Morgunblaðið - 04.02.2004, Side 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2004 39
Hinn 4. og 5. febrúar
2004 eru liðin 100 ár frá
því tvíburabræðurnir
frá Torfalæk í Austur-
Húnavatnssýslu, Björn
Leví Jónsson veður-
fræðingur og læknir og
Jóhann Frímann Jóns-
son fyrrum bóndi og síð-
ar umsjónarmaður, litu
dagsins ljós, Björn hinn
4., en Jóhann hinn 5.
febrúar 1904. Foreldrar
þeirra voru hjónin Ingi-
björg Björnsdóttir frá
Marðarnúpi í Vatnsdal
og Jón Guðmundsson
bóndi á Torfalæk, en þar bjuggu þau
lengstan sinn aldur. Auk Björns og
Jóhanns áttu þau fjóra aðra syni sem
upp komust, Guðmund skólastjóra á
Hvanneyri; Ingimund, sem var
þroskaheftur og bjó alla tíð á Torfa-
læk í skjóli foreldra og bræðra; Jónas
Bergmann fræðslustjóra í Reykjavík
og Torfa bónda á Torfalæk. Af bræðr-
unum eru nú tveir á lífi, Jónas B. og
Torfi. Einnig ólu þau Ingibjörg og
Jón upp þrjár fósturdætur, Björgu
Gísladóttur, Ingibjörgu Pétursdóttur
og Sigrúnu Einarsdóttur. Þetta var
mannmargt og glatt heimili og þar
var á fyrri árum kosningastaður
sveitarinnar og þau hjón mikils metin
í félagsstörfum sveitarinnar. Þau
lögðu einnig mikinn metnað í uppeldi
sona sinna og studdu við bakið á þeim
þeirra sem áhuga höfðu á framhalds-
skólanámi. Það varð þeim einnig til
mikillar gleði að tveir synir þeirra, Jó-
hann og Torfi, skyldu kjósa að búa á
Torfalæk, Jóhann fram á miðjan ald-
ur en Torfi tók síðan alfarið við búinu
og nú býr þar eldri sonur hans mynd-
arbúi.
Björn Leví varð stúdent árið 1925,
stundaði síðan nám í náttúruvísindum
við Parísarháskóla og lauk þaðan
prófi árið 1930. Þegar heim kom hóf
hann störf við Veðurstofuna þar sem
hann vann í þrjá áratugi.
Á námsárunum í París vandist
Björn á grænmetisfæði því það var
tiltölulega ódýrt fyrir peningalítinn
námsmann. Það varð kveikjan að
áhuga hans á náttúrufæði og náttúru-
lækningum, og varð hann einn af for-
göngumönnum Náttúrulækninga-
félags Íslands um árabil. Jafnframt
tók hann að þýða ýmis rit um nátt-
úrulegt mataræði og heilsufar al-
mennings. Einnig flutti hann mörg
erindi í útvarp á þessum tíma um
sama efni. Vegna þessa áhuga á
læknavísindum innritaðist hann í
læknadeildina í Háskólanum og lauk
þaðan prófi í febrúar 1958, 54 ára
gamall. Eftir kandidatsárið var hann
aðstoðarlæknir borgarlæknis um ára-
bil en gerðist yfirlæknir á Heilsuhæli
Náttúrulækningafélagsins í Hvera-
gerði 1965 og gegndi því starfi til ævi-
loka, en hann lést 15. september 1979.
Björn átti mikinn þátt í að móta starf
Heilsuhælisins í Hveragerði og efla
það. Um árabil var hann ritstjóri
Heilsuverndar og gaf sjálfur út bæk-
ur um heilsufæði og heilsuvernd.
Björn hélt ávallt tengslum við
Frakkland og var aðdáandi franskrar
menningar, unni tónlist, spilaði sjálf-
ur dável á píanó og var mikill áhuga-
maður um íslenskt mál. Um árabil var
hann í stjórn Alliance Francaise og
prófdómari í frönsku við Menntaskól-
ann í Reykjavík.
Kona Björns var Halldóra Guð-
mundsdóttir (f. 5. október 1906, d. 14.
október 1985) og eru þeirra börn
Ingibjörg, búsett í Reykjavík, og
Guðmundur búsettur í Njarðvík. Af-
komendur Björns og Halldóru eru nú
22 talsins.
Jóhann Frímann fór aðrar leiðir en
eldri bróðirinn. Hann bjó í félagi við
föður sinn og bræður á Torfalæk
meira en hálfa ævina og sinnti sínum
skyldum á þeim vettvangi, bæði á
búinu og við ýmis félagsstörf. Fé-
lagslyndur var hann með afbrigðum.
Hann átti það sameiginlegt með Birni
bróður sínum að skipta um starfsvett-
vang á miðjum aldri. Árið 1947 flutti
hann til Reykjavíkur og átti eftir það
heima þar. Hann gerðist starfsmaður
hjá Reykjavíkurborg, var lengi vel
umsjónarmaður með barnaheimilun-
um á Jaðri og Silungapolli en einnig
við ýmsa skóla í borginni. Þetta starf
hentaði honum vel, enda greiðvikinn
maður og ljúft að greiða götu ann-
arra. Ekki var hann fylgismaður
bróður síns hvað mataræði varðaði,
en það hafði ekki áhrif á kærleikann
þeirra í millum og þeir mátu hvor
annan mikils alla tíð. Það er merkilegt
þegar litið er til baka að þeir tvíbura-
bræður eiga sinn hvorn afmælisdag-
inn, og að þeir látast með sex mánaða
millibili, úr sama sjúkdómi, í aldurs-
röð.
Jóhann andaðist 21. mars 1980.
Kona hans var Anna Sigurðardóttir
(f. 12. mars 1913, d. 15. desember
1999). Jóhann var barnlaus en börn
Önnu af fyrra hjónabandi, Sigurður,
búsettur í Noregi, Svanhildur, búsett
í Reykjavík og Logi, nú látinn, urðu
sem hans eigin börn og hann var
sannur afi barnabarnanna.
Þessara heiðursmanna, Björns
Leví og Jóhanns Frímanns, er hér
minnst með virðingu og þakklæti fyr-
ir líf þeirra og störf.
Jón Torfason.
BJÖRN L. JÓNSSON
JÓHANN FR.
JÓNSSON
ALDARMINNING
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Vagnhjól
Útsölulok
7. febrúar
Langur laugardagur
Opið frá kl. 11-17
gjafavöruverslun,
Frakkastíg 12, sími 511 2760.
OLÍUFÉLAGIÐ Esso hefur innleitt
rafrænar verðmerkingar í hillum í
nýrri stöð félagsins við Háholt í
Mosfellsbæ. Kerfið gerir það að
verkum að verðmerkingar á vörum
í hillu breytast um leið og verði er
breytt í afgreiðslukassa stöðv-
arinnar. Þetta nýja kerfi tryggir að
verðmerkingarnar verða öruggari,
þægilegri og skilvirkari. Einnig
býður kerfið upp á möguleika á ör-
ari tilboðum á alls kyns vörum á
stöðinni með stuttum fyrirvara,
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Fyrst um sinn verður kerfið ein-
göngu á stöð félagsins í Mosfellsbæ.
Það er fyrirtækið SoftTech á Ís-
landi ehf. sem hefur haft umsjón
með uppsetningu kerfisins fyrir Ol-
íufélagið en kerfið er framleitt af
fyrirtækinu Eldat Communication
Ltd.
Frá vinstri: Aron Hauksson, framkvæmdastjóri SoftTech á Íslandi ehf.,
Steingrímur Hólmsteinsson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar Esso,
Guðrún Ósk Gísladóttir, stöðvarstjóri Háholts, og Ingi Þór Hermannsson,
deildarstjóri markaðsdeildar neytendasviðs Esso.
Esso tekur upp raf-
rænar hillumerkingar
RÚMFATALAGERINN afhenti á
dögunum Íþróttasambandi fatlaðra
þrjár milljónir króna í styrk sem
nota á m.a. til undirbúnings og þátt-
töku fatlaðra íþróttamanna áÓl-
ympíumóti fatlaðra í Aþenu 2004.
Þar með hefur Rúmfatalagerinn,
sem er aðalstyrktar- og samstarfs-
aðili Íþróttasambands fatlaðra,
greitt sambandinu 9 milljónir af 12
milljón króna styrk sem varið hefur
verið til uppbyggingar og þjálfunar
fatlaðra íþróttamanna.
Í fréttatilkynningu frá Íþrótta-
sambandi fatlaðra segir að stuðn-
ingur Rúmfatalagersins hafi m.a.
gert því kleift að veita afreksfólki
sínu þann stuðning sem það þarf á
að halda til að geta byggt sig upp,
andlega sem líkamlega fyrir stórá-
tök á íþróttasviðinu og þá ekki síst
fyrir þátttöku í Ólympíumóti fatl-
aðra, sem fram fer í Aþenu í sept-
ember á þessu ári.
Camilla Th. Hallgrímsson, varaformaður ÍF, tekur við styrknum úr hendi
fjármálastjóra Rúmfatalagersins, Guðmundar Pálssonar, að viðstaddri
Sollu stirðu sem veit allt um mikilvægi íþrótta.
Styrkja fatlaða
vegna Ólympíumóts
SJÚKRAÞJÁLFARAR sem starfa
á Landspítala – háskólasjúkrahúsi
mótmæla harðlega boðuðum niður-
skurði á spítalanum í ályktun sem
samþykkt var á fundi þeirra hinn
29. janúar.
Segja sjúkraþjálfararnir niður-
skurðinn koma hart niður á þeirri
endurhæfingarþjónustu sem spítal-
inn rekur.
„Skerðing þjónustu hefur sjaldn-
ast sparnað í för með sér. Í flestum
tilfellum er einungis um tilfærslur á
kostnaði að ræða.
Sjúkraþjálfun er órjúfanlegur
hluti af bráðaþjónustu spítalans.
Skert þjónusta sjúkraþjálfara mun
bitna illa á sjúklingum spítalans,
getur valdið fylgikvillum og lengri
sjúkralegu á bráðadeildum með
miklum aukakostnaði sem því
fylgir,“ segir í ályktuninni.
Vilja að rekstur endurhæfing-
ardeildar verði tryggður
Segir að sjúkraþjálfarar LSH
taki heils hugar undir tilmæli
stjórnarnefndar spítalans til fram-
kvæmdastjórnar hans sem sam-
þykkt voru á fundi nýverið þess efn-
is að rekstur endurhæfingardeildar
fjölfatlaðra í Kópavogi verði tryggð-
ur.
„Með því að loka endurhæfing-
ardeildinni væri áratuga uppbygg-
ingarstarf eyðilagt og dýrmætri
sérþekkingu við meðferð þessa hóps
kastað á glæ. Sjúkraþjálfarar skora
á stjórnvöld að endurskoða fjárveit-
ingar til spítalans en boðaður nið-
urskurður mun vega alvarlega að
heilbrigðisþjónustu landsmanna,“
segir einnig í ályktuninni.
Sjúkraþjálfarar á LSH
Niður-
skurður
mun bitna á
sjúklingum
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Liisu S.T. Johanson, lög-
giltum Pilates-kennara:
„Líkamsræktarstöð í Reykjavík
auglýsir í Morgunblaðinu sl. sunnu-
dag, 1. febrúar 2004, námskeið og
einkatíma í Pilates-líkamsræktar-
kerfinu. Þegar betur er að gáð er
leiðbeinandinn sagður vera ,,þjálf-
aður Stottpilates-kennari“. Þar er
með öðrum orðum verið að auglýsa
Pilates á fölskum forsendum. Stott-
pilates er afbrigði af hinu eina og
sanna kerfi sem kennt er við Joseph
H. Pilates og þeim sem bjóða fólki
upp á námskeið í Stottpilates ber að
sjálfsögðu að kynna það og auglýsa
sem slíkt. Þarna er afbrigðið hins
vegar kynnt á fölskum forsendum.
Eins og fram kom í grein minni í
Morgunblaðinu 23. janúar sl. hefur
nafnið Pilates árum saman verið
skráð vörumerki í eigu Pilates Inc.
o.fl. á Íslandi. Notkun annarra á
Pilates-nafninu er óheimil, hvort
heldur það stendur eitt sér eða er
tengt öðrum orðum. Líkamsræktar-
stöðin umrædda brýtur gegn lögum
landsins í auglýsingu sinni í Morg-
unblaðinu.“
Segir námskeið auglýst
á fölskum forsendum
ÍSLANDSDEILD Lett-
erstedtska sjóðsins, sem hef-
ur það hlutverk að styrkja
norrænt samstarf og samstarf
við Eystrasaltsríkin á sviði
rannsókna, lista, vísinda og
fræða, hefur auglýst eftir um-
sóknum um styrki úr sjóðnum
árið 2004. Umsóknarfrestur
er til 15. febrúar nk.
Ekki er um eiginlega náms-
styrki að ræða, heldur koma
þeir einir til greina, sem lokið
hafa námi og hyggja á frekari
rannsóknir eða þekkingaleit á
starfssviði sínu, svo sem við
rannsóknir á vísinda- eða
fræðastofnun eða með þátt-
töku í fundum eða ráð-
stefnum.
Styrkir eru einungis veittir
til ferða milli norrænu land-
anna og Eystrasaltsríkjanna,
en hvorki til ferða innan land-
anna né til uppihalds.
Umsóknir með greinagóð-
um upplýsingum um tilgang
fararinnar skal senda til rit-
ara Íslandsdeildar Letter-
stedtska sjóðsins, Snjólaugar
Ólafsdóttur, Vesturbrún 36,
104 Reykjavík, fyrir 1. mars
nk.
Þór Magnússon, formaður
Íslandsdeildar sjóðsins, veitir
frekari upplýsingar.
Upplýsingar um sjóðinn og
styrkveitingar úr honum er
og að finna á slóðinni:
www.letterstedtska.org
Ferða-
styrkir
Letter-
stedtska
sjóðsins