Morgunblaðið - 13.03.2004, Side 50
MINNINGAR
50 LAUGARDAGUR 13. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Halldór Jónassonfæddist á Akra-
nesi 26. nóvember
1943. Hann andaðist á
St. Franciskusspítala
Stykkishólms 3. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Clara
Jenný Sigurðardóttir,
f. 20. ágúst 1920 á Mel-
um í Árneshr. Str., d.
22. desember 2000, og
Jónas Halldórsson, f.
30. júní 1921 í Bolung-
arvík, d. 16. október
2001. Systkini Hall-
dórs eru María Jenný,
f. 1. nóvember 1945, Sigurður, f. 2.
mars 1953 og Jónas, f. 7. maí 1961.
Hinn 27. apríl 1968 kvæntist
Halldór eftirlifandi eiginkonu
sinni, Sigríði Theodóru Péturs-
dóttur, f. 25. júlí 1945, í Reykjavík.
Foreldrar hennar eru Jóna Karól-
ína Breiðfjörð Kristinsdóttir, f. 8.
mars 1923 og Pétur Guðmundur
Jóhannsson, f. 7. október 1917, d.
16. október 1999.
Kjörsonur Halldórs, sonur Sig-
ríðar, er Eggert
Bergmann, f. 30.
júní 1965. Hann á
tvö börn. Saman
eiga þau svo þrjú
börn: 1) Þórir, f. 9.
febrúar 1968. Sam-
býliskona hans er
Ann Linda Denner,
f. 7. ágúst 1968 og
eiga þau einn son. 2)
Erla, f. 7. janúar
1975. Sambýlismað-
ur hennar er Ívar
Sigurður Kristins-
son, f. 20. júní 1974
og eiga þau tvær
dætur. 3) Gyða Stefanía, f. 16. nóv-
ember 1977. Sambýlismaður henn-
ar er Hafliði Ingason, f. 10. ágúst
1974 og eiga þau eina dóttur.
Þau Halldór og Sigríður stofn-
uðu heimili sitt í Stykkishólmi 1966
og hafa búið þar og starfað æ síð-
an. Lengst af var Halldór útgerð-
arstjóri Þórsness.
Útför Halldórs verður gerð frá
Stykkishólmskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku Dóri afi, ég sakna þín.
Ég er að hugsa um jólin þegar ég
opnaði pakka með þér, bæði síðustu
jól í Hólminum og jólin þar áður
þegar þú komst til mín. Alltaf last
þú á pakkana.
Ég er að hugsa um skiptin þegar
við borðuðum saman.
Kveðja, þín
Sara.
Ég veit að enginn fær umflúið
dauðann, en sjaldnast er maður
sáttur þegar hann ber að garði
svona nærri manni.
Halldór Jónasson, í dag kveð ég
þig, elskulegan bróður minn. Ég sit
hnípin eftir og með söknuði rifjast
upp fyrir mér minningar æskuára
okkar á Siglufirði. Þú varst tveimur
árum eldri en ég og því kom það í
þinn hlut að gæta mín, litlu systur
þinnar, á meðan fullorðna fólkið
sinnti daglegum störfum sínum. Á
þessum árum var síldin í algleym-
ingi og iðandi mannlíf um allan bæ.
Ég fylgdi þér eftir eins og skuggi og
tók þátt í öllu sem þú tókst þér fyrir
hendur. Ég tók þátt í leikjum þínum
og lék mér við félaga þína og fékk
jafnvel á mig orð um að vera
strákastelpa. Á sumrin sóttum við
mest í að dorga niðri á bryggju,
þrátt fyrir að það væri illa séð af
fullorðna fólkinu, en á veturna sótt-
um við í brekkurnar fyrir ofan bæ
og renndum okkur á skíðunum sem
pabbi smíðaði fyrir okkur. Þegar við
svo komum heim að loknum leik og
tókum af okkur óhreina gallann, þá
var ég alltaf vön að skilja hann eftir
þar sem ég fór úr honum víðsvegar
um hús. Og ekki brást þú mér út af
þeim vana sem þú tileinkaðir þér.
Þú gekkst á eftir mér og hirtir lepp-
ana upp eftir mig og gekkst tilhlýði-
lega frá mínum föggum eins og þín-
um. Þannig varst þú, hirðusamur og
skipulagður í hvívetna. Þessi mynd
er mér svo skýr og í huga mér mun
ég ávallt varðveita hana.
Mér þykir sárt að kveðja þig hér,
en þú munt lifa áfram í hjarta mínu
um ókomna tíma.
Megi Guð styrkja konu þína,
börnin ykkar og fjölskyldur þeirra.
María Jenný.
Lítill drengur hljóp eftir Aðalgöt-
unni á Siglufirði og vakti athygli
hóps myndatökumanna frá Svíþjóð
sem þar var staddur einhverra er-
inda. Hann var svo ótrúlega lítill,
aðeins 9 mánaða gamall og farinn að
hlaupa um allt. Þetta var Halldór
frændi, elsti sonur móðursystur
minnar og barnabarn og nafni lækn-
isins á staðnum, svona einstaklega
kraftmikill strákur. Þeir mynduðu
hann í bak og fyrir svo kannski er 60
ára gömul upptaka í leynum ein-
hvers staðar í Svíaveldi. Þessa sögu
sagði móðir mín mér fyrir margt
löngu.
Ég man hvað ég var hreykin af
þessum fallega frænda mínum þeg-
ar ég dvaldi 15 ára gömul hjá honum
og Siggu konu hans í Stykkishólmi
þeirra erinda að passa strákana
þeirra, Eggert og Þóri. Halldór að-
eins 26 ára en passaði vel upp á tán-
inginn frænku sína.
Eitt sinn fékk ég að fara í partí en
aðeins vegna þess að það var í sama
húsi og þau bjuggu í, Norska húsinu
sem er núna safn, og aðeins þunnur
veggur á milli. En frændi var kom-
inn að sækja skvísuna innan
klukkutíma, hefur eflaust fundist of
mikill hávaði og ekki alveg treyst
minni. Annað atvik er mér minnis-
stætt. Þá langaði mig á ball. Allir
krakkarnir máttu fara. Á sveitaball.
En Halldór sagði þvert nei. Það
væru alltaf brjáluð slagsmál á þess-
um sveitaböllum, Hólmarar, Grund-
arar og Ólsarar að berast á bana-
spjótum. Það tók mig Norð-
lendinginn mánuð að átta mig á að
hann var að tala um íbúana í Stykk-
ishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík en
ekki einhverjar ættir. Auðvitað
hafði hann rétt fyrir sér, þarna log-
aði allt í slagsmálum. Ekki skorti
hann ábyrgðarkenndina þótt ungur
væri.
En ég minnist þessa sumars með
mikilli gleði, ég held að það hafi ver-
ið sól allan tímann, svo vel leið mér
hjá Halldóri og Siggu. Oft sátum við
Sigga á kvöldin að bródera eins og
gamlar konur. Ég tek á hverjum jól-
um fram jólalöberinn sem Sigga gaf
mér og ég saumaði þetta sumar.
Elsku Sigga, börn, tengdabörn og
barnabörn, því miður verðum við
systur erlendis þegar Halldór er
jarðsettur. Við sendum innilegar
samúðarkveðjur. Guð geymi Hall-
dór frænda.
Hinsta kveðja.
Klara (Didda) Sigurðardóttir.
Halldór Jónasson í Þórsnesi, eins
og hann var jafnan kenndur við, er
fallinn frá langt um aldur fram. Ég
kynntist Halldóri vel og þekkti
mannkosti hans. Fyrstu kynni okk-
ar Halldórs urðu er hann varð náinn
samstarfsmaður minn og starfaði
sem skrifstofustjóri hjá Stykkkis-
hólmshreppi. Síðar varð hann um-
svifamikill atvinnurekandi eftir að
hann tók við sem framkvæmdastjóri
útgerðarfélagsins Þórsness í Stykk-
ishólmi þar sem hann starfaði til
dauðadags. Ég kannaðist við Hall-
dór áður af afrekum hans í íþróttum
á héraðsmótum HSH á Snæfells-
nesi. Það leyndi sér ekki á íþrótta-
vellinum að hann var mannkosta-
maður og í raun afreksmaður í
íþróttum sem sýndi með framgöngu
sinni að þar fór drengur góður sem
lagði sig allan fram við hvert það
viðfangsefni sem hann tókst á hend-
ur. Þegar leiðir okkar lágu saman
síðar á skrifstofu Stykkishólms-
hrepps kynntist ég nákvæmnis-
manninum töluglögga sem lifði sig
af áhuga inn í veröld reiknisskila og
skipulegra vinnubragða við fjár-
málstjórn. Halldór naut þess að fást
við bókhald og setti sig vel inn í allt
er varðaði reiknisskil sveitarfélaga.
Hann tók því sem keppnismaður
þegar ákveðið var að umturna bók-
haldi sveitarfélagsins og taka upp
samræmd reiknisskil sem þá var
verið að innleiða hjá sveitarfélög-
unum. Halldór hafði metnað fyrir
samfélagið og tók þátt í því ævintýri
sem ungir ofurhugar í sveitar-
stjórnarmálum tókust á við á átt-
unda áratugnum í Stykkishólmi. Sá
hópur var hvattur áfram af öflugu
stuðningsmannaliði sem trúði á
framtíð bæjarfélagsins. Það var
mikil vissa um að efla mætti sam-
félagið sem byggði á gömlum merg
en hafði verið slegið doða um hríð. Á
þeirri hraðferð var ekki ónýtt að
hafa traustan mann við skrifstofu-
haldið.
Eftir að Halldór tók við stjórn-
artaumum í útgerð og fiskvinnslu
Þórsness hf. gekk hann inn í nýja
veröld þess harða heims að reka
fyrirtæki sem miklar kröfur eru
gerðar til í litlu samfélagi. Það starf
Halldórs var farsælt. Þegar ég lít
yfir vegferð þeirra Þórsnessmanna
verður mér ljóst hversu mikil gæfa
það var atvinnulífi staðarins og eig-
endum Þórsnessins að Halldór
skyldi söðla um og takast á við það
með félögum sínum að byggja upp
útgerðarfélagið sem hann sem ung-
ur maður hafði veðjað á og gerst
hluthafi. Á þeim tíma var útgerðin
áhætturekstur sem ekki var auðvelt
að fá fjármagnseigendur til að fjár-
festa í. Með varfærni og hyggindum
hefur Þórsnesi hf. verið stýrt um
brim og boða í þá farsælu höfn sem
fyrirtækið hefur verið í hin síðari ár
þrátt fyrir margháttuð áföll sem út-
gerðin við Breiðafjörð hefur orðið
fyrir, ekki síst þau fyrirtæki sem
veðjuðu á veiðar og vinnslu hörpu-
disksins. Veikindi Halldórs settu
mikið mark á framgöngu hans síð-
ustu misserin og fá tækifæri gáfust
til þess að spjalla saman eins og við
gerðum jafnan þegar styttra var á
milli okkar.
Um leið og ég minnist góðs vinar
og samstarfsmanns með þakklæti
og virðingu sendi ég fjölskyldu
Halldórs samúðarkveðjur.
Sturla Böðvarsson.
Látinn er í Stykkishólmi Halldór
Jónasson, framkvæmdastjóri Þórs-
ness ehf., eftir erfiða baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Við hjónin viljum
með nokkrum orðum minnast hans.
Samstarf mitt og Halldórs stóð í
nær 20 ár en hans og Guðnýjar öllu
lengur. Í hugann kemur upp langur
vinnudagur því þá voru alvöru ver-
tíðir, mikill fiskur og bátar oft seint
í landi. Mikið um vökur fram eftir
nóttum. Halldór fylgdist vel með
öllum þáttum, bæði veiðum og
vinnslu. Allan þann tíma sem við
unnum saman bar aldrei skugga á
samstarfið. Þar var ekki æsingur
eða stóryrði og aldrei heyrði ég
Halldór hallmæla nokkrum manni
og það sem hann lofaði var staðið
við.
Ég segi það fyrir hönd okkar
beggja að betri yfirmann er vart
hægt að hugsa sér.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höfundur ók.)
Við Guðný kveðjum Halldór Jón-
asson með söknuði og sendum
Siggu, börnum og öðrum ættingjum
innilegar samúðarkveðjur.
Steinar.
Þó að fregnin um andlát Dóra
hafi ekki komið á óvart bregður
manni alltaf illa við þegar slík högg
koma. Ósjálfrátt, næstu daga, rifj-
ast upp margar minningar, úr leik
og starfi, sem tengjast þessum
dagsfarsprúða manni og góðum vini
og félaga. Dóri, sem aldrei tranaði
sér fram og sýndi í samskiptum við
alla hlýtt viðmót og fágaða fram-
komu, var vinsæll af félögum og
samstarfsmönnum. Fljótlega eftir
að hann kom í Stykkishólm tókst
með okkur vinátta gegnum íþróttir,
fótbolta og körfubolta, og saman
lékum við í liði Snæfells, sem fetaði
sín fyrstu spor á Íslandsmóti í körfu
fyrir knöppum fjórum áratugum.
Mörg korn eru runnin í stunda-
glasið síðan og þá bjuggju menn við
frumstæðar aðstæður, en litla
íþróttahúsið dugði vel og allir þrír
boltarnir sem Snæfell átti að
ógleymdum gamla vellinum,
Wembley, öllum í bylgjum, þar sem
sprett var úr spori á sumrin. En
Dóri var einnig afburða frjáls-
íþróttamaður og keppti m. a. í há-
stökki á landsmótum og stóð sig
ávallt með prýði, því samhliða lík-
amlegu atgervi hafði hann mikið
keppnisskap og var einbeittur og
viljasterkur, sem nýttist vel í ein-
staklingsgreinum. En leiðir okkar
áttu, sem betur fer, eftir að liggja
víðar saman í Hólminum. Árið 1972
stofnuðum við bókhaldsfyrirtæki
sem við rákum saman í 15 ár, sein-
ustu árin í samvinnu við annan.
Fyrstu árin unnum við tveir við fyr-
irtækið, og þá bara í frítímum, og
voru allar helgar og hátíðisdagar
nýttir. Oft voru miklar tarnir teknar
og kynntist ég þá hve afkastamikill
og vandvirkur bókhaldsmaður Dóri
var. Hann var alla tíð mjög tölu-
glöggur og fljótur að átta sig á hlut-
unum og einstök reglusemi og
snyrtimennska voru honum í blóð
borin og vitnuðu um störf hans og
dagfar. En ekki er síður kært að
minnast þess hve ánægjulegt og
gott var að eiga hann að samstarfs-
manni og meðeiganda, aldrei kom
til árekstra eða misklíðar okkar í
milli, þótt hvorugur væri skaplaus,
gagnkvæmt traust og vinátta sat í
fyrirrúmi.
Dóri starfaði um tíma á skrifstofu
Stykkishólmshrepps og var þar m.
a. staðgengill sveitarstjóra. Hann
var vel liðinn á þeim vettvangi en
margir þurftu að eiga við hann sam-
skipti eins og gengur. Fyrstu árin
mín í hreppsnefnd miðlaði hann mér
af reynslu sinni og var það vega-
nesti mikils virði.
Dóri tengdist Þórsnesi hf. mjög
snemma og byrjaði að færa bókhald
þess fyrirtækis fljótlega eftir að
hann kom í Hólminn. Honum var þá
þegar umhugað um rekstur Þórs-
nessins, þess vegna kom það ekki á
óvart er hann var ráðinn þar í fullt
starf sem skrifstofumaður og síðar
sem framkvæmdastjóri. Og svo
samofinn var hann fyrirtækinu að
hann var oft kenndur við það, Hall-
dór í Þórsnesi. Ég veit af mörgum
samtölum okkar, sumum löngum,
hve ábyrgðartilfinning hans var
mikil gagnvart fyrirtækinu og vel-
ferð þess og starfsfólksins. Í útgerð
og fiskvinnslu skiptast ávallt á skin
og skúrir og oft hefur blásið á móti
og reynt á stjórnandann og ég er
viss um að eðlislag Dóra, yfirvegun
og æðruleysi, hefur oft hjálpað að
svo vel tókst til sem raun ber vitni.
Einnig var hann prinsippmaður,
vildi hafa alla hluti á hreinu og
standa í skilum. Þegar hrun hörpu-
disksstofnins í Breiðafirði var orðin
staðreynd var ljóst að Stykkishólm-
ur fengi mikinn skell og stór hætta
yrði á alvarlegu bakslagi í atvinnu-
lífi og íbúaþróun. Dóra var mikið
niðri fyrir um þessi mál enda fram-
tíð okkar allra háð því hvernig okk-
ur tækist að setja mál okkar fram
við stjórnvöld. Hann hafði ákveðnar
skoðanir í þessu máli og stóð fastur
á sínu og með samstilltu átaki
margra tókst nokkuð farsællega að
lenda þessum málum og ég vissi að
vini mínum létti mikið þegar nið-
urstaða var fengin. Þarna eyddi
hann sínum síðustu kröftum.
Á kveðjustund vil ég þakka Dóra
ánægjulega samfylgd í Hólminum
alla tryggð og vináttu. Þegar Dóri,
innfæddur Reykvíkingurinn, kom
til starfa í Kaupfélagi Stykkishólms
fyrir um fjörutíu árum grunar mig
að hann hafi ekki hugsað sér að
gera langan stans, enda tækifærin í
þéttbýlinu syðra mörg fyrir hæfan
og vel menntaðan mann. En reynd-
in átti eftir að verða önnur. Hann
kunni strax mjög vel við sig í Hólm-
inum og batt við hann órofa tryggð
og eftir að þau Sigga stofnuðu heim-
ili hér var aldrei spurning hvar
skyldi lifað, starfað og dáið og
Stykkishólmur eignaðist í Halldóri
Jónassyni einn sinn besta son.
Kæra Sigga og fjölskylda, inni-
legar samúðarkveðjur, megi minn-
ingin um góðan dreng styrkja ykk-
ur í sorginni.
Ellert.
Hann hefir nú lokið hérvistar-
skeiði sínu og það með sóma. Það
voru engin læti í kringum hann, en
vinátta hans var trygg og varanleg.
Öll sín störf innti hann af höndum
með sérstakri árvekni og samvisku-
semi og loforð þau sem hann gaf
stóðu.
Þannig er hann í huga mínum og
ásamt fleirum sakna ég hans. Ég
veit líka að starfsfélagar hans finna
hversu sæti hans verður vandskip-
að.
Hann lét ekki mikið á sér bera, en
var þá því meiri vinur vina sinna og
alltaf var hann hress og ljúfur þegar
ég mætti honum á vegi eða við starf.
Ég kynntist honum fljótt eftir að
hann kom til Stykkishólms fyrir 40
árum. Fann strax að þarna var
traustur maður á ferð, sem myndi
vinna Stykkishólmi gagn og það
fundu fleiri. Enda kom það á dag-
inn. Stykkishólmi vann hann af al-
úð. Ég vil því minnast góðs drengs í
þessum fáu línum með þakklæti fyr-
ir hlý handtök og alúðlegt viðmót,
hvenær sem leiðir okkar lágu sam-
an.
Góður guð blessi hann og verndi
og styrki fjölskyldu hans.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
Við bekkjarsystkinin, sem braut-
skráðumst frá Samvinnuskólanum
að Bifröst vorið 1963, sjáum nú á
bak enn einum bekkjarfélaga okkar
Halldóri Jónassyni.
Í svo litlu skólasamfélagi, þar
sem allir þurftu að vinna saman,
mynduðust náin tengsl milli allra
nemenda, sem höfðu sig mismikið í
frammi. Margt var brallað á þessum
árum, mjög sterkt félagslíf þjappaði
hópnum saman og úr varð ein stór
fjölskylda nemenda og kennara.
Halldór, þessi prúði og hægláti
drengur, setti talsvert mark á það
fjölbreytta starf sem skólalífið hafði
í boði. Á þessum árum var kennari á
Bifröst sjálf ólympíustjarnan Vil-
hjálmur Einarsson og hafði hann
umsjón með útivist og tómstunda-
starfi nemenda. Meðal annars kom
hann á innanhússmótum í alls kyns
stökkgreinum og fóru þau fram að
hluta til á göngum skólans, því at-
rennu þurfti til þeirra, en litli
íþróttasalurinn nægði ekki. Halldór
var svo sannarlega stolt okkar
bekkjarfélaganna, því hann stóð
Vilhjálmi fyllilega á sporði í nokkr-
um greinum og skiptust þeir gjarn-
an á vinningum, nema kannske þrí-
stökkinu þar sem silfurhafinn hafði
vinninginn. Þessi mót voru ótrúlega
spennandi og við fylltumst aðdáun á
afrekum Halldórs.
Að námi loknu hélt þessi stóri
hópur út í atvinnulífið og hver hélt
sína leið.
Tengslin rofnuðu, sérstaklega við
þá sem fóru til starfa á landsbyggð-
inni.
Samskipti okkar Halldórs eftir að
námi lauk urðu ekki mikil, en þó átti
ég þess kost að heimsækja hann
nokkrum sinnum í Hólminn og voru
það ávallt ánægjustundir.
Við kveðjum góðan bekkjarfélaga
og sendum ástvinum innilegustu
samúðarkveðjur. Minningin lifir um
góðan dreng.
Gylfi Gunnarsson.
HALLDÓR
JÓNASSON
Fleiri minningargreinar um
Halldór Jónasson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.