Morgunblaðið - 02.12.2003, Blaðsíða 24
DAGLEGT LÍF
24 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það var aldeilis jóla-stemning hjánokkrum starfs-stúlkum Símans
þegar þær komu saman eitt
kvöldið fyrir skömmu að af-
loknum vinnudegi til að
föndra fyrir jólin. Sá siður
er nú orðinn árviss hjá
þeim samstarfskonum og
mæta venjulega um það bil
fimmtán konur í fönd-
urgerðina ár hvert. Að
þessu sinni fengu þær til
liðs við sig Hrönn Ósk-
arsdóttur, sem er lærður
blómaskreytingameistari
frá Garðyrkjuskólanum í
Hveragerði, en áður hafa
þessar handlögnu konur
ávallt notað eigið hug-
myndaflug við jólaföndrið.
„Við lögðum út í mikla
óvissu í sambandi við jóla-
föndrið í ár. Hrönn kom
með allt efnið í föndrið og
við mættum bara án þess að
vita hvað við værum að fara
út í. Þetta er voða gaman og
skreytingarnar hinar skemmtileg-
ustu, með alls konar skrauti og
ljósum,“ sagði Margrét Hauks-
dóttir þegar blaðamaður og ljós-
myndari Daglegs lífs litu inn hjá
föndurkonunum. Í ár samanstóð
föndurgerðin af tveimur hlutum,
annars vegar tvíburaskreytingu
og hins vegar af skreytingum í
gleri, en áður hafa þær m.a. gert
þurrblómaskreytingar, tréfígúrur
og bútasaum.
JÓLASTEMMNING| Sam-
starfskonur föndra saman
Morgunblaðið/Sverrir
Símakonur: Sitjandi frá vinstri: Hólmfríður Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Helga Áskels Jónsdóttir,
Ásdís Björgvinsdóttir, Guðmunda Lilja Gunnarsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Margrét
Hauksdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, María Lísa Benediktsdóttir, Ágústa Jónsdóttir, Sigrún Ósk Ingadóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Hrönn Óskarsdóttir blómaskreytingameistari, Ester Jónatansdóttir, Sigfríður Guðjónsdóttir
og Sigrún Sif Stefánsdóttir.
join@mbl.is
Náttúruvæn glerskreyting: Epli,
könglar, kanill, ljósasería, jólasnjór
og lerkigreinar sett saman í víðan
glervasa.
Tveir pottar: Tengdir saman í tví-
buraskreytingu með lurki. „Oasis“
er sett í pottana og silkigreinum og
mosa komið fyrir ásamt ýmsu
skrauti og jólaljósum.
Einbeiting: Það er eins gott að
vanda sig.
Tvíburaskraut
fyrir þessi jól
mæður hefðu tekið þátt í rannsókninni og
hefðu þær fengið ítarlega spurningarlista þar
sem þær voru beðnar að skrá niður marghátt-
aðar upplýsingar um líðan og hegðan barna
sinna síðustu vikurnar áður en börnin dóu. Var
spurningunum skipt upp í alls 26 flokka.
„Í ljós hefur komið að ýmis einkenni voru al-
geng hjá mörgum börnum sem létust. Þau
voru föl, önug, svitnuðu og voru með munn-
angur eða viðkvæma góma. Við völdum mæður
í rannsóknina sem höfðu eignast börn á ný og
voru þær beðnar um að bera saman einkenni
lifandi barna sinna og þeirra sem létust. Þær
áttu ennfremur að skrá hvaða lyf börnin tóku
inn og við hverju,“ sagði Weiloo og bætti svo
við:
„Börn sem létust vöggudauða voru átta
sinnum líklegri til að vera föl, sex sinnum lík-
legri til að svitna mikið og tvisvar sinnum lík-
legri til að vera önug og pirruð. Þrisvar sinn-
um líklegri til að vera með viðkvæma og auma
góma. Einnig voru þau mörg hver líklegri en
önnur til að vera kulvís.“
Joyce Epstein, forstjóri Foundation for the
Study of Infant Deaths, sem kostaði rannsókn-
ina, sagði að markmiðið með henni hefði verið
að fá úr því skorið hvort börn sem létust
vöggudauða hefðu á einhvern hátt verið frá-
brugðin öðrum börnum þegar frá fæðingu og
að rannsóknin hefði leitt í ljós að svo væri.
Þess vegna væri um mikilsverðar niðurstöður
að ræða.
Weiloo bætti við að niðurstöðurnar gæfu
foreldrum tilefni til að fylgjast betur með
börnum sínum og ef eitthvað virtist vera í ólagi
ættu mæður ekki að hika við að leita eftir ráð-
gjöf og aðstoð. „Síst af öllu eiga mæður að
halda að þær séu að íþyngja læknum og vera
með móðursýki. Ég tel að niðurstöður þess-
arar rannsóknar eigi að rata inn í fræðslu til
verðandi barnalækna hér eftir.“
LÆKNAR í Englandi og Wales hafa greint
frá niðurstöðum viðamikillar rannsóknar sem
miðaði að því að bera kennsl á einkenni sem
gætu leitt til svokallaðs vöggudauða, sem er
dularfullur dauðdagi sem herjar á kornabörn.
Telja læknar að niðurstöður þeirra geti leitt af
sér virkari fyrirbyggjandi aðgerðir.
Mike Weiloo, yfirlæknir á Leicester Royal-
barnasjúkrahúsinu, sem er í forsvari fyrir
rannsóknarliðið, tjáði fréttamönnum að 187
kornabörn hefðu dáið vöggudauða í Englandi
og Wales á síðasta ári. Hann sagði að 119
Alls dóu 187 kornabörn vöggudauða í
Englandi og Wales á síðasta ári.
HEILSA|Hægt að sjá fyrir vöggudauða?
Sviti og munnangur
algeng einkenni