Morgunblaðið - 14.03.2004, Síða 46

Morgunblaðið - 14.03.2004, Síða 46
SKOÐUN 46 SUNNUDAGUR 14. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í GREIN sinni í Morgunblaðinu þann 11. mars sl. skrifar Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkr- unarfræðinga (LH), um samantekt mína um stöðu lífeyr- isskuldbindinga ríkis og sveitarfélaga. Vand- séð er hvaða boðskap eða skýringar Haukur hefur fram að færa, en sakar mig þó um að umfjöllun mín byggist á ,,misskilningi og rang- færslum“. Því er ástæða til þess að vekja athygli bæði Hauks og lesenda Mbl. á nokkr- um staðreyndum sem finna má í ársreikn- ingum LSR og LH. Haukur furðar sig á því að það hafi komið forsvarsmönnum ASÍ eða öðr- um í opna skjöldu hvernig skuldbind- ingar opinberu lífeyrissjóðanna hafa þróast á undanförnum árum. Með lögum um starfsemi lífeyrissjóða frá 1997 var þeirri skyldu komið á, að all- ir lífeyrissjóðir verða að birta trygg- ingarfræðilegt mat á bæði áföllnum skuldbindingum og framtíð- arskuldbindingum vegna þeirra lof- orða sem þeir hafa veitt sjóðsfélögum sínum um lífeyrisréttindi, borið sam- an við bæði núverandi eignir og framtíðariðgjöld sjóðanna. Þessi upplýsingaskylda hefur gjörbreytt möguleika landsmanna til þess að fá einhverja innsýn inn í þá miklu baká- byrgð sem þeir bera vegna þessara skuldbindinga. Vandinn er, að þeir verða sjálfir að bera sig eftir þessum upplýsingum hjá þeim 18 lífeyr- issjóðum sem starfa með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Haukur hefur vissu- lega rétt fyrir sér að æði margt hefur vakið furðu forsvarsmanna ASÍ. Það hefur vakið furðu okkar hversu gríð- arlegar þessar skuldbindingar eru, en 317 milljarðar króna er langtum hærra en okkur hafði órað fyrir. Það hefur vakið furðu okkar hjá ASÍ að enginn, hvorki fjármálaráðuneyti, Seðlabanki Íslands, Hagstofa Íslands né Fjármálaeftirlitið hafa lagt neina áherslu á að taka saman upplýsingar um heildarstöðu þessara mála eða þróun þeirra. Það hefur reyndar ekki síður vakið furðu okkar hvað Alþingi og fjölmiðlar virðast hafa ótrúlega lít- inn áhuga á þessu. Samkvæmt fyrrgreindu laga- ákvæði verða stjórnir sjóða, sem reynast lofa meiru en sjóðirnir geta staðið við (þ.e. að heildarskuldbind- ingar eru meiri en heildareignir), að leggja fram tillögur um aðgerðir sem koma slíku jafnvægi á m.v. ákveðin vikmörk. Fjár- málaeftirlitið fylgir þessu lagaákvæði eftir og ef sjóður sinnir þess- ari skyldu sinni ekki getur hann misst starfsleyfi sitt. Frá þessu ákvæði er hins vegar undanþága gagn- vart opinberu lífeyr- issjóðunum, eins og fram hefur komið í við- tali við forsvarsmenn Fjármálaeftirlitsins í fjölmiðlum, þannig að þrátt fyrir að þeir eigi ekki fyrir loforðum sínum, halda þeir starfsleyfinu vegna þeirrar bak- ábyrgðar sem ríki og sveitarfélög veita þeim. Haukur furðar sig síðan á því að ég skuli í minni úttekt horfa til heild- arskuldbindinga sjóðanna, þ.e. bæði áfallinna skuldbindinga og framtíð- arskuldbindinga. Ég vil geta þess að ég fjalla um hvort tveggja í úttektinni (sjá www.asi.is), en dreg síðan fram niðurstöðu tryggingarstærðfræðings LSR og LH (ásamt öðrum opinber- um sjóðum) sem birt er í ársreikningi sjóðanna. Ég skil ekki með nokkru móti að Haukur geti sakað mig um rangfærslur að hafa eftir tölur úr ársreikningi sem hann sjálfur er ábyrgur fyrir að setja fram! Með því að meta framtíðarskuldbindinguna er verið að taka tillit til þess, að til að standa undir þeim réttindum sem verið er að lofa sjóðsfélögum, dugar 4% iðgjald launamanns og 6% mót- framlag viðkomandi stofnunar ekki og því mun það sem á vantar lenda á ríkissjóði og sveitarsjóðum. M.v. 1,5% kaupmáttaraukningu starfs- manna og 2% raunávöxtun eigna sjóðsins (og framtíðariðgjalda) jafn- gildir þessi meinta vöntun ríflega 64 milljörðum króna á verðlagi í árslok 2002 – og er það til viðbótar þeim 253 milljörðum króna sem á vantar til að sjóðurinn geti staðið við áunnin rétt- indi gagnvart sjóðsfélögum sínum. Ég verð að viðurkenna, að mér finnst þetta stórar upphæðir sem óhjá- kvæmilegt er að taka tillit til og hafa með í umfjölluninni. Helmingur allra verðmæta sem til urðu á árinu Haukur furðar sig síðan á því að ég skuli setja þetta í samhengi við lands- framleiðslu á árinu 2002 (úttektin miðaðist við það ár). Ég skil ekki af hverju, það er alkunn venja að setja ýmsar stærðir úr lífeyrissjóðakerfinu í samhengi við landsframleiðslu. Ástæða þessa er að þar sem um óvenjulega háar upphæðir er að ræða, reyndar stjarnfræðilega háar upphæðir, er reynt að skýra málið með slíkri framsetningu. Þetta þýðir að þjóðfélagið yrði að ráðstafa nærri helmingi allra þeirra verðmæta sem til urðu í landinu á árinu 2002 til þess að greiða þessi loforð upp. Önnur framsetning er að setja þetta í sam- hengi við stærðir sem venjulegt fólk skilur, en ef við gerum ráð fyrir að þessar skuldbindingar vaxi ekkert frekar (hversu trúverðug sem slík forsenda annars er) og ríki og sveit- arfélög geri þessar skuldbindingar sínar upp með útgáfu skuldabréfa á hvert mannsbarn, þarf slíkt skulda- bréf að hljóða upp á 1,1 milljón króna. Haukur sakar mig síðan um rang- færslur varðandi tengingu launa- hækkana þeirra starfsmanna ríkis og sveitarfélaga sem aðild eiga að þess- um sjóðum, við áunnin réttindi þeirra og áfallnar skuldbindingar hjá LRS og LH. Ég skil ekki hvað hann vill fara með þessu, það kemur afar skýrt fram í lögum og reglugerðum um þessa sjóði að eftirlaunaréttindi þeirra eru tengd beint við laun eft- irmanna í starfi. Þetta kemur ennþá betur fram í svokallaðri meðaltals- reglu hjá LSR, sem tryggir að eft- irlaunin fylgja „vísitölu dagvinnu- launa opinberra starfsmanna“ og Enn um lífeyrisskuldbind- ingar ríkis og sveitarfélaga Eftir Gylfa Arnbjörnsson ’Þjóðin öll er í ábyrgðfyrir þessum skuldbind- ingum en aðeins 20% þeirra sem eru á vinnu- markaði njóta þessara réttinda.‘ Gylfi Arnbjörnsson TIL SÖLU Veitingarekstur í Hafnarfirði Um er að ræða rótgróinn og vel tækjum búinn veitingarekstur sem getið hefur sér gott orð í Hafnarfirði og víðar. Öflugur rekstur, m.a. 3 veislu- salir fyrir 200-250 manns auk veitingastaðar sem tekur u.þ.b. 30 manns í sæti. Staðurinn er í góðu húsnæði sem er vel staðsett við fjölfarna götu, auglýsingagildi því gott. Langtímaleigusamningur er til staðar. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson, hjá Lögmönnum Hafnarfirði, sími 565 5155. Opið hús í dag - Urðarbakki 10 - Raðhús - 109 Reykjavík Þorbjörn Pálsson sölufulltrúi Sími 520-9555 898-1233 thorbjorn@remax.is RE/MAX Heimilisfang: Urðarbakki 10. Stærð: 210 fm. Byggingarár: 1968. Áhvílandi: 7,4 millj. Ásett verð: 21,5 millj. Tilboð: Tilboð óskast. Stórt og rúmgott 4-5 herb. raðhús á 4 pöllum ásamt bílskúr og stóru óinnréttuðu rými í kjallara með mikla möguleika. Virkilega vel viðhaldið og endurnýjað hús á þessum frábæra stað með útsýni. Þorbjörn sölufulltrúi tekur á móti gestum í dag, sunnudag, kl. 15.00 til 16.00 Höfðabakki Atvinnuhúsnæði Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði. Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242 www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 Mögulegt er að skipta ofangreindum stærðum í smærri einingar. Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfuðstöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s. iðnað, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl. Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignarfélag. 1. hæð 280 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust 481 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust 2. hæð 1.460 fm Skrifstofur/þjónusta Mjög hagstæð leiga Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði HÓTEL Í STYKKISHÓLMI Um er að ræða heila húseign, (Hótel Breiðafjörður), 400 fm á þremur hæðum, vel staðsett miðsvæðis í bænum. Gesta- rými fyrir 26 gesti í 14 her- bergjum, húsið var áður lækn- isbústaður en breytt í gisti- heimili kringum 1990. Miklir möguleikar í ört vaxandi ferða- mannabæ. Byggingarleyfi fyrir stækkun. (Teikningar á skrifstofu). Áhv. hagstæð lán. Verð 16,8 millj. SUMARHÚS SKORRADAL Nýkomið mjög fallegt 54 fm bústaður auk 25 fm svefnlofts, í landi Vatnsenda. Kjarrivaxið land, 100 fm verönd, frábært útsýni og staðsetning. Verð 9,2 millj. SMÁRATÚN - VATNSLEYSUSTRÖND Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað við sjóinn, glæsilegt mikið endurnýjað einbýli á einni hæð ásamt bíl- skúr, samtals um 175 fm. Eign- in hefur öll verið endurnýjuð á smekklegan hátt, húsið klætt að utan, glæsilegur sólpallur og tilheyrandi. 4 góð herbergi, parket, flísar. Húsinu fylgir 2 hesta hús. Húsið er staðsett örstutt frá Vogum (við ströndina). Áhv. hagstæð lán ca 14 millj. Verð 18,9 millj. Eign sem vert er að skoða. Verðtilboð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.