Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 59
GRINDAVÍK og Keflavík verða að
mætast í oddaleik um hvort liðið
tryggir sér sæti í úrslitum í 1. deild
kvenna í körfuknattleik eftir sigur
Grindvíkinga, 65:62. Leikurinn var
nánast í járnum allan leikinn og
hvorugt liðið náði að slíta sig frá
hinu í fyrri hálfleik. Mestur var
munurinn 47:40 fyrir Grindavík
undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari
hálfleik var sama baráttan upp á
teningnum og bæði lið í einhverjum
villuvandræðum. Þegar þrjár og
hálf mínúta var eftir náði Grinda-
vík 10 stiga forustu en Keflavík
náði að minnka muninn í 61:59.
Heimastúlkur héldu haus og náðu
að landa góðum liðssigri. Þær
spiluðu fína vörn allan tímann og
Kesha Tardy sá um að skora stigin
fyrir heimastúlkur því hún skoraði
31 stig. Hjá gestunum var helst að
María Erlingsdóttir og Bryndís
Guðmundsdóttir gleddu augað með
góðri spilamennsku en reynslubolt-
arnir sýndu ekki sparihliðarnar.
„Já, þetta var hörkuleikur. Kesha
Tardy þurfti að fara útaf þegar lítið
var eftir, fann fyrir hjartatruflun-
um. Vörnin hjá okkur var góð, liðs-
vörn fyrst og fremst. Í sókninni
fundum við svar við svæðisvörninni
hjá þeim. Frábær sigur hjá okkur,“
sagði Pétur Guðmundsson, þjálfari
Grindavíkur. „Stelpurnar voru rag-
ar í sókninni og frekar staðar. Nú
er það oddaleikurinn. Liðið sem
vinnur þar á einfaldlega skilið að
komast áfram,“ sagði Hjörtur
Harðarson, þjálfari Keflavíkur.
Grindvíkingar knúðu fram
oddaleik gegn Keflavík
SIGÞÓR Júlíusson,knatt-
spyrnumaður leikur ekki með
KR-ingum í sumar en hann
varð fyrir því óláni að slíta
krossband í hné í leik með
skólaliði sínu í Bandaríkjunum
á dögunum. Sigþór gengst
undir aðgerð í næstu viku en
hann verður frá æfingum og
keppni næstu 7–8 mánuðina.
Hilmar Björnsson, félagi Sig-
þórs í KR, varð fyrir sams
konar meiðslum í fyrsta leik
KR í fyrra og er enn ekki far-
inn að æfa með liðinu.
Sigþór sleit
krossband
RÓBERT Gunnarsson átti enn
einn stórleikinn með Århus GF í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í gær. Róbert skoraði 10 mörk,
þar af tvö úr vítum, þegar Århus
vann stórsigur á Otterup, 36:27. Þor-
varður Tjörvi Ólafsson skoraði tvö
marka Árósarliðsins.
EINAR Örn Jónsson skoraði 5
mörk fyrir Wallau Massenheim í
tapleik liðsins gegn Gummersbach í
fyrrakvöld. Í blaðinu í gær var greint
frá því að Einar hefði ekki komist á
blað og var það byggt á heimildum
þýskra netmiðla.
GYLFI Gylfason skoraði 2 mörk
fyrir Wilhelmshavener sem steinlá
fyrir Kiel, 35:22, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld.
HELGI Kolviðsson lék allan leik-
inn fyrir Kärnten sem tapaði fyrir
Sturm Graz, 2:0, í austurrísku 1.
deildinni í knattspyrnu. Helgi og fé-
lagar eru í botnsætinu með 18 stig,
sex stigum á eftir Salzburg.
MICHAEL Owen skoraði tvívegis
í 3:0 sigri Liverpool gegn Portsmo-
uth í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld en Dietmar Ham-
ann skoraði fyrsta mark leiksins á 6.
mínútu en Owen skoraði á 28. og 58.
mínútu. Liverpool er nú með 42 stig í
fimmta sæti deildarinnar en Charl-
ton er með 43 stig í því fjórða.
Portsmouth er með 26 stig í þriðja
neðsta sæti deildarinnar.
PÉTUR Hafliði Marteinsson og
félagar í sænska knattspyrnuliðinu
Hammarby sigruðu finnska liðið
Haka, 2:1, í æfingaleik á Kýpur í
gær. Pétur lék á miðjunni hjá
sænska liðinu allan leikinn. Hamm-
arby mætir finnsku meisturunum
HJK á laugardaginn á sama stað.
HJÁLMAR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, má ekki leika
tvo næstu æfingaleikina með liði
sínu, Gautaborg. Hann fékk að líta
rauða spjaldið í æfingaleik fyrir
skömmu og fékk tveggja leikja bann
fyrir vikið. Annar leikurinn sem
hann missir af er nágrannaslagur
gegn Íslendingaliðinu Örgryte á
laugardaginn.
ÚRVALSDEILDARLIÐ Hauka í
körfuknattleik fékk góðan liðsstyrk í
gær en þá gekk Mirko Virijevic til
liðs við félagið frá Breiðabliki. Virij-
evic hefur leikið með Blikum undan-
farin þrjú ár og þá spilaði hann eitt
ár með Snæfelli. Hann skoraði 20,3
stig að meðaltali í leikjum Blika í úr-
valsdeildinni og tók 12,3 fráköst.
NÍNA Ósk Kristinsdóttir marka-
skorarinn mikli í liði Vals hélt upp-
teknum hætti í gærkvöldi þegar Val-
ur burstaði FH, 8:1, í fyrsta leik
Deildabikarkeppninnar. Nína skor-
aði þrjú af mörkum Vals en hún hef-
ur verið sérlega iðin við kolann og
skoraði 21 mark fyrir liðið á Reykja-
víkurmótinu í sex leikjum.
FÓLK
Eggert Maríuson, þjálfari úrvals-deildarliðs ÍR í körfuknattleik,
karla verður áfram með liðið á næstu
leiktíð en hann á eitt ár eftir af
þriggja ára samningi sínum við félag-
ið sem endaði í níunda sæti deildar-
innar í vetur. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru allar líkur á því
að Pálmi Sigurgeirsson, leikmaður
Breiðabliks, gangi til liðs við ÍR á
næstu leiktíð.
Pétur Ingvarsson, þjálfari Ham-
ars, sem féll úr leik í átta liða úrslitum
keppninnar segir að hann eigi eitt ár
eftir af samningi sínum við félagið.
„Þessa dagana er ég lítið að hugsa um
körfubolta en ef það verður sami hátt-
ur á með launaþakið á næstu leiktíð
fer ég að þjálfa lið í 2. deild,“ sagði
Pétur í léttum tón.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari KFÍ, á
Ísafirði tók í sama streng og Pétur og
sagði að þessa dagana nyti hann þess
að borða kvöldmatinn á réttum tíma
og væri lítið að spá í körfubolta. „Ég
tel vera helmingslíkur á því að ég
verði áfram með KFÍ en ég á eitt ár
eftir af samningi mínum við félagið.
Það gæti farið svo að ég myndi flytj-
ast búferlum frá Ísafirði en ég hef
ekki ákveðið hvort ég fer suður eða
norður. Ástandið er því óljóst,“ sagði
Hrafn.
Reynir Kristjánsson, þjálfari
Hauka, segir að þar á bæ séu menn
rétt að „koma út úr holunni“ eftir tvo
skelli gegn Njarðvíkingum í átta liða
úrslitum. „Ég er ekki með neina
samninga við Hauka til langs tíma, og
á næstu vikum munum við fara yfir
málin,“ sagði Reynir sem var þá á leið
á æfingu, þá fyrstu eftir tapleikinn
gegn Njarðvík. „Ef mér verður
hleypt inn á Ásvelli er ástandið þol-
anlegt, en það er ekkert ákveðið um
framhaldið,“ sagði Reynir.
Ljóst er að nýr þjálfari tekur við
Grindavíkurliðinu, en Friðrik Ingi
Rúnarsson ætlar að taka sér frí frá
þjálfun á næstu leiktíð.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er líklegt að Herbert Arnar-
son taki við sem þjálfari KR en hann
hefur verið Inga Þór Steinþórssyni
innan handar í vetur.
Jón Arnar Ingvarsson mun stýra
Breiðabliki í 1. deild á næstu leiktíð en
liðið féll úr úrvalsdeild ásamt Þór frá
Þorlákshöfn. Þórsarar hafa óskað eft-
ir því að Robert Hodgson verði áfram
með liðið í 1. deild en ekki hefur verið
gengið frá samningum þess efnis.
Fjölnir úr Grafarvogi verður áfram
með þjálfarann Benedikt Guðmunds-
son sem stýrði liðinu til sigurs gegn
Val í undanúrslitum 1. deildar, en
Fjölnir leikur í úrvalsdeild á næstu
leiktíð í fyrsta skipti.
Valur Ingimundarson þjálfaði
Skallagrím í 1. deildinni í vetur en
óvíst er hvort hann haldi áfram með
liðið.
Tekur Herbert við KR-liðinu?
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins eru allar líkur á því að Her-
bert Arnarson taki við sem þjálfari úrvalsdeildarliðs KR, en Ingi Þór
Steinþórsson hefur stýrt liðinu undanfarin ár. Ekki er útlit fyrir að
miklar breytingar verði í þjálfaramálum hjá öðrum liðum úrvalsdeild-
arinnar en eins og áður kemur fram mun Friðrik Ingi Rúnarsson
þjálfari Grindavíkur taka sér frí á næstu leiktíð og Hrafn Kristjánsson
þjálfari KFÍ hefur ekki gert upp hug sinn um framhaldið hjá sér.
Auðvitað er ánægja með að viðskulum komast upp, en því er
ekki að neita að tilfinningarnar eru
blendnar hjá sum-
um,“ segir Benedikt
og bendir á að það sé
mun meira verkefni
að vera í úrvalsdeild-
inni en þeirri fyrstu, ekki síst hvað
fjármálin varðar. „Þegar ég tók við
liðinu í vor var stefnan sett á að
byggja upp liðið á þeim efnivið sem
til staðar var í félaginu og gera gott
lið úr honum og fara síðan upp um
deild eftir þrjú ár. En ungu strák-
arnir stóðu sig það vel að við erum
komnir upp og við verðum að taka
því sem bíður okkar þar,“ segir
Benedikt.
Fjölnisliðið er áberandi ung og
hefur meðalaldurinn í mörgum leikj-
um í vetur verið talsvert undir tví-
tugu. „Ég veit ekki hvað Jason Hard-
en er gamall, en hann er eldgamall
miðað við hina strákana sem eru í lið-
inu. Við höfum verið með einn strák
sem er fæddur 1988 (15–16 ára á leik-
tíðinni) tvo sem eru fæddir ’87, einn
’86, tvo ’85 og svo framvegis,“ segir
þjálfarinn og af upptalningu sést að
þetta eru flestallt strákar sem leika í
drengja- og /eða unglingaflokki.
„Alltaf þegar voru leikir í drengja-
flokki féllu niður æfingar hjá okkur í
meistaraflokki vegna þess að 70%
strákanna spila í þeim aldursflokki.
Við reyndum samt að stjórna því eins
og hægt var að menn lékju ekki með
of mörgum flokkum, þannig að álagið
á strákana væri ekki of mikið, en
þjálfarar hinna flokkanna vilja auð-
vitað helst vera með sinn sterkasta
mannskap,“ segir Benedikt.
Spurður hvort hann eigi von á að
Fjölnir haldi áfram að byggja á ung-
um leikmönnum félagsins eða taki
þátt í kapphlaupinu um erlenda leik-
menn eins og lið hafa gert í vetur,
sagði Benedikt: „Ég trúi ekki öðru en
þessu verði breytt með erlendu leik-
mennina. Sem harður unglingaþjálf-
ari er þetta ekki draumafyrirkomu-
lag mitt og ég er alls ekki spenntur
fyrir því að taka þátt í svona löguðu.
Við lögðum upp með að nota okkar
efnivið í vetur og það gekk vel. Við
yngdum dálítið upp í vor þegar ég
tók við og það komu mjög ungir
strákar inn í æfingahópinn enda var
þetta þriggja ára áætlun eins og ég
sagði áðan. Þeir hafa fengið að reyna
sig og ég tel það mikilvægt því það
eru svo margir ungir og efnilegir
strákar í yngri flokkum félaganna
sem fá aldrei tækifæri til að spila sig í
gegnum þann vegg sem það er að
vera efnilegur yngri flokka leikmað-
ur og góður meistaraflokksleikmað-
ur. Við ákváðum að láta strákana fá
tækifæri þar sem við töldum okkur
hafa nægan tíma enda var planið að
fara upp eftir þrjú ár.“
Fjölnir tryggði sér úrvalsdeildar-
sætið með sigri á Val að Hlíðarenda
en þessi félög voru í samstarfi fyrir
nokkrum árum í körfunni. „Ég
þekkti ekkert til þess samstarfs og
fann ekki fyrir því að um neinn ríg
væri að ræða milli félaganna. Það var
hins vegar sætt að leggja Val svo
sannfærandi að Hlíðarenda því þetta
er eini leikurinn sem liðið hefur tapað
þar í vetur,“ sagði Benedikt.
Grafarvogurinn er stórt og fjöl-
mennt hverfi og mikil gróska er í
körfuknattleiknum þar. „Í mörgum
félögum er talað um það á sumrin að
fara í skólana um haustið og fá
krakka á æfingar, en síðan gerist lítið
sem ekkert. Snorri Örn [Arnaldsson]
hefur verið mjög duglegur við þetta
og ég held að það hafi orðið um 50%
fjölgun í öllum flokkum hjá okkur í
vetur – framtíðin er björt hjá Fjölni
og félagið á ágæta möguleika á að
verða stórveldi eftir nokkur ár, en
það er eitthvað í það ennþá. Það get-
ur verið tvíbent að fara upp í úrvals-
deild með svona ungt lið. Ef okkur
tekst að halda sætinu þar næsta vet-
ur þá er mikið unnið, en ef við föllum,
eins og oft gerist hjá nýliðum, þá er
alltaf hættan á að bestu strákarnir
fari í einhver önnur félög þar sem
þeir hafa fengið smjörþefinn af því að
leika í hópi þeirra bestu. Ef það ger-
ist þá erum við í raun komnir á byrj-
unarreit aftur,“ segir Benedikt.
Morgunblaðið/Jim Smart
Komnir í úrvalsdeildina. Fjölnismenn í aftari röð frá vinstri eru Hjalti Þ. Vilhjálmsson, Tryggvi
Pálsson, Hilmar Hjálmarsson, Guðni H. Valentínusson, Jason Harden, Brynjar Þ. Kristófersson,
Benedikt Guðmundsson þjálfari og Páll Briem aðstoðarmaður. Fyrir framan krjúpa, frá vinstri
Helgi H. Þorláksson, Pálmar Ragnarsson, Halldór G. Jónsson og Magnús Pálsson.
Kornungt lið Fjölnis komið í úrvalsdeildina í körfu
„Tveimur árum á
undan áætlun“
HIÐ unga körfuknattleikslið Fjölnis í Grafarvogi tryggði sér um
helgina sæti í úrvalsdeildinni að ári. Mikið uppbyggingarstarf hefur
verið unnið í félaginu og efniviðurinn er nægur enda hverfið stórt og
fjölmennt. „Við erum eiginlega tveimur árum á undan áætlun,“ segir
Benedikt Guðmundsson, þjálfari meistaraflokksins, og vitnar þá til
þess að hugmyndin hafi verið að byggja upp lið í vetur og næsta vet-
ur og fara síðan upp í úrvalsdeildina. En ekki fer allt eins og ætlað er.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson