Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 27
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 27
Hella | Árni Magnússon, félagsmála-
ráðherra og Guðmundur Týr Þór-
arinsson, (Mummi) forstöðumaður
Götusmiðjunnar, ásamt Snævari
Guðmundssyni, framkvæmdastjóra
Fasteigna ríkissjóðs, skrifuðu undir
samning á þriðjudag um að Götu-
smiðjan fengi afhentan allan húsa-
kost og aðstöðu fyrrverandi Vist-
heimilisins í Gunnarsholti, Akurhól,
gegn því að fasteignir og búnaður á
staðnum yrði endurbættur og haldið
við eins og þörf er talin á. Samning-
urinn gildir til 15 ára.
Í stuttu ávarpi sem Árni flutti við
þetta tækifæri, sagði hann að kost-
irnir við þennan samning væru þeir
að þetta styrkti starfsemi að Akur-
hóli til framtíðar og tryggt væri með
þessu að húsakostur sem er á staðn-
um verði í eðlilegri endurnýjun og
viðhaldi. Guðmundur Týr kvaðst afar
ánægður með þessa aðstöðu í „Götu-
smiðjunni Akurhóli“ eins og heim-
ilisfangið verður og flutti þakkir til
ráðuneytismanna og allra annarra
sem komið hefðu að málinu. Sagði
hann að núverandi aðstaða að Árvöll-
um á Kjalarnesi væri alltof þröng og
ekkert hægt að stækka þar. Í Akur-
hóli væri hins vegar nóg húsrými til
alls sem Götusmiðjan þyrfti með,
ásamt annarri aðstöðu, t.d. fyrir
hestamennsku og aðra tómstunda-
starfsemi sem væri hluti af meðferð-
arúrræðum.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
sveitarstjóri í Rangárþingi ytra,
flutti Götusmiðjunni góðar kveðjur
frá sveitarstjórn og bauð starfsem-
ina velkomna í héraðið og kvaðst
vona að hún yrði í góðu sambandi við
umhverfið. Hjálmar Árnason alþing-
ismaður flutti kveðjur frá þingmönn-
um í Suðurkjördæmi.
Að sögn þeirra Elísabetar Gísla-
dóttur rekstrarstjóra og Marsibilar
Sæmundsdóttur, framkvæmdastjóra
Götusmiðjunnar, verða 15 meðferð-
arnemendur að staðaldri í Akurhól.
Þeir eru misjafnlega langan tíma í
meðferðinni, frá 10 vikum til eins árs.
Aldur meðferðarnemenda er al-
mennt frá 15 árum upp í 20 ár. Mark-
mið Götusmiðjunnar er að aðstoða
ungt fólk sem hefur leiðst út úr hin-
um hefðbundna samfélagsramma og
inn í heim fíkniefna og afbrota, til að
fóta sig og koma lífi sínu í jákvæðan
farveg. Á síðasta ári voru útskrifaðir
um 50 nemendur.
Starfsmenn verða 14 í fullu starfi.
Flestir núverandi starfsmenn munu
flytja með starfseminni austur, en
reiknað er með að heimamenn verði
ráðnir að hluta til starfa þegar frá
líður. Staðarhaldari verður Tryggvi
Hannesson. Kristinn Guðlaugsson,
smiður og verktaki hefur þegar hafið
störf við endurbætur og lagfæringar
á húsum. Fyrirhugað er að flytja
starfsemina í byrjun júní og opna
formlega þann 19. júní nk.
Kostnaðaráætlun vegna flutnings
Götusmiðjunnar í Akurhól, Gunn-
arsholti, er áætlaður 4,5 milljónir
króna og verður fjármagnaður með
sölu á núverandi húsnæði að Árvöll-
um.
15 nemendur í meðferð
að staðaldri að Akurhóli
Morgunblaðið/Óli Már
Framtíðin: Hluti af húsakosti Götusmiðjunnar í Gunnarsholti.
Starfsemi að Árvöllum: Nokkrir af starfsmönnum Götusmiðjunnar. Frá
vinstri; Tryggvi Hannesson staðarhaldari, Elísabet Gísladóttir rekstrar-
stjóri, Marsibil Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri, Kristinn Guðlaugsson
smiður og Guðmundur Týr Þórarinsson forstöðumaður.
Gerði tölvuteikningar | Þorleifur
Björnsson byggingafræðingur kom
að hugmyndavinnu og ráðgjöf við
mótun tillagna framtíðarnefndar
Keflavíkur, íþrótta- og ungmenna-
félags, sem frá var sagt í blaðinu í
gær. Hann gerði meðal annars þær
tölvuteikningar af framtíðarhug-
myndum svæðisins sem birtust með
frétt um skýrslu nefndarinnar en þá
láðist að geta höfundar.
Reykjanesbær | Áætlað er að kostn-
aður við framkvæmdir sem Eignar-
haldsfélagið Fasteign hf. annast
fyrir Reykjanesbæ nemi tæpum 1,5
milljörðum á árunum 2005 til 2007.
Leigugreiðslur bæjarins vegna
þessara mannvirkja verða 130
milljónir kr. á ári.
Kemur þetta fram í svari fjár-
málastjóra bæjarins við fyrirspurn
Jóhanns Geirdal, bæjarfulltrúa
Samfylkingar.
Í þriggja ára áætlun Reykjanes-
bæjar, 2005 til 2007, er gert ráð fyr-
ir nokkrum byggingaframkvæmd-
um og leigugreiðslum þeirra vegna.
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.,
sem Reykjanesbær á aðild að, bygg-
ir mannvirkin og á þau en Reykja-
nesbær tekur þau á leigu.
Stærsta framkvæmdin er nýr
grunnskóli í Innri-Njarðvík. Áætlað
er að hann kosti 616 milljónir og að
árlegar leigugreiðslur Reykjanes-
bæjar nemi um 54 milljónum kr.
þegar hann verður að fullu kominn
í notkun. Fimmtíu metra löng inni-
sundlaug við Sundmiðstöðina í
Keflavík kostar tæpar 500 milljónir
og leigugreiðslur bæjarins verða þá
rúmar 43 milljónir á ári. Áætlað er
að tónlistarmiðstöð kosti 248 millj-
ónir í byggingu og að leigugreiðsl-
ur verði rúmar 20 milljónir. Auk
þessa er áformað að byggja nýjan
leikskóla og byggja við Holtaskóla.
Leigugreiðslur
hækka um 130
milljónir króna
LANDIÐ
Grindavík | Starfsmenn HH verks ehf. voru ekki
lengi að hrista tvö hús fram úr erminni. Það liðu
sex klukkustundir frá því þeir byrjuðu og þangað
til þeir voru búnir að reisa útveggina og einn milli-
vegg í tveimur húsum. Eru þetta fyrstu húsin í
nýju íbúðarhverfi í Grindavík, Lautarhverfi.
Galdurinn var sá að fyrirtækið Smellinn á
Akranesi hafði forsteypt einingar sem snarað var
upp með miklum hraða. Þessar forsteyptu ein-
ingar eru með einangrun og járni, plaströr fyrir
raflagnir eru komnar og búið að ganga frá ysta
byrðinu til frambúðar. „Við tókum grunninn 4.
febrúar og einingarnar komu 1. mars og sperr-
urnar 10. mars þannig að hraðinn var mikill. Við
erum að gæla við að afhenda fyrra húsið í júní. Við
vorum búnir að leggja hitann í gólfin þannig að
þetta er nálægt því að vera innflutningspartý“,
sagði Helgi Sæmundsson hjá HH verki ehf.
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri færði Helga
blóm af þessu tilefni enda er hann fyrsti hús-
byggjandinn í nýja hverfinu.
Fyrstir að
byggja
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Fyrsta húsið: Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri, t.v., afhendir Helga Sæmundssyni, forsvarsmanni HH
verks ehf., blómvönd í tilefni þess að hann byggir fyrstu húsin í nýja hverfinu sem kennt er við Laut.
ALLIR heimiliskettir skulu merktir varanlega og
skráðir hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, sam-
kvæmt samþykkt um kattahald á Suðurnesjum
sem sveitarfélögin eru að staðfesta eitt af öðru.
Kattaeigendur þurfa að greiða skráningargjald,
15 þúsund krónur á kött samkvæmt tillögu, og
fylgist Heilbrigðiseftirlitið með að óskráðir kettir
séu ekki á ferðinni.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja gerði tillögur að
reglum um kattahald fyrir Samband sveitarfélaga
á Suðurnesum. Reglurnar hafa verið samþykktar í
stjórn SSS og eru til staðfestingar í sveitarstjórn-
unum. Samþykktirnar taka gildi þegar þær hafa
verið auglýstar í Stjórnartíðindunum sem búist er
við að verði á næstunni.
Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, segir að vandamál
hafi verið með ketti í ákveðnum hverfum bæjanna
á Suðurnesjum og sums staðar verið hitamál milli
íbúa. Grundvöllur þess að ákveðið hafi verið að
setja reglur um kattahald á svæðinu hafi verið að
hægt væri að sjá hverjir væru eigendur kattanna.
Það hafi sýnt sig að ólarnar dugi ekki því þær losni
oft af. Því sé í reglunum kveðið á um að allir kettir
verði merktir varanlega, annaðhvort með húðflúri
í eyra eða örmerki undir húð.
Jafnframt er mönnum gert að skyldu að skrá
heimiliskettina hjá Heilbrigðiseftirlitinu og greiða
skráningargjald sem samkvæmt tillögunum verð-
ur 15 þúsund krónur. Gjaldið er aðeins greitt einu
sinni. Fólki sem á ketti við gildistöku reglnanna
verður gefinn kostur á að skráð þá við lægra verði,
eða 10 þúsund krónur, ef það gerir það fyrir
ákveðinn tíma. Við skráningu eiga kattaeigendur
að framvísa vottorði frá dýralækni um orma-
hreinsun.
Heilbrigðiseftirlitið mun fylgja reglunum eftir
strax í vor. Menn á þess vegum muna vera á ferð-
inni með fellibúr og fanga ketti. Ef kettirnir eru
skráðir verður þeim strax sleppt. Ómerktir kettir
verða geymdir í tiltekinn tíma og sé þeirra vitjað
geta eigendur leyst þá út fyrir áfallinn kostnað.
Heilbrigðiseftirlitið er að láta innrétta góða dýra-
geymslu í þessum tilgangi.
Hundruð katta á svæðinu
Magnús E. Guðjónsson segir ekki vitað hversu
margir kettir eru á svæðinu en þeir skipti líklega
hundruðum. Hann segir líklegt að þeim muni
fækka þegar reglurnar taka gildi því fólk sem ekki
haldi ketti af fullri ábyrgð og umhyggju muni
væntanlega losa sig við þá. Þá sé líklegt að fressin
verði vönuð, því það þurfi hvort sem er að fara með
þau til dýralæknis, og við það minnki vandræðin
sem skapist af baráttu þeirra um yfirráðasvæði.
Magnús segir að þetta sé í fyrsta skipti sem
sveitarfélög hér á landi taki heildstætt á eftirliti
með kattahaldi. Örmerkingarnar séu grundvöllur
þess.
Í samþykkt um kattahald á Suðurnesjum er tekið heildstætt á eftirlitinu
Allir kettir merktir varanlega
Morgunblaðið/RAX
Skemmdarverk | Þrír ljóskast-
arar á Reykjaneshöllinni hafa verið
brotnir á undanförnum vikum og sá
fjórði var brotinn milli jóla og nýárs.
Tilkynnt var um þessi skemmdar-
verk til lögreglunnar í Keflavík í
fyrradag. Verðmæti hvers kastara
er um eitt hundrað þúsund kr., að
því er fram kemur á vef lögregl-
unnar.