Morgunblaðið - 02.12.2003, Qupperneq 37
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2003 37
kaffi. Unglingakór Digraneskirkju kl.
17–19. KFUM&K fyrir 10–12 ára börn
kl. 17–18.15. Húsið opnað kl. 16.30.
Alfa-námskeið kl. 20. Lokahóf. (Sjá
nánar www.digraneskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Strákastarf fyrir
stráka í 3.–7. bekk kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið
hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna,
spil og spjall. Kaffiveitingar, alltaf eitt-
hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar
með börn á aldrinum 7–9 ára kl.
17.30–18.30. Æskulýðsfélag fyrir ung-
linga í 9. og 10. bekk í Grafarvogskirkju
kl. 20.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta
kl. 9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyj-
ólfssonar. Bæna- og kyrrðarstund kl.
18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12.
Samverustund kl. 14.30–16. Fræðandi
innlegg í hverri samveru. Lagið tekið
undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur.
Kaffi og stutt helgistund. Allir hjart-
anlega velkomnir. Starf með 8–9 ára
börnum í Borgum kl. 17–18 í umsjón
Dóru Guðrúnar og Bóasar. Starf með
10–12 ára börnum á sama stað kl. 18–
19 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgn-
ar í Safnaðarheimili Lindasóknar, Upp-
sölum 3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–
12. SELA yngri deild kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–
12 ára börn í safnaðarheimilinu Strand-
bergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–
12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmti-
legar stundir fyrir hressa krakka. Æsku-
lýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan
fund kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með
starfi þessara hópa hafa Anna Hulda
Einarsdóttir og Sigríður Rún Tryggva-
dóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18
er opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl.
20–22 er opið hús fyrir unglinga 13–15
ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.
Spilað og spjallað. Nanna Guðrún
mætt aftur eftir frí galvösk að vanda.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar
alla þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni
kl. 18.30–19.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
kirkjuprakkarar komnir í jólaskap, 6–8
ára krakkar í kirkjunni. Mikil dagskrá
þar sem söngur, leikir og ný biblíumynd
eru uppistaðan. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson
og leiðtogarnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar
Landakirkju. Kóræfing hjá yngri hópi,
1.–4. bekkur. Þátttaka ókeypis. Kór-
stjóri Joanna Wlaszcsyk, umsjónarmað-
ur Sigurlína Guðjónsdóttir. Kl. 17. Litlir
lærisveinar Landakirkju. Kóræfing eldri
hóps, 5. bekkur og eldri. Þátttaka
ókeypis. Kórstjóri Joanna Wlaszcsyk,
umsjónarmaður Sigurlína Guðjónsdótt-
ir. Kl. 19.45 Fundur Vestmannaeyja-
deildar KFUM&K í safnaðarheimili
Landakirkju. Kl. 20.30 kyrrðarstund
ásamt altarisgöngu í Landakirkju. Sr.
Fjölnir Ásbjörnsson og organisti Guð-
mundur H. Guðjónsson. Góður vett-
vangur í jólaundirbúningnum.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Brauðsbrotning og bænastund
kl. 20.30. Nánari upplýsingar á
www.kefas.is.
AD KFUM, Holtavegi 28. Fundur í kvöld
kl. 20. Biblíulestur um aðventuna í
höndum sr. Franks M. Halldórssonar.
Allar konur velkomnar.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 3 (8.A
og 8. B Brekkuskóla).
Glerárkirkja. Kyrrðarstundir á þriðju-
dögum kl. 18.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk.
FRÉTTIR
STJÓRN Landssamtakanna
Þroskahjálpar samþykkti eftirfar-
andi ályktun á fundi sínum 29. nóv-
ember sl. vegna öryrkjasamkomu-
lagsins svonefnda:
„Stjórn Landssamtakanna
Þroskahjálpar skorar á stjórnvöld að
standa að fullu við gefin fyrirheit um
hækkun grunnlífeyris öryrkja sem
gefin voru í samkomulagi heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra og for-
manns Öryrkjabandalags Íslands í
mars síðastliðnum.
Samtökin telja það skilyrði fyrir
góðu samstarfi stjórnvalda og hags-
munasamtaka fólks sem býr við fötl-
un, að við slíka gjörninga sé staðið.
Landssamtökin Þroskahjálp telja
að fyrrgreint samkomulag geti
markað tímamót í baráttunni fyrir
þá sem búið hafa við fötlun frá unga
aldri og hafa ekki annað sér til fram-
færslu en bætur almannatrygginga.
Nú stefnir í að skerðing á þeim
fyrirheitum sem gefin voru í mars-
mánuði muni nema 83.000 kr. á árinu
2004 fyrir hvern einstakling úr þess-
um hópi öryrkja.
Landssamtökin Þroskahjálp leyfa
sér enn að vona að Alþingi muni
standa vörð um að við fyrrgreint
samkomulag verði staðið og hægt
verði að fagna því sem glæstum
áfanga á Evrópuári fatlaðra.“
Staðið verði við
fyrirheit um
grunnlífeyri
Búslóðageymsla Búslóða-
geymsla, búslóðaflutningar,
píanó- og flyglaflutningar. Gerum
tilboð hvert á land sem er. Uppl.
í s. 822 9500.
NÝTT TÍMARIT
um útivist og
fjallamennsku
Komið í búðir
w w w. u t i v e r a . i s
Tilboð Sky Digital búnaður kr.
49.900 (diskur, móttakari og
nemi). Til afhendingar strax.
ONOFF, Smiðjuvegi 4, Kóp.
Sími 577 3377.
Spánn Nokkur hús til leigu á
besta stað á Spáni. Frábær
vetrar- og sumardvalastaður.
Sími 0034 679 933 292/8982200.
Nýtt á Paradís, gelneglur og
höfuðbeina- og skjaldhryggsmeð-
ferð. Kynningarverð til áramóta,
gjafakort er góð jólagjöf. Opið til
20 á kvöldin. Snyrti-og nuddstof-
an Paradís, Lauganesvegi 82,
sími 553 1330.
Naglaskóli Icelandic beauty
Umboðsaðili á Íslandi ORLY Ez-
flow -IBD- Nagla fegurð. Allt fyrir
neglur www.icelandicbeauty.is
S: 895-1030.
Heima og heiman Bómullar- og
velúrgallar. Stærðir S-XXL.
Meyjarnar, Háaleitisbraut 68,
s. 553 3305.
ELDSMÍÐI
Tangir, steðjar og fleira
www.gylfi.com S. 555-1212,
Hólshrauni 7, 220 Hafnarfirði.
Bað, wc, sturtubotn, handlaug.
Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 898 7327.
Til sölu 4,45 bt. burðarmikill bát-
ur í 0 kerfi með grásleppuleyfi.
Verð 2,5 millj. Möguleiki að taka
bíll upp í greiðslu. Sími 861 5333.
VW Passat Trendline til sölu,
árg. 2000. Keyrður 92.000. Sumar-
dekk á 17" álfelgum, vetrardekk
fylgja á stálfelgum. Beinskiptur,
allur samlitaður, topplúga, þjófa-
vörn, fjarstart, geislaspilari.
Mjög fallegt eintak. Tilboð óskast,
skipti á ódýrari möguleg.
Upplýsingar í síma 892 3016.
Toyota Avensis Stw 1.8 v-vti
árg. 03/2002, ssk., ek. 32 þús., silf-
urgrár, dráttarkrókur, skipti á ód.
V. 1.700 þús. Uppl. 699 1050.
Til sölu VW Golf station
árg. 2000, ekinn 80 þús. Áhv. 800
þús. Tilboð óskast. Skipti mögu-
leg. Uppl. í síma 848 2233.
Til sölu Nissan Micra árg. '98
Ekinn 99 þús km. Ssk., 5 dyra. Í
mjög góðu standi. Listaverð 560
þús. Tilboð 390 þ. staðgr.
Upplýsingar í síma 899 2328.
Skoda Octavía, árg. 1999, ekinn
125 þús. km. Áhvílandi 400.000.
Verð 700.000.
Upplýsingar í síma 699 6999.
Dodge Dakoda V6, Magnum,
árg. '98. Ek. 113 þús. Sjálfsk. CD,
CB stöð. Breyttur f. 35". Góður og
fallegur bíll. Sími 861 8821.
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun.
Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, sími 564 6415.
Þessi 2ja öxla kerra er til sölu
L. 300, br. 160, h. 190 cm, á hálf-
virði. Er skráð á númerum.Einnig
pallbílahús.
Uppl. í síma 898 8577/551 7678.
Partasala, varahlutir. Mazda,
Mitsubishi, Nissan. Bílaviðgerðir.
Sími 587 8040, 892 5849 og 897
6897.
Einn með öllu M. Benz
Ökukennsla, ökumat, ökuskóli.
Kenni á nýjan M. Benz 2003.
Eggert Valur Þorkelsson, öku-
kennari, s. 893 4744 og 565 3808.
4 vélsleðar til sölu
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
er með 4 Yamaha Ventura 700
vélsleða til sölu. Tveir eru árgerð
1999, eknir 2.300 km og tveir eru
árgerð 2001, eknir 1.100. Sleðarn-
ir eru með farangursgrind og
kössum, ásamt negldum beltum
og brúsagrindum. Nánari upplýs-
ingar í síma 570 5070.
TEPPAHREINSUN.
Hin eina sanna "djúphreinsun"
Fyrir öll teppi.
Heimili - Skrifstofur - Stigahús
Kleppsvegi 152 104 R
Sími 568 8813 GSM 663 0553
www.teppahreinsun.com
Teppa- og húsgagnahreinsun,
flutningsþrif. Áratuga reynsla.
Upplýsingar í síma 699 8779 og
587 1420 Dóri.
Skattframtöl - bókhald - vsk.
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gott verð og persónuleg
þjónusta.
Bókhaldsmenn sf., s. 699 7371.
Innrömmun Allra, Ármúla 20.
Eigum úrval af rammalistum,
römmum inn málverk, myndir og
spegla eftir máli. Eigum til tilbúna
ramma og eftirprentanir. Plöstum
á lítil og stór kort. Góð þjónusta.
Sími 581 1384.
Gallerí Míró innrömmun. Falleg-
ar myndir og speglar til jólagjafa.
Fljót og góð afgreiðsla á inn-
römmun. Erum flutt í Faxafen 10,
Framtíðarhúsið, s. 581 4370.
Kerru var stolið frá Seljalandi
um helgana. Hvítar Væs spok
felgur með krómuðum felguróm.
Kringlótt gul glitmerki á hliðum.
Lengd ca 250 cm, breidd 125 cm.
Finnandi hafi samband í síma
897 4597 eða við lögregluna.
Flytjum fyrirtæki, búslóðir, smá-
sendingar, safnsendingar og fl.
Bílstjórarnir aðstoða.
Sendibílastöðin sími 553 5050.
Pípulagnir — Býr ehf. Tökum að
okkur viðgerðir, endurlagnir og
nýlagnir. Símar 864 0966,
690 3098, 663 6687 og 690 8489.
Gunnólfur,
pípulagningameistari.
www.thjodmenning.is
Netfang: borgir@borgir.is
www.borgir.is
Opið mán. - fim. frá kl. 9-18
föstudaga 9-17
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Ármúla 1, sími 588 2030 • fax 588 2033