Morgunblaðið - 23.03.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er kannski ekki nóg að myndin sé bönnuð innan 16 ára. Það ætti kannski líka að ná yfir
biskupa?
Margt á döfinni hjá Nordklúbbnum
Félagsmönnum
fer fjölgandi
Dagur Norðurlandaer í dag, en hér álandi er rekinn
gróskumikill klúbbur í
anda Norrænnar sam-
vinnu, Nordklúbburinn.
Margt er á döfinni hjá
klúbbnum, en í forsvari
fyrir hann er Freyja
Finnsdóttir og Morgun-
blaðið lagði nokkrar
spurningar fyrir hana.
– Segðu okkur frá
Nordklúbbnum…
„Norræna félagið á Ís-
landi var stofnað árið 1922.
Félagið er grasrótarfélag
og hefur frá upphafi unnið
að auknum samskiptum og
samgangi milli fólks á
Norðurlöndunum. Ungt
fólk hefur alltaf verið
áberandi í starfi Norræna
félagsins, en á seinni árum hefur
ungmennastarfinu verið haldið úti
undir merki Nordklúbbsins.
Klúbburinn starfar í raun eins og
félag í félaginu þar sem áhuga-
samt ungt fólk fær tækifæri til að
vera virkt og vinna að mörgum
skemmtilegum verkefnum.
Haustið 2003 tók ný stjórn við
sem vinnur markmvist að því að
efla starfsemi klúbbsins. Á þessu
hálfa ári hefur starfsemin vaxið
og dafnað og er á stöðugri upp-
leið.“
– Tilgangur og tilurð þessa
klúbbs?
„Ungmennanefnd Norræna fé-
lagsins, Nordklúbburinn, er fé-
lagsskapur ungs fólk sem á það
sameiginlegt að hafa áhuga á nor-
rænni samvinnu og vill kynnast
henni enn betur. Við störfum í
nánu samstarfi við ungmenna-
nefndir Norrænu félagana á hin-
um Norðurlöndunum. Markmið
klúbbsins er einfalt, þ.e. samvinna
ungs fólks á Norðurlöndum. Til
þess að ná þessu markmiði halda
klúbbarnir sameiginlega viðburði
árlega þar sem félagsmönnum
gefst tækifæri til að hittast, vinna
og skemmta sér saman.“
– Er þetta stór félagsskapur…
hugsanlega stækkandi?
„Félagsmenn Nordklúbbsins
eru á þriðja hundrað þótt þeir séu
ekki allir virkir. Félagsmönnum
fer fjölgandi með hverri vikunni
þrátt fyrir að við höfum lítið
kynnt starfsemina og margir viti
ekki af tilveru okkar. Á döfinni er
að stofna félagsdeild á Akureyri
þar sem margt ungt fólk norðan
heiða hefur sýnt klúbbnum
áhuga.“
– Hvað gerir Nordklúbburinn?
„Nordklúbburinn stendur fyrir
ýmsum skemmtilegum uppákom-
um. Sem dæmi má nefna þjóða-
kvöld þar sem að við kynnum okk-
ur menningu annarra
Norðurlanda, leikjakvöld þar sem
við reynum að hrista saman hóp-
inn okkar, bíókvöld þar sem við
horfum á áhugaverðar kvikmynd-
ir frá Norðurlöndunum og margt
fleira. Þessa dagana stöndum við
fyrir tungumálanámskeiðum í
grænlensku, færeysku, finnsku
og norsku. Hér er um
að ræða þriggja kvölda
kynningu á tungumál-
um og menningu við-
komandi lands. Mikill
áhugi hefur verið fyrir
námskeiðunum og eru þátttak-
endur um 60 talsins.
Auk innlendrar dagskrár tök-
um við þátt í ótal viðburðum sem
systrafélög okkar á hinum Norð-
urlöndunum skipuleggja. Í febr-
úar fóru til dæmis sex félagsmenn
Nordklúbbsins á SaunaExpress-
en í Tampere í Finnlandi, sem er
árlegur viðburður. Þar hittast
ungmenni frá öllum Norðurlönd-
unum, fara saman í gufubað og
baða sig í ísvök ásamt því að fræð-
ast um þjóðtrú tengda gufuböðum
Finna, saunu.“
– Segðu okkur frá dagskránni
sem er að fara af stað…
„Nú fer að líða að sumri og
Nordjobbararnir eins og farfugl-
arnir byrja að streyma til lands-
ins. Nordjobb er einmitt verkefni
á vegum Norrænu félaganna sem
útvegar ungmennum á aldrinum
18–26 ára, búsettum á Norður-
löndunum, sumarvinnu, húsnæði
og tómstundadagskrá. Árlega
koma hingað til lands um 100 ung-
menni og héðan fara um 150. Ætl-
un okkar er að vinna í nánu sam-
starfi við Nordjobb, taka þátt í
skipulagningu viðburða og fá um
leið kjörið tækifæri til þess að
kynnast ungmennum sem hingað
koma frá hinum Norðurlöndun-
um. Öll systurfélögin hafa það að
markmiði í sumar að tengja starf-
semi ungmennanefndanna betur
við starfsemi Nordjobbs því að
þessi tvö verkefni höfða til sama
markhóps.
Von okkar er að ná að kynna
ungmennastarf Norræna félags-
ins vel fyrir Nordjobburunum.
Reynslan hefur sýnt að þátttaka í
Nordjobb er oft kveikurinn að
áhuga ungs fólks á norrænu sam-
starfi. Því er mikilvægt að Nord-
jobbararnir fái tækifæri á að
kynnast starfsemi Nordklúbbsins
svo þau viti hvert þau geta snúið
sér þegar heim er komið og þann-
ig viðhaldið þeim góðu tengslum
sem hófust með sumardvölinni.
Helgina 1.– 3. október er svo
komið að stærsta árlega viðburði
ungmennanefndanna, Café Nord-
en. Til að byrja með var mótið
hugsað sem tækifæri
fyrir Nordjobbara til
að hittast aftur eftir
sumarið, en hefur nú
þróast út í mun viða-
meiri viðburð. Mark-
mið Café Norden er að gefa ungu
fólki frá Norðurlöndunum mögu-
leika á að kynnast í gegnum
þemavinnu. Norðurlöndin
skiptast á að halda mótið og í ár
er komið að Íslandi. Mótið verður
haldið að Skógum undir Eyjafjöll-
um og er búist við um 100 þátt-
takendum frá öllum Norðurlönd-
unum. Þema mótsins verður
„Galdrar og þjóðtrú“.
Freyja Finnsdóttir
Freyja Finnsdóttir fæddist
1982 í Stykkishólmi. Lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 2002. Stundaði
nám við Háskóla Íslands vet-
urinn 2002–2003. Stundar nú
nám við Kennaraháskóla Íslands
og er auk þess sundþjálfari hjá
sunddeild KR. Hefur verið for-
maður Nordklúbbsins frá októ-
ber 2003.
…ásamt því
að fræðast
um þjóðtrú