Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 11
HÁLFÁTTRÆÐUR fyrrverandi
læknir hefur verið sektaður um
100.000 krónur í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir brot á læknalög-
um með því að halda áfram að
stunda lækningar eftir að hann var
sviptur lækningaleyfi haustið 2002.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa á starfsstöð sinni stundað
lækningar og kallað sig lækni og í
því sambandi tekið á móti sjúkling-
um og vísað sjúklingum til frekari
læknisrannsókna.
Jafnframt hafi hann gefið til
kynna að hann væri læknir og
stundaði lækningar með því að hafa
uppi merkingar við starfsstöð sína,
þar sem fram kom að hann væri
læknir og sérfræðingur í tilgreind-
um greinum læknisfræðinnar, þrátt
fyrir að hafa verið sviptur leyfi til
að stunda lækningar og kalla sig
lækni.
Maðurinn bar því við að hann
hafi ekki stundað lækningar „í víð-
asta skilningi“ frá því hann hafi
verið sviptur lækningaleyfi. Hafi
hann einkum talað við vini og kunn-
ingja á læknastofunni sem höfðu
haft hann sem lækni áður en til
sviptingarinnar kom.
Öðrum hafi hann vísað til ann-
arra lækna.
Bað um blóðrannsóknir
Í málinu kom fram að maðurinn
hafði skrifað upp á tilvísanir sem
hann hafi sent fólk með á blóðrann-
sóknardeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss þar sem umbeðnar
rannsóknir hafi verið fram-
kvæmdar. Afar ótrúverðugur þótti
sá framburður hans að hann hafi
fyllt út beiðnir um blóðrannsókn
meðan hann hafði enn lækninga-
leyfi en beiðnirnar ekki borist rann-
sóknarstofu fyrr en mörgum mán-
uðum eftir að hann hafði fyllt þær
út.
Í málinu lá jafnframt fyrir að eft-
ir að maðurinn var sviptur lækn-
ingaleyfi kom hann fyrir dóm og
bar vitni sem læknir og sérfræð-
ingur.
Borgi maðurinn ekki sektina inn-
an fjögurra vikna kemur 20 daga
fangelsi í staðinn. Hann var og
dæmdur til að borga allan sakar-
kostnað, þar með talin 120.000 kr.
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns.
Dóminn kvað upp Ingveldur Ein-
arsdóttir héraðsdómari.
Leyfislaus læknir sektaður
RÚMLEGA fimmtugur maður
hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi, skilorðsbund-
ið í tvö ár, í Héraðsdómi
Reykjavíkur, fyrir kynferðis-
brot gegn tveimur 14–15 ára
stúlkum. Brotin framdi mað-
urinn á veitingastað í Reykja-
vík í janúar í fyrra.
Maðurinn var ákærður fyrir
kynferðisbrot gegn þremur
stúlkum 13–15 ára en ekki
þótti fram komin lögfull sönn-
un um að hann hafi brotið
gegn yngstu stúlkunni. Brot
hans gegn tveimur eldri stúlk-
unum þóttu sönnuð þrátt fyrir
neitun mannsins.
Dómari við Héraðsdóm
Reykjavíkur sagði að við
ákvörðun refsingar bæri að
líta til þess að með brotunum
særði maðurinn blygðunar-
semi stúlknanna. Vegna ungs
aldurs þeirra hafi háttsemi
hans verið til þess fallin að
hafa dýpri áhrif á þær en ef
um fullorðna einstaklinga væri
að ræða.
Fullnustu refsingar manns-
ins var frestað og fellur hún
niður eftir tvö ár haldi hann
almennt skilorð. Hann var
dæmdur til að borga 2/3 hluta
sakarkostnaðar, þar með talda
2/3 hluta 180.000 króna máls-
varnarlauna skipaðs verjanda
síns, en 1/3 hluti sakarkostn-
aðar greiðist úr ríkissjóði.
Ingveldur Einarsdóttir hér-
aðsdómari kvað upp dóminn.
Skilorðs-
bundið
fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot
KRINGLUKAST
FIMMTUDAG - SUNNUDAGS
Kringlunni - sími 581 2300
Dömur
Sumarskyrtur 6.390 nú 1.990 Tveir litir.
Sumarjakkar 16.790 nú 8.395 Tveir litir.
Herrar
Herrajakkar blazer 24.990 nú 12.495
Bómullarbuxur 6.590 nú 3.590. Margir litir.
Bómullarbuxur 2 fyrir 1 á 6.590.
Nýtt kortatímabil
Kringlukast í
18.-21. mars
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Kringlan 8-12, sími 533 1322
Nýjar vörur
og mörg
góð tilboð
Kringlunni
- sími 568 1822
Kringlukast
Tilboð á
sumar-
úlpum
Við gefum þér afmælisgjöf!
12% afsláttur af öllum vörum
Vertu velkomin í afmælið dagana 18., 19. og 20. mars
Þar geturðu kynnst m.a.:
• Nýju vor- og sumarlitunum frá Lancóme, Helena Rubinstein,
Shiseido og YSL. Ráðgjafi frá YSL verður á staðnum.
Tímapantanir ef óskað er.
• Frábærum sundbolum í stærðum 38-48.
• Fjölbreyttu úrvali af WOLFORD sokkabuxum og samfellum.
FJÖLMÖRG SPENNANDI TILBOÐ
Við hlökkum til að sjá þig!
12 ára
Þjónusta og fagmennska í fyrirrúmi
Snyrti- og gjafavöruverslun
Laugavegi 80, sími 561 1330Laugavegi 46 • sími 561 4465 • Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 • lau. frá kl. 10-16.
3ja daga tilboð
í tilefni nýju búðarinnar
15% staðgreiðsluafsláttur af öllum nýjum fatnaði
vörurnar eru komnar aftur
Hraunbæ 119, (í nýjum verslunarkjarna í Árbæ), sími 567 7776.
Útsala útsala -
Enn meiri
verðlækkun
Tilboðsslár - mikið úrval -
Erum að taka upp glæsilega
micro boli í sumarlitum.
Laugavegi 63, sími 551 4422
Stórglæsileg
sumarlína