Pressan - 09.04.1992, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. APRIL 1992
UNDIR ÖXINNI
Steingrímun J. Sigfússon
VARAFORMAÐUR ALÞÝÐUBANDALAGS
Þess vegna geta
allir setið iieima
Stjórnarandstaðan hefur lýst yfir
mikilli óánægju með þá ákvörðun
forsætisnefndar Alþingis að hverfa
frá því að gefa fulltrúum frá öllum
flokkum kost á að sækja umhverfis-
ráðstefnuna í Rio de Janeiro. And-
staðan er ósátt við vinnubrögð
stjórnarinnar í þessu máli og telur
hana ekki hafa komið fram af heil-
indum.
Nú hefur því oft verið haldið fram að alþjóðaráðstefnur
og -fundir af ýmsu tagi skiluðu litlum sem engum árangri.
„Það er nú væntanlega allur gangur á því. Sumar þeirra eru
mjög mikilvægar en aðrar kannski minna.
Þama er um að ræða sérráðstefnu um mikilvægan málaflokk
og framan af batt maður miklar vonir við að þama gætu orðið
tímamót í umhverfismálum. Því miður hafa ákveðnar vísbend-
ingar komið fram upp á síðkastið í þá átt að þama gerist ef til
vill minna en menn höfðu vonað.
Það breytir ekki því að málaflokkurinn er gríðarlega mikil-
vægur og miklar vonir hafa verið bundnar við þessa alþjóðaráð-
stefnu. Reynslan verður að leiða í ljós hverju hún síðan skilar en
ég held að næst á eftir afvopnunar- og öryggismálunum séu um-
hverfísmál stærstu mál mannkynsins nú um stundir. Og að því
leyti til er ekki ástæða til að gera lítið úr mikilvægi ráðstefnunn-
ar. En síðan hefur bæði það að sumir óttast að málefnaleg niður-
staða þama verði veikari en menn höfðu vonað og svo ástandið í
Brasilíu orðið til þess að varpa skugga á þetta upp á síðkastið."
Er ekki ásættanlegur kostur að stjórnarandstaðan sam-
einist um einn fulltrúa?
„Jú, ef stjórnarliðið sameinast um tvo þá held ég að við
myndum alveg kyngja því, það væru ekkert mjög ósanngjörn
hlutföll. En að stjómarliðið ráði því hverjir skipa tíu til tólf — ef
ekki fleiri — sæti, en stjómaraðstaðan eigi síðan að koma sér
saman um einn, em ekki sanngjöm hlutföll."
En nú er allsstaðar verið að skera niður og fjárveitingar
skertar til hinna og þessara málaflokka, á það ekki við í
þessu jafnt sem öðru?
„Það hefur enginn niðurskurður átt sér stað á fjárlögum,
hvorki í fjárveitingum til Alþingis né ráðuneyta síðan bréfið
barst frá umhverfisráðuneytinu sjöunda febrúar. Fjárlög vom af-
greidd hér fyrir áramót þannig að ef það væri skýringin þá er
það ansi seint í rassinn gripið.
En ég vil taka það skýrt fram að við erum ekkert að mótmæla
því ef menn vilja endurskoða þátttöku íslands á þessari ráð-
stefnu. Við hefðum ömgglega bmgðist allt öðmvísi við ef með
kurteislegum hætti hefði verið haft samband við þingflokkana
og sagt að þrátt fyrir bréfíð frá sjöunda febrúar hefði það orðið
niðurstaðan að endurskoða þátttöku fslands og draga úr fjöldan-
um og því væri óskað eftir viðræðum við stjómarandstöðuna um
það mál. Menn hefðu sest niður og rætt hvað væm sanngjöm
hlutföll stjórnar og stjórnarandstöðu. Þess vegna jafnvel, ef
nauðsynlegt hefði talist, að hverfa algjöríega frá því að senda
fulltrúa frá þinginu."
En er þaö ekki eðlilegur sparnaður að senda sem fæsta?
„Það finnst mér sjálfsagt mál að ræða og skoða. Bæði þá í
ljósi þess hvemig ástatt er hér heima fyrir í efnahagsmálum og
hins hvers menn vænta af þessari ráðstefnu. Eðlilegast væri að
reyna að spyrja sig að því; hver getur þátttaka íslands orðið að
lágmarki til þess að við getum tekið fullgildan þátt í ráðstefn-
unni og hvemig er þá sanngjamt að manna þá sendinefnd full-
trúum ríkisstjórnar, Alþingis, stjórnar- og stjórnarandstöðu-
flokka og embættismanna?“
Ármann Reynisson,
fyrrum eigandi og
framkvæmdastjóri
Ávöxtunar, gekk á
fund Jóhannesar Nor-
dal seðlabankastjora í
gær og fór fram á
miskabætur frá bank-
anum.
Armann Reynisson vill að Seðlabankinn dragi til
baka ummæli bankaeftirlitsins um sig og biðjist
afsökunar á þeim. Þá vill hann að bankinn
ákveði sjálfur hæfilegar miskabætur
og láti þær renna til
Kvennaathvarfsins og
til Orgelsjóðs Hallgrímskirkju.
Árman
villbæ
Seðlabankanum
Ármann Reynisson, fyrrver-
andi eigandi Avöxtunar, gekk á
fund Jóhannesar Nordal seðla-
bankastjóra í gær og afhenti
honum bréf þar sem hann fór
ffam á miskabætur ífá bankan-
um vegna ummæla sem höfð
voru eftir bankaeftirliti Seðla-
bankans í fféttum Rfldsútvarps-
ins í mars 1990. í bréfinu kemur
fram að Ármann vill að bætum-
ar renni til Kvennaathvarfsins í
Reykjavík og Orgelsjóðs Hall-
grímskirkju.
í bréfinu fer Ármann ffam á
að bankinn láti fara fram rann-
sókn á því hvaða starfsmaður
bankans hafí lekið upplýsingum
um tímabundna erfiðleika
Ávöxtunar til Ólafs Ragnars
Grímssonar. Ármann spyr hvort
sá starfsmaður hafí brotið lög
eða siðareglur bankans. í bréf-
inu segir Armann starfsmanrúnn
hafa verið upphafsmann málsins
og ábyrgan fýrir afleiðingunum,
það er að segja gjaldþroti
Ávöxtunar og gríðarlegu tapi
viðskiptamanna þess.
Þá fer Ármann fram á það í
bréfinu að bankaeftirlit Seðla-
bankans taki til baka ummæli
sem höfð vom eftir stofnuninni í
fféttum Ríkisútvarpsins og biðj-
ist opinberlega afsökunar á
þeim. I umræddum fféttum var
haft eftir bankaeftirlitinu að það
hefði ekkert traust borið til Ár-
manns Reynissonar „enda ljóst
frá upphafi að hann bar ekkert
skynbragð á eðli verðbréfavið-
skipta eða rekstur verðbréfa-
sjóða“. Einnig að bankaeftirlitið
hafi ,4rá upphafi talið leika vafa
á að aðaleigendur fyrirtækjanna
væm hæfir til að stunda rekstur
verðbréfasjóða, þó svo við-
skiptaráðuneytið hafi veitt þeim
leyfi til verðbréfamiðlunarí'. Og
loks sagði í fréttinni „að banka-
eftirlitið hafi borið fyllsta traust
til Páls Sigurðssonar en það
hafi hins vegar ekkert traust bor-
ið til Ármanns Reynissonar
ffamkvæmdastjóra og talið hann
ekki bera nokkurt skynbragð á
verðbréfaviðskipti og rekstur
veiðbréfasjóða“.
Eins og kunnugt er var Ár-
mann Reynisson dæmdur í
tveggja ára fangelsi í Sakadómi
vegna hlutdeildar sinnar í
Ávöxtunarmálinu. Meðeigandi
hans og handhafi leyfisins til
verðbréfamiðlunar, Pétur
Björnsson, var dæmdur í
tveggja og hálfs árs fangelsi.
Páll Sigurðsson, stjómarformað-
ur Ávöxtunar, var hins vegar
ekki ákærður.
f lok bréfsins óskar Ármann
eftir því að bankastjórn og
bankaráð Seðlabankans ákveði
upp á eigin spýtur hæfilegar
miskabætur vegna ofangreindra
ummæla og láti þær renna til
Kvannaathvarfsins og til Orgel-
sjóðs Hallgrímskirkju.
Engin ákæra vegna Pólverjanna hjá SS
Borguðu árslaun til að
komast til íslands
Greiðslan fór til móður innflytjandans
Ríkissaksóknaraembættið
hefur ákveðið að fella niður
frekari málarekstur vegna gjald-
töku af pólskum verkamönnum
sem komu til starfa hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands síðasta haust.
Það var félagsmálaráðuneytið
sem sendi inn kæru til Rann-
sóknarlögregu ríkisins vegna
þessa máls. Byggði ráðuneytið
þar á rannsókn útiendingaeftir-
litsins. Að sögn Asgeirs Karls-
sonar hjá útlendingaeftirlitinu
höfðu lengi verið uppi grun-
semdir um að pólskir verka-
menn sem hingað kæmu væru
látnir greiða háar upphæðir til
atvinnumiðlaranna, en slík
gjaldtaka af launþega er með
öllu óheimil — bæði gagnvart
íslenskum og pólskum lögum.
Þegar síðan 25 pólskir verka-
menn komu til starfa og enn
heyrðist að þeir væru látnir
Flest bendir til þess að Pól-
verjarnir á Hvolsvelli fari
heim í lok maí eftir 8 mánaða
vinnu hér sem þeir þurftu að
borga árslaun fyrir.
greiða fyrir það þótti
málið það stórt í snið-
um að það krefðist
rannsóknar.
Fulltrúar útlendinga-
eftirlitsins héldu fund
með Pólverjunum á
Hvolsvelli með aðstoð
túlks, Stanislövu
Björnsson, og þar kom
fram að þeir hefðu
greitt á milli 800 og
1000 dollara (á milli 50
og 60 þúsund krónur)
úti fyrir að fá að koma
til íslands. Það er ná-
lægt einum árslaunum
þar. Þar sem SS greiddi
ferðir þeirra var ekki
ljóst fyrir hvað þessi greiðsla
var.
Við rannsókn RLR kom fram
að Pólveijanir höfðu greitt móð-
ur konunnar sem flutti þá hing-
að 800 dollara. Þessi kona heitir
María Jolanta Polanska og er
íslenskur ríkisborgari. Hún var
milligöngumaður fyrir SS en
fékk engar greiðslur fyrir það.
Þó mun henni hafa verið greitt
eitthvert tímakaup fyrir að að-
stoða fólkið við aðlögun hér.
Að sögn Björns Helgasonar
hjá ríkissaksóknaraembættinu
þótti ekki ástæða til málarekstr-
ar vegna þess að fólkið hafði
greitt móður Maríu. Öðruvísi
hefði horft við ef greiðslan hefði
verið til hennar.
31. maí rennur út starfssamn-
ingur við Pólverjana og er útlit
fyrir að þeir fari flestir heim. Að
sögn Odds Gunnarssonar,
starfsmannastjóra SS, hefur
óformlega verið leitað eftir
framlengingu atvinnuleyfis fyrir
einhvem hluta hópsins. Óvíst er
hvort það fæst í gegn.