk til umhugs- unar um þær hörmungar sem fólk annars staðar í heiminum neyðist til að ganga í gegnum. En um leið er myndin listaverk og afþreying. Því má ekki gleyma. Það er því hverjum og einum í sjálfsvald sett hvernir þeir upplifa myndina og mér að meina- lausu ef einhverjir kjósa að sjá hana sem afþreyingu, reyfara, svo lengi sem hún veitir þeim einhverja ánægju. Síst af öllu var það meiningin að búa til eitthvert áróðursverk.“ Meirelles segist samt ekki enn bú- inn að átta sig á því hvað það sé við myndina sem gerir það að verkum að hún virðist hafa svo víða skírskotun. „Ætli frásagnarmátinn sé ekki frekar alþjóðlegur og mátulega nýtísku- legur. Persónurnar eru sterkar, að- gengilegar og leiknar af mikilli sann- færingu af þessum áhugamönnum sem ég var svo lánsamur að hafa upp á. Ég lagði einmitt svo mikið upp úr því að finna fremur amatöra en að þurfa að nota lærða leikara, sem þyrftu að leika sig niður í þessar lægri stéttir.“ Brasilískt bíó í blóma Eins og fyrr segir þá gerist það sárasjaldan að brasilísk mynd rati í íslenskt bíóhús. Samt er Borg Guðs önnur bras- ilíska myndin sem frum- sýnd er á þessu ári, því í haust var sýnd hér á kvikmyndahátíð nýjasta mynd Hectors Babenc- os, kunnasta leikstjóra Brasilíu, sem heitir Car- andiru. Meirelles segir þetta vissulega vísbend- ingu um betri tíð bras- ilískrar kvikmyndagerð- ar. Yfirvöld þar í landi hafi fyrir nokkrum árum ákveðið að styðja fram- vegis vel við bakið á kvikmyndagerð- armönnum með því að útdeila til þeirra 10% af skatttekjum ríkisins af kvikmyndasýningum. Við það hafi kippur komist í listgreinina sem þá var komin út í miklar ógöngur. Og nú síðustu árin hafi árangurinn orðið sýnilegur. „Fyrir nokkrum árum var verið að framleiða einar 6–7 myndir á ári í Brasilíu en nú skipta þær tugum og verða trúlega 60 í ár. Þessar tvær sem þið hafið fengið að sjá eru heldur ekkert endilega þær bestu skal ég segja þér. Svo er það hitt, sem er jafnvel enn jákvæðara að fyrir þrem- ur árum var hlutdeild brasilískra mynda 8% á innlendum bíómarkaði en nú í ár er það komið upp í 22%. Það er því mjög bjart fram undan hjá brasilískri kvikmyndagerð.“ Mereilles tekur undir með blaða- manni að þær brasilísku myndir sem náð hafa alheimshylli síðustu áratugi, Borg Guðs, Carandiru og hin tveggja áratuga gamla Pixote dragi upp mjög myrka mynd af þjóðinni. Það sé samt alveg dæmigert fyrir tilhneigingu vesturlandabúa, sem sækist miklu fremur í það neikvæða en jákvæða. „Fréttaflutningurinn er sönnun þess. Iðulega eru fremur fluttar fréttir af neikvæðum en jákvæðum viðburðum. Ég er með rómantíska gamanmynd í maganum sem mig langar að gera. Fróðlegt verður að sjá hvort hún komi til með að vekja sömu athygli og Borg Guðs.“ Mereilles hefur hins vegar hafist handa við gerð annars verkefnis sem er öllu alvarlegra eðlis. En það segir hann harða ádeilu á alþjóðavæð- inguna, verkefni sem hann segist kalla „Intolerance“. „Þar reyni ég að færa rök fyrir því að ástandið í „þriðja heiminum“ er undir „fyrsta heiminum“ komið. Ég tek hana í Mexíkó, Bandaríkjunum, Kína, Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum, Kenýa og Filippseyjum. Þetta er stórt verkefni.“ Brasilískar kvikmyndir rekur sárasjaldan á íslenska fjöru en þegar það gerist eru ástæður alveg sérstakar. Ástæða Borgar Guðs er einföld, þar fer einhver rómaðasta kvikmynd síðari ára. „Það fer fram úr mínum björtustu vonum að hún skuli sýnd í löndum eins og Íslandi,“ segir leikstjórinn Fernando Meirelles í samtali við Skarphéðin Guðmundsson. Linsan í stað byssuhlaups: Busca-Pé, sögumaðurinn í Borg Guðs. Borg Guðs á heljarþröm Þeir reyna hvað þeir geta að lifa sínu lífi unglingarnir í frumskóginum. Sýningar á Borg Guðs eru hafnar í Háskólabíói. skarpi@mbl.is Fernando Meirelles á að baki tvær aðrar myndir í fullri lengd en hefur lengu unnið við gerð auglýsinga og tónlistar- myndbanda í heima- landinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.