Morgunblaðið - 02.12.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 327. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tónlistin
í blóðinu
Semur mest sjálf en fær líka
aðstoð pabba síns | Fólk
Sigurvilji
hjá Chelsea
Leikmennirnir vilja afreka meira
en þeir hafa áður gert | Íþróttir
Reisubók
vakti áhugann
Segir frá afdrifum fólks sem flutt
var suður í Barbaríið | Bækur
alhitinn á sama tíma og var frávikið
mest í apríl, 3,35°C, en minnst í maí,
0,02°C.
Trausti segir að þar sem desem-
ber í fyrra hafi verið afskaplega
hlýr sé ólíklegt að árið í heild verði
jafn hlýtt og síðustu tólf mánuðir
hafa verið en meðaltalshitinn á því
tímabili var 6,41°C. Hins vegar hafi
hann haldið því fram að júní í ár
gæti ekki orðið hlýrri en júní í fyrra
en annað hafi komið á daginn og
því sé best að bíða með alla spá-
dóma þar til árið sé liðið.
„Þetta er tilviljunarkennt með
smáhjálp frá auknum gróðurhúsa-
áhrifum,“ segir Trausti spurður um
ástæður hlýindanna. „En er á með-
an er,“ segir hann.
FYRSTU ellefu mánuðir ársins eru
þeir hlýjustu sem mælst hafa frá
því að samfelldar mælingar hófust í
Reykjavík 1871, að sögn Trausta
Jónssonar, veðurfræðings á Veð-
urstofu Íslands.
Meðalhiti í nóvember var 2,69°C
og er það um 1,6°C yfir meðallagi
áranna 1961–1990. Meðalhiti ellefu
fyrstu mánuði ársins í Reykjavík
var 6,58°C. Í fyrra var meðalhiti
sömu mánuði 5,47°C, 5,40°C árið
2001 og 4,93°C árið 2000. Árið 1871
var meðalhitinn 3,96°C, 3,49°C árið
1874 og 3,14°C árið 1892 svo dæmi
séu tekin. Í janúar sem leið var
meðalhitinn 1,48°C sem er 2,05°C
fyrir ofan meðallag. Hver einasti
mánuður ársins var hlýrri en með-
!"
#
$
%
$
&'
( ) * ( ( + , - . /
%
0
1
$
&'
Hlýjasta ár frá því
mælingar hófust
RÚSSNESKI auðjöfurinn Roman Abramo-
vítsj, eigandi enska knattspyrnufélagsins
Chelsea, hefur verið sakaður um að ganga er-
inda Moskvustjórnarinnar en fyrir helgi hætti
hann skyndilega við fyrir-
hugaða sameiningu olíufé-
laganna Sibnefts og Yukos.
Með sameiningu Sibnefts,
olíufélags Abramovítsj, og
Yukos hefði orðið til fjórða
stærsta olíufélag í heimi en
Míkhaíl Khodorkovskí, aðal-
eigandi síðarnefnda félags-
ins, er nú á bak við lás og
slá og er mikil óvissa um
framtíð fyrirtækisins.
Dagblöð í Moskvu segja, að Abramovítsj
hafi reynt að neyða hluthafa í Yukos til að af-
henda sér öll ráð í félaginu en þegar það hafi
ekki gengið hafi hann hætt við sameininguna.
Geta blöðin sér til, að þetta hafi Abramovítsj
gert að skipan Vladímír Pútíns, forseta Rúss-
lands, en þeir Abramovítsj áttu nýlega með sér
fund.
„Það er mjög líklegt, að Yukos komist með
einum eða öðrum hætti undir stjórn Abramo-
vítsj,“ sagði viðskiptablaðið Vedomostí en
ónefndur, rússneskur embættismaður hrósaði
Abramovítsj fyrir ákvörðunina. Hann hefur þó
oft verið harðlega gagnrýndur fyrir að dæla
stórfé í Chelsea í stað þess að nota það í Rúss-
landi.
Fer Yukos
til Chelsea-
eigandans?
Moskvu. AFP.
Abramovítsj
ÞAÐ eru engar ýkjur að þúsundir snjótittlinga
hafi síðustu daga verið á flögri í kringum kart-
öflugarða við bæina Helgustaði og Ósabakka á
Skeiðum, en eins og fram kom í Morgunblað-
inu á sunnudag hafa bændur á bæjunum aldrei
séð þvílíka fuglamergð.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur seg-
ist aldrei hafa séð eins stóran hóp af snjótitt-
lingum. Hann giskar á að þarna séu 3.000–
5.000 fuglar. Algengt sé að snjótittlingar séu
„Fuglarnir hafa greinilega nóg að éta, en
þeir koma sér eitthvað annað þegar þeir eru
búnir með þennan kornakur,“ sagði Jóhann
Óli. Hann sagði að það væri ekki bara veislu-
borð hjá snjótittlingunum því að smyrill hefði
nýtt tækifærið.
Vetrarstofn snjótittlinga er álitinn vera á
milli 100.000 og 300.000 fuglar, en það veit það
í raun enginn með vissu. Varpstofninn er talinn
vera milli 50.000 og 100.000 pör.
nokkrir tugir saman og hann segist stundum
hafa séð um 300 fugla í hóp í Stokkseyrarfjöru,
en hópurinn á Skeiðum sé engu líkur.
Ástæðan fyrir því að snjótittlingarnir hópast
að Helgustöðum og Ósabakka er að bændur
þar settu niður bygg í kartöflugarðana til að
viðhafa skiptirækt og bæta jarðveginn. Bygg-
inu var seint sáð og var ákveðið að láta það
liggja. Kornið er töluvert þroskað og því kjarn-
góð fæða fyrir fuglana.
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Aldrei séð annað eins af snjótittlingum
„FÓLKIÐ styður það en það eru
leiðtogarnir, sem standa í veginum
fyrir friði,“ sagði Jimmy Carter,
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
er hann fagnaði í gær Genfarfrum-
kvæðinu, nýrri áætlun um frið í
Mið-Austurlöndum, sem einu
raunhæfu leiðinni. Að þessari óop-
inberu áætlun standa stjórnmála-
og menntamenn í Ísrael og Palest-
ínu en margir kunnir menn í Evr-
ópu og Bandaríkjunum hafa lýst
yfir stuðningi við hana.
„Það er líklegt, að þetta sé eini
raunhæfi kosturinn á friði. Hinn er
aðeins áframhaldandi ofbeldi,“
sagði Carter en um 700 manns
víðs vegar að voru viðstaddir at-
höfnina, sem bandaríski kvik-
myndaleikarinn Richard Dreyfuss
stýrði.
Áætlunin gerir ráð fyrir, að
stofnað verði palestínskt ríki á
97,5% Vesturbakkans og á Gaza og
að sameiginleg stjórn verði í Jerú-
salem. Palestínskir flóttamenn, 3,8
millj., skulu setjast að í þessu nýja
ríki en ekki í Ísrael.
58 fyrrverandi þjóðarleiðtogar
lýstu í gær yfir stuðningi við áætl-
unina í auglýsingu í International
Herald Tribune og Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, og Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hafa sent aðstandendum
hennar hvatningarorð. Williams
Burns, sérlegur sendimaður
Bandaríkjastjórnar í Mið-Austur-
löndum, fagnaði áætluninni í gær
án þess þó að lýsa yfir beinum
stuðningi við hana.
Harðlínumenn
mótmæla
Palestínska heimastjórnin hefur
hingað til verið mjög hálfvolg í af-
stöðu sinni til Genfarfrumkvæðis-
ins en Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, hefur lýst því sem
„hættulegu“ fyrir hagsmuni Ísr-
aelsríkis. Skipaði hann fyrir um
aðgerðir Ísraelshers í Ramallah á
Vesturbakkanum þar sem fjórir
Palestínumenn voru skotnir í gær,
þar á meðal níu ára gamall dreng-
ur.
Aðstandendur friðaráætlunar-
innar vonast til, að almenningur í
Ísrael og Palestínu snúist á sveif
með þeim en mikil andstaða er við
hana meðal harðlínumanna. Efndu
þeir til mótmæla á báðum stöð-
unum í gær.
„Eini raunhæfi
kosturinn á friði“
Óopinber áætlun um frið í Mið-Austurlöndum kynnt í Genf
Genf. AP, AFP.
Reuters
LIÐSMENN í Heilögu stríði, einum
samtökum herskárra Palest-
ínumanna, dubbuðu í gær upp leik-
skólabörn á Gaza í mótmælum gegn
Genfarfrumkvæðinu og í Ísrael
komu harðlínumenn einnig saman
til að mótmæla því.
Börn í mótmælum