Morgunblaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 18. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
YGGDRASILL flytur nú inn lífrænt ræktaða
ávexti með kennitölu sem hægt er að fletta
upp á Netinu. Þegar eru komin til landsins
epli frá Argentínu sem hægt er að rekja með
þessum hætti. Epli sem valið var af handahófi
hjá innflytjanda í gær var með kennitöluna
141 og þegar hún er slegin inn í tiltekinn reit á
vef fyrirtækisins sem dreifir vörunni kemur
upp síða þar sem segir: „Eplið sem þú heldur
á er af tegundinni Royal Gala og var ræktað á
La Deliciosa í Argentínu,“ en búgarðurinn er
í Rio Negro-dalnum.
Á síðunni er mynd af samskonar epli og
fjölskyldunni sem á heiðurinn af ræktuninni.
Einnig fylgir einkunnagjöf fyrir gæði, vist-
hollustu og félagsleg áhrif ræktunarinnar og
reyndist viðkomandi epli með 6,5 stig að með-
altali. Stigin varpa meðal annars ljósi á áhrif
ræktunarinnar á umhverfið og hvernig við-
komandi bóndi fer með starfsfólkið.
Þetta er í fyrsta sinn sem hægt er að rekja
uppruna vöru með þessum hætti, segir Rúnar
Sigurkarlsson, eigandi Yggdrasils. „Ég er ný-
kominn af sýningu þar sem var verið að
kynna þessa nýjung og hef hvergi séð þetta
gert áður,“ segir hann. Dreifingarfyrirtækið,
Eosta, er með sérstaka lífræna sendinefnd á
sínum snærum, sem heimsækir bændur og
skoðar aðstæður. Á heimasíðu þess má meðal
annars sjá stefnu fyrirtækisins, vinnuaðferðir
og kort yfir bændur víðs vegar um heiminn
sem það skiptir við.
Innan tíðar verða appelsínur, perur og sítr-
ónur frá sama fyrirtæki á boðstólum hér á
landi og verður hægt að rekja uppruna þeirra
á sama hátt.
Ávextir með
kennitölu
í verslunum
Kennitala/30
„ÉG HEF heyrt að í Reykjavík séu
um 400 myndbandsupptökuvélar og
að lögreglustjórinn þar hafi fengið
því framgengt að komið var á fót
opinni sjónvarpsstöð þar sem
myndum úr þessum vélum er sjón-
varpað. Þetta mun nú vera orðin
vinsælasta sjónvarpsstöðin á Ís-
landi og í mótmælagöngum reyna
þátttakendur að komast að því frá
hvaða vélum er verið að sjónvarpa
svo að þeir geti stillt sér upp ná-
kvæmlega fyrir framan þær og
birst á öldum ljósvakans,“ sagði
Ernst Strasser, innanríkisráðherra
Austurríkis, á fundi með blaða-
mönnum í Vín í gær en hann ætlar
í þessum mánuði að leggja fram
frumvarp, sem heimilar lögreglunni
í Austurríki að koma upp eftirlits-
myndavélum og geyma myndir úr
þeim.
Stuttmynd en ekki
íslenskur raunveruleiki
Svo virðist sem austurríski ráð-
herrann hafi þarna fyrir misskiln-
ing vitnað til fransk-íslenskrar
stuttmyndar, Citizen Cam, en ekki
íslensks raunveruleika.
Myndin fjallar um Jakob Eld-
richtsson, lögreglustjóra í Reykja-
vík, kallaður Citizen Cam af sam-
löndum sínum, en hann hefur í
myndinni stofnað sjónvarpsstöðina
Humani TV sem hefur gagnsæi að
leiðarljósi. Sjónvarpsstöð lög-
reglustjórans gefur Íslendingum
færi á að fylgjast hver með öðrum,
hafa samskipti, tjá sig og njósna
hver um annan.
Austurríska blaðið Der Standard
hefur í dag eftir talskonu ráð-
herrans að hann hafi vitneskju sína
úr heimildarmynd, sem sýnd hafi
verið á sjónvarpsstöðinni Arte.
Blaðið upplýsir að Citizen Cam hafi
verið sýnd á Arte, síðast í janúar á
síðasta ári.
Að sögn Agnesar Johansen, ann-
ars framleiðenda myndarinnar, er
myndin það sem kallað er leikin
„mockumentary“, þ.e. eins konar
háðheimildarmynd eða gamansöm
heimildarkvikmynd. Agnes segir
Ísland hafa verið kynnt þannig í
myndinni að þar ætti sjónvarpið
allan markaðinn og væri með eft-
irlitsútsendingar og að fólk væri
farið að lifa í kringum þær, vinka í
vélar o.s.frv. „Það er alveg pottþétt
að sumt fólk sem þekkir ekki til Ís-
lands hefur tekið þetta sem heim-
ildarkvikmynd. Myndin var sýnd
hér og Canal+ sýndi myndina fyrir
3–4 árum og svo veit ég að stöðin
hefur verið að endursýna hana. Og
þeir hafa rétt til þess að sýna hana
út um allt.“
Ráðherra ruglaðist á stutt-
mynd og íslenskum veruleika
Ernst Strasser, innanríkisráðherra
Austurríkis, sem ruglaðist í ríminu.
Vinsælasta sjónvarpsefnið á Íslandi beinar
útsendingar úr eftirlitsmyndavélum í
Reykjavík, segir austurrískur ráðherra
VERÐBÓLGAN hér á landi
verður undir verðbólgumark-
miði Seðlabankans, sem er
2,5%, þar til á seinni hluta
næsta árs. Þá mun verðbólgan
fara yfir markmiðið. Þetta
kemur fram í Peningamálum,
ársfjórðungsriti Seðlabankans.
Bankinn segir að nýleg verð-
lagsþróun og spár, sem byggð-
ar eru á þeirri forsendu að
gengi krónunnar haldist áfram
hátt, kunni að fela í sér vanmat
á duldum verðbólguþrýstingi.
Gengi krónunnar sé að öllum
líkindum nokkru sterkara um
þessar mundir en sennilegt sé
að haldist til langframa.
Bankinn segir að peninga-
stefnan þurfi að vera framsýn
og útilokar ekki vaxtahækkun.
Verðbólga
yfir mark-
miði á
næsta ári
Verðbólguspáin/C1
RANNSÓKN á tildrögum þess að drengur á
tólfta ári lést af völdum voðaskots á mánudags-
kvöld miðar vel. Að sögn lögreglunnar á Selfossi
hefur rannsókn m.a. staðfest að um óhapp var að
ræða sem leiddi til þess að slysaskot hljóp úr
byssunni og lenti í höfði barnsins. Lík drengsins
hefur verið krufið og er niðurstöðu beðið. Sá
þáttur rannsóknarinnar sem snýr að því hvernig
byssan komst í hendur barnanna er rannsak-
aður sem hugsanlegt brot á vopnalögum.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að
rannsókn beinist annars vegar að því að upplýsa
öll atvik er snúa að því hvernig drengurinn beið
bana og hins vegar hvernig hann og félagi hans
Byssan sem um ræðir er óskráð skammbyssa
af gerðinni Ruger og með hljóðdeyfi. Eigandinn,
sem er ekki á landinu sem stendur, hefur verið
boðaður til yfirheyrslu. Að sögn lögreglu er sá
þáttur rannsóknarinnar sem snýr að því hvernig
byssan komst í hendur barnanna rannsakaður
sem hugsanlegt brot á vopnalögum. Lögregla
vill taka fram að strangar reglur gilda um leyfi
fyrir skammbyssum samkvæmt vopnalögum.
Þá fer lögregan þess á leit við foreldra að þeir
fylgist grannt með því hvort börn þeirra finni
eða hafi fundið skot eða skothylki á vettvangi.
komust yfir byssuna. Verið sé að staðfesta frá-
sagnir um það hvenær byssan komst í hendur
drengjanna, og einnig hvar, hvernig og hvenær
hún hafi verið notuð eftir að það gerðist.
Óskráð skammbyssa með hljóðdeyfi
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bein-
ist rannsóknin m.a. að því hvort byssan hafi verið
tekin ófrjálsri hendi af heimili eigandans en
tengsl munu hafa verið milli félaga drengsins og
sonar eigandans. Einn drengur hefur verið yf-
irheyrður vegna málsins og sinnir lögreglan nú
frekari skýrslutökum vegna aðdraganda atburð-
arins, m.a. í því skyni að tímasetja dánarstund.
Rannsókn á láti ellefu ára drengs á Selfossi af völdum voðaskots
Rannsókn beinist að hugsan-
legu broti á vopnalögunum
Skotvopn/4
EINBEITINGIN skein úr andlitum þeirra
Garrys Kasparovs og Anatolys Karpovs á at-
skákmótinu Reykjavík Rapid 2004, sem hófst
á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll í gær-
kvöld. Endaði viðureign þessara heimsfrægu
skákmeistara og fornu andstæðinga með
kvöld ræður rásröð á skákmótinu sjálfu sem
hefst í dag. Fyrirkomulagið í gær var þannig
að hver skák var fimm mínútur, en að auki
bættust þrjár sekúndur við tíma skákmann-
anna eftir hvern leik. Tíminn var því dýr-
mætur og skákmenn urðu að hugsa hratt .
jafntefli. Athygli vakti að norska undrabarn-
ið, Magnus Carlsen, sem er aðeins þrettán
ára, gerði sér lítið fyrir og vann Karpov.
Skákmótið er eitt sterkasta skákmót sem
haldið hefur verið á Íslandi lengi, en alls taka
16 skákmenn þátt í mótinu. Viðureignin í gær-
Morgunblaðið/Ómar
Aronian vann og Kasparov annar