Morgunblaðið - 18.03.2004, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Leonardó
Bubbi og Bill
MAÐUR GETUR FARIÐ
HVERT SEM ER Á
SVONA BÍL!
© DARGAUD
© DARGAUD
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ ÞESSI
UPPFINNING Á EFTIR AÐ ROKSELJAST
Í FRAMTÍÐINNI
FYRST VERÐA ÖKUMENN NOKKUR
ÞÚSUND. OG SVO HUNDRUÐ ÞÚSUNDA.
OG LOKS, MILLJÓNIR, KANNSKI...
...MILLJARÐAR!
ÉG HEF GRUN UM AÐ SPÁ ÞÍN SÉ RÉTT ÞANNIG
AÐ ÉG TALDI BEST AÐ FINNA UPP BÍLNÚMERIÐ TIL
ÞESS AÐ ÉG FINNI HANN AFTUR Í FJÖLDANUM
ÆÆ! ÞAÐ ER EKKERT
PLÁSS FYRIR
AFMÆLISKÖKUNA
HANS BILL!
ÞÁ ÞAÐ! VIÐ
BORÐUM HANA
MEÐ KAFFINU
FREKAR EN AÐ
BÍÐA ÞANGAÐ
TIL Í KVÖLD...
ÉG VONA AÐ
SÚKKULAÐIÐ
BRÁÐNI EKKI OF
FLJÓTT
ANSANS! ÉG
GLEYMDI
BUBBA INNI Í
ELDHÚSI...
EF HANN SÉR
KÖKUNA ÞÁ
VERÐUR EKKERT
EFTIR NEMA
KERTIN!
MAMMA! SÚKKULAÐIÐ ER AÐ
BRÁÐNA. ÞETTA ER MARTRÖÐ!
ÉG GET EKKERT GERT
ELSKAN. ÍSSKÁPUR-
INN ER FULLUR!
HVA? EKKI EINU SINNI
PÍNULÍTIÐ PLÁSS FYRIR
AFMÆLISKÖKUNA MÍNA!
MÁ ÉG...
...SJÁ!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
DAGANA 13. og 14. mars var fjöl-
skylduhátíðin „Æskan og hesturinn“
haldin í Reiðhöllinni, Víðidal í
Reykjavík. Um 4.000 manns komu á
alls fjórar sýningar en að þessum at-
burði standa sjö hestamannafélög á
Faxaflóasvæðinu. Markmið sýninga
sem þessara er að kynna gott æsku-
lýðsstarf og hvetja ungt fólk til að
taka þátt í heilbrigðu tómstunda-
starfi. Þessar fjölskylduhátíðir hafa
vaxið og dafnað ár frá ári og þátttaka
hestaáhugafólks og almennings auk-
ist svo að „Æskan og hesturinn“ er
að verða ein fjölsóttasta hátíð hesta-
manna þar sem börn og unglingar
eru í brennidepli. Það hefur verið
okkur hestamönnum mikil hvatning
hvernig staðið er að þessu sýning-
arhaldi, gleði og ánægja skín úr
hverju andliti hvort sem litið er á
þátttakendur eða áhorfendur.
Greinilegt er að börnin og ungling-
arnir sem standa að sýningunum
hafa nýtt frjóa hugsun við búninga-
val og uppsetningu á atriðum og ekki
er síður ánægjulegt að sjá hvað
hrossin þeirra eru vel hirt. Það er
greinilegt að þau telja það ekki eftir
sér að eyða tíma í umhirðu þessara
vina sinna.
Á sama tíma birtist í dagblöðum
afar sérkennileg samlíking í auglýs-
ingu þar sem verið er að bera saman
gæði fartölvu og hests sem ferming-
argjafar. Ekki ætla ég að draga í efa
gæði fartölvunnar sem fermingar-
gjafar en þær verða seint valdar til
konungsgjafa. Auglýsingin er ein-
staklega klaufaleg og ef textinn er
samlesinn kemur í ljós að í saman-
burði á innviðum tölvu og hests er
Blesi ósköp fátæklegur, á meðan
tölvan skemmtir þér í frístundum,
hjálpar þér að kynnast nýju fólki og
læra nýja hluti. Lýsir þetta best fá-
tæklegu ímyndunarafli textahöfund-
ar og skilningsleysi hans á sérstöku
sambandi sem skapast milli unglings
og hests. Það er ýmislegt sem aug-
lýsendur leggja sig niður við þegar
þeir kynna vörur sínar.
Að lokum hvet ég foreldra og að-
standendur til að vanda val við ferm-
ingargjafir hér eftir sem hingað til.
JÓN ALBERT
SIGURBJÖRNSSON,
formaður Landssambands
hestamannafélaga.
Furðulegur
samanburður
Frá Jóni Alberti Sigurbjörnssyni:
ÞAÐ gengur svo yfir mig útþrælk-
un blaðburðarbarna hjá Frétta-
blaðinu fyrir lúsarlaun að ég get
ekki orða bundist lengur. Hvert
svæði á að taka hvert barn u.þ.b. 1
klst. á dag en sonur minn er að
meðaltali rúmlega 2 klst. á dag með
215 blöð. Þetta slyppi ef hann væri
bara með Fréttablaðið og engan
aukapóst.
Fyrir þessa vinnu fær hann ca
16.000 á mán. (heildarlaun) grunn-
laun eru um 6.000.
Vinkona mín ber út Morgunblað-
ið, 45 blöð á dag sem tekur hana 15
mín. Launin eru rúml. 22.000. á
mán. Grunnlaun u.þ.b. 17.800. hún
fær greitt aukalega fyrir aukablöð,
s.s. fasteignablaðið og svo þunga-
álag ef Morgunblaðið er sérstak-
lega þungt. Orlof fær hún greitt út í
einu lagi í maí. Hún ber reyndar
líka út um helgar en það skýrir ekki
þennan geysilega launamun á milli
tveggja blaða.
Það má til „gamans“ geta þess að
í desember árið 2001 voru laun til
blaðbera Fréttablaðsins, í sama
hverfi og sonur minn dreifir nú í,
15.394 kr. fyrir dreifingu á Frétta-
blaðinu, auglýsingabæklingum og
smærri aukablöðum, 3.857 kr. fyrir
sjónvarpshandbók, sem var svipuð
að stærð og Birta, og stærri auka-
blöð, 2.888 kr. og orlof 2.252 kr.
Samtals 24.391 kr.
Nú veit ég að Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur er að reyna að fá
Fréttablaðið til að gera samning
um laun blaðburðarbarnanna en
forsvarsmenn þess blaðs bera enda-
laust við tímaskorti sökum anna.
Hvernig væri nú að við foreldrar,
sem erum örugglega flest í ólaun-
aðri vinnu hjá Fréttablaðinu fimm
morgna í viku, stæðum saman og
þrýstum á að Fréttablaðið settist
nú niður og semdi um mannsæm-
andi laun fyrir „duglegasta fólk“
landsins eins og þeir sjálfir komast
að orði. Látum í okkur heyra,
hringjum, skrifum og höfum líka
samband við Þorgrím hjá Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur sem er
búinn að bíða eftir Fréttablaðs-
mönnum síðan í október eða nóv-
ember.
Mig langar að koma því að hér að
lokum að í október sl. keypti
Fréttablaðið póstdreifingafyrirtæki
hér í borg til að taka á móti auglýs-
ingapósti frá fyrirtækjum og koma
í dreifingu til blaðburðarbarnanna.
Fyrrverandi starfsfólki fyrirtækis-
ins sem hafði séð um dreifingu á
þessum auglýsingapósti á launum,
var sagt upp og nú dreifa börnin
okkar þessum pósti launalaust.
Ef okkur foreldrum blaðburðar-
barnanna er ekki sama þótt börnin
okkar séu notuð á þennan hátt þá
held ég að það sé löngu kominn tími
til að við stöndum saman
Eða er okkur kannski sama?
HEIÐRÚN ÞÓRA
GUNNARSDÓTTIR,
Boðagranda 8,
Reykjavík.
Launamál blað-
burðarbarna
Fréttablaðsins
Frá Heiðrúnu Þóru
Gunnarsdóttur: