Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN
48 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGINN 21. mars er
alþjóðlegur dagur gegn rasisma.
Alþjóðahúsið mun af þessu tilefni
standa fyrir dagskrá
í tengslum við bar-
áttuna gegn for-
dómum, m.a. með
málþingi um börn og
fjölskyldulíf innflytj-
enda, mánudaginn
22. mars. Mig langar
til að nota tækifærið
til þess að hugleiða
dálítið kynþátta-
fordóma á Íslandi og
um leið reyna að
benda á nokkur
praktísk atriði sem
gætu hjálpað okkur
að auka jákvæð samskipti milli
Íslendinga og fólks af erlendum
uppruna.
Eru fordómar
vaxandi á Íslandi?
„Eru fordómar ríkjandi á Ís-
landi?“ Það eru talsvert margir
sem svara þessari spurningu
þannig: „Nei, nei, ég held það
ekki“. Það er kannski vegna mis-
skilnings fólks á birtingu kyn-
þáttafordóma, þannig að þeir
snúist bara um að kasta steinum
í útlendinga eða að kveikja í
íbúðum þeirra. Þó að þetta sé ein
af birtingarmyndum fordóma þá
eru þær mjög mismunandi. Til
dæmis geta fordómar verið
byggðir inn í lög eða að þeir birt-
ast sem „duldir“ og ósýnilegir
fordómar.
Útlendingar geta síðan mis-
skilið ákveðna hegðun Íslendinga
sem fordómafulla, þótt ásetn-
ingur hegðunarinnar sé ekki slík-
ur. Til dæmis þegar Íslendingar
byrja að syngja í boði lög, sem
allir Íslendingar þekkja, mun út-
lendingum, sem þekkja ekki lög-
in, líða eins og þeir séu útilok-
aðir. Þetta getur verið tillitsleysi
en kannski fullmikið að flokka
það sem fordóma eða mismunun.
Þannig er einhver framkoma
manna á eins konar gráu svæði
milli saklauss tillitsleysis og for-
dóma. Svona misskilningur eða
tillitsleysi getur átt sér stað víða
í daglegu lífi okkar í þjóðfélag-
inu. Mér finnst mikilvægt að
leggja áherslu á að leysa slíkan
misskilning í baráttunni gegn
fordómum, þar sem ég trúi því að
einungis örfáir séu með „harðari“
kynþáttafordóma í þessu sam-
félagi. Langflestir eru hins vegar
með ómeðvitaða fordóma eða til-
litsleysi, sem útlendingar geta
misskilið sem meðvitaða fordóma.
Að þessu leyti getur
fordómafræðsla virk-
að vel og ég vil
hvetja sem flesta til
að nýta sér hana, til
dæmis hjá Alþjóða-
húsinu.
En fyrir utan for-
dómafræðslu geta
nokkur einföld en
praktísk atriði hjálp-
að okkur til að dýpka
skilning á fordómum
og auka jákvæð sam-
skipti milli Íslend-
inga og útlendinga.
Nokkrir praktískir punktar
fyrir góð samskipti
Mig langar til að setja fram
nokkur praktísk atriði, sem geta
stuðlað að jákvæðum samskiptum
við fólk af erlendum uppruna.
Þau eru ekki ættuð úr akadem-
ískri fordómafræði, heldur punkt-
ar sem ég hef sett saman eftir
eigin persónulega upplifun og af
þeirri reynslu sem ég hef notið í
starfi mínu sem innflytj-
endaprestur. Hér tala ég einfald-
lega um: „Íslendinga“ eða „út-
lendinga“, en að sjálfsögðu eru
margir Íslendingar af erlendum
uppruna og þeir gætu tilheyrt
frekar útlendingum í eftirfarandi
samhengi.
1. Ekki óttast að tala við út-
lendinga, notið frekar skyn-
semina því að við eigum mik-
ið sameiginlegt sem
manneskjur.
2. Ekki gera grín að erlendu
nafni.
3. Ekki grínast um það hvernig
útlendingar tala íslensku með
því að herma eftir því.
4. Ekki grínast um trúmál út-
lendinga. Íslendingar vita
hversu mikið þeir mega grín-
ast um kirkjuna, en hafa ekki
dómgreind um það í tilvikum
annarra trúarbragða.
5. Sumir útlendingar eru við-
kvæmir varðandi umfjöllun
um kynferðisleg atriði.
6. Fylgist með kurteisi milli
kynjanna. Asískt fólk er ekki
vant því að kyssast, jafnvel
ekki sem kveðju.
7. Virðing fyrir eldra fólki er
oftast mikilvæg meðal Asíu-
og Afríkubúa.
8. Viðkomandi einstaklingur
gæti verið lítt kunnur ís-
lenskum siðvenjum eða lífs-
háttum.
9. Þótt árekstrar eigi sér stað,
ekki tengja ástæðuna strax
við „menningarmun“ eða
„trúarbrögð“.
10. Manneskja sem stendur fyrir
framan ykkur er meiri „raun-
veruleiki“ en þær upplýs-
ingar sem þið hafið um
heimaland hennar eða trúar-
brögð. Manneskja er fyrst og
fremst manneskja, en ekki
staðalmynd hvorki þjóðar
hennar né þeirra trúarbragða
þar njóta fylgis.
11. Við útlendingar erum jafn-
ingjar ykkar, við erum bara í
minnihlutahóp. Sanngjörn
gagnrýni eru einnig meðal
mikilvægra réttinda okkar.
12. Ekki vera of viðkvæm til að
tala um málefni útlendinga af
ótta við að segja eitthvað
rangt eða ófullkomið.
Ef við förum öll eftir svipuðum
reglum, þá munum við læra
smám saman stig af stigi. For-
dómalaus heimur er orðin tóm ef
umburðarlyndi og fyrirgefningu
skortir.
Lokaorð
Fordómar og sú mismunun sem
þeim fylgir eru alls ekki gam-
anmál. Ef maður mismunar fólki
meðvitað vegna fordóma sinna,
þá er það ljót gjörð. Ef maður
gerir sama ómeðvitað, þá er það
sorglegt. Þolendur særast alla-
vega, en gerendur skaða um leið
eigin virðuleika sem manneskjur.
Við megum þó ekki gleyma því að
við getum gert eitthvað í málinu
með því að minnka tillitsleysi og
misskilning í daglegu lífi sem
getur þróast í fordóma. Barátta
gegn rasisma er ekki aðeins stór
á alþjóðastigi heldur getur hún
líka átt sér stað í daglegu lífi
hvers og eins. Ég óska þess að
þessi stutta grein verði ykkur
umhugsunarefni.
Minnkum fordóma,
aukum samskipti!
Toshiki Toma skrifar
um fordóma á Íslandi ’Fordómar og sú mis-munun sem þeim fylgir
eru alls ekki gam-
anmál.‘
Toshiki Toma
Höfundur er prestur innflytjenda.
NÝLEGA sótti undirritaður tvo
fundi á Ísafirði. Fyrri fundurinn var
haldinn hinn 1. mars og voru þing-
menn kjördæmisins boðaðir á fund
með bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Yf-
irskrift fundarins var alvarleg staða í
atvinnumálum og fækkun opinberra
starfa. Fundurinn hófst
á því að bæjarstjórinn,
Halldór Halldórsson,
fór vel og rækilega yfir
þá fækkun sem hefur
orðið í opinberum störf-
um á Ísafirði í valdatíð
ríkisstjórnar Sjálf-
stæðis- og Framsókn-
arflokks og á sama tíma
og opinberum störfum
fjölgaði í landinu um vel
á annað þúsund störf.
Þingmenn stjórn-
arandstöðunnar auk
annars þingmanns
Framsóknarflokksins
voru einhuga um að
slæmt atvinnuástand á
Vestfjörðum mætti
fyrst og fremst rekja til
fiskveiðistjórnunarkerf-
isins og tilflutnings
veiðiheimilda, en með
fækkun opinberra
starfa væru stjórnvöld
að bæta gráu ofan á
svart. Allir þingmenn-
irnir töldu að það yrði engin breyting á
fiskveiðistjórnunarkerfinu til hagsbóta
fyrir Vestfirðinga á meðan Sjálfstæð-
isflokkur og Framsóknarflokkur réðu
ferðinni í landsmálum.
Sjálfstæðismennirnir og annar
framsóknarmaðurinn vildu þó finna
aðrar skýringar á fækkun starfa á
Vestfjörðum, s.s. hátt gengi íslensku
krónunnar, Seðlabankinn, embættis-
mannavald í Reykjavík og minni afla-
heimildir almennt sem mætti rekja til
lélegrar ráðgjafar Hafrannsókna-
stofnunar.
Allir bæjarfulltrúar lýstu miklum
áhyggjum yfir atvinnuástandinu og
vildu skýr svör um hvernig stjórnvöld
ætluðu að bregðast við bágu atvinnu-
ástandi. Stjórnarliðar sögðust ætla að
beita áhrifum sínum í ríkisstjórn til
þess að fara yfir stöðuna og kanna
hvað hægt væri að gera til að bæta at-
vinnuástandið á Ísafirði.
Þann 6. mars sl. var síðan haldið
mjög áhugavert málþing um uppbygg-
ingu háskólastigsins á Vestfjörðum.
Þar voru mörg mjög góð erindi haldin
um eflingu háskólastigsins og vil ég
sérstaklega nefna tvö erindi sem að
öðrum ólöstuðum mér þóttu sér-
staklega áhugaverð, en öll erindin má
finna slóðinni www.frmst.is . Dr.
Rögnvaldur Ólafssonar frá Háskóla
Íslands flutti gott erindi um mögu-
legar leiðir til þess að efla háskólastig-
ið og nauðsyn þess að forða slíkri
starfsemi frá að verða útibú sem yrði
skorið niður um leið og það kreppti að
hjá móðurstofnuninni. Ég vil einnig
nefna frábæran fyrirlestur dr. Skúla
Skúlasonar, skólameistara Hólaskóla,
um nauðsyn þess byggja framtíðarsýn
á þeirri hefð og rann-
sóknarstarfsemi sem
fyrir er á Ísafirði og þora
að stefna óhikað að
ákveðnu markmiði í að
efla háskólastigið.
Sú ræða sem olli hvað
mestum vonbrigðum var
ræða menntamálaráð-
herra en ég hafði alið þá
von í brjósti að ráðherra
notaði tækifærið og
kæmi með veglegt útspil
í menntamálum eða efl-
ingu háskólastigsins.
Vonbrigðin voru mikil,
sérstaklega í ljósi þess að
þingmönnum kjördæm-
isins hafði verið gerð ljós
alvarleg staða atvinnu-
mála og fækkun op-
inberra starfa á Ísafirði
eins og fyrr er greint frá.
Einnig má nefna að í ljós
hafði komið fyrr í vikunni
að ríkisstjórnin gat tekið
skyndiákvörðun um 250
milljóna útgjöld til sér-
sveitar lögreglunnar án nokkurrar
umræðu í þjóðfélaginu eða samþykkis
Alþingis.
Í máli menntamálaráðherra var
slegið úr og í hvað varðar eflingu há-
skólastigsins en þó aðallega úr. Vitnað
var í neikvæða könnun, vitnað var um
mikinn kostnað og í raun var fátt í máli
ráðherra sem var verulega jákvætt við
að efla háskólastigið á Vestfjörðum.
Eftir á að hyggja þá má ætla að
menntamálaráðherra hafi ekkert frétt
þingmannafundinum fyrr í vikunni og
áhyggjum Ísfirðinga af atvinnu-
ástandinu og sá grunur styrktist þeg-
ar ráðherra sá ekki ástæðu til að virða
einn af bæjarfulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins, Ragnheiði Hákonardóttur,
svars þegar Ragnheiður spurði
menntamálaráðherra út í þá ráðstöfun
menntamálaráðherra að þrengja að
Menntaskólanum á Ísafirði og fækka
þeim nemendum sem geta sótt nám
við skólann.
Stjórnvöld skulda enn Ísfirðingum
svör um hvernig þau ætla að bæta at-
vinnuástandið en þau bera mesta
ábyrgð á ástandinu með misvitrum
stjórnvaldsaðgerðum í sjávarútvegi og
fækkun opinberra starfa.
Fundir á Ísafirði
Sigurjón Þórðarson
skrifar um stjórnmál
Sigurjón Þórðarson
’Stjórnvöldskulda enn
Ísfirðingum
svör um hvernig
þau ætla að
bæta atvinnu-
ástandið …‘
Höfundur er alþingismaður.
FYRIR dyrum stendur ráðstefna
um mansal, sem haldin verður af ís-
lenskum stjórnvöldum í Norræna
húsinu þ. 19. mars.
Þetta upplýsti aðstoð-
armaður utanrík-
isráðherra í grein hér í
blaðinu sl. laugardag
og jafnframt að ráð-
stefnan væri haldin í
þeim tilgangi að efla
vitund almennings um
mansal og að kynna al-
þjóðlegar aðgerðir sem
hafnar væru til að
stemma stigu við þess-
um glæpum sem leiða
ofbeldi og hörmungar
yfir milljónir barna og
kvenna á hverju ári. Fagna ber
hverju nýju tækifæri til að fjalla um
mansal en við verðum þá líka að
tryggja að við færumst nær kjarna
málsins eftir því sem við tölum
meira. Undanfarin misseri hefur átt
sér stað talsverð umræða um mansal
í fjölmiðlum og ráðstefnur hafa verið
haldnar. Við ættum því að vera kom-
in nokkuð áleiðis í að gera okkur
grein fyrir því hvað í mansali felst.
En einhverra hluta vegna hættir
okkur til að fjalla um mansal eins og
eitthvert fjarlægt vandamál annarra
þjóða. Vandamál sem Íslendingar
eru að reyna að stöðva í Eystrasalts-
löndunum eða annars
staðar í Austur-Evrópu
í samstarfi við aðrar
þjóðir. Slíkt er sann-
arlega nauðsynlegt og
þakkarvert en við þurf-
um ekki síður að opna
augu okkar fyrir því
sem er að gerast í þess-
um efnum fyrir framan
nefið á okkur.
Mansal á Íslandi
Það er ekki langt síðan
Kristinn R. Ólafsson,
fréttaritari Rík-
isútvarpsins í Madríd, flutti hlust-
endum pistil um mansal og vændi á
Spáni. Í máli hans kom fram að
300.000 konur væru nú taldar stunda
vændi á Spáni og einungis ein af
hverjum tíu væri spænsk, hinar
væru erlendar stúlkur sem í flestum
tilfellum væri smyglað til landsins af
ólöglegum glæpahringjum. Þetta er
birtingarmynd mansals á Spáni. Það
skyldi þó ekki vera að mansalið birt-
ist okkur á nákvæmlega sama hátt
hér á Íslandi? Í skýrslu sem jafn-
réttisnefnd Reykjavíkurborgar lét
gera um íslenskan kynlífsmarkað og
unnin var af Drífu Snædal sl. sumar
kemur fram að erlendar stúlkur séu
fluttar til landsins í þeim tilgangi að
stunda nektardans og jafnframt að í
tengslum við nektardansstaðina sé
stundað vændi. Sömu upplýsingar
má lesa úr skýrslu dómsmálaráð-
herra frá 2001 um vændi á Íslandi og
félagslegt umhverfi þess. Svona
birtist mansal á Íslandi og leiðir í
ljós, það sem margir eru búnir að
átta sig á, að mansal og vændi eru
tvær hliðar á sama peningi.
Horfum á heildarmyndina
Í yfirgripsmikilli og athyglisverðri
umfjöllun um vændi í nýjasta tölu-
blaði Veru kemur skýrt fram hversu
sterk sú tilhneiging er að horfa ein-
ungis á hluta myndarinnar. Þannig
er viðurkennt að baráttan gegn
mansali sé nauðsynleg og öllum beri
að taka þátt í henni af alefli því það
sé svo hræðilegt að konur og börn
skuli seld í kynlífsþrælkun milli
landa í stórum stíl. En hvert eru
þessar konur og þessi börn seld og
hverjum eru þau seld? Norrænir
stjórnmálamenn og félagasamtök
hafa í auknum mæli reynt að vekja
athygli á þeirri staðreynd að ekki sé
hægt að selja konur og börn í kyn-
lífsþrældóm nema af því að einhver
sé á hinum endanum til að kaupa. Og
ef vilji okkar til að uppræta mansal
er sannur og ásetningur okkar ein-
lægur verðum við að horfast í augu
við þá staðreynd að karlmenn á
Vesturlöndum búa til eftirspurnina
eftir þessum fórnarlömbum glæpa-
hringjanna. Og í ritstjórnarspjalli
Veru spyr Elísabet Þorgeirsdóttir
ritstýra hvort það sé okkar vanda-
mál að fjöldi erlendra kvenna komi
hingað til lands til að stunda vændi
og skilji eftir prósentur af viðskipt-
unum í vösum íslenskra milliliða? Ég
hvet til þess að við svörum þessari
spurningu játandi og öxlum þá
ábyrgð sem hvílir á herðum okkar.
Raunhæfar aðgerðir
Ábyrgð okkar er m.a. fólgin í því að
semja áætlun að stjórnvals-
aðgerðum, eins og hinar norrænu
ríkisstjórnirnar hafa gert. Og þá
nægir ekki að horfa út fyrir land-
steinana og til Keflavíkurflugvallar,
okkur ber að líta til okkar nánasta
umhverfis og takast á við þann veru-
leika sem blasir við í þeim skýrslum
sem ég nefndi hér að framan. Okkur
ber líka að starfa í anda þess sem
ýmis félagasamtök og einnig nefndir
á vegum Norðurlandaráðs hafa lagt
til, en þ.á m. eru tillögur um að
stjórnmálamenn leiti leiða til að
draga úr eftirspurninni eftir kynlífs-
þjónustu. Þá er ekki síður nauðsyn-
legt að gera úrbætur á löggjöf okkar
sem tryggir þeim, sem lenda í klóm
mansalshringja, nauðsynlega vernd
og stuðning til að hefja nýtt líf. Slík
ákvæði er ekki að finna í löggjöf okk-
ar, en hvatning um að slík ákvæði
séu sett í lög hefur verið samþykkt
af Evrópusambandinu. Evrópuráðið
hefur einnig fjallað talsvert um man-
sal og hvetur ríkisstjórnir Evrópu-
landa til að bregðast við með aðgerð-
um sem raunverulega geta breytt
ástandinu. Í ljósi alls þessa er óhætt
að binda vonir við ráðstefnu þá sem
haldin verður í Norræna húsinu 19.
mars um leið og hvatt er til að horft
sé til þess hvernig mansal birtist
okkur í okkar eigin ranni.
Vændi fylgifiskur mansals
Kolbrún Halldórsdóttir
skrifar um mansal ’… mansal og vændieru tvær hliðar á sama
peningi.‘
Kolbrún Halldórsdóttir
Höfundur er þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.