Morgunblaðið - 18.03.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 18.03.2004, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. KOSTNAÐUR við björgun Bald- vins Þorsteinssonar hefur enn ekki verið tekinn saman, að sögn Gunnars Felixsonar, for- stjóra Tryggingamiðstöðv- arinnar, sem skipið er tryggt hjá. Gunnar segir þó ljóst að björgunarkostnaðurinn nemi tugum milljóna króna. Til dæm- is sé kostnaður vegna norska dráttarskipsins og búnaðar sem því fylgi, eins og drátt- artaugarinnar, á aðra milljón króna á sólarhring. Enn vanti margar kostnaðartölur og ekki sé búist við að heildarkostnaður liggi fyrir fyrr en eftir nokkra daga. Björgunin kostar milljónatugi Þ að er komin staðfesting,“ heyrist úr talstöðv- arbílnum í fjörunni og skyndilega verður allt vitlaust. Baldvin Þor- steinsson er kominn á flot og björg- unarhópurinn í landi ærist af fögn- uði. Klukkan er rúmlega tvö að nóttu í Meðallandsfjörum og umfangsmikil björgunaraðgerð, sem staðið hefur yfir í eina viku, er loks að baki. Allir eru örþreyttir en alsælir þarna í fjörunni og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, réttir Grétari Einarssyni, varafor- manni björgunarsveitarinnar Vík- verja, kampavínsflösku. Tappinn skýst upp í loftið með hvelli og síðan rignir kampavíni yfir mannskapinn. Menn og konur faðma hvert ann- að og þakkir og hamingjuóskir heyrast á báða bóga. Fólki er gríð- arlega létt. Frá því að Baldvin strandaði hafa 60 björgunarsveitarmenn Slysa- varnafélagsins Landsbjargar í björgunarsveitum í V-Skaftafells- sýslu aðstoðað Samherjamenn við að bjarga skipinu, auk Landhelg- isgæslunnar, Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, Landsvirkjunar og fleiri. þegar Baldvin festist á san festingarnar í hann slitnuð reynt var að draga hann á f ingarnar voru styrktar og t milli á skipanna á nýjan leik þriðjudag. Kl. 18 var allt or og farið í næsta verkefni se að snúa skipinu 180 gráður unni svo að hægt yrði að dr út á stefninu. Snúningurinn an við klukkustund um mið og gekk allt að óskum. Nor dráttarskipið Normand Ma síðan dráttinn á öðrum tím að þessu sinni héldu festing þegar Baldvin ruddist í geg sandrifin kl. 2 um nóttina. Þ eins og menn vildu ekki fag fljótt, en síðan kom staðfes Baldvini hafði verið bjarga Gerðist fyrr en við áttum von á „Þetta er dásamleg tilfin er ekki hægt að lýsa henni, Kristján Vilhelmsson, útge arstjóri Samherja, við Mor unblaðið andartaki eftir gle ina. „Þetta gerðist fyrr en v von á,“ bætir hann við. „Þe frábært fólk og ótrúlega hj samt,“ sagði hann um björg unarhópinn sem hann lýsti miklu fagfólki. Tengt að nýju á þriðjudag Hlutirnir gerðust hratt á þriðju- dagskvöldið og ljóst að menn ætl- uðu ekki að verða fyrir sömu von- brigðum og á sunnudagskvöld, Mikill fögnuður björgunarfólks í Me „Dásamleg t " !"" 7   2&  & . *  >?   @ /"     1    < '  M  7                $           7   %   % @        +      %  !2 %       B "  %         SORG Engin orð geta lýst þeirrisorg, sem ríkir vegna hinshörmulega atburðar á Sel- fossi, þegar ungur drengur lézt af völdum voðaskots sl. mánudags- kvöld. Slíkur atburður er svo þungbær, að orð geta þar engu breytt. Hugur fólks er hjá að- standendum litla drengsins, fé- lögum hans og öðrum, sem hlut eiga að máli. Það er ekki að ástæðulausu, að bæði hér og ann- ars staðar er varað við byssueign og að strangar reglur gildi um meðferð skotvopna. Augljóslega verður að fylgja þeim reglum fast eftir og tímabært kann að vera að kalla eftir öllum ólöglegum vopna- búnaði, sem kann að vera í hönd- um einstaklinga hér. BJÖRGUN BALDVINS ÞORSTEINSSONAR Það er ekki heiglum hent aðbjarga skipi af Meðallands- fjöru. Það tókst með glæsilegum hætti, þegar togarinn Baldvin Þorsteinsson losnaði af strand- stað og var dreginn á haf út. Þar með var miklum verðmætum og einu glæsilegasta skipi íslenzka fiskiskipaflotans bjargað. Landsmenn hafa fylgzt með björgunaraðgerðum af miklum áhuga og með vaxandi aðdáun. Þeir sem kunna að hafa staðið í þeirri trú, að harðjaxlarnir í ís- lenzkri útgerð hafi horfið á braut með „gömlu mönnunum“ í sjávarútvegi geta fagnað því, að svo er ekki. Þorsteinn Már Baldvinsson, hinn harðduglegi forstjóri Samherja, stóð með sínu fólki í fjörunni og stjórnaði sjálfur björgunaraðgerðum. Ís- lenzkir útgerðarmenn standa fyrir sínu eins og þeir hafa alltaf gert. Skipsströnd snerta sérstaka taug í sálarlífi okkar Íslendinga. Sú var tíðin, að meiri líkur en minni voru á því að mannskaði, stundum mikill, fylgdi skips- ströndum. Þrátt fyrir fullkomin björgunartæki og mikla tækni gerist það samt enn. Í þessu til- viki björguðust sjómennirnir um borð í Baldvini Þorsteins- syni giftusamlega og nú hefur einnig tekizt að bjarga skipinu. Allir þeir, sem þarna hafa komið við sögu hafa unnið mikið afrek. EIGENDASKIPTI AÐ NORÐURÁLI Eigendaskipti eru að verða áNorðuráli. Kenneth Peterson hefur selt nær helming af fyrirtæk- inu til bandarísks álfyrirtækis og gerir ráð fyrir að selja fyrirtækið allt til þeirra aðila. Þáttur Kenneth Petersons í ís- lenzku atvinnulífi seinni árin hefur verið athyglisverður. Þegar hann kom til sögunnar höfðu fulltrúar ís- lenzkra stjórnvalda ferðast víða um heim í þrjá áratugi til þess að leita að aðila, sem kynni að vilja halda áfram þeirri uppbyggingu áliðnaðar á Íslandi, sem hófst með byggingu álversins í Straumsvík. Þær tilraun- ir höfðu engan árangur borið. Þegar Peterson lýsti áhuga á byggingu álvers hér efuðust marg- ir. Hann var óþekktur og var ekki einn af risunum í hinum alþjóðlega álheimi. Peterson og hans menn áunnu sér fljótt traust hér. Sérstaka athygli vakti, að hér voru ekki á ferð álfurstar á einkaþotum. Þvert á móti vöktu þeir athygli fyrir að fara sparlega með fé og láta lítið fyrir sér fara. En vinnubrögð þeirra voru traust. Nú þegar Peterson hefur ákveðið að selja fyrirtækið er ástæða til að færa honum þakkir fyrir framlag hans til uppbyggingar áliðnaðar hér á landi. Aðild hans og samstarfs- manna hans að íslenzku atvinnulífi hefur verið til fyrirmyndar. Það er fagnaðarefni, að Peterson hefur ákveðið að halda áfram þátttöku í viðskiptalífinu hér með aðild sinni að símafélaginu Og Vodafone. Við Íslendingar þurfum á að halda fleiri erlendum fjárfestum á borð við Kenneth Peterson. RÉTT ÁKVÖRÐUN Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð-herra, tók rétta ákvörðun, þeg- ar hún óskaði eftir því, að afgreiðslu frumvarps um verndun Laxár og Mývatns yrði frestað í meðförum Alþingis og ástæðulaust af stjórn- arandstöðu að gagnrýna ráð- herrann fyrir það. Það liggur í augum uppi, að ekk- ert vit er í því, að efna til nýrra átaka um framkvæmdir við Laxár- virkjun. Eftir fund Landeigendafé- lags Laxár og Mývatns fyrir skömmu væri fásinna að halda mál- inu áfram að óbreyttu. Það er alveg rétt, sem Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sagði í umræðum um þetta mál á Alþingi í fyrradag, að það yrði að vinna í sátt og samlyndi við heimamenn. „Og þeir hljóta nú að vinna að því að ná samkomulagi um það, hvernig að þessu máli skuli unnið,“ sagði Al- þingisforsetinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.