Morgunblaðið - 18.03.2004, Qupperneq 24
AKUREYRI
24 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING á skjölum, bókum og mun-
um sem tengjast Hannesi Hafstein
og heimastjórnarárunum í Eyjafirði
verður opnuð 18. mars kl. 17.30 á
Amtsbókasafninu á Akureyri. Hall-
dór Blöndal, forseti Alþingis, mun
opna sýninguna, sem verður opin frá
kl. 10 til 19 virka daga og 10 til 15 á
laugardögum.
Á sýningunni má m.a. sjá bréf frá
Hannesi sem ekki hafa áður komið
fyrir sjónir almennings, ljóð eftir
Hannes og einnig ritdóma um ljóð
hans. Einnig verða sýnd ýmis skjöl
sem tengjast heimastjórnarárunum í
Eyjafirði og ýmsir munir og ljós-
myndir frá þessum tíma.
Að sýningunni standa forsætis-
ráðuneytið, menningarmálanefnd
Akureyrar, Héraðsskjalasafnið á
Akureyri og Amtsbókasafnið á Ak-
ureyri. Einnig leggur Minjasafnið á
Akureyri til ýmsa muni á sýninguna.
Henni lýkur þann 17. apríl.
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur flytur svo kl. 20.30 um kvöldið er-
indi um ævi Hannesar en hann er
með í smíðum bók um ævi Hannesar.
Að loknu erindi Guðjóns geta menn
komið með fyrirspurnir ef þeir vilja.
Amtsbókasafnið og Héraðsskjalasafnið
Hannes og heima-
stjórnarárin
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
tekið upp nýtt verklag í kjölfar þess
að bæjarmálasamþykktum hefur
verið breytt. Markmiðið með breyt-
ingunum er að auka hagræði og skil-
virkni og hraða málsmeðferð í
stjórnsýslunni. Akureyri er fyrsta
sveitarfélagið í landinu til að gera
slíkar breytingar, en með þeim er
stefnt að því að efla stefnumarkandi
hlutverk bæjarstjórnar.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði þegar hann kynnti breyt-
ingarnar að fundir bæjarstjórnar
yrðu eftirleiðis mun markvissari en
áður. Nefndum og embættismönn-
um hefur nú verið falið að taka fulln-
aðarákvörðun mála, sem gerir að
verkum að bæjarstjórn hættir að
vera nokkurs konar afgreiðslustofn-
un fyrir nefndir bæjarins svo sem
áður var. Þannig verður afgreiðslu-
ferill mála mun einfaldari, tíminn
sem fer í að afgreiða mál styttri og
bæjarfulltrúar geta einbeitt sér að
stefnumörkun. „Stjórnmálamenn
geta þá snúið sér alfarið að stefnu-
mörkun, svo sem þeir eru kjörnir
til,“ sagði bæjarstjóri. „Við munum
þreifa okkur áfram með þetta nýja
verklag og vonum að það skili sér í
betri árangri í þessu samfélagi.“
Kjörnir fulltrúar
afsala sér ekki valdi
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlög-
maður skrifaði grein í nýjasta hefti
Sveitarstjórnarmála þar sem hún
fjallar um auknar heimildir nefnda
og embættismanna til að taka fulln-
aðarákvarðanir án staðfestingar
bæjarstjórnar. „Valdaframsal til
nefnda og embættismanna felur ekki
í sér að kjörnir fulltrúar í bæjar-
stjórn afsali sér valdi heldur kallar
það á skýrari stefnumörkun af hálfu
bæjarstjórnar og setningu reglna,
sem nefndir og embættismenn munu
vinna eftir við töku fullnaðar-
ákvarðana,“ segir í grein Ingu Þall-
ar.
Fram til þessa voru fundargerðir
nefnda uppistaða í dagskrá bæjar-
stjórnarfunda og umræða um
stefnumörkun fór því oftast fram ut-
an bæjarstjórnar. „Í nýju skipulagi
verða fundargerðir nefnda einungis
lagðar fram til kynningar í bæjar-
stjórn, en aðaldagskrárefni bæjar-
stjórnarfundar verða stefnumark-
andi mál sem bæjarstjóri,
bæjarfulltrúar og nefndir óska eftir
að koma á dagskrá.“
Jakob Björnsson, formaður bæj-
arráðs, sagði spennandi að taka þátt
í þessum breytingum á verklagi bæj-
arstjórnar og að hann vissi til þess að
sveitarstjórnarmenn víða á landinu
horfðu nú til Akureyrar með hvernig
til tækist.
Bæjarstjóri mun framvegis semja
dagskrá bæjarstjórnarfunda, en
óskir um dagskrármál verða að hafa
borist um hádegi á föstudegi fyrir
bæjarstjórnarfund sem haldinn er
annan hvern þriðjudag.
Bæjarmálasamþykkt breytt og nýtt verklag tekið upp
Stefnumark-
andi umræður
í bæjarstjórn
Nefndir og embættismenn fá auknar heim-
ildir til að taka fullnaðarákvarðanir
Morgunblaðið/Kristján
Nýtt verklag. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar, og Jakob Björnsson, for-
maður bæjarráðs, kynntu nýtt verklag á bæjarstjórnarfundi á Akureyri.
Smábátasjómenn | Félagsfundur
í Kletti, félagi smábátaeigenda frá
Ólafsfirði að Tjörnesi, skorar á sjáv-
arútvegsráðherra að eyða þeirri
óvissu sem útgerðarmenn dagabáta
eru í með því að setja nú þegar 23
daga gólf í dagakerfið, þannig að út-
gerðarmenn þessara báta geti haldið
sinni útgerð áfram í stað þess að sjá
lífsbjörgina fjara út á næstu árum.
Fundurinn ítrekar jafnframt fyrri
ályktanir til handa dagróðrabátum
og skorar á sjávarútvegsráðherra og
þingmenn kjördæmisins að breyta
núgildandi lögum um línuívilnun
þannig að hún gildi fyrir alla dag-
róðrabáta hvort sem línan er beitt í
landi eða stokkuð upp. Þá mótmælir
fundurinn áformum fjármálaráð-
herra um afnám sjómannaafsláttar.
Stóra upplestrarkeppnin | Alls
taka 12 fulltrúar grunnskólanna á
Akureyri þátt í úrslitum Stóru upp-
lestrarkeppninnar sem fram fer í
dag, fimmtudaginn 18. mars kl. 17 í
sal Menntaskólans á Akureyri.
Skáld keppninnar í ár eru Stefán
Jónsson og Þuríður Guðmundsdóttir
og mun lesararnir ungu lesa brot úr
sögunni Hjalti kemur heim eftir
Stefán og ljóð eftir Þuríði, auk ljóða
að eigin vali. Nemendur hafa æft
upplestur og framburð með leiðsögn
kennara frá því Dagur íslenskrar
tungu var haldinn í nóvember.
Áhyggjur af fjársvelti | Þroska-
þjálfar sem starfa hjá Akureyrarbæ
hafa sent frá sér ályktun sem sam-
þykkt var á fundi þeirra á dögunum.
Þar lýsa þeir áhyggjum vegna fjár-
sveltis í málaflokki fatlaðra, eins og
segir í ályktuninni og að vegna þess
eigi þeir erfitt með að framfylgja
lögum um málefni fatlaðra sem og
siðareglum þroskaþjálfa. Hvetja
þeir fjárveitingavaldið til að veita
meiri fjármunum til málaflokksins
„þannig að slagorð bæjarins „Öll
lífsins gæði“ eigi jafnt við þá sem
búa við fötlun og þá sem teljast vera
ófatlaðir.“
Blús á Vélsmiðjunni | Andrea
Gylfadóttir og Blúsmenn troða upp á
Vélsmiðjunni við Strandgötu í kvöld,
fimmtudags-
kvöldið 18.
mars. Þau hefja
leikinn kl. 21.30,
en húsið verður
opnað klukku-
stund fyrr.
Andrea og blús-
menn hennar
hafa að und-
anförnu komið
fram á höf-
uðborgarsvæð-
inu en nú gefst
Akureyringum
og nærsveit-
armönnum færi
á að hlýða á
vandaða dag-
skrá sem sveitin býður upp á.
OPIÐ 9-18
FANNAFOLD - EINBÝLI
Vorum að fá í sölu fallegt um
243 fm einbýlishús á 2 hæðum
m. innbyggðum bílskúr og stór-
glæsilegu útsýni. Góð stofa með
arni, borðstofa, suðursvalir.
Sjónvarpskrókur, eldhús,
þvottah. og 2 baðherbergi,
6 svefnherbergi. Húsið er mjög
vel staðsett í botnlangagötu.
Barnvænt hverfi. BEIN SALA
EÐA SKIPTI Á MINNI EIGN.
Nýkomnar eignir á söluskrá okkar!
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími
588 4477
Stararimi - nýl. glæsilegt einbýli
Í einkasölu glæsilegt og svo til fullbúið 193
fm einb. á einni hæð m. viðbyggðum jeppa-
bílsk. Mjög góð staðsetn. innarlega í lokaðri
götu. Vandaðar innr. Massívt parket. Fallegur
arinn í stofu. 4 góð svefnherbergi. Glæsil.
baðherbergi og gestasnyrting. Einungis eftir
að klára þakkant og bílaplan. Verð 28,5 m.
Framnesvegur - í nýl. húsi m. bílskúr
Vel skipulögð 61 fm 3ja herb. íbúð
á 2. hæð í litlu fjögura íbúða húsi,
ásamt innbyggðum bílskúr, á mjög
góðum stað í gamla vesturbænum.
Stórar suðursvalir. Parket.
Áhv. húsbr. 6,6 m. Verð 10,6 m.
Gnoðarvogur - Reykjavík - góð íbúð - laus strax
Falleg og vel skipulögð ca 75 fm íbúð á 3.
hæð í góðu fjölb. við Gnoðarvog. Örstutt í
Glæsibæ/Laugardalinn. Nýl. rafmagn og tafla.
Plastparket. Nýmáluð o.fl. Húsið er Steníklætt
að hluta. Laus strax. Verð 11,6 m.
Vesturgata - í nýlegu húsi - glæsilegt útsýni
Í einkasölu falleg og rúmgóð ca 135 fm íbúð
á 2. hæð í nýlegu fjölbýli á frábærum útsýn-
isstað. Fallegt vandað eldhús og bað. Fjögur
svefnherbergi. Suðursvalir. Glæsilegt útsýni á
Snæfellsnes, Akrafjall, flóann o.fl. Áhv. húsbr.
ca 7 millj. Verð 18,5 millj.
Kórsalir - glæsilegt lyftuhús
Vorum að fá í sölu fullbúna glæsil.
4ra herb. íbúð á 2. hæð, ásamt
stæði í vönduðu bílskýli. Myndasími.
Hiti í bílaplani og stéttum. Suðursv.
Sérþvhús. Áhv. 11,0 m. langtímalán.
Hagst. greiðslub. Verð 17,0 millj.
Eskihlíð - sérinngangur - laus strax
Í einkasölu mjög rúmgóð um 80 fm
íbúð í kj. á mjög góðum stað. Flísar
og parket. Gott endurn. bað og
eldhús. Áhv. húsbr. 6,2 m. Húsið
þarfnast standsetningar að utan
fljótlega. Verð 10,2 millj./tilboð.
Víkurás - bílskýli - mjög góð íbúð m. sérgarði
Falleg og vel skipulögð ca 75 fm íbúð á 1.
hæð með sérgarði og suðvesturverönd. Nýl.
plastparket. Þvottahús í íbúð. Áhv. ca 9,7 m.
húsbréf + viðbótarlán. Verð 11,6 m.
Blöndubakki - 4ra + aukaherb. - laus strax
Í einkasölu góð íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt
aukaherbergi í kjallara með aðgangi að wc
m. sturtu, alls 106 fm. Suðursvalir. Þvotta-
herb. í íbúð. Áhv. 7,9 m. húsbr.
Verð 12,9 m. Laus við kaupsamning.