Morgunblaðið - 18.03.2004, Qupperneq 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 61
Leikkonan og kvikmyndagerðarkonan AngelaShelton ákvað að gera heimildarmynd um lífkvenna í Bandaríkjunum með því að leita uppinöfnur sínar. Hún fann símanúmer hjá 76
þeirra á Netinu en 22 símanúmer voru ótengd. Hún skildi
eftir skilaboð fyrir 55 Angelur og á endanum töluðu 32 við
hana. Það sem hún komst að var að helmingur þessara
kvenna hafði verið misnotaður kynferðislega, eins og hún
sjálf.
„Þetta er fyrsta sýningin á myndinni, hún er reyndar
ekki tilbúin, en þetta er í fyrsta sinn sem ég sýni áhorf-
endum þessa útgáfu. Það er ótrúlegt að það gerist á Ís-
landi af öllum stöðum,“ segir Angela en myndin verður
sýnd í kvöld í Regnboganum.
Kom fram í Oprah
Þrátt fyrir að myndin sé ekki tilbúin hefur hún strax
vakið mikla athygli. Hún hefur víða sýnt brot úr myndinni
og samhliða því að vinna að því að klára myndina ferðast
Angela um og ræðir um kynferðislegt ofbeldi.
Angela er komin hingað til lands fyrir tilstilli Björns
Steinbekks, sem sá Angelu í Oprah en sýning mynd-
arinnar er samhliða V-deginum, baráttudegi gegn ofbeldi,
sem haldinn var hátíðlegur í gær. Sjónvarpskonan Oprah
Winfrey, sem Angela segir vissulega fyrirmynd, er meðal
þeirra fjölmörgu sem hafa tekið eftir því sem Angela er að
gera. „Björn hafði samband og ég var meira en til í að
koma hingað til lands. Það sem ég vil gera er að koma af
stað hreyfingu um allan heim, ekki bara í heiminum. Mis-
notkun er faraldur um allan heim, þetta er ekki banda-
rískt vandamál.“
Angela, sem er fædd árið 1972, er frá Norður-Karólínu
og hóf ferilinn á því að starfa sem fyrirsæta í París og
New York. Hún tók vel heppnað skref yfir í kvikmynda-
leik (Comfortably Numb – 1995) og fór svo að skrifa og
framleiða myndir (m.a. Tumbleweeds – 1999). Hún segir
að skrifin hafi alltaf verið ástríða hjá sér og eru þau henn-
ar lifibrauð. Yfirvofandi verkfall handritshöfunda í Holly-
wood fékk hana hins vegar til að reyna heimildarmynda-
gerð þar til deilan leystist. Niðurstaðan er
heimildarmyndin Leitin að Angelu Shelton (Searching for
Angela Shelton).
Bara stelpa sem bjó til mynd
Angela er opinská hvað sögu sína varðar en faðir henn-
ar misnotaði hana og systkini hennar þegar hún var ung.
Vegna þess hversu hreinskilin hún er hafa margir haft
samband við hana og sagt eigin sögu. Einn þeirra sem
höfðu samband við Angelu segist hafa hætt við að fremja
sjálfsmorð eftir að hafa séð hana í Oprah. „Já, þetta er
magnað. Mér líður eins og ég verði að halda áfram. Ég
ætla ekki að þagna núna. Sumum finnst ég einhver hetja
því ég tala opinskátt um þessi mál en ég neita því. Ég er
bara stelpa sem bjó til mynd. Þú verður að vera þín eigin
hetja, þú verður að bjarga sjálfum þér. Það er það sem ég
vil hvetja aðra til að gera,“ segir Angela og bætir við að
þetta fólk sem hafi haft samband við hana hvetji hana
jafnframt til að halda áfram.
Þagnarmúrinn brotinn
„Ég hef fengið um þrettán þúsund tölvupósta núna og
eftir að hafa lesið allar þessar sögur um misnotkun þá
verð ég að viðurkenna að ég varð frekar þunglynd. Sumar
þessar sögur eru hræðilegar, eins og frá einni konu sem
var misnotuð af afa sínum, sem endaði með því að hún
eignaðist barn hans. Fjölskylda hennar neitaði að tala um
þetta. Það sem ég vil gera er einmitt að brjóta þennan
þagnarmúr,“ segir hún.
Á vefsíðu hennar, www.searchingforangelashel-
ton.com, eru ýmis ráð fyrir þolendur kynferðisofbeldis og
þá sem vilja taka þátt í baráttunni gegn slíku ofbeldi. Hún
vill snúa þessum faraldri við og sýna fólki að það sé leið frá
því að vera fórnarlamb til þess að standa eftir sem sterkur
einstaklingur; það er hægt að lifa frábæru lífi, sama hvað
þú hefur gengið í gegnum. „Þetta er ekki bara mynd held-
ur hreyfing,“ segir hún.
Meðal þeirra sem hafa sagt Angelu sögu sína eru nöfn-
ur hennar í myndinni. Alls koma 16 Angelur, að henni
sjálfri meðtalinni, fram í myndinni og hefur um helmingur
þeirra verið misnotaður kynferðislega. Hún segir að kon-
urnar hafi fundið til samkenndar vegna þess að þær deili
nafni og hafi þótt auðveldara að tjá sig vegna þess hversu
opinská hún sjálf var.
„Myndin er þrátt fyrir þetta engin hryllingssaga sem
lætur mann vilja keyra fram af fjallsbrún eftir að hafa
horft á hana. Þannig tapar maður áhorfendum. Hún er á
margan hátt fyndin þó dramatíkin sé til staðar. Húmor
hefur alltaf hjálpað mér við að takast á við hlutina.
Húmorinn gerir myndina mun auðveldari áhorfs og boð-
skapurinn í endann byggist á von,“ segir Angela.
Vill hertar refsiaðgerðir
Angela tekur málefnið þó sannarlega alvarlega og eitt
af hennar baráttumálum er að refsing við kynferð-
isbrotum verði aukin. „Það þarf að herða refsingar. Í
Bandaríkjunum er mun harðar tekið á eiturlyfjabrotum
heldur en nokkru sinni kynferðisbrotum og mér finnst
það öfugsnúið. Þetta er hneykslanlegt því skilaboðin eru –
okkur er sama um konur og börn en það er eins gott að þú
notir ekki eiturlyf!“
Hún vill líka vekja athygli á því að það séu ekki bara
konur og börn sem eru misnotuð heldur líka karlmenn.
„Þeir virðast enn síður tala um þetta. Það eru ótrúlega
margir menn sem hafa haft samband við mig í kringum
umræðu um myndina. Þessi barátta snýst ekki um stríð
milli kynjanna heldur verðum við öll að taka höndum sam-
an.“
Angela var misnotuð af föður sínum og gerð mynd-
arinnar leiddi hana á endanum á hans fund en ein Angelan
bjó í sama bæ og faðir hennar. „Ég áttaði mig ekki strax á
því að þetta mundi gerast en fannst það skyndilega óum-
flýjanlegt. Þessi mynd hefur hjálpað mér að þroskast og
hefur virkilega breytt lífi mínu. Ég þurfti að horfast í augu
við hver ég er,“ segir hún og bætir við að líf hennar hafi
allt breyst til hins betra á þessum þremur árum sem hefur
tekið að gera myndina. Meðal annars kynntist hún núver-
andi eiginmanni sínum, sem er með henni á Íslandi núna.
„Hann tók eftirnafn mitt. Abe Shelton heitir hann núna,“
segir hún stolt.
Shelton er ekki upprunalegt eftirnafn Angelu heldur
tók hún sér þetta nafn þegar hún var 18 ára því hún vildi
ekki bera nafn föður síns. Henni finnst það hrein örlög að
hún skuli hafa valið þetta nafn og segir að margt af því
sem átti sér stað við gerð myndarinnar hafi virst fyr-
irfram ákveðið.
Mynd með sitt eigið líf
„Ég hafði allan tímann trú á því að það yrði eitthvað úr
þessari mynd. Ég vissi hins vegar ekki að ég ætti eftir að
vera í aðalhlutverki. Ég er mjög ánægð með að hafa tekið
þátt í þessu en myndin er miklu stærri en bara ég. Þetta
snýst um að breyta heiminum, það er það sem mig langar
að gera. Og myndin virðist hreyfa við mörgum. Myndin er
eins og lest sem er lögð af stað í leiðangur. Hún hefur
eignast sitt eigið líf. Ég hleyp með lestinni og ætla að gera
það eins lengi og ég get.“
Af öðrum verkefnum sem Angela er að vinna um þessar
mundir er hún sérstaklega stolt af einu hlutverki, Safe
Side Super Chick. „Þetta er röð myndbanda þar sem ég
kenni krökkum hvernig þau geta mögulega komið í veg
fyrir að vera misnotuð eða rænt.„Þetta er skemmtilegasta
hlutverk mitt hingað til,“ segir hún en myndböndin verða
komin í sölu í maí næstkomandi. Ennfremur stefnir hún
að því að gera kolsvarta kómidíu um lýtaaðgerðir, Fake.
„Þar ætla ég að fjalla að um hversu langt fólk gengur til að
vera elskað og fylla tómarúmið innra með sér.“
Angela stefnir að því að fullklára Leitina að Angelu
Shelton á næstu tveimur til þremur mánuðum og eyða svo
ári í að ferðast um öll Bandaríkin til að sýna myndina og
tala. „Mig langar að fara í háskóla og ýmis samtök og fá
fólk síðan til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda um
hertar aðgerðir gegn kynferðisbrotamönnum og breyt-
ingar á löggjöf. Mig langar að enda með hópferð til Wash-
ington og afhenda svo stjórnvöldum áskorunina.“
Angela Shelton leitaði að nöfnum sínum en fann sjálfa sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Mér líður eins og ég verði að halda áfram. Ég ætla
ekki að þagna núna. Sumum finnst ég einhver hetja því
ég tala opinskátt um þessi mál en ég neita því. Ég er
bara stelpa sem bjó til mynd,“ segir Angela Shelton í
viðtali um heimildarmynd sína.
Ekki bara
mynd held-
ur hreyfing
Hún var beitt kynferðislegu ofbeldi
og er óhrædd að segja frá því. Hún er
líka hæfileikarík kvikmyndagerð-
arkona. Inga Rún Sigurðardóttir
ræddi við Angelu Shelton um heimild-
armyndina Leitin að Angelu Shelton,
sem Íslendingum gefst fyrstum allra
tækifæri til að sjá í heild í kvöld.
Myndin Leitin að Angelu Shelton (Searching for Ang-
ela Shelton) verður sýnd í Regnboganum kl. 18 í dag.
Angela kynnir myndina og situr fyrir svörum eftir sýn-
inguna.
ingarun@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Vorhreingerning
í Flash
Mörg önnur frábær tilboð
Laugavegi 54, sími 552 5201
BOLIR
Áður 1.990
Nú 990
Stærðir s-xxl
BUXUR
Áður 4.990
Nú 2.990
Stærðir 36-48
JAKKAR
Áður 7.990
Nú 2.990