Morgunblaðið - 02.12.2003, Síða 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ítölsk undirföt
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3
Í FIMM af sex síðustu mánaðar-
skýrslum Íbúðalánasjóðs er fjallað
um hugmyndir um hækkun láns-
hlutfalls húsbréfalána sjóðsins í 90%
og hækkun há-
markslána. Guð-
mundur Bjarna-
son, forstjóri
Íbúðalánasjóðs,
segir aðspurður
að sjóðurinn
verði ekki flokk-
aður sem hags-
munaaðili í þess-
um efnum, heldur
sé sjóðurinn að-
eins að vinna það
verkefni sem stjórnvöld setji honum
fyrir hverju sinni.
Í októberskýrslu sjóðsins segir
meðal annars að áhrif 90% lána á
fasteignaverð séu óveruleg til lengri
tíma litið. Í septemberskýrslu sjóðs-
ins segir að mikill meirihluti al-
mennings sé sammála 90% lánum
og í ágústskýrslunni að hámarkslán
sjóðsins ættu minnst að vera 13,5–
17,5 milljónir ef miðað væri við há-
markslán við upptöku húsbréfakerf-
isins og að fasteignaverð fylgi
launaþróun ekki þróun hámarkslána
Íbúðalánasjóðs. Í júlískýrslunni seg-
ir að þriðjungur útlána Íbúðalána-
sjóðs séu nú þegar 90% lán. Engin
umfjöllun um þetta efni er í júní-
skýrslunni en í maískýrslunni er
fjallað um hugmyndir Árna Magn-
ússonar um 90% lán og gagnrýni
þess efnis að kerfið muni valda verð-
hækkunum á húsnæði svarað á þann
veg að húsnæðislán séu fjárfesting-
arlán en ekki neyslulán.
Ekki flokkaður
sem hagsmunaaðili
Aðspurður hvort Íbúðalánasjóður
eigi einhverra hagsmuna að gæta
hvað varði hækkun lánshlutfalls
sjóðsins í 90% sagðist Guðmundur
Bjarnason ekki telja að Íbúðalána-
sjóður sem slíkur yrði flokkaður
sem hagsmunaaðili í þeim efnum.
„Ég held að Íbúðalánasjóður sem
slíkur verði ekki flokkaður sem
hagsmunaaðili í því. Við erum nátt-
úrlega bara að vinna það verkefni
sem stjórnvöld setja okkur fyrir
hverju sinni og ákvörðun um þetta
er alfarið pólitísk,“ sagði Guðmund-
ur.
Hann sagði að hitt væri annað
mál að hann teldi það afar auðvelt
mál fyrir Íbúðalánasjóð að taka
þetta verkefni að sér. Þeir væru nú
þegar að lána þriðjungi lántakenda
90% lán, þ.e.a.s. þeim sem hefðu rétt
til að taka viðbótarlán, og það myndi
einfalda kerfið hjá Íbúðalánasjóði að
þetta væru einsleit lán og ekki
þyrfti að flokka þetta í húsbréfalán
og viðbótarlán. Það yrði bara til
hagræðingar og hægðarauka í kerf-
inu.
„Ég hef líka leyft mér að fullyrða
það að þótt þetta færi í 90% lán þá
myndi það ekki auka mikið umsvif
sjóðsins rekstrarlega séð í mann-
skap og verkefnum, því það skiptir í
sjálfu sér ekki miklu máli hvort við
lánum hér átta milljóna króna lán
eða 18 milljóna króna lán,“ sagði
Guðmundur.
Aðspurður hvort ekki væri gert
ráð fyrir auknum vaxtamun og
tekjum Íbúðalánasjóðs ef lánshlut-
fallið hækkaði sagði Guðmundur að
það væri engin ákvörðun um það. Sá
aukni vaxtamunur kæmi fyrst og
fremst til ef niðurstaðan yrði sú að
auka þyrfti afskriftarsjóð vegna
þess að 90% lánin væru áhættusam-
ari, en það væri alls ekki reynslan af
viðbótarlánunum.
Guðmundur bætti við að það væri
ekkert ólíklegt að það þyrfti eitt-
hvað að hækka vaxtamuninn, en
minnti jafnframt á að vaxtamunur
Íbúðalánasjóðs væri 0,35% „en ekki
3,5% eða ég veit ekki hvað eins og
hann er sums staðar annars staðar í
sumum öðrum ónefndum stofnun-
um,“ sagði Guðmundur.
Lántökugjaldið lægra
Hann benti jafnframt á að lán-
tökugjald Íbúðalánasjóðs væri
lægra en annars staðar. Það væri
1% og reyndar ekki nema hálft pró-
sent af viðbótarlánunum.
Aðspurður hvort Íbúðalánasjóður
ætti að hafa skoðun í þessum efnum
sagði Guðmundur að hann hefði
sagt við sína starfsmenn að þeir
ættu að reyna að vera í þessu mál-
efnalega og skýra frá staðreyndum.
„Við eigum ekki að leggja hina póli-
tísku línu, hún á að koma úr ráðu-
neytinu. Það er auðvitað rétt sem þú
ert að velta upp og ég get tekið und-
ir að við eigum að gæta okkar í því.
Við eigum bara að segja staðreynd-
irnar og við erum bara að benda á
það í umræðunni sem hefur dunið
ég segi kannski ekki á sjóðnum, en
hún hefur verið dálítið einlit,“ sagði
Guðmundur einnig.
Félagsmálaráðherra, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og fjár-
málaráðherra tilkynntu fyrir helgi
að þeir hefðu komist að þeirri nið-
urstöðu að hækkun lánshlutfalls al-
mennra íbúðalána í 90% af verði
hóflegrar íbúðar verði gerð innan
vébanda Íbúðalánasjóðs. Stjórnvöld
hafa tilkynnt fyrirhugaðar breyting-
ar á hækkun lánshlutfallsins til Eft-
irlitsstofnunar EFTA en ekki liggur
fyrir ákvörðun um hver hámarks-
fjárhæð lána verður.
Niðurstaða ráðherranna byggist á
vinnu ráðgjafarhóps félagsmála-
ráðuneytisins, fjármálaráðuneytis-
ins og viðskiptaráðuneytisins, sem
félagsmálaráðherra skipaði til að
vinna úr tillögum um útfærslu á
framtíðarskipulagi húsnæðismála
með hliðsjón af stefnu stjórnarinnar
að koma á 90% húsnæðislánum.
Fjallað er um 90% lán í 5 af 6 síðustu
mánaðarskýrslum Íbúðalánasjóðs
„Eigum bara
að segja
staðreyndir“
Í mánaðarskýrslum Íbúðalánasjóðs að undanförnu
hefur mikið verið fjallað um hækkun lánshlutfalls
húsbréfalána í 90%. Hjálmar Jónsson blaðaði í
gegnum skýrslurnar og ræddi við Guðmund
Bjarnason, forstjóra Íbúðalánasjóðs.
hjalmar@mbl.is
Guðmundur
Bjarnason
KATLA Þorsteinsdóttir, ráðgjafi hjá
Alþjóðahúsi, segir lagafrumvarp
sænsku stjórnarinnar um að fórnar-
lömb mansals fái dvalarleyfi vera já-
kvætt í alla staði. Frumvarpið felur í
sér að fórnarlömb mansals og smygls
á fólki fái dvalarleyfi í Svíþjóð ef þau
vitna fyrir rétti gegn þeim sem
standa á bak við hina ólöglegu fólks-
flutninga en Katla segir að að hér á
landi séu engin lög sem tryggja fólki
sem selt er mansali dvalarleyfi.
„Fyrir ári síðan var ég á ráðstefnu
um mansal þar sem þetta var m.a.
kynnt. Ég held að þetta sé jákvætt að
öllu leyti. Svo ég tali nú ekki um í
þágu rannsóknar málsins því að það
getur tekið tíma að rannsaka svona
mál og þá er mikilvægt að vitnin séu í
landinu.“
Rúna Jónsdóttir, starfskona Stíga-
móta, segir lagafrumvarp Svía vera
skref í rétta átt en að hún vilji hins
vegar ganga mun lengra. „Það er
verið að innleiða vitnavernd alls stað-
ar í Evrópu til þess að það sé mögu-
legt að fólk vitni gegn þessum glæpa-
samtökum. Eftir að ég áttaði mig á
því að vændi og mansal er kynferðis-
ofbeldi þá finnst mér að við ættum að
mæta fórnarlömbum þess eins og
fólki sem mannréttindi hafa verið
brotin á.“
Rúna bendir á að hér á landi eigi
konur sem hefur verið nauðgað rétt á
alls konar þjónustu, s.s. læknisþjón-
ustu, lögfræðiaðstoð og sálfræðiað-
stoð, burt séð frá því hvort þær kæra
eða ekki. „Við gerum ekki þá kröfu til
þeirra að þær segi frá hver beitti þær
ofbeldinu. Ég held að þetta sé hin
rétta lausn gagnvart fórnarlömbum
mansals. Þær konur sem eiga í hlut
eru dauðhræddar um líf sitt. Jafnvel
þó þeim sé boðin vitnavernd er það
ekki nóg heldur þurufm við að byrja á
fórnarlambavernd. Ég held að þegar
konur skilja það að þær eiga rétt á
hjálp sjálfra sín vegna, ekki bara
vegna þess að við ætlum að ná smygl-
urunum, þá sé miklu auðveldara að fá
þær til að vitna,“ segir Rúna.
Lagafrumvarp um
skilyrðislausa vitnavernd
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri grænna, ætlar að leggja
lagafrumvarp fyrir Alþingi eftir helgi
sem er í anda hugmynda Rúnu Jóns-
dóttur og felur í sér að fórnarlömb
mansals fái fórnarlamba- og vitna-
vernd. „Það sem er fólgið í því er það
að íslensk stjórnvöld veiti þessum
konum sem gefa sig fram og eru fórn-
arlömb þessara glæpahringa dvalar-
leyfi og alla þá aðstoð sem þær
þurfa,“ segir Kolbrún og vísar til þess
að þær fái lagalega, læknisfræðilega
og félagsfræðilega aðstoð óháð því
hvort þær vilji bera vitni gegn glæpa-
mönnunum. „Hins vegar njóta þær
líka vitnaverndar en það er ekki sett
sem skilyrði fyrir verndinni að þær
beri vitni.“ Kolbrún bendir jafnframt
á að það þurfi mikið til að konur sem
hafa verið seldar mansali gefi sig
fram við stjórnvöld. „Ítalir hafa sett
lög með skilyrðislausri fórnarlamba-
vernd. Evrópusambandið hefur lýst
því yfir að þessar konur skuli fá
vernd í löndum sambandsins en þar
er það reyndar háð því að þær vitni
gegn glæpamönnunum. Ég vil ganga
aðeins lengra en það,“ segir Kolbrún.
Má ekki bjóða upp á misnotkun
Sólveig Pétursdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi
dómsmálaráðherra, segir mikilvægt
að hafa í huga að lagaheimildir sem
þessar bjóði ekki upp á misnotkun.
„Mér finnst sjálfsagt að skoða þetta
mál og líst vel á þetta, sérstaklega ef
slík lagabreyting myndi þjóna þeim
tilgangi sem talað er um, það er að
segja að hafa upp á skipuleggjendum
mansals og smygls á fólki og þá sér-
taklega á konum og ungum stúlkum
sem eru hnepptar í kynlífsþrældóm,“
segir hún.
Sólveig segir engar beinar heim-
ildir vera lögum hér á landi um þessi
mál en að umræðan um vitnavernd
og fleiri sambærileg mál hafi verið í
gangi á Norðurlöndunum undanfarin
ár og verið tekin upp á fundum nor-
rænna dómsmálaráðherra. „Sem
fyrrverandi dómsmálaráðherra tók
ég þátt í slíkum fundum. Það er mat
norrænu ríkjanna að nauðsynlegt sé
að grípa til ýmissa aðgerða á þessu
sviði, m.a. til að tryggja öryggi vitna í
alvarlegum glæpamálum,“ segir Sól-
veig og bætir við að öll ríkin hafi grip-
ið til aðgerða og þá einkum laga-
breytinga til að treysta réttarstöðu
vitna. „Fulltrúar Norðurlandanna
hafa rætt saman í vinnunefnd sér-
fræðinga úr ráðuneytum og frá lög-
reglu um að setja á laggirnar sér-
stakt vitnaverndarprógramm sem
gæti komið að notum í málum að
þessu tagi,“ segir Sólveig.
Hugmyndir um að fórnarlömb mansals fái dvalarleyfi
Mikilvægt í þágu
rannsóknar málsins
KRISTNIHÁTÍÐARSJÓÐUR út-
hlutaði við athöfn í Þjóðmenning-
arhúsi í gær 94 milljónum króna til 66
verkefna sem tengjast menningar-
og trúararfi þjóðarinnar og fornleifa-
rannsóknum. Kristnihátíðarsjóður
var stofnaður til að minnast þess að
1000 ár eru liðin frá því að kristinn
siður var lögtekinn á Íslandi.
Hlutverk sjóðsins er tvíþætt: Að
efla fræðslu og rannsóknir á menn-
ingar- og trúararfi þjóðarinnar og
stuðla að umræðum um lífsgildi
hennar, siðferði og framtíðarsýn; – að
kosta fornleifarannsóknir á helstu
sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þing-
völlum, í Skálholti og á Hólum í
Hjaltadal.
Starfstími sjóðsins er til ársloka
2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til
100 milljónir kr. fyrir hvert starfsár.
Verulegur hluti þeirra verkefna sem
hlutu styrk í ár fékk úthlutað í fyrra,
enda uppfylltu þau kröfur um fram-
vindu og árangur.
Réttlæti og ást fékk
hæsta styrkinn
Stjórn Kristnihátíðarsjóðs hefur,
að tillögu verkefnisstjórnar, sam-
þykkt að hæstu styrkina hljóta Sól-
veig Anna Bóasdóttir, Rannsókn-
arstofu í kvennafræðum, 1,6 millj.
kr., fyrir verkefnið Réttlæti og ást og
Þórunn Valdimarsdóttir, 1,6 millj.
kr., fyrir verkefnið Saga Matthíasar
Jochumssonar.
Sjóðurinn veitir styrki til fornleifa-
rannsókna, auk kynningar á nið-
urstöðum þeirra. Stjórn kristnihátíð-
arsjóðs hefur samþykkt að níu
umsækjendum verði veittur styrkur
samtals að upphæð 51,7 milljónir kr.
Rannsóknir á sviði fornleifafræði
munu fara fram á Þingvöllum, á Hól-
um í Hjaltadal, í Skálholti, á Kirkju-
bæjarklaustri, á Skriðuklaustri, í
Reykholti og á Gásum í Eyjafirði.
Auk þess er veittur styrkur til rann-
sóknar á kumlum á Íslandi, en mark-
mið þeirrar rannsóknar er að varpa
ljósi á hvaða vitnisburð þau geyma
um samfélag og byggð á 9. og 10. öld.
Uppgröfturinn á fornum gröfum í
Keldudal í Hegranesi fær einnig
styrk.
Hæsti styrkurinn, 11 milljónir kr.,
fer til fornleifarannsóknar á Hólum í
Hjaltadal.
Morgunblaðið/Kristinn
Uppgröftur fornra bæjarhúsa að Hólum í Hjaltadal síðastliðið sumar.
Kristnihátíðarsjóður
úthlutar 94 milljónum
TENGLAR
..............................................
www.post@for.stjr.is