Morgunblaðið - 18.03.2004, Side 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 41
var komið sögu hafði fæðst yngri
dóttirin og börnin orðin fjögur. Geiri
frændi tók sér fáar tómstundir frá
störfum sínum. Vann eins og ber-
serkur og rækti sína fjölskyldu sem
hann unni mjög, og leitaðist við að
efla hag hennar. En þegar börnin
voru nokkuð úr grasi vaxin og lít-
illega fór að hægjast um í barnaupp-
eldinu hjá þeim hjónum fór að koma
fyrir að frí væri tekið eina og eina
helgi yfir sumarið. Þó aldrei langar
né of margar. Þá fór hann að koma
oftar til okkar að Dal og var það
auðvitað ekki síst vegna þess að
Einar, eldri sonurinn, var hjá okkur
mörg sumur í skólahléum sem í þá
daga voru æði miklu lengri en þau
eru nú. Sjálfur hafði Geiri verið
mörg sumur á unglingsárum sínum í
sveit í Borgarfirði og þekkti af þeim
sökum margt til sveitastarfa. Vitn-
aði oft til þeirra glöðu daga. Ekki
veit ég hvort veiðieðlið vaknaði hjá
honum á þeim árum, en mikill
áhugamaður gerðist hann um sil-
ungsveiðar þegar fram liðu stundir
og þær urðu hans kærasta, og raun-
ar einasta, tómstundaiðja og nánast
það eina sem hann veitti sér af lífs-
ins lystisemdum. Reyndar bar jafn-
vel við að hann keypti sér dag í Ell-
iðaánum eða dagpart í Norðurá og
renndi fyrir lax, en dýrðlegastar af
öllu og óafmáanlegastar úr hugan-
um held ég að hafi verið stundirnar
við Baulárvallavatn sem voru örugg-
lega aldrei nógu margar að hans
dómi. Okkur hjónunum eru ákaflega
minnisstæðar komur hans að Dal.
Þeim fylgdi ætíð hressandi fjör og
galsi. Frændi var skorinorður í tali
og ævinlega gustur í kringum hann;
kvað fast að orðum sínum og var
jafnan kátur, en umfram allt í veiði-
hug. Stundum voru góðir vinir hans
og félagar með í för og þeir fengu
sína lexíu og leiðsögn um það hvern-
ig og hvar bæri að standa að veiðum
í Baulárvallavatni. Hins vegar fisk-
aðist misvel þar eins og gengur, en
oftar þó vel – langoftast – í frásögn-
um hans þegar á ævina leið – og túr-
arnir þegar lakar gekk þá gjarna
þurrkaðir úr minninu! Og hvergi var
betri silung að finna! – Selungurinn
í Baulárvallavatni maðr! Frændi var
yndislega flámæltur! Annars er er-
indi þessarar greinar einkum það að
rifja upp með þakklátum huga öll
góðu samskiptin sem við áttum við
Geira frænda og fjölskyldu hans
alla. Við þökkum margan góðan
beina sem okkur veittist hjá þeim
hjónum, og gistinætur allnokkrar í
Reykjavíkurferðum. Það var oft
gott að eiga þau að. Löngu þætti
frænda mínum, hvunndagshetja
sem hann var, tímabært af mér að
slútta þessari leiðindagrein – hætta
að spinna lopann. Ég veit líka fyrir
víst að ég er ekki að gera honum
neinn greiða með þessu skrifi mínu.
– Þetta er nú meira endemis rögl-
ið, maðr – myndi hann líkast til
segja ef hann mætti horfa yfir öxl-
ina á mér og sjá orðin sem ég tíni til
á pappírinn. Hann gæti líka haft um
þau enn sterkari orð – sterkari en
hæfir að setja í svona minningar-
grein.
Við Gerða óskum börnum þeirra
Geira frænda og Stebbu, sem og af-
komendum þeirra öllum farsældar
um ókomin ár.
Erlendur Halldórsson frá Dal.
Elsku Inga og fjölskylda. Nú er
komið að kveðjustundinni, ég vil
þakka Þorgeiri fyrir samfylgdina og
fyrir að hafa notið þeirra forréttinda
að hafa kynnst honum og fjölskyldu
hans. Ég var ekki nema fjögurra
ára er ég kom fyrst inn á heimili
Þorgeirs og Stefaníu og tengdist
Ingigerði, dóttur þeirra, vináttu-
böndum sem enn standa. Þorgeir og
Stefanía voru nágrannar foreldra
minna um 30 ára skeið og upplifði
ég mig ávallt velkomna inn á heim-
ilið og voru það ófáir bíltúrarnir sem
ég fékk að fara með fjölskyldunni en
alltaf var pláss fyrir einn til viðbótar
hjá þeim.
Það eru góðar minningar sem ég
á um Þorgeir og konu hans sem ég
varðveiti í hjarta mínu.
Elsku Inga og fjölskylda, megi
englar guðs vaka yfir ykkur og
styrkja.
Þorbjörg Rósa Jóhannsdóttir.
Nú er gaman í Himnaríki. Hann
Lilli er kominn þangað. Nú sprang-
ar hann þar um hlöðin léttur í spori
og léttur í lund og lífgar upp á til-
veruna þar eins og hann gerði hér á
jarðríki.
Lilli hét réttu nafni Sigurgeir
Steinsson, en var alltaf kallaður
Lilli og einhvern veginn passaði það
svo vel við þennan grannvaxna full-
orðna mann sem alltaf var hress og
kátur.
Hann vann á Vinnustað Öryrkja-
bandalags Íslands í mörg ár og
þegar hann varð að láta af störfum
sakir aldurs, færði hann sig niður í
kjallara til hans Gumma í Nesradíó
og þar var hann áfram um árabil,
fyrst daglega og svo einu sinni í
viku á – miðvikudögum. Þess vegna
gat maður alltaf hlakkað til mið-
vikudagsmorgnanna. Þá kom Lilli
kannski að sækja eitthvað fyrir
Gumma, sem þá var fluttur úr kjall-
aranum.
Og við tókum upp létt spjall.
Einkum þótti Lilla gaman að
segja okkur frá heimsóknum sínum
SIGURGEIR
STEINSSON
✝ Sigurgeir Steins-son fæddist í
Reykjavík 6. nóvem-
ber 1915. Hann lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 5. mars síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Steinn Jónsson
og Guðrún Pálsdótt-
ir og var Sigurgeir
yngstur fjögurra
barna þeirra, en
eldri systkinin sem
öll eru látin voru
Guðmundur, f. 1906,
Guðfinna, f. 1909, og
Páll, f. 1912.
Sigurgeir ólst upp og bjó allan
sinn aldur í Reykjavík. Hann vann
ými störf, lengst í Fiskhöllinni og
eftir það hjá Vinnustofu Öryrkja-
bandalagsins og Nesradió.
Útför Sigurgeirs fór fram frá
Fossvogskapellu 11 mars.
í Landeyjarnar. Ekki
svo mikið frá fólkinu
þó það væri gott fólk
heldur hestunum.
Einkum einni hryssu
sem alltaf þekkti bíl-
inn hans Lilla. Hann
lýsti því og lék það
þegar hann kæmi úr
bílnum að girðingunni
og hún sneri fyrst upp
á sig, rak í hann rass-
inn en blíðkaðist svo
og leyfði honum að
klappa sér og klóra.
Lilli ljómaði allur þeg-
ar hann sagði frá þess-
ari vinkonu sinni og það var ynd-
islegt að hlusta á hann.
Lilli bjó með systkinum sínum á
Ránargötunni og þegar þau voru öll
látin gaf Lilli, sem átti enga ná-
komna ættingja húsið sitt til
tveggja sjóða í vörslu Öryrkja-
bandalags Íslands. Andvirði hússins
skiptist jafnt á milli Sjóðs Odds
Ólafssonar, sem styrkir bæði nám
öryrkja og rannsóknarverkefni á
veikindum sem leiða til örorku og
Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur sem
styrkir öryrkja til náms. Þannig
njóta margir peninganna sem þessi
góði maður lét af hendi rakna. Og
þannig vildi hann hafa þetta.
Lilli bjó um nokkurra ára skeið í
Lönguhlíðinni – íbúðum aldraðra,
en þegar heilsan fór að bila alvar-
lega fór hann á Hrafnistu og lést
þar 5. þ.m.
Það er á engan hallað þó sagt sé
frá hve afburða vel Guðmundur
Ragnarsson og hans fjölskylda
reyndust Lilla alla tíð. Slík rækt-
arsemi við sér alveg óskyldan mann
er einstök.
Og nú er Lilli allur. Við þökkum
þessum góða, glaðlynda manni fyrir
samveruna. Það er mannbætandi að
hafa kynnst honum og fengið að
njóta návistar hans. Frændfólki
hans vottum við okkar innilegustu
samúð. Blessuð sé minning þessa
aldna gleðigjafa.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
✝ Elín SigríðurSveinsdóttir
fæddist í Nýlendu
undir Eyjafjöllum 2.
júlí 1925.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 6.
mars síðastliðinn.
Foreldrar Elínar
voru Sveinn Guð-
mundsson, f. á Þór-
kötlustöðum í
Grindavík 2. júlí
1891, og kona hans
Jónína Jónsdóttir, f.
í Hlíð undir Eyja-
fjöllum 31. mars
1890.
Elín giftist 5. mars 1955 Ein-
ari Guðmundssyni f. 20. des.
1923, d. 30. sept. 1979. Einar
ólst upp í Nýborg á Akranesi og
var sonur Guðmundar Einars-
sonar, f. í Krosskoti í Lundar-
reykjadal 29. maí 1891, og
Mörtu Jónsdóttur, f. á Háafelli í
Skorradal 24. nóv.
1902. Elín og Einar
eignuðust fimm
börn, þau eru: 1)
Sveinn, f. 11. júní
1950. 2) Guðmund-
ur, f. 19. maí 1954.
3) Jónína Sigur-
björg, f. 8. apríl
1957, maki Ævar
Gunnlaugsson, f. 1.
maí 1956, og eiga
þau Bjarna Þór, f.
19. ágúst 1984, og
Önnu Lísu, f. 5.
sept. 1986. 4) Sæv-
ar Rúnar, f. 18.
mars 1960, maki Sigríður Bryn-
dís Sigurvaldadóttir, f. 23. febr-
úar 1959, og eiga þau Elínu Sig-
ríði, f. 23. sept. 1983, Hafdísi
Elfu, f. 12. júlí 1989, og Eyrúnu
Lydiu, f. 6. des. 1995. 5) Bald-
vin, f. 8. okt. 1961.
Útför Elínar fór fram frá
Akraneskirkju 12. mars.
Elsku amma, loksins hefur þú
fengið hvíldina.
Það er gott að hugsa til þess að þú
sért komin til afa. Okkur systurnar
langar að kveðja þig í síðasta sinn
með ljóði;
Blessuð sé minning ömmu okkar.
Að eilífðarósi
umvafin elsku
frjáls ertu farin
í ferðina löngu.
Í englaveröld
andinn lúinn,
í föðurfaðmi
friðsæll hvílir.
Takk fyrir tímann
og tryggðarþelið
í mörgum mætum
minningum er lifa.
(Jóna Rúna Kvaran)
Elín Sigríður, Hafdís
Elfa og Eyrún Lydia.
ELÍN SIGRÍÐUR
SVEINSDÓTTIR
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
EYJÓLFUR S. EINARSSON,
Hæðargarði 35,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 11. mars, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju föstudaginn 19. mars kl. 10.30.
Gerður Sigfúsdóttir,
María Auður Eyjólfsdóttir, Stefán Kjærnested,
Gerður Björk Kjærnested,
Eyjólfur Örn Kjærnested,
Gunnhildur Ösp Kjærnested.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FERDINAND JÓNSSON,
Bakkahlíð 39,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn
9. mars.
Steinunn Ferdinandsdóttir, Ómar M. Waage,
Jón Óskar Ferdinandsson, Dúa Stefánsdóttir,
afa- og langafabörn.
Okkar ástkæri,
GÍSLI ÞÓRÐARSON
loftskeytamaður,
Hlíðarhúsum 3,
áður Vesturgötu 52,
lést miðvikudaginn 10. mars.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
19. mars kl. 13.30.
Anna Gísladóttir, Eiríkur Þór Einarsson,
Jens Gíslason, Hafdís Jónsdóttir,
Brynhildur Jóna Gísladóttir, Guðjón Arngrímsson,
Brynhildur Jensdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur og
bróðir,
JÓHANN G. SIGURÐSSON,
Huldugili 74,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 19. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
minningarsjóð Heimahlynningarinnar á Akureyri.
Jóhanna Hartmannsdóttir,
Díana Jóhannsdóttir, Sigurður Jóhannsson,
Svanborg Jóhannsdóttir, Svava Valdimarsdóttir,
Tryggvi Rúnar Jónsson, Lovísa Rúna Sigurðardóttir,
Valdimar Sigurðsson,
Bjarki Sigurðsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ELÍNAR SIGRÍÐAR SVEINSDÓTTUR,
Jörundarholti 1a,
áður til heimilis
á Garðabraut 4.
Sveinn Einarsson,
Guðmundur Einarsson,
Jónína Sigurbjörg Einarsdóttir, Ævar Gunnlaugsson,
Sævar Rúnar Einarsson, Sigríður Sigurvaldadóttir,
Baldvin Einarsson
og barnabörn.