Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 43
á leiðinni heim úr bústaðnum með
nýjan silung í soðið.
Þær eru svo ótalmargar ánægju-
stundirnar sem ég hef átt með
Ástu og Gústa, börnum þeirra og
barnabörnum í gegnum árin. Það
er stórt skarð höggvið í þennan
góða hóp við fráfall hans. Það var
aldrei lognmolla í kringum Ágúst
Karl. Hann var glaðvær og
skemmtilegur. Hann hafði mjög
gaman af því að rökræða pólitík.
Hann var fastur á sínum skoð-
unum og var þá ekkert að spara
stóru orðin. Gat stundum orðið
heitt í kolunum en allt var þetta í
góðu og hláturinn ekki langt und-
an. Gústi var félagslyndur og hafði
gaman af því að vera samvistum
við fólk. Þau hjónin stunduðu mik-
ið sund í Laugardalslauginni með-
an heilsan leyfði og eignuðust þar
góða félaga. Þá söng Gústi um
skeið með kór eldri borgara þar til
undan tók að halla og heilsan fór
að gefa sig.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum þakka honum mikil og góð
kynni sem aldrei bar skugga á.
Guð blessi minningu hans.
Kristjana Jónsdóttir.
Ágúst Karl Guðmundsson hóf
störf sem slökkviliðsmaður um
mitt ár 1948, þá sem varaliðsmað-
ur en var síðan fastráðinn sem
slökkviliðsmaður í fullu starfi árið
1960.
Ferill Ágústar hjá slökkviliðinu
var farsæll, fyrst sem óbreyttur
slökkviliðs- og sjúkraflutningamað-
ur og síðan sem innivarðstjóri.
Þegar ég hóf störf hjá slökkvilið-
inu var Ágúst orðinn innivarð-
stjóri. Þeirri stöðu gegndi hann af
trúmennsku og öryggi. Hann
flækti hlutina aldrei fyrir sér. Eftir
að Ágúst óskaði eftir því að hætta
á vöktum fór hann í dagvinnu og
sinnti ýmiskonar erindrekstri fyrir
slökkviliðið. Hann var alltaf góður
fulltrúi liðsins út á við. Ágúst lét
ekki af störfum fyrir slökkviliðið
fyrr en nærfellt sjötíu og eins árs
gamall og vann því fram á síðasta
dag. Hann starfaði því samfellt
sem fastráðinn slökkviliðsmaður í
33 ár. Það lýsir Ágústi vel að löngu
áður en hann hætti var hann far-
inn að undirbúa starfslok sín, m.a.
með því að sækja útskurðarnám-
skeið og eins fór hann að leggja
stund á kórsöng. Hann kom m.a.
að máli við mig varðandi það hvort
ekki væri hægt að koma kassettu-
tæki fyrir í bílnum sem hann not-
aði til erindrekstrarins, en þar ætl-
aði hann að æfa raddirnar fyrir
kórsönginn. Ég sé hann því fyrir
mér syngjandi og kátan í umferð-
inni. Eftir að hann lét af störfum
nutum við góðs af útskurðarhæfi-
leikum hans en hann gaf okkur
marga fallega muni.
Réttlætiskennd Ágústar var rík
og ef honum fannst á sig hallað tók
hann því ekki vel og var fastur fyr-
ir. Varð heldur stuttur í spuna.
Slíkt stóð þó aldrei lengi og ekki
var hann langrækinn heldur hló að
öllu saman þegar búið var að jafna
ágreining.
Slökkviliðið hefur haldið góðu
sambandi við þá sem komnir eru á
eftirlaun með ýmiskonar starfi.
Þar var Ágúst alltaf virkur, léttur
og skemmtilegur og lá ekkert á
skoðunum sínum þar frekar en
annars staðar. Það var gott að
hitta Ágúst í þessum hóp eins og
raunar alla þá fyrrverandi starfs-
menn sem þar eru virkir. Ágúst
var alltaf mjög jákvæður gagnvart
slökkviliðinu en það skiptir okkur
miklu sem enn erum að störfum.
Hann talaði jafnan um þær miklu
breytingar sem orðið hafa á að-
stöðu og menntun slökkviliðs-
manna frá því að hann hóf störf og
þar til nú af raunsæi og var ekki
einn af þeim sem héldu því fram að
allt hefði verið miklu betra í gamla
daga.
Við þökkum Ágústi áratugastarf
hjá slökkviliðinu og kynni við hann
á lífsleiðinni.
Hrólfur Jónsson,
slökkviliðsstjóri.
Ágúst vinur minn Guðmundsson
er látinn, hann lést á heimili sínu
9. mars sl.
Margs er að minnast af sam-
skiptum okkar Ágústar um langa
hríð. Kynni okkar Ágústar hófust,
þegar við störfuðum báðir sem af-
leysingarmenn í slökkviliði
Reykjavíkur um miðja síðustu öld.
Mér var ljóst frá fyrstu kynnum,
að Ágúst var einstakur maður,
bæði ljúfmenni en eins var hann
gamansamur og minnugur á menn
og málefni. Eftir því sem tíminn
leið urðu samskipti okkar og fjöl-
skyldu okkar nánari. Ófá eru þau
matarboðin, sem við Sigríður kona
mín sátum á heimili þessara góðu
hjóna, Ástríðar Hafliðadóttur og
Ágústar Guðmundssonar. Var þá
jafnan glatt á hjalla enda var ekki
amast við að við kæmum með börn
okkar sem þá voru þrjú.
Í daglegu lífi var Ágúst ákaflega
ljúfur maður, hæglátur en góður
samstarfsmaður og kunni frá
mörgu að segja. Minni hans var
sérlega gott og hann hafði næmt
auga fyrir því skoplega sem kunni
að henda í störfum. Einn eðlisþátt-
ur Ágústar var viðkvæmni. Hann
mátti ekkert aumt sjá, reyndi þá
alltaf að bæta úr eftir bestu getu.
Hann var einkar nærgætinn við
sjúklinga, en oft þurftum við að
annast sjúkraflutninga eins og
starfsreglur okkar sögðu til um.
Ef lýsa ætti Ágústi vini mínum í
fáum orðum yrði sú lýsing eitthvað
á þessa leið: Ljúfmenni og dag-
farsprúður, glöggur, skemmtilegur
og nærgætinn við þá sem minna
máttu sín.
En nú er komið að kveðjustund,
a.m.k. í bili. Við Sigríður og börn
okkar þökkum þér, kæri Ágúst,
konu þinni, frú Ástríði, og börnum
ykkar áratugavináttu sem aldrei
bar skugga á.
Sár sorg er nú kveðin að ætt-
mennum þínum konu og börnum
og barnabörnum en þakka ber það
sem gefið var.
Kæri vinur, við hjónin og fjöl-
skylda okkar biðjum Guð að varð-
veita þig í eilífðinni. Við biðjum
líka fyrir konu þinni og börnum og
megi þeim alltaf líða sem best.
Þökk fyrir áratuga vináttu.
Sigríður og
Björn Önundarson.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 43
Benediktssyni og eignuðust þau tvo
syni, Brynjólf og Benedikt, sem báð-
ir hafa gengið menntaveginn. Ella og
Hjörtur eiga þrjú barnabörn.
Ella var mikið veik allt síðasta ár
en samt alltaf jafnglöð og skemmti-
leg þegar við mæðgurnar komum til
hennar á spítalann.
Ég kveð Ellu vinkonu okkar allra í
Sigtúni 45 með virðingu og þökk fyr-
ir allt sem hún og maðurinn hennar
gerðu fyrir mig eftir að ég missti
manninn minn, Valgeir.
Elsku Hjörtur minn, Brynjólfur,
Benedikt og vinur minn og okkar
Brynjólfur Karlsson. Ég bið guð að
vernda ykkur alla í ykkar miklu sorg.
Megi tengdadætur og barnabörn
eiga yndislegar minningar um ömmu
sína og tengdamömmu.
Mýktu sjúka og sára und,
svo ég ylinn finni.
Gef þú mér nú góðan blund,
Guð, af miskunn þinni.
(Ingþór Sigurðsson)
Hvíl í guðs friði, elsku Ella.
Unnur Ragna Benediktsdóttir
(Agga.)
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12.15
í neðri safnaðarsal. Opið hús kl. 14–17 í
neðri safnaðarsal fyrir unga sem aldna.
Organisti Áskirkju leiðir söng. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Sabine Hill syngur og Hörður Áskelsson
leikur á orgel. Íhugun. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Mömmumorgnar kl. 10. Fatakynning, vor-
tískan. Vinafundir kl. 13–15.
Langholtskirkja. Foreldra- og ungbarna-
morgunn kl. 10–12. Opið hús, spjall,
fræðsla á vegum Heilsuverndar barna,
söngstund, kaffisopi. Umsjón hefur Gígja
Sigurðardóttir leikskólakennari. Allir for-
eldrar ungra barna velkomnir. Nánari upp-
lýsingar í Langholtskirkju. Lestur Pass-
íusálma kl. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri
Langholtskirkju. Allir velkomnir.
Landspítali – Háskólasjúkrahús. Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Birgir Ás-
geirsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
elið frá kl. 12. Þjónustu annast Bjarni
Karlsson og Sigurbjörn Þorkelsson, með-
hjálpari. Kl. 12.30 er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimilinu. Kl. 14 samvera
eldri borgara. Ólafur Mixa læknir fjallar
um heilbrigði og hollustu á efri árum.
Undir borðhaldi mun Torfi Jónsson, fyrrum
rannsóknarlögreglumaður, flytja ljóð og
spakmæli. Umsjón hefur Þjónustuhópur
Laugarneskirkju ásamt kirkjuverði og
sóknarpresti. Unglinga-Alfa kl. 19. Matur,
fræðsla og samfélag fyrir unglinga í 9. og
10. bekk Laugalækjarskóla og öll gömul
fermingarbörn úr þeim árgöngum, hvar
sem þau annars búa. Spennandi tæki-
færi, frjáls mæting og eintóm ánægja.
(Námskeiðinu lýkur með tilboði um helg-
arferð í Vatnaskóg.)
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson, organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ ung-
lingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17. 9.
bekkur og eldri kl. 19.30. Umsjón Munda
og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 20.
mars kl. 14. Sr. Helgi Hróbjartsson
kristniboði segir frá dvöl sinni í Vestur-
Afríku. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúðum
aldraðra á Skólabraut kl. 13.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN-starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Breiðholtskirkja. Tilvist, trú og tilgangur
II: Biblíulestrar í samvinnu leikmanna-
skólans og Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra kl. 20–22. Kennari dr. Sigurbjörn
Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. Barnastarf 6–9 ára kl. 17.15–
18 á neðri hæð kirkjunnar. Kl. 19 Alfa 3.
Lífið er áskorun. Fræðsla sr. Magnús
Björn Björnsson. (Sjá nánar: www.digra-
neskirkja.is.)
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldustund
(mömmumorgnar) kl. 10–12. Biblíulestur
og helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12 í
umsjá Lilju djákna. Stúlknastarf 8–10 ára
kl. 16.30–17.30. Alfa-námskeið kl. 19.
Sjá nánar: www.kirkjan.is/fella-holakirkja.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10. Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp
á áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar
og fræðandi samverustundir. Kirkjukrakk-
ar fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl.
17.30–18.30 í Grafarvogskirkju og einnig
í Húsaskóla á sama tíma. Æskulýðsfélag
fyrir unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju
kl. 20. Lestur passíusálma kl. 18.15. 36.
sálmur. Um skiptin á klæðunum Kristí.
Margrét K. Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi
les.
Hjallakirkja. Opið hús kl. 12. Kirkjuprakk-
arar, 7–9 ára starf kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldra fólki kl.
14.30–16 í safnaðarheimilinu Borgum.
Umsjón Sigríður Baldursdóttir. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 17. Fyrirbænaefnum má
koma til kirkjuvarðar eða presta.
Lindakirkja í Kópavogi. Bænastund kl.
12 í safnaðarheimilinu, Uppsölum 3.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 8–9
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið
tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra til
að koma saman og eiga skemmtilega
stund í notalegu umhverfi. Kaffi og léttar
veitingar, spjall, föndur, fyrirlestrar, kynn-
ingar og fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Fjallað verður um trúarþroska barna.
Kaffi, djús og gott samfélag. Sr. Þorvaldur
Víðisson. Kl. 20 heldur tólf spora vinna
áfram í KFUM&K-heimilinu. Umsjónarfólk.
Kl. 20 kóræfing kirkjukórs Landakirkju.
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). Aðal-
safnaðarfundur Innri-Njarðvíkursóknar fer
fram í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtu-
daginn 18. mars. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf. Íbúar sóknarinnar eru hvattir
til að mæta. Sóknarnefnd.
Keflavíkurkirkja. Lokaæfing fyrir ferming-
arbörn sem fermast 21. mars. Kl. 16–
16.45 8. VG í Heiðarskóla sem fermist
21. mars kl. 10.30 og 8. SV í Heið-
arskóla kl. 16.45–17.30 sem fermist kl.
14 þann 21. mars.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30. For-
eldramorgnar kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
KFUM & KFUK, Holtavegi. Samkoma kl.
20. Ræðumaður Helgi Hróbjartsson,
kristniboði. Upphafsorð Gunnar Bjarna-
son. Fjóla Dögg Halldórsdóttir syngur.
Friðrik Jensen Karlsson segir frá Mission-
kristniboðsráðstefnunni. Kaffi eftir sam-
komu.
Fíladelfía. Í dag er samvera eldri borgara
kl. 15. Allir eldri borgarar velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Glerárkirkja. Mömmumorgnar kl.
10–12. Æfing barnakórs Glerárkirkju kl.
17.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20
bingó til styrktar unglingahópnum.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Kyrrðar-
stund í Hall-
grímskirkju
Á kyrrðarstund kl. 12 á hádegi
fimmtudaginn 18. mars syngur
Sabine Hill með Herði Áskels-
syni organista. Hún syngur þrjú
lög úr Schemelli-söngbókinni og
aríu úr Jóhannesarpassíunni,
hvort tveggja eftir Johann Seb-
astian Bach. Sabine Hill hóf
nám í píanóleik átta ára gömul
og söngnám hóf hún 14 ára við
Freital-tónlistarskólann hjá
Dresden. Kennari hennar þar
var Sira Richter. Árið 1999
færði hún sig yfir í Listaháskól-
ann í Berlín þar sem kennari
hennar hefur verið prófessor
Ernst-Gerold Schramm. Haustið
2003 kom Sabine til Íslands til
að stunda nám í hálft ár hjá
Elísabetu Erlingsdóttur við
Listaháskóla Íslands.
Sabine leggur mesta áherslu
á óperutónlist og hefur reglu-
lega komið fram á ljóða-
tónleikum bæði í Berlín og
Dresden.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sambýliskona mín, dóttir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
HRÖNN BENÓNÝSDÓTTIR,
Sundastræti 35b,
Ísafirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 16. mars.
Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 19. mars kl. 10.30.
Jarðarförin auglýst síðar.
Páll Gunnar Loftsson,
Benóný Arnórsson, Valgerður Jónsdóttir,
Valdís Bára Guðmundsdóttir,
Svanhvít Sjöfn Guðmundsdóttir, Gunnar Friðgeirsson,
Stefán Björgvin Guðmundsson, Harpa Arnórsdóttir,
Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir,
Benóný Arnór Guðmundsson, Elínborg Herbertsdóttir,
Þórhalla Pálsdóttir,
Ágúst Örn Pálsson, Vilborg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.