Morgunblaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. JANÚAR 2004 61
Baðbretti
Eirberg
hjálpartæki og heilbrigðisvörur
Stórhöfða 25 • eirberg.is • 569 3100
Þarfasta
handbók
nýs árs
Fæst í öllum
helstu bóka-
verslunum
H á s k ó l a ú t g á f a n
Í TILEFNI af ári fatlaðra, sem lýkur
31. mars nk., verður haldin ráðstefna
23. janúar með yfirskriftinni: Þátt-
takendur eða þolendur: Aðstandend-
ur fatlaðra og langveikra.
Að ráðstefnunni stendur Endur-
menntun HÍ í samstarfi við FAAS –
Félag aðstandenda alzheimerssjúk-
linga, Félag foreldra og áhugafólks
um geðraskanir barna og unglinga,
Geðhjálp – aðstandendahóp, LAUF
–Landssamtök áhugafólks um floga-
veiki, MS-félagið, Parkinsonssamtök-
in, Sjálfsbjörg – landssamband fatl-
aðra og Landssamtökin Þroskahjálp.
Á ráðstefnunni verður sjónum
beint að aðstandendum fatlaðra og
langveikra, mikilvægu hlutverki
þeirra og ábyrgð við umönnun, m.a.
frá sjónarhóli stjórnvalda. Fjallað er
um réttindi og gæði heilbrigðisþjón-
ustunnar. Fjallað er um sorgina og
sorgarviðbrögð, einnig um áhrif og
reynslu aðstandenda. Kynnt vinna
með aðstandendum fólks með MS og
aðstandendaþjónusta alzheim-
erssjúklinga. Kynnt er lausnarmiðuð
nálgun og sáttmáli foreldranna.
Umsjón með ráðstefnunni hefur
Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrun-
arfræðingur, forstöðumaður hjá Vin
– athvarfi Rauða kross Íslands fyrir
geðfatlaða.
Fjöldi fyrirlesara verður á ráð-
stefnunni og mun Árni Magnússon
félagsmálaráðherra opna ráðstefn-
una.
Skráning og frekari upplýsingar
um námskeiðið er að finna á vef End-
urmenntunar www.endurmenntun.is.
Ráðstefna haldin
á ári fatlaðra
Jóganámskeið fyrir þá sem vilja
hætta að reykja Í fyrsta sinn á Ís-
landi verður boðið upp á jóga-
meðferðina MBYTP (Mindfulness-
Based Yoga Therapy Program). 21.
janúar til 10. mars er 8 vikna nám-
skeið og er nú sett upp fyrir þá sem
vilja hætta að reykja og fyrir al-
menna streitulosun.
Meðferðin byggist á aðferðum til að
verða sér meðvitaðri; – í gegnum
jóga, samveru og stuðning í hópi, sem
leiðir til betri líðanar og skilnings á
eigin lífi og streituvöldum þess. Þessi
nýja meðferð inniheldur Phoenix Ris-
ing-jóga, en það sameinar líkama,
hug og sál, ásamt því að innihalda nú-
tíma sálfræði hugar og líkama.
Á námskeiðinu verður ekki ýtt á eftir,
ekki dæmt heldur stuðlað að því að
einstaklingurinn finni sinn innri
styrk, segir í fréttatilkynningu.
Stjórnandi námskeiðsins er Rut Re-
bekka Sigurjónsdóttir listmálari,
hjúkrunarfræðingur og jóga- og
Phoenix Rising-jóga kennari.
Frekari upplýsingar má fá á rutre-
bekka@simnet.is
Miðlun sem námsaðferð – fyr-
irlestur hjá KHÍ Stefán Jökulsson,
lektor við Kennaraháskóla Íslands,
heldur opinn fyrirlestur sem ber yf-
irskriftina: Miðlun sem námsaðferð,
miðvikudaginn 21. janúar kl.16.15, í
salnum Skriðu í Kennaraháskóla Ís-
lands við Stakkahlíð. Í fyrirlestrinum
verður því lýst með hvaða hætti megi
nota mismunandi miðla sem skiln-
ingsverkfæri sem nemendur geta
notað til að skilja sjálfa sig og um-
hverfi sitt.
Á NÆSTUNNI
VÉGARÐUR, félagsheimili
Fljótsdælinga og sýningarað-
staða Landsvirkjunar vegna
Kárahnjúkavirkjunar, verður
brátt tilbúinn eftir gagngerar
breytingar og viðbyggingu.
Verktakinn, Völvusteinn
ehf. á Akureyri, reiknar með
að verkinu ljúki 23. febrúar
nk. og geta þá heimamenn
blótað þorra í nýuppgerðu fé-
lagsheimili. Sýning Lands-
virkjunar á Kárahnjúkaverk-
efninu hefur undanfarna
mánuði verið í Upplýsinga-
miðstöð ferðamála á Egils-
stöðum, en verður flutt aftur í
Végarð eftir þorrablót í
Fljótsdal.
Végarður
verður brátt
tilbúinn
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
FRÉTTIR
mbl.is