Morgunblaðið - 02.12.2003, Page 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 19
Höfuðborgarsvæðið | Bæjarstjór-
ar Mosfellsbæjar og Garðabæjar
útiloka ekki að fyrirtækið Atlants-
olía geti fengið lóð undir bensín-
stöð í bæjarfélögunum. Guðmund-
ur Kjærnested, annar aðaleigandi
og stofnandi Atlantsolíu, sagði í
Morgunblaðinu á sunnudag að
bæjarfélögin hefðu hafnað erind-
um sínum um úthlutun lóðar, fyrir
utan Hafnarfjörð sem hefði orðið
við beiðni þeirra að hluta. Þórólfur
Árnason borgarstjóri sagði í Morg-
unblaðinu í gær að erfitt væri að
finna stað fyrir bensínstöð Atlants-
olíu en verið væri að vinna í því.
Sóttu um ákveðna lóð
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir
að Atlantsolía hafi sótt um að fá
ákveðna lóð í Mosfellsbæ til út-
hlutunar en á það hafi bærinn ekki
geta fallist. Fyrirtækinu hafi hins
vegar í svari skipulags- og bygg-
ingarnefndar verið bent á önnur
svæði í bænum sem verið væri að
skipuleggja og þar sem hugsanlega
mætti koma fyrir bensínstöð.
„Það var aðeins þessi eina um-
rædda lóð sem þeir fóru fram á en
bærinn gat ekki orðið við því,“ seg-
ir Ragnheiður. „Það er verið að
skipuleggja stórt og mikið svæði á
Blikastöðum og þeim var bent á
það. En þessi lóð sem þeir báðu
um, rétt fyrir ofan Skarhóla, við
torgið þar sem komið er inn í bæ-
inn, var ekki talin fýsilegur kostur
fyrir bensínstöð. En það má skoða
lóðir víðsvegar annars staðar.“
Ragnheiður segir að erindi Atl-
antsolíu hafi verið svarað á þessa
leið en að síðan þá hefði bærinn
ekkert heyrt frá fyrirtækinu.
Gæti fengið lóð í kjölfar
endurskoðunar aðalskipulags
Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar-
stjóri Garðabæjar, segir að eins og
staðan sé nú væri ekki laus lóð fyr-
ir bensínstöð í bænum. Það gæti
hins vegar breyst með endurskoð-
un aðalskipulags, en þeirri vinnu á
að vera lokið á næsta ári. „Guð-
mundur [Kjærnested] kom á fund
til mín með erindi þar sem Atl-
antsolía óskaði eftir lóð fyrir sína
starfsemi. Eins og skipulag Garða-
bæjar liggur fyrir núna er engin
lóð fyrir svona starfsemi á lausu.
En eðli skipulags sveitarfélaga er
þannig að það er sífellt í endur-
skoðun og ég sagði Guðmundi frá
því að við værum að vinna núna að
nýju aðalskipulagi fyrir Garðabæ
og síðan yrði unnið deiliskipulag
fyrir ný hverfi. Hvað gerist í því
skipulagi á eftir að koma í ljós.
Hvar næstu lóðir fyrir bensín-
stöðvar verða gerum við okkur
ekki grein fyrir í augnablikinu. Er-
indi Atlantsolíu var vísað inn í
skipulagsnefnd Garðabæjar þar
sem það hefur verið til umfjöll-
unar.“
Ásdís Halla segir að endurskoð-
að aðalskipulag Garðabæjar muni
liggja fyrir á næsta ári. „Vænt-
anlega verður það ekki fyrr en um
slíkt leyti sem liggur fyrir hvort að
það myndast lóð fyrir svona starf-
semi. Það er ekki útilokað að við
munum hafa lóð fyrir þá [Atlants-
olíu] eða aðra sem reka sambæri-
lega starfsemi, en það liggur ekki
fyrir í augnablikinu.“
Ekki náðist í Sigurð Geirdal,
bæjarstjóra Kópavogs, við vinnslu
þessarar fréttar í gær.
Atlantsolía leitar á höfuðborgarsvæðinu að lóð undir bensínstöð
Lóðir undir bensínstöðv-
ar liggja ekki á lausu
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Ásdís Halla
Bragadóttir
JÓLAÞORPIÐ á Thorsplaninu í Hafnarfirði var opnað
síðast liðinn laugardag og var margt um manninn. Í
þorpinu eru básar þar sem hægt er að fá ýmsan varn-
ing tengdan jólunum, ásamt heitum veitingum fyrir
kalda vetrardaga. Þar stendur einnig veglegt jólatré
sem leikskólabörn skreyttu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmenni í jólaþorpi í Hafnarfirði
Kópavogur | Jólakúlur til
styrktar starfsemi SOS-
barnaþorpanna í Afríku
voru settar á jólatré fyrir
utan Debenhams í Smára-
lindinni um helgina. Það var
Þórunn Sveinbjarnardóttir
alþingismaður sem setti
fyrstu jólakúluna á tréð.
Debenhams hefur látið
gera 4.500 jólakúlur sér-
staklega til styrktar starf-
semi SOS-barnaþorpa. All-
ur ágóði af sölunni fer
óskiptur til stuðnings við
munaðarlaus börn eða börn
deyjandi foreldra í Vasil-
andi, Simbabve, Malavíu,
Sambíu og Suður-Afríku.
Í fréttatilkynningu frá
versluninni kemur fram að hug-
myndin sé sú að hver og einn styrkt-
araðili kaupi tvær jólakúlur í Deben-
hams, setur aðra á „Jólatré allra
barna“ í Smáralind en tekur hina
með sér heim sem tákn fyrir aðstoð-
ina við munaðarlaus börn.
Ef allar kúlurnar seljast geta
SOS-barnaþorp veitt 150 börnum til
viðbótar aðstoð.
Jólakúlur seldar til styrktar SOS-barnaþorpum
Ágóðinn til munaðar-
lausra barna
Fyrsta jólakúlan: Þórunn Sveinbjarnardóttir
þingmaður setti fyrstu jólakúluna á tréð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
60 ára bókabúð | Bókabúð Böðv-
ars fagnar 60 ára afmæli um þess-
ar mundir en verslunin hefur ver-
ið í eigu sömu fjölskyldunnar frá
upphafi. Á sjálfan afmælisdaginn
sem var í gær, mánudag, var boð-
ið upp á köku og kaffi fyrir við-
skiptavini.
Ágúst Böðvarsson er eigandi
verslunarinnar en faðir hans,
Böðvar B. Sigurðsson, stofnaði
hana. Verslunin er nú til húsa að
Reykjavíkurvegi 64 og 66. Fyrstu
árin var verslunin við Hverfisgötu
en flutti síðar að Strandgötu 3 þar
sem hún var allt til ársins 1977.
Ágúst segir Hafnfirðinga
trygga viðskiptavini. Í bókabúð-
inni er verslað með ritföng og
skrifstofuvörur auk bóka og eru
mörg fyrirtæki meðal dyggra við-
skiptavina.
Jólavertíðin er nú hafin að sögn
Ágústar. Á laugardag var nóg að
gera í Bókabúð Böðvars og svo
verður án efa áfram fram að jól-
um enda bækur vinsælar í jóla-
pakkana.