Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ENGINN þarf að velta því fyrir sér
hver sigri í forsetakosningunum í
Rússlandi á morgun, sunnudag. Allar
skoðanakannanir spá Vladímír V.
Pútín forseta 70–80% atkvæða. Svo
mikils álits nýtur hann að í könnun
sem sagt er frá í þýska tímaritinu
Der Spiegel svarar um helmingur nei
þegar spurt er hvort eitthvað sé nei-
kvætt í fari forsetans. Aðeins 15% að-
spurðra telja að Pútín hafi gripið til
réttra aðgerða gegn vandamálum
þjóðarinnar en þeir bera samt traust
til hans - og vona.
Keppinautar forsetans eru alls
fimm en margir þekktir leiðtogar
ákváðu að hunsa kosningarnar. Öfl-
ugastur hefur verið í könnunum
Sergei Glazíev, 43 ára hagfræðingur
sem berst gegn einkavæðingu en
hann hefur þó verið með innan við
10% fylgi. Hann fékk þar að auki ekki
flokk sinn til að styðja sig fremur en
hin frjálslynda, hálf-japanska Írína
Kakamada sem styður einkavæðingu
og hefur beitt sér gegn einræð-
istilburðum Pútíns.
Önnur forsetaefni hafa verið bljúg-
ari, til dæmis forseti efri deildar
þingsins, Sergei Mírónov en hann er
gamall félagi Pútíns. En af hverju þá
að bjóða sig fram?
„Ég trúi því í einlægni að keppi-
nautar í kosningum geti verið ann-
aðhvort andstæðingar eða ekki and-
stæðingar. Ég er ekki andstæðingur
Pútíns,“ segir Mírónov. Komm-
únistar og flokkur þjóðernis-
pópúlistans Valdímírs Zhírinovskís,
bjóða fram nær óþekkta menn. Það
eina sem veldur Pútín áhyggjum er
að kjörsóknin gæti orðið innan við
50% og þá yrði hann ekki löglega
endurkjörinn. Kjósa yrði á ný.
Kjörsóknin var aðeins 56% í þing-
kosningunum í desember og þá ríkti
nokkur spenna um úrslitin. En
breska tímaritið The Economist gef-
ur í skyn að menn Pútíns muni ekki
hika við að reyna að lagfæra tölurnar
til að ná 50% markinu.
„Pútín er forseti vonarinnar,“ segir
félagsfræðingurinn Júrí Levada sem
telur að það muni taka tvær kynslóðir
að byggja upp rússneskt samfélag
þar sem almenningur krefst einhvers
á borð við raunverulegt tjáning-
arfrelsi, fjölflokkakerfi og gegnsæi í
ákvörðunum.
Pútín tók við af
Borís Jeltsín á ný-
ársdag árið 2000.
Margt hefur
lagast í tíð hans,
laun og eftirlaun
eru nú yfirleitt
greidd á réttum
tíma, innheimta
skatta gengur
betur en fyrr eftir
umfangsmiklar endurbætur og ein-
földun á skattkerfinu. Margir Rússar
kvarta undan spillingu og lélegri
stjórn en undanskilja Pútín. „Hann
getur ekki fylgst með öllu sem ger-
ist,“ er viðkvæðið. Þannig var algengt
að almenningur ræddi um jafnt Stalín
sem keisarana í tíð þeirra. Leiðtoginn
var góður og vildi vel, undirmennirnir
vondir. Mannfallið í Tétsníu veldur þó
mörgum sorg en fjölmiðlar hunsa að
miklu leyti slíkar raddir.
Stjórnmálaskýrendur segja að al-
þýðuvinsældir Pútíns megi einkum
skýra með því að hann hefur komið á
stöðugleika og ráðist gegn óvinsæl-
ustu auðkýfingunum, olígörkunum
svonefndu, sem notuðu tækifærið í
upplausninni á tíunda áratugnum og
lögðu undir sig mikinn hluta þjóð-
arauðsins, oftast með bellibrögðum
og óhrjálegum baktjaldasamningum
við Jeltsín. Nú eru sumir þeirra búnir
að flýja land eða sitja í fangelsi.
Rússneskur almenningur er tor-
trygginn á lýðræðið eftir slæma
reynslu, einkum á síðustu árum Jelts-
íns. Gerð var könnun í fyrra þar sem
fram kom að aðeins 30% Rússa telja
lýðræðið ávallt besta stjórnarformið.
En í könnun í öllum Afríkulöndum
fyrir fáeinum árum var meðaltals-
stuðningurinn við þá fullyrðingu 69%,
segir í grein í breska ritinu Prospect.
Ósanngjörn gagnrýni?
Tveir Rússlandssérfræðingar við
bandaríska háskóla, Andrei Shleifer
og Daniel Treisman, rituðu nýlega
grein í Moscow Times sem gefið er út
á ensku í Moskvu. Þeir gagnrýna þar
hömlurnar á fjölmiðlafrelsi og fleira
en benda samt á að miðað við sögu-
legar forsendur og þjóðarframleiðslu
komi Rússar ekki illa út í samanburði
við þjóðir með svipaðar þjóðartekjur,
t.d. Mexíkóa, Brasilíumenn, Malas-
íumenn og Króata. Ástandið sé eðli-
legt, þegar tekið sé tillit til erfiðleik-
anna og ef til vill hafi menn gert sér of
miklar væntingar fyrst eftir hrun
Sovétríkjanna 1991. ekki sé hægt að
búast við að samfélagið verði á svip-
stundu eins og vestræn lýðræðissam-
félög.
Margt horfi nú til framfara í Rúss-
landi, segja þeir. Æ fleiri eignist nú
ýmis nauðsynleg heimilistæki og bíla
og þótt það sé rétt að fáeinir auðkýf-
ingar með góð sambönd ráði miklu sé
sama upp á teningnum í sambæri-
legum, fátækum löndum. Og þrátt
fyrir græðgi olígarkanna hafi þeir oft
lagt grunn að nútímalegum rekstri.
Þjóðarframleiðsla hafi minnkað um
40% fyrstu sex árin eftir fall Sov-
étríkjanna en hafi vaxið um 24% eftir
að stórfyrirtæki voru einkavædd.
Einnig benda þeir á að kjörsókn hafi í
fyrra verið meiri en í síðustu kosn-
ingum í Bandaríkjunum.
Rússar aftur farnir að hvísla?
Á síðustu árum hefur hækkandi
verð á olíu á heimsmarkaði valdið því
að lífskjör Rússa hafa batnað veru-
lega, einkum í stórborgunum. Annað
sem lagði, þrátt fyrir allt, grunn að
bættri stöðu fyrirtækja er hrun rúbl-
unnar 1998, það gerði erlendar vörur
dýrari en innlendar.
En andstæðingar Pútíns, þeir sem
fá að tjá sig, hika ekki við að velja
honum hin verstu orð. Þeir segja að
búið sé að endurreisa sovétkerfið, að
þessu sinni án kommúnisma en með
flokkseinræðinu. Hvarvetna sé
þrengt að mannréttindum þótt vissu-
lega fái fólk að nota Netið og fáeina
frjálsa fjölmiðla, fólk er heldur ekki
handtekið og skotið án dóms og laga.
„En fólk í Rússlandi er aftur farið að
hvísla,“ segir Írína Kakamada, einn
af keppinautum Pútíns.
Óvinur „forseta vonar-
innar“ er áhugaleysið
Pútín er sakaður um einræði en flestir Rússar hylla hann
kjon@mbl.is
Vladímír Pútín
’Gerð var könnun ífyrra þar sem fram
kom að aðeins 30%
Rússa telja lýðræðið
ávallt besta stjórn-
formið. ‘
ÞING Suður-Kóreu vék í gær Roh Moo-Hyun, forseta
landsins, úr embætti fyrir meint brot á kosningalögum,
spillingu og vanhæfni. Embættissviptingin á sér ekkert
fordæmi í sögu S-Kóreu og kom til nokkurra ryskinga í
þingsalnum, eins og hér sést, þegar gengið var til at-
kvæða um tillöguna til embættismissis.
Alls greiddu 193 fulltrúar stjórnarandstöðunnar, sem
meirihluta hefur á s-kóreska þinginu, atkvæði með til-
lögunni, tveir voru á móti. Atkvæði tveggja þriðju hluta
þingheims þurfti til þess að tillagan yrði samþykkt.
47 þingmenn Uri-flokksins, sem styður Roh, greiddu
ekki atkvæði og hrópuðu þeir slagorð gegn þingmeiri-
hlutanum á meðan atkvæðagreiðslan stóð yfir.
Málið fer nú fyrir stjórnmáladómstól landsins.
Forseti Suður-Kóreu sviptur embætti
AP
EINN af Bretunum fimm, sem ný-
komnir eru heim eftir að hafa verið
fangar Bandaríkjamanna í Guant-
anamo á Kúbu í tvö ár, segir í viðtali
sem birtist í gær að hann hafi ítrekað
mátt þola barsmíðar. Þá hafi Banda-
ríkjamenn einnig beitt fanga sína sál-
rænu harðræði. Jamal al-Harith er
þrjátíu og sjö ára gamall Breti og var
handtekinn af snemma árs 2002 í
Afganistan. Daily Mirror birti í gær
einkaviðtal við al-Harith en þar seg-
ist hann alls engin tengsl hafa haft
við hryðjuverkamenn.
Al-Harith kom heim til Bretlands
á þriðjudag en ásamt honum slepptu
Bandaríkjamenn fjórum öðrum
mönnum sem hafa breskan ríkis-
borgararétt. Fjórir Bretar eru enn í
Guantanamo en alls eru þar hafðir í
haldi um 650 manns.
Létu vændiskonur berhátta til
að valda föngunum hugarangri
Al-Harith var skírður Ronald
Fiddler, foreldrar hans eru frá Ja-
maíku en hann snerist til íslam og
skipti þá um nafn. Hann segir í við-
talinu í Daily Mirror að hann hafi oft
hafa mátt una því að vera hlekkjaður
í lengri tíma á meðan á dvölinni í Gu-
antanamo stóð. Þá hafi bandarískir
herlögreglumenn barið hann eftir að
hann hafnaði lyfjagjöf með sprautu.
Al-Harith segir að Bandaríkja-
menn hafi ítrekað niðurlægt strang-
trúaða múslíma, sem haldið var
föngnum í búðunum, með því að fá í
heimsókn þangað vændiskonur sem
síðan var falið að berhátta sig fyrir
framan valda fanga. „Ég veit um tíu
slík atvik. Svo virtist sem þeir beittu
einkum unga menn þessum brögð-
um, það voru einkum menn sem vitað
var að væru afar trúaðir sem lentu í
þessu,“ sagði al-Harith.
„Mest áhersla var lögð á það í Gu-
antanamo að veikja þig andlega. Bar-
smíðarnar voru aldrei eins slæmar og
sálrænu pyntingarnar,“ sagði al-Ha-
rith. Nefnir hann sem dæmi að jafn-
an hafi verið skrúfað fyrir vatn þegar
bænastundir múslíma runnu upp „til
að við gætum ekki þvegið okkur í
samræmi við reglur trúar okkar“.
Al-Harith er frá Manchester og er
fráskilinn, þriggja barna faðir. Hann
segir í viðtalinu að aðstæður fanga í
Guantanamo hafi almennt verið
slæmar og að fangar hafi lítilla rétt-
inda notið. „Þeir sögðu reyndar ein-
mitt þetta: hér njótið þið engra rétt-
inda,“ sagði al-Harith um
fangaverðina bandarísku.
Al-Harith segist hafa flogið til
Pakistans síðla árs 2001 í því skyni að
nema fræði Kóransins. Síðan hafi
hann ætlað að ferðast með flutninga-
bíl til Tyrklands en bíllinn fór hins í
gegnum Afganistan án þess að hann
vissi að það stæði til. Al-Harith segir
að við komuna til Afganistans hafi
hann verið fangelsaður af talibönum
sökum þess að hann hafði breskt
vegabréf meðferðis. Seinna hand-
tóku Bandaríkjamenn hann.
„Þegar Bandaríkjamennirnir yfir-
heyrðu mig spurðu þeir: hvers vegna
ertu svo hreinn? Við erum búnir að
grennslast fyrir um þig hjá Interpol
og getum ekki einu sinni fundið sönn-
un þess að þú hafir verið sektaður um
umferðarlagabrot um ævina,“ sagði
al-Harith í viðtalinu. „Ég svaraði:
Það er af því að ég hef aldrei brotið
neitt af mér um ævina.“
Ásakanir um
andlegar
pyntingar
Breti, sem var sleppt úr Guant-
anamo-búðunum, segir sögu sína
London. AFP, AP.
RÚSSNESKIR leitarmenn á þyrl-
um hafa fundið merki um tjaldstað
og för eftir skíði á ísbreiðunni á
Norður-Íshafinu, og eykur það vonir
um að finnsk kona, Dominick Ardu-
in, sem er ein síns liðs á leið á norð-
urpólinn, sé heil á húfi. Ekkert hefur
heyrst frá henni í viku.
Reijo Hietanen, forstjóri finnsku
auglýsingastofunnar sem sér um
vefsíðu Arduins, sagði að sést hefðu
ummerki eftir Arduin á íshellunni og
því væri virtist hún hafa komist heilu
og höldnu 55 km leið sem hún hugð-
ist fara á kajak frá Mís Arktitséskíj-
skaga á N-Íshafsströnd Rússlands
og að íshellunni og halda síðan för-
inni áfram á skíðum. Arduin er 43
ára, hún reyndi að komast á pólinn í
fyrra en varð að gefast upp.
Týndi pólfarinn í Rússlandi
Ummerki eftir Arduin
Helsinki. AP.