Morgunblaðið - 18.03.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
Glasgow 14.490 kr.
London 16.900 kr.
Kaupmhöfn 16.900 kr.
Hamborg 16.900 kr.
Berlín 16.900 kr.
Nýr netsmellur
BALDVIN TIL NOREGS
Fjölveiðiskipið Baldvin Þor-
steinsson EA 10 komst á flot aðfara-
nótt miðvikudags eftir umfangs-
miklar björgunaraðgerðir í
Meðallandsfjöru undangengna viku.
Baldvin er með laskað stýri og bilaða
kúplingu og er á leið í slipp í Noregi.
Ekki þurfti að losa olíu úr skipinu til
að létta það fyrir björgun af strand-
stað.
Mannfall í Bagdad
Tuttugu og átta manns biðu bana
og fjörutíu og einn til viðbótar særð-
ist þegar sprengja sprakk við hótel í
Bagdad, höfuðborg Íraks. Talið er
að um bílsprengju hafi verið að
ræða. Flestir hinna látnu eru taldir
hafa verið arabar en í þeirra hópi
voru þó einnig nokkrir Vest-
urlandabúar.
Lík drengsins krufið
Rannsókn á tildrögum þess að
drengur á tólfta ári lést af völdum
voðaskots á mánudagskvöld miðar
vel. Rannsóknin hefur m.a. staðfest
að um óhapp var að ræða sem leiddi
til þess að slysaskot hljóp úr byss-
unni og lenti í höfði drengsins. Lík
hans hefur verið krufið og er beðið
niðurstöðu krufningar. Verið er að
staðfesta frásagnir um það hvenær
byssan komst í hendur drengjanna,
og einnig hvar, hvernig og hvenær
hún hafi verið notuð eftir að það
gerðist.
Róstusamt í Kosovo
Tíu manns biðu bana í átökum
stríðandi fylkinga í borginni Mitrov-
ica í Kosovo í gær. Ófriðlegt var um
að litast víðar í héraðinu og mikil
spenna er nú hlaupin í samskipti
Albana og Serba í Kosovo. 250
manns slösuðust í átökunum í gær,
þ.á m. erlendir friðargæsluliðar sem
reyndu að halda stríðandi fylkingum
aðskildum.
Reykjavík Rapid hófst í gær
Eitt sterkasta atskákmót sem
haldið hefur verið hér á landi,
Reykjavík Rapid, hófst í gær með
undankeppni sem raðaði kepp-
endum í styrkleikaröð fyrir útslátt-
arkeppnina sem hefst í dag. Gary
Kasparov og Anatoly Karpov tefldu í
gær og endaði viðureign þeirra með
jafntefli. Athygli vakti að norska
undrabarnið, hinn 13 ára Magnus
Carlsen, sigraði í skák sinni við
Karpov.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 38
Erlent 14/16 Minningar 38/43
Höfuðborgin 19 Kirkjustarf 43
Akureyri 24 Skák 45
Austurland 26 Bréf 52
Suðurnes 27 Dagbók 54/55
Listir 28/29 Fólk 60/65
Neytendur 30 Bíó 63/65
Daglegt 32/33 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
ÍSLENSKUR stórþorskur veiddur
út af Snæfellsnesi komst á mánu-
dag í heimsmetabók Guinness sem
hluti af stærsta skammti sögunnar
af fiski og frönskum. Að sögn
Magnúsar Gústafssonar, forstjóra
Icelandic USA, dótturfélags SH,
vaknaði sú hugmynd í tengslum við
sjávarútvegssýninguna Boston Sea-
food að vekja athygli á þorskinum
sem afbragðsgóðum matfiski. Þeg-
ar skipverjar á Olla SH 375 föng-
uðu risaþorsk út af Snæfellsnesi
var fiskurinn sendur rakleitt vestur
um haf.
Mettilraunin fór fram á þekktum
írskum pöbb í Boston, Svörtu rós-
inni, sem boðið hefur gestum upp á
íslenskan fisk um langa hríð. Fisk-
urinn var flakaður og flökin lögð
saman og þeim velt upp úr deigi.
Síðan voru flökin steikt í risastór-
um djúpsteikingarpotti og er þau
voru dregin upp vógu þau 34,2
pund. Bætt var við frönskum kart-
öflum samkvæmt sérstakri formúlu
frá Guinness, og vógu þær 43,5
pund. Samtals vó þessi risa-
skammtur af „fish and chips“ því
77,7 pund. Gamla metið var sett í
S-Afríku í fyrra, 72 pund.
„Þetta var nú fyrst og fremst til
gamans gert en vakti reyndar
mikla athygli sjónvarps og blaða.
Það voru nærri 100 manns á veit-
ingahúsinu og borðaði fólkið mat-
inn með bestu lyst og hafði á orði
hve fiskurinn bragðaðist ein-
staklega vel,“ sagði Magnús.
Golþorskur í heimsmetabók
Ljósmynd/Örvar Ólafsson
Magnús Gústafsson, Michael Glynn, Ron Sasiela og Árni M. Mathiesen gæða sér á metmáltíðinni.
GREINING Íslandsbanka hvetur
íbúðakaupendur til að fresta lántök-
um fram yfir 1. júlí, en þá er fyr-
irhugað að peningalánakerfi taki við
af húsbréfakerfinu í tengslum við
fasteignaviðskipti. Formaður Félags
fasteignasala undrast þessar ráð-
leggingar Greiningar ÍSB. Hann
segir að ekki sé annað hægt en setja
spurningarmerki við þær.
Í Markaðsyfirliti Greiningar ÍSB í
gær segir að útlit sé fyrir að vextir af
peningalánum Íbúðalánasjóðs verði
lægri en nú er í húsbréfakerfinu. Því
sé hagstæðara fyrir íbúðakaupendur
að bíða fram yfir 1. júlí með lántökur
hjá Íbúðalánasjóði vegna íbúða-
kaupa miðað við ávöxtunarkröfu á
markaði í dag. Greining ÍSB segir
hins vegar að vextir af hinum nýju
lánum muni þrýstast upp á síðari
hluta þessa árs, því búast megi þá við
auknu framboði íbúðabréfa, sem
Íbúðalánasjóður mun gefa út til að
fjármagna húsnæðislánin.
Björn Þorri Viktorsson, formaður
Félags fasteignasala, segist ekki
geta annað en verið sammála því
sem Greining ÍSB segir, að fast-
eignaverð eigi eftir að hækka. „Að
ganga út frá því að þá sé heppilegra
að bíða hlýtur að stafa af því að
Greining ÍSB gengur út frá því að yf-
irverðið á húsbréfunum nýtist kaup-
endunum ekki. Það er röng ályktun,“
segir Björn Þorri.
Greining ÍSB/C5
Formaður Félags fasteignasala
Undrast ráð um að
fresta lántökum
DRENGURINN sem lést eftir að
hann varð fyrir voðaskoti á mánu-
dagskvöld hét Ásgeir Jónsteinsson
til heimilis á Haga á Selfossi. Hann
var tæplega tólf ára gamall, fæddur
21. apríl 1992.
Drengurinn
sem lést
KOLMUNNAKVÓTI Íslendinga á þessu
ári verður 54 þúsund tonnum minni en á
síðasta ári. Sjávarútvegsráðuneytið ákvað
í gær leyfilegt heildarveiðimagn fyrir út-
hafskarfa og kolmunna á árinu 2004.
Íslenskum skipum verður á árinu 2004
heimilt að veiða 493 þúsund tonn en heild-
arkvóti síðasta árs var 547 þúsund tonn.
Heildarkolmunnaafli síðasta árs var um
502 þúsund tonn, meiri en nokkru sinni áð-
ur.
Varlega áætlað nemur útflutningsverð-
mæti 493 þúsund tonna af kolmunna um 7
milljörðum króna. Íslensk skip hafa ekki
stundað neinar kolmunnaveiðar það sem af
er árinu.
Strandríki við Norður-Atlantshaf hafa árangurs-
laust reynt að ná samkomulagi um skiptingu veiði-
heimilda úr kolmunnastofninum. Hafa ríkin
ákveðið einhliða kvóta úr stofninum og hef-
ur afli ítrekað farið langt fram úr ráðgjöf
fiskifræðinga. Samkvæmt upplýsingum úr
sjávarútvegsráðuneytinu var kvóti Íslands
að þessu sinni miðaður við þann kvóta sem
önnur ríki hafa ákveðið á árinu en þau hafa
flest skert kvóta sína frá fyrra ári.
Úthafskarfakvóti Íslendinga á árinu
verður 55 þúsund tonn eða sá sami og á síð-
asta fiskveiðiári. Veiðiheimildir fyrir út-
hafskarfa skiptast á tvö veiðisvæði og er
heimilt að veiða 45 þúsund tonn á innra
svæðinu en 10 þúsund tonn á því ytra. Er sú
skipan óbreytt frá síðasta ári.
Veiðar á úthafskarfa og kolmunna eru háðar leyfum
Fiskistofu en rétt til veiða eiga þau skip sem aflaheim-
ildir hafa í þessum tegundum.
Kolmunnakvótinn
minnkar talsvert
MAÐUR var fluttur á slysadeild
Landspítala eftir harðan árekstur
tveggja fólksbíla á Eyrarbakkavegi
seinnipart dags í gær. Ökumenn
voru einir í bílunum. Áreksturinn
varð með þeim hætti að annar bíllinn
ók í veg fyrir hinn þar sem hann ók
eftir Eyrarbakkavegi. Báðir bílarnir
eru mikið skemmdir.
Árekstur á
Eyrarbakkavegi
RÚMLEGA þrítugur karlmaður var
dæmdur í hálfs árs fangelsi í gær
fyrir þrjár líkamsárásir gegn tveim-
ur konum um þrítugt, en önnur var
um tíma sambýliskona hans og hin
unnusta. Vegna óútskýrðs dráttar á
rannsókn málanna hjá lögreglu var
fullnustu fjögurra mánaða af refs-
ingunni frestað um þrjú ár.
Maðurinn var dæmdur til að
greiða annarri konunni sem hann
gekk tvisvar í skrokk á 200.000 krón-
ur í miskabætur með vöxtum og
dráttarvöxtum frá í apríl 2002. Hann
var og dæmdur til að borga allan
sakarkostnað málsins, þar með talin
200.000 króna málsvarnarlaun skip-
aðs verjanda síns og 100.000 króna
þóknun réttargæslumanns brotaþol-
enda.
Dómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur segir að árásir mannsins hafi
verið endurteknar og tilefnislausar.
Í fangelsi
fyrir þrjár
líkamsárásir
♦♦♦