Morgunblaðið - 02.12.2003, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.12.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÓLAFUR Ingi Skúlason verður í 16-manna hópi Arsenal í kvöld þegar liðið fær Jóhannes Karl Guðjónsson og félaga hans í Wolves í heimsókn á Highbury í 4. umferð ensku deildabikarkeppn- innar í knattspyrnu. „Ég verð á bekknum en þar sem ég verð lík- lega eini varnar- og miðjumaðurinn á meðal varamannanna gæti ég dottið inn ef eitthvað bjátar á. Ég held allavega í vonina,“ sagði Ólafur Ingi við Morgunblaðið í gær. Ólafur var í fyrsta sinn í leikmannahópi að- alliðs Arsenal þegar liðið sló út Rotherham í þriðju umferð keppninnar í vítaspyrnukeppni en hann kom ekkert við sögu í leiknum. Ólafur sagði að fyrirliðinn Patrick Vieira yrði í liði Arsenal á móti Úlfunum og eins Sylvain Wilt- ord, en báðir eru þeir að stíga upp úr meiðslum. Ólafur Ingi í leikmannahópi Arsenal Morgunblaðið/Golli Ólafur Ingi Skúlason GYLFI Einarsson, sem er á mála hjá norska fé- laginu Lilleström og á eitt ár eftir af samningi sínum við norska liðið, er kominn til reynslu hjá enska 1. deildarliðinu Stoke City. John Rudge, yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke, segir á fréttavef Sky Sports að Gylfi verði hjá Stoke í tíu daga en enginn íslenskur leikmaður hefur verið í herbúðum Stoke, sem er í meirihlutaeigu Íslendinga, frá því Pétur Hafliði Marteinsson yfirgaf liðið í haust. Gylfi, sem 25 ára gamall miðjumaður, hefur leikið með Lilleström í norsku úrvalsdeildinni síðustu þrjú árin en hann var í íslenska landslið- inu sem gerði markalaust jafntefli við Mexíkó í San Francisco á dögunum – lék þá sinn 9. lands- leik. Lilleström er eins og mörg norsk félög í mikl- um fjárhagskröggum og komi tilboð frá Stoke í Gylfa er ekki ósennilegt að því verði tekið. Gylfi kominn til Stoke KÖRFUKNATTLEIKUR Grindavík – Keflavík 92:90 Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport- deildin, mánudagur 1. desember 2003. Gangur leiksins: 10:2, 15:10, 23:13, 35:15, 46:30, 52:34, 63:46, 70:46, 74:60, 82:72, 89:88, 92:90. Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 36, Páll Axel Vilbergsson 23, Dan Trammel 18, Helgi Jónas Guðfinnsson 10, Jóhann Ólafs- son 3, Guðmundur Bragason 2. Fráköst: 28 í vörn - 20 í sókn. Stig Keflavíkur: Derrick Allen 28, Falur Harðarson 21, Gunnar Stefánsson 17, Gunnar Einarsson 7, Nick Bradford 6, Halldór Halldórsson 5, Jón N. Hafsteins- son 5, Magnús Gunnarsson 1. Fráköst: 19 í vörn – 19 í sókn. Villur: Grindavík 16, Keflavík 20. Dómarar: Leifur Garðarsson og Sigmund- ur Már Herbertsson. Áhorfendur: Um 400. Staðan: Grindavík 8 8 0 706:656 16 Njarðvík 8 6 2 735:675 12 Snæfell 8 6 2 664:608 12 Keflavík 8 5 3 785:697 10 KR 8 5 3 757:698 10 Hamar 8 5 3 652:670 10 Haukar 8 4 4 641:670 8 Tindastóll 8 3 5 761:735 6 KFÍ 8 2 6 742:809 4 Þór Þorl. 8 2 6 729:804 4 Breiðablik 8 1 7 658:721 2 ÍR 8 1 7 661:748 2 Bikarkeppni KKÍ 32-liða úrslit Bikarkeppni KKÍ og Lýsing- ar: ÍS – ÍR ................................................... 73:99 BLAK Bikarkeppni kvenna: Stjarnan – Afturelding............................. 0:3 (15:25, 18:25, 21:25) KNATTSPYRNA HM U20 ára A-riðill: Burkina Faso - Slóvakía .......................... 1:0 Panama - Sameinuðu furstadæmin ........ 1:2  Burkina Faso 6 stig, Slóvakía 3, Samein- uðu furstadæmin 3, Panama 0. B-riðill: Malí - Spánn.............................................. 0:2 Úsbekistan - Argentína ........................... 1:2  Argentína 6 stig, Spánn 3, Malí 3, Úsbek- istan 0. C-riðill: Ástralía - Kanada ..................................... 2:1 Tékkland - Brasilía................................... 1:1  Brasilía 4 stig, Ástralía 4, Tékkland 2, Kanada 0. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni karla, SS-bikarinn, 8-liða úr- slit: Fylkishöll: Fylkir - KA .........................19.15 Víkin: Víkingur - Afturelding....................20  Á morgun leika Fram - HK og Valur - ÍBV. KÖRFUKNATTLEIKUR Fyrirtækjakeppni KKÍ, Hópbílabikar kvenna, undanúrslit: DHL-höllin: KR - Grindavík ................19.15 Í KVÖLD Úrslitin standa ÚRSLIT leiks kvennaliðs Íslands og Ítalíu í undankeppni EM í handknattleik skulu standa, 29:28. Dómstóll EHF úrskurðaði í kæru Ítala vegna þessa leiks um helgina og niðurstaðan er að eins marks sigur Íslands skal standa. Ítalir hafa þrjá sólarhringa til að áfrýja þessari niðurstöðu dómstólsins. LOGI Gunnarsson, landsliðs- maður í körfuknattleik, fór úr axlarlið á nýjan leik þegar lið hans, Giessen, tapaði fyrir Karlsruhe, 82:76, í fram- lengdum leik í þýsku 1. deild- inni í körfuknattleik um helgina. Þetta var fyrsti leik- ur Loga eftir nokkurt hlé vegna sams konar meiðsla. Útlit er fyrir að hann verið frá keppni fram yfir áramót- in. Samkvæmt frásögn á heimasíðu Giessen átti atvikið sér stað í upphafi framleng- ingarinnar. Logi hafði leikið í 35 mínútur sem leikstjórn- andi og skorað 4 stig. Meiðsli Loga eru sérlega slæm fyrir lið Giessen því þeir sem venjulega leika sem leik- stjórnendur hjá liðinu eru meiddir. Giessen náði aðeins að skora þrjú stig í framleng- ingunni en staðan eftir venju- legan leiktíma var 73:73. Giessen er í 15. og næst- neðsta sæti 1. deildar með 4 stig eftir 8 umferðir, jafn- mörg og Köln og Trier sem eru í sætunum á undan og eftir. Neðri hluti deildarinnar er hnífjafn og Giessen þyrfti aðeins tvo sigra til að komast upp í miðja deild. Logi fór úr axlarlið á ný Heimamenn byrjuðu með látumog eftir 4 mínútur tóku gest- irnir leikhlé enda staðan 13:2 og ekk- ert að ganga hjá þeim. Lítið skánaði leikur gestanna en þeim virtist fyrir- munað að hitta fyrir utan þau stig sem Derrick Allen setti undir körfunni en hann skoraði átta af þessum 13 stigum Keflavíkur, standandi undir körfunni. Að loknum fyrsta leikhluta leiddu heimamenn örugglega 23:13 en skotin duttu ekk- ert frekar hjá Keflavíkurliðinu í öðr- um leikhluta. Dan Trammel í liði heimamanna tók góða rispu í öðrum leikhluta og setti niður 14 stig í þeim leikhluta og mörg hver með miklum látum þegar hann tróð. Grindvíking- ar fóru því keikir til búningsher- bergja í hálfleik með örugga forustu 52:34 og lítið í spilunum að sú staða myndi breytast. Heimamenn byrjuðu seinni hálf- leik með sömu látum og þeir höfðu spilað fyrri hálfleik og þegar 6 og hálf mínúta var liðin af þriðja leik- hluta var staðan orðin 70:46 og Keflavíkurliðið enn út á túni. Nú kom fín rispa hjá gestunum en heima- menn slökuðu greinilega á klónni. Gestirnir héldu uppteknum hætti í síðasta leikhluta og nú hrökk Falur Harðarson í gang hjá þeim. Hann fór að setja niður þriggja stiga skot í gríð og erg. Heimamenn virtust vera hættir að sækja og taugatitringur gerði vart við sig enda Keflavíkurlið- ið loksins að hitta úr skotum sínum. Þegar 25 sekúndur voru til loka leiks jöfnuðu gestirnir 90:90 og leikur sem ekkert var spennandi var orðin há- spennuleikur. Grindvíkingar fóru í sókn og brotið var á Darrel Lewis þegar 7,6 sekúndur voru eftir og Keflvíkingar tóku leikhlé. Darrel Lewis setti niður bæði vítaskotin og Keflavík fór upp völlinn en Grindvík- ingar brutu kænlega á gestunum sem nú höfðu bara 3 sekúndur til að ná skoti. Falur Harðarson gerði sig líklegan en náði ekki að skjóta og heimamenn fögnuðu sigri 92:90. Bestur í liði gestanna var Gunnar Stefánsson en aðrir voru langt frá sínu besta. Hjá Grindvíkingum spil- aði liðið frábæran leik lengstum en í annars jafngóðu liði stóð Darrel Lewis upp úr. „Það er óafsakanlegt að koma með þessu hugarfari til leiks. Við vorum bara með falskt öryggi gegn efsta liðinu í deildinni eftir gott gengi í Evrópukeppninni og það gengur ekki. Við vorum þó nálægt því að stela þessu hérna í lokin en þeir brutu á okkur þannig að tíminn sem við höfðum var einungis 3 sekúndur til að ná skoti og það var ekki nóg í þetta skiptið. Hvort að svo boltinn hefði farið ofan í er svo annað mál,“ sagði Falur Harðarson, annar af þjálfurum Keflavíkur. „Þetta var risaslagur og ég held að allir hafi séð það hér í kvöld að við mættum tilbúnir til leiks og gríðar- lega vel stemmdir. Forysta upp á 20 stig skiptir engu máli þegar svona góð lið eiga í hlut. Það var eins og við hættum að sækja á tímabili. Liðin skora oft í kippum í þessum leikjum en stemningin var komin yfir til þeirra þegar þeir voru að sækja að okkur í lokin. Mestu skiptir þó að vinna leikinn. Ég er stoltur af leik- mönnum mínum og þá sérstaklega hvernig við byrjuðum. Lengstum var þetta góður leikur hjá okkur og sér- staklega 5:5 vörnin,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvík- inga. GRINDVÍKINGAR eru enn ósigr- aðir og tróna á toppi úrvals- deildarinnar í körfuknattleik eftir að hafa lagt lið Keflavíkur með minnsta mun 92:90. Heimamenn náðu mest 24 stiga forystu í síðari hálfleik en engu munaði að gestirnir næðu að knýja fram sigur undir lokin. Grindvíkingar eru nú komnir með fjögurra stiga forystu í deildinni, eru með 16 stig eftir átta umferðir og standa mjög vel að vígi. Morgunblaðið/Jim Smart Grindvíkingurinn Jóhann Ólafsson geysist í áttina að körfu Keflvíkinga en til varnar er Nick Bradford. Garðar Vignisson skrifar Grindavík með örugga forystu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.