Morgunblaðið - 23.03.2004, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Magðalena Krist-ín Bragadóttir
fæddist í Purkey á
Breiðafirði 29. des-
ember 1957. Hún
andaðist á líknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi 13. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar eru Bragi
Húnfjörð, skipa-
smíðameistari í
Stykkishólmi, f. 3.
maí 1926, d. 30.
október 1991, og
Helga Kristín Krist-
valdsdóttir, f. 10.
febrúar 1931, matselja á sjúkra-
húsinu í Stykkishólmi. Systkini
Magðalenu Kristínar eru Tómas
Magni, f. 13. desember 1955,
Anna Ragna, f. 3. maí 1959, Mar-
grét Steinunn, f. 13. júní 1961,
Hólmfríður Jóna, f. 13. júní 1961,
Björg Ólöf, f. 23. júlí 1964, Bogi
Thorarensen, f. 1. febrúar 1966,
og Sigríður Laufey, f. 13. sept-
ember 1969.
Maki Magðalenu er Guðbjörn
Karl Ólafsson framreiðslumaður,
f. 17. júní 1953. Foreldrar hans
eru Ólafur Jón Guðbjörnsson vél-
virki, f. 27. mars
1921, d. 31. mars
1977, og Ragna
Klara Björnsdóttir,
f. 31. maí 1924.
Magðalena og Guð-
björn eignuðust tvö
börn, þau Braga
Hlífar, f. 16. október
1992, og Thelmu
Dögg, f. 5. desember
1995. Guðbjörn Karl
á tvö börn frá fyrra
hjónabandi. Þau
eru: 1) Ólafur Ragn-
ar, sambýliskona
María Albertsdóttir.
Þau eiga tvö börn, Berglindi og
Elísabetu Freyju. 2) Kolbrún.
Magðalena Kristín ólst upp í
Stykkishólmi og stundaði nám
þar. Hún fluttist til Reykjavíkur
um tvítugt og vann ýmis störf,
m.a. á Landakotsspítala. Hún
lærði síðan tanntækni og vann
um tíma á tannlæknadeild Há-
skóla Íslands og á tannlæknastof-
um í Reykjavík. Síðast starfaði
hún sem skólaliði í Ölduselsskóla.
Útför Magðalenu Kristínar fer
fram frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Elsku Magga.
Ég man þegar ég kynntist þér
fyrst. Þú varst alltaf svo góð og það
geislaði af þér. Þú gafst mér tvö ynd-
isleg systkin, Braga og Thelmu.
Þeirra vinskap mun ég varðveita að
eilífu og minnast þín af öllu hjarta.
Elsku pabbi, Bragi og Thelma. Ég
veit að mamma mun alltaf vera með í
hjörtum okkar allra. Megi Drottinn
blessa ykkur og styrkja í sorginni.
Kolbrún Guðbjörnsdóttir.
Elskuleg systir mín og vinkona er
farin frá okkur eftir erfiðan sjúk-
dóm. Ég sit hér og er að skrifa um
Möggu Stínu mína, þó það sé mér
svo fjarri að hún sé farin frá okkur.
Ég á erfitt með þetta, en það er ekki
mikið sem við getum gert í því og
þegar okkar tími er kominn, eða eins
og sagt er, þeir deyja ungir sem guð-
irnir elska.
Mig langar að minnast á eitt sem
mér er svo ákaflega minnisstætt.
Það var þegar ég var 8 ára, mig lang-
aði svo í göt í eyrun. Magga systir
var nú alveg til í að redda því og var
ekki lengi að, með nál og klaka, en í
smátíma hikaði ég. En þá sagði hún
að frændur okkar væru að koma að
sunnan eftir 10 mínútur og Magga
mín spurði nú bara hvort ég vildi
ekki sýna þeim „nýju“ eyrnalokk-
ana. Auðvitað sagði ég „ok“. Vertu
þá „kjurr“. Einn, tveir og nú, eyrna-
lokkarnir voru komnir í báðum meg-
in. En þegar liðinn var miklu lengri
tími en 10 mínútur og ekki komu
frændur okkar, þá sagði Magga
Stína að þeir væru ekkert á leiðinni,
hún hefði bara viljað klára þetta sem
fyrst.
Það eru svo margar yndislegar
minningar um Möggu Stínu sem mig
langar að skrifa en ég geymi þær í
hjarta mínu og brosi í leiðinni, því
hún var og verður alltaf elskuleg
systir og vinkona.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku besti Kalli, Bragi og
Thelma og mamma og systkin og
tengdafólk, megi Guð vera með ykk-
ur og styrkja á þessum erfiða tíma.
Tíminn læknar öll sár.
Kveðja,
Sigríður systir
í Bandaríkjunum
Elsku Magga mín.
Það er margt sem kemur upp í
hugann á þessari stundu. Þú kynnt-
ist bróður mínum á sama tíma og ég
var að flytja til Noregs svo okkar
kynni voru mest í gegnum síma
þangað til ég flutti heim árið 2000.
Ég vissi að bróðir minn hafði hitt
sinn sálufélaga, þið voruð svo góðir
vinir. Ég hugsaði oft um það hvað þið
ættuð vel saman. Ég kom oft í heim-
sókn til ykkar og fann alltaf að ég var
innilega velkomin. Þú varst ótrúlega
dugleg í þínum veikindum, alltaf
hress og kát, sama hvað þér leið illa.
Ef ég hringdi og spurði um líðan
þína var svarið ávallt „ég er bara
hress“.
Mamma var hjá þér daginn sem
þú kvaddir þennan heim. Þú varst
orðin mjög veik, Kjartan læknir kom
inn til þín, þú sagðir honum að þú
værir svo þyrst, hann yrði að redda
því svo þú gætir sagt manninum þín-
um hvað þú elskaðir hann mikið.
Elsku Kalli, Bragi, Thelma, Óli,
María, Kolla, Berglind og Elísabet,
megi Guð vera með ykkur.
Hinsta kveðja, þín mágkona
Björg.
Það var snemma vors árið 2001 að
ung kona kom inn á skrifstofuna
mína í Ölduselsskóla og spurði hvort
ekki vantaði góðan starfsmann að
skólanum. Hana langaði til að takast
á við ný verkefni og vildi gjarnan
starfa við skólann. Þessi heimsókn
var upphaf þess að Magðalena Krist-
ín Bragadóttir hóf starf við Öldusels-
skóla þá um haustið.
Strax komu í ljós mannkostir
Möggu Stínu. Henni var falið að
vinna með unglingum og komst hún
jafnan vel af við þá. Hún var létt í
lund og gekk vasklega til allra verka.
Það var engin lognmolla þar sem
hún var. Vandamál voru ekki til, ein-
ungis verkefni.
Hún hafði starfað við skólann um
það bil ár þegar veikindin, sem nú
hafa yfirbugað hana, fóru að gera
vart við sig. En það var ekki hennar
stíll að gefast upp. Hún barðist
hetjulega allt til síðustu stundar.
Hún lét ekki sitt eftir liggja þegar
samstarfskonur hennar fóru að auka
við þekkingu sína og færni með því
að sækja námskeið. Ævinlega vildi
hún vera með og taka fullan þátt í því
að bæta við kunnáttu sína. Hún kom
með í haust þegar starfsmenn skól-
ans fóru í náms- og kynnisferð til
Ungverjalands og lagði sig fram um
að nema og njóta ferðarinnar. Bar-
áttuþrekið var óbilað en engum
duldist að þar fór mikið veik kona
sem var staðráðin í að leggja allt í
sölurnar til þess að sigrast á sjúk-
dómnum sem sífellt setti mark sitt
meira og meira á hana.
Magðalena Kristín lést hinn 13.
mars síðastliðinn, einungis 46 ára að
aldri.
Starfsmenn Ölduselsskóla sjá á
eftir góðum félaga og samstarfs-
manni og votta eftirlifandi eigin-
manni og börnunum ungu Braga
Hlífari og Thelmu Dögg sína dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning Magðalenu
Kristínar.
Fyrir hönd starfsmanna skólans,
Daníel Gunnarsson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
MAGÐALENA KRIST-
ÍN BRAGADÓTTIR
Einstakir legsteinar
Sérhannaðar englastyttur
úti og inni
Verið velkomin
Legsteinar og englastyttur
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Engl a s te ina r
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar
ÖNNU KATRÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Guðborg Þórðardóttir
og fjölskylda.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FERDINAND JÓNSSON,
Bakkahlíð 39,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 25. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Félag
hjartasjúklinga.
Steinunn Ferdinandsdóttir, Ómar M. Waage,
Jón Óskar Ferdinandsson, Dúa Stefánsdóttir,
afa- og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN INGIMUNDARSON
kennari,
Bárustíg 6,
Sauðárkróki,
sem lést mánudaginn 15. mars, verður jarð-
sunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
27. mars kl. 14.00.
Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Sigurbjörg Guðjónsdóttir, Jón Sigurðsson,
Birgir Guðjónsson, Soffía S. Daníelsdóttir,
Svanborg Guðjónsdóttir, Sigurjón Gestsson,
Ingimundur Kr. Guðjónsson, Agnes Hulda Agnarsdóttir,
Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir, Björn Sigurðsson,
Sigurður Guðjónsson, Steinunn Sigurþórsdóttir,
Hrönn Guðjónsdóttir, Sigurður Örn Ólafsson
og öll afabörnin.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERNA ÞORGEIRSDÓTTIR,
Snorrabraut 56,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 20. mars.
Katrín Magnúsdóttir,
Erna Hjaltested, Sigfús Þór Sigmundsson,
Stefán Hjaltested,
Guðrún Hlín Hjaltested,
Guðrún Magnúsdóttir, Helgi G. Sigurðsson,
Gunnar Páll Helgason,
Jóhann Örn Helgason,
Sighvatur Magnús Helgason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar móður okk-
ar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
GUÐNÝJAR K.Á. VIGFÚSDÓTTUR,
hjúkrunardeild
Hrafnistu í Reykjavík,
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar-
deildar G-2 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir sérlega
góða umönnun.
Hálfdan Ingi Jensen, Soffía Sveinbjörnsdóttir,
Lára H. Óskars,
Elsa Jónsdóttir, Gísli Magnússon
og öll ömmubörnin.
Sambýliskona mín, dóttir okkar, móðir, stjúp-
móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HRÖNN BENÓNÝSDÓTTIR,
Sundstræti 35b,
Ísafirði,
lést á Landspítalanum Hringbraut þriðjudaginn
16. mars.
Útför hennar fer fram frá Einarsstaðakirkju
fimmtudaginn 25. mars kl. 14.00.
Páll Gunnar Loftsson,
Benóný Arnórsson, Valgerður Jónsdóttir,
Valdís Bára Guðmundsdóttir,
Svanhvít Sjöfn Guðmundsdóttir, Gunnar Friðgeirsson,
Stefán Björgvin Guðmundsson, Harpa Arnórsdóttir,
Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir,
Benóný Arnór Guðmundsson, Elínborg Herbertsdóttir,
Þórhalla Pálsdóttir,
Ágúst Örn Pálsson, Vilborg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.