Morgunblaðið - 18.03.2004, Page 57

Morgunblaðið - 18.03.2004, Page 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 57 GUNNAR Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður úr ÍBV, er á leiðinni til norska úrvals- deildarfélagsins Sogndal til reynslu, væntanlega í næstu viku. Gunnar staðfesti þetta við netútgáfu Frétta í Vest- mannaeyjum og Birgir Stef- ánsson, framkvæmdastjóri ÍBV, staðfesti að félagið hefði fengið fyrirspurn varðandi Gunnar frá Sogndal. Gunnar Heiðar, sem verður 22 ára 1. apríl, hefur verið markahæsti leikmaður ÍBV undanfarin tvö ár og hefur skorað 25 mörk fyr- ir félagið í 56 leikjum í úrvalsdeildinni. Hann er samningsbundinn ÍBV til næstu áramóta. Sogndal hafnaði í áttunda sæti norsku úrvals- deildarinnar í fyrra og gaf þá eftir á lokasprettinum eftir að hafa lengi vel verið í hóp efstu liða. Gunnar til reynslu hjá Sogndal HOLLENSKA goðsögnin Johan Cruyff segir að Arsenal hafi alla burði til að verða Evrópumeistari, en segist þó ekki alveg viss um að liðið hafi allt sem til þess þarf. „Ég held að Arsenal geti farið alla leið og sigraði í Meistaradeild- inni. Ég horfi alltaf á liðið leika þegar ég get og dáist að því. Ef Ars- enal leikur eins og það gerir best þá ættu Evrópubúar að vera stoltir af því að eiga slíka meistara,“ segir Cruyff, en hann veit hvað þarf til að sigra í Evrópukeppninni, varð þrisvar meistari með Ajax og einu sinni með Barcelona sem þjálfari. Hann var þrívegis valinn knatt- spyrnumaður Evrópu og telur að loksins hafi Arsenal komist að því hvað þurfi til að vinna í Evrópu- keppninni. „Liðið veður enskur meistari og það er ekki ólíklegt að það verði líka bikarmeistari. Síð- ustu árin hefur liðið leikið skemmtilega knattspyrnu en dottið óþarflega snemma út úr Evrópu- keppninni. Núna er liðið komið í átta liða úrslit og það hefur fullt af leikmönnum sem ég dáist að. Ekki bara Thierry Henry, heldur einnig Dennis Bergkamp, Robert Pires og Jose Reyes,“ segir Cruyff, sem seg- ir að þó að það megi finna veikleika hjá Arsenal og því sé ekki alveg öruggt að það verði Evrópu- meistari. „Ég er ekki viss um hvort það hefur allt sem þarf til að sigra, eða hvort enn vanti eitthvað smá- vegis þar upp á. Ég vona samt að Arsenal verði Evrópumeistari.“ Cruyff vonar að Arsenal verði Evrópumeistari ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu er í 58. sæti á nýjum heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í gær. Landsliðið hefur þar með hækkað sig um eitt sæti frá því í febrúar en þá var það í 59. sætinu. Liðið hefur ekki leikið enn á þessu ári og því eru þessar breytingar til komnar vegna leikja annarra þjóða. Fimm efstu þjóðirnar eru þær sömu og síðast, Brasilía, Frakkland, Spánn, Holland og Mexíkó. Tékkar fara upp um tvö sæti, í það sjötta, og eru þar jafnir Englendingum og Argentínumönnum. Tyrkir eru níundu, Þjóðverjar hækka sig um tvö sæti, upp í það tíunda, en Ítalir falla um eitt, niður í ellefta sæti. Svíar og Króatar, mótherjar Íslands í undankeppni EM, eru jafnir í 20. sæti, Búlgarar eru í 37. sæti, Ungverjar í 67. og Möltubúar hækka sig um tvö sæti og eru númer 128 en alls eru 204 þjóðir á heimslistanum. Af 51 Evrópuþjóð er Ísland í 28. sæti, næst á eftir Lett- um, og þar fyrir ofan eru Skotar. Næstu Evrópuþjóðir fyrir neðan Ísland eru Úkraína, Wales, Eistland og Ungverjaland. Íslenska landsliðið fór upp um eitt sæti Það kemur virkilega á óvart aðþað skuli vera þrjú lið af Suð- urnesjunum,“ sagði Reynir og hló þegar hann var spurður um hvernig honum litist á und- anúrslitakeppnina. „Nei, auðvitað eru þessi lið vel að því komin að vera komin svona langt, en það munaði ekki miklu að vinir mínir fyrir norð- an næðu að slá Keflavík út. En hefð- in er sterk í þessu og það tókst ekki hjá Tindastóli að brjóta hana að þessu sinni. Það er auðvitað ekkert að því að fá þessi fjögur lið í úrslit. Snæfell mun örugglega ná að stíða Njarðvíkingum eitthvað. Ég veit ekki hver staðan er á Dondrell hjá Snæfelli, en það skiptir auðvitað máli. Snæfell á sterkan heimavöll og geta örugglega unnið einn leik, en miðað við hvernig Njarðvík spilaði á móti okkur þá er ég ekki frá því að Njarðvík hafi þetta – eigum við ekki að segja 3:1. Þó svo það hafi gengið svona upp og ofan hjá Njarðvík í vetur þá virð- ist þetta smellpassa saman hjá þeim núna. Brenton er kominn í sitt gamla góða form og með nýja erlenda leik- manninn ná þeir alveg að jafna út leikmenn Snæfells. Hólmarar hafa komið nokkuð á óvart í vetur. Auðvitað vissi maður um styrkleika íslensku leikmann- anna hjá þeim og þeir erlendu hafa fallið mjög vel inn í hópinn. Menn skilja hlutverk sitt í liðinu vel, það eru ekki allir í því sama. Sumir eru góðir að taka fráköst og verjast og aðrir eru góðar skyttur þannig að þetta er góð blanda hjá þeim. Ég held samt að Njarðvík hafi það og það verður einhver að sýna mér fram á að þeir geti stoppað það sem við lentum á þarna á móti Njarðvík. Við erum nýbúnir að leika á útivelli við bæði þessi lið og miðað við hvern- ig Njarðvík spilar á heimavelli þá komast þeir áfram,“ sagði Reynir. Mikið skotið í Grindavík „Grindavík og Keflavík hafa nokkrum sinnum mæst áður og þetta verður skemmtileg rimma. Það má búast við að það verði mikið skorað í þessum leikjum – í það minnsta mikið skotið! Grindvíkingar eru búnir að bæta við sig og virðist vera að smella saman á ný eftir mis- jafnt gengi eftir áramótin. Helgi Jónas kemur varla til með að gera neitt af viti í þessum leikjum. Hann er auðvitað gríðarlega öflugur leik- maður en hann er búinn að vera frá svo lengi og er því ekki í neinni æf- ingu. Keflvíkingar hafa ekki verið sann- færandi að undanförnu, sérstaklega ekki á útivelli. Þeir eru reyndar al- gjörlega óútreiknanlegir, en samt fannst mér vanta dálítið í leik þeirra á móti KR. Þeir hafa alltaf haft gam- an af því sem þeir eru að gera og það hefur altént verið stemmning í kring um liðið. Það vantaði allt í síðasta leik. Trúlega saknar liðið Gunnars Einarssonar, hann er liðinu mjög mikilvægur og það er spurning hvort andrúmsloftið breytist ef hann kem- ur inn af fullum krafti aftur. Eins fannst mér dauf stemmning á pöllunum og ef mið er tekið af þessu þá tel ég að það sé meira líf Grindavíkurmegin og spái þess vegna að það verði Grindavík sem kemst áfram. Eigum við ekki að segja 3:1, nei höfum það 3:2 þannig að við fáum oddaleik,“ sagði Reynir. Liðin sem mætast að þessu sinni í undanúrslitum eru þau fjögur lið sem voru í fjórum efstu sætunum í deildinni. Snæfell og Njarðvík hafa mæst þrívegis í vetur, Snæfell vann 85:71 í fyrri deildarleiknum í Hólm- inum en Njarðvíkingar unnu sinn heimaleik 105:68 og bikarleiknum, sem fram fór í Hólminum, lauk með sigri Njarðvíkinga 74:69. Grindavík og Keflavík hafa líka mæst þrívegis. Keflavík vann fyrri leikinn 94:90 en þegar liðin mættust í Grindavík höfðu heimamenn betur 92:90. Í bikarnum hafði Keflavík bet- ur 107:97 þegar liðin mættust í Grindavík. Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka, spáir Suðurnesjaslag í úrslitum Grindavík og Njarðvík fara í úrslit UNDANÚRSLIT úrvalsdeildar karla í körfuknattleik hefst á morgun með leik Snæfells og Njarðvíkur og á laugardaginn mætast Grindavík og Keflavík, en þau lið sem fyrr sigra í þrem- ur leikjum komast í úrslitarimm- una. „Ég sagði fyrir nokkru síð- an að fyrst við komumst ekki áfram þá verða það Grindavík og Njarðvík sem leika til úr- slita,“ sagði Reynir Kristjáns- son, þjálfari Hauka, um vænt- anlega undanúrslitaleiki. Eftir Skúla Unnar Sveinsson Upphaflega var krakkablakiðkynnt í heimsókn danska blak- sambandsins fyrir tæpu ári en nú hafa yfir hundrað þjálfarar og íþrótta- kennarar sótt nám- skeið. Krakkablakið hefur hlotið góðar viðtökur hjá íþróttakennurum enda styður Blaksambandið dyggilega við útbreiðslu íþróttarinnar, aðstoðar við að fá leiðbeiningar um kennslu og býður aðgang að þrautreyndum leið- beinendum. Þegar er byrjað halda mót og í byrjun mars var haldið suð-vestur- landsmótið í krakka- og unglinga- blaki. Það fór fram í Fylkishöll og voru keppendur um 130 úr 5 fé- lögum, Fylki, Þrótti, HK, Aftureld- ingu og sameinuðu liði Víkings frá Ólafsvík og Reynis frá Hellissandi en alls voru 26 lið á mótinu. Fleiri fé- lög bjóða krakkablak, til dæmis Ungmennafélögin Glói frá Siglufirði og Bjarni úr Þingeyjarsveit. Það voru ekki allir klárir á reglunum, enda íþróttin ný fyrir flestum, en það kom ekki að sök því áhuginn var mikill og oftast var bara haldið áfram enda kvörtuðu krakkarnir ekki ef hinir fullorðnu gerðu það ekki. Leiknum svipar til hefðbundins blaks en er skipt upp í 5 til 6 stig. Í Fylkishöllinni var að mestu keppt í fyrstu þremur stigunum. Kynjum var blandað saman í lið og þegar ljóst var að einhverjir voru búnir að ná tökum í sínu stigi tók við næsta. Á fyrsta stigi eiga krakkar að grípa boltann og kasta yfir blaknet en í hvert sinn sem það tekst ekki verður einn leikmaður að fara útaf. Ef hins- vegar tekst að grípa boltann þrisvar í röð er samherji frelsaður og kemur aftur inná. Eitt stig næst í hvert sinn sem annað liðið hefur misst alla útaf en þannig er víst að allir fá að spreyta sig og taka þátt en leikur er þó ekki lengri en 15 mínútur. Í öðru stigi þurfa leikmenn að slá boltann með blakaðferðum og samherji að grípa til að frelsingi getið komið inná. Í þriðja stiginu þurfa liðin að koma þrisvar við boltann eins og í venjulegum leik nema hvað fyrsta snerting þarf að vera blak-slag, síð- an á að grípa boltann og þriðja snert- ing er blak-slag. Til viðbótar er svo byrjað að framleiða bolta, sem er minni og léttari.  WALTER Matosevic, landsliðs- markvörður Króatíu í handknattleik og samherji landsliðsmannsins Gylfa Gylfasonar hjá þýska 1. deildarlið- inu Wilhelmshavener meiddist í fyrradag og leikur ekki næstu þrjár vikur hið minnsta. Þetta er talsverð blóðtaka fyrir Wilhelmshavener sem er í harðri baráttu við að halda sæti sínu í þýsku 1. deildinni.  THORSTEN Storm, fram- kvæmdastjóri þýska handknattleiks- liðsins Flensburg ræddi í gær við Joel Abati, leikmann Magdeburg, undir fjögur augu þar sem hann bað Abati afsökunar á framkomu hóps stuðningsmanna Flensburg meðan á leik Flensburg og Magdeburg stóð um síðustu helgi í Meistaradeild Evrópu. Þá voru gerð hróp að Abati vegna litarháttar hans, en Abati er blökkumaður. Fyrr í vikunni hafði Storm gefið út yfirlýsingu þar sem félagið bað Abati opinberlega afsök- unar á framkomu stuðningsmann- anna.  EINAR Oddsson, knattspyrnu- maður úr Víkingi, hefur verið lán- aður til 1. deildarliðs Njarðvíkur. Einar er Njarðvíkingur en hefur spilað með Víkingum undanfarin þrjú ár. Víkingar hafa ennfremur lánað markvörðinn Ingvar Þór Kale til KS á Siglufirði.  GYLFI Einarsson skoraði eitt marka Lilleström sem sigraði Strömsgodset, 3:1, í æfingaleik norsku knattspyrnuliðanna í fyrra- dag.  ÁGÓÐALEIKUR fyrir Martin Keown, miðvörðinn kunna hjá Ars- enal, fer fram á Highbury 17. maí. Arsernal mun þá leika gegn enska landsliðinu. Keown byrjaði undir að leika með Arsenal 1981, en lék um tíma með Aston Villa og Everton áð- ur en hann vann sér fast sæti í Ars- enalliðinu 1985. Keown, 37 ára, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eft- ir þetta keppnistímabil. Hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla í vetur og aðeins leikið fimm deildarleiki.  JIMMY White, einn þekktasti snókerspilari heims, var handtekinn snemma í gærmorgun á hóteli í Preston í Englandi eftir að fíkniefni fundust í fórum hans. White, sem er 41 árs gamall, kom hingað til lands í vetur og spilaði við bestu snóker- menn Íslands. Hann var yfirheyrður af lögreglu og síðan sleppt gegn tryggingu. White var staddur í Preston til að spila sýningarleik gegn Alex Higgins.  OTTMAR Hitzfeld, þjálfari Bay- ern München, sagði í samtali við þýska blaðið Bild í dag að hann hefði hafnað tilboði um að gerast knatt- spyrnustjóri Chelsea frá og með næsta tímabili. Hitzfeld kvaðst ætla að ljúka samningi sínum hjá Bayern sem rennur út vorið 2005. FÓLK Á milli leikja brugðu Gunnþóra Mist Björnsdóttir og Sigrún Pálsdóttir úr Fylki sér á bak við búðarborðið. Bylting með krakkablaki Í STAÐ þess að reyna að kenna 6 til 12 ára krökkum hvernig á að spila blak, sneru blakmenn hlutverkum rækilega við blaðinu og byggðu upp nýja íþrótt sem er miðuð við að krakkar geti auðveld- lega lært að spila blak og þá miðað við getu hvers og eins. Þetta blakafbrigði kallast krakkablak og hefur náð góðri útbreiðslu enda sniðið að krökkunum sjálfum og allir geta verið með. Stefán Stefánsson skrifar Gunnar Heiðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.