Morgunblaðið - 29.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TAKMARKA EIGNARHALD
Norsk stjórnvöld hafa kynnt drög
að breytingum á lögum um eign-
arhald á fjölmiðlum. Talsmaður
norskrar eftirlitsstofnunar með
eignarhaldi á fjölmiðlum segir
stjórnvöld telja mikilvægt að koma í
veg fyrir að einn aðili sé of sterkur á
öllum sviðum fjölmiðlunar.
Blóðug átök í Taílandi
Á annað hundrað vopnaðra músl-
íma féll í gær eftir mikla bardaga við
öryggissveitir í Suður-Taílandi.
Þetta eru mestu átök sem orðið hafa
í suðurhluta landsins, þar sem músl-
ímar eru í meirihluta í nokkrum hér-
uðum.
Ekki gyðingahatur
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði á ráðstefnu
um gyðingahatur í gær, að gagnrýni
á stefnu Ísraelsstjórnar mætti ekki
leggja að jöfnu við gyðingahatur. Of
langt væri gengið ef níð um ísr-
aelska ráðamenn væri notað sem
réttlæting á gyðingahatri.
Tveir unnu í Víkingalottói
Íslendingur og Norðmaður deildu
með sér fyrsta vinningi í Vík-
ingalottóinu í gær. Keyptu þeir
lottómiða sína í heimalöndunum, en
hvor um sig fær í sínar hendur and-
virði 25,6 milljóna íslenskra króna.
Samheitalyf lækka
Samkomulag hefur náðst um
lækkun verðs á ýmsum samheita-
lyfjum sem hefur umtalsverðan
sparnað í för með sér. Jón Kristjáns-
son hefur í kjölfar þessa ákveðið að
fresta gildistöku reglugerðar og við-
miðunarverðskrár lyfja með sam-
bærileg meðferðaráhrif í þrjá mán-
uði.
Rannsókn á Baugi og Gaumi
Lögreglumenn í Lúxemborg
komu í gærmorgun í Kaupthing
Bank SA í Lúxemborg og lögðu hald
á upplýsingar um viðskipti tengd
Baugi Group og fjárfestingarfélag-
inu Gaumi, sem á stóran hlut í
Baugi. Að sögn stjórnarformanns
KB banka er ekki óalgengt að yf-
irvöld leiti upplýsinga um tiltekin
viðskipti og viðskiptavini. Stjórn-
arformaður Baugs segist vænta þess
að þessum rannsóknum linni, svo
fyrirtækið fái starfsfrið.
Fjölmiðlaskýrsla rædd
Umræður hófust í gær á Alþingi
um skýrslu nefndar mennta-
málaráðherra um fjölmiðlamark-
aðinn. Margir þingmenn kvöddu sér
hljóðs til að ræða efni skýrslunnar
og stóðu umræður fram á nótt.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Erlent 14/15 Minningar 34/39
Höfuðborgin 17 Bréf 44
Akureyri 18 Kirkjustarf 45
Suðurnes 19 Dagbók 46/47
Landið 21 Íþróttir 48/51
Neytendur 22/23 Fólk 52/57
Listir 26/27 Bíó 55/57
Umræðan 28/29 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
LANDSMENN eru almennt
ánægðir með upplifun sína af al-
mennum guðsþjónustum, jafnt þeir
sem sækja þær reglulega og þeir
sem segjast aldrei sækja guðsþjón-
ustur. Predikunin skiptir þorra
manna miklu máli.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í niðurstöðum könnunar sem
Kirkjuráð, í samvinnu við Háskóla
Íslands og Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæma, lét gera hjá Gall-
up. Könnunin fór fram í febrúar og
mars á þessu ári. Úrtakið var 1.428
manns af öllu landinu og svarhlutfall
60,4%.
Alls fara 57% landsmanna í messu
einu sinni á ári eða oftar skv. könn-
uninni, 10% segjast fara mán-
aðarlega eða oftar, 13,8% fara 4–11
sinnum á ári, 17,4% segjast fara 2–3
sinnum á ári og 15,9% fara einu sinni
á ári í almenna guðsþjónustu.
Þegar spurt var hversu góð eða
slæm upplifunin af almennum guðs-
þjónustum væri svöruðu 72,4% því
til að hún væri góð eða frekar góð.
Að því er fram kom í erindi sem
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
upplýsingafulltrúi á Biskupsstofu,
hélt á prestastefnu í gær reyndist
hvorki marktækur munur á svörum
eftir búsetu, né milli kynja.
Úr hópi þeirra 43% svarenda sem
segjast aldrei sækja almennar guðs-
þjónustur segja 51,6% að upplifun
þeirra sé mjög góð eða frekar góð.
„Af þessum tölum hljótum við að
draga þá ályktun að það sé ekki upp-
lifunin ein sem kemur í veg fyrir að
þau fari í messu, heldur eitthvað
annað og það er spurning sem mig
langar að varpa fram til íhugunar
hér,“ sagði Steinunn Arnþrúður á
Prestastefnu. Yfir 90% þeirra sem
skv. könnuninni fara mánaðarlega
eða oftar í kirkju eru ánægð með
upplifun sína af guðsþjónustu.
Predikunin skiptir miklu máli
Í könnuninni var fólk spurt hvort
því þætti ræða prestsins, predik-
unin, skipta miklu eða litlu máli í al-
mennum guðsþjónustum. „Ég held
að það hljóti að vera góðar fréttir
hvernig sem á það er litið að 74,1%
segi að hún skipti miklu máli. Þarna
er að sönnu ekki verið að spyrja
hvort fólki finnist ræðan góð eða
vond en þetta hlýtur að sýna að
predikunin er hápunktur í huga afar
margra og það eru væntingar til
hennar. Hún skiptir miklu máli,“
segir Steinunn Arnþrúður.
Þeir sem aldrei fara í messu voru
spurðir um ástæður þess að þeir
sæktu þær ekki. Í ljós kom að 14,1%
þeirra sem afstöðu tóku sagði að því
fyndist messur leiðinlegar eða lang-
dregnar. Nær jafnstór hópur, 13,5%,
segist ekki hafa áhuga og 11,9% hafa
ekki tíma.
Predikun skiptir miklu máli
Viðhorfskönnun sýnir ánægju fólks með upplifun sína af guðsþjónustum
!
"
#$ !%&'
(
)%*'
+
,
+
(
-
.(
/$ "%'
!%&'
!0
%1
'
*%0'
! " # $% &
$%'
! " # %$' ()*#")"
"
%&
'
2
%2
'
)%
'
)%"'
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra sagði að mál
varðandi Kísilduftverksmiðju í Mý-
vatnssveit myndu skýrast í næsta
mánuði. „En það eru allar líkur á því
að þó svo að það verði af uppbyggingu
kísilduftverksmiðju, sem við erum
vongóð um, myndist ákveðið tóma-
rúm, þ.e. að ekki verði um neina fram-
leiðslu að ræða í Mývatnssveit. Ég
reikna með að þar gæti verið um að
ræða eins árs tímabil en þó er erfitt að
tjá sig mjög nákvæmlega um það á
meðan niðurstaða um kísilduftverk-
smiðjuna liggur ekki fyrir.“
Fulltrúar Skútustaðahrepps,
Húsavíkurbæjar og stéttarfélaga í
Þingeyjarsýslu funduðu með þing-
mönnum Norðausturkjördæmis á
Akureyri í gær. Valgerður sagði að
farið hefði verið yfir málin en að
þarna hefði fyrst og fremst verið um
upplýsingafund að ræða en vissulega
hefði komið fram áhyggjur manna af
yfirvofandi stöðu. Eins og fram hefur
komið renna sölusamningar kísilgúr-
verksmiðjunnar í Mývatnssveit út í
lok þessa árs. Þeir fást ekki fram-
lengdir og því verður rekstri verk-
smiðjunnar að öllum líkindum hætt
um næstu áramót. Nú eru 45–50
starfsmenn við kísilgúrframleiðsluna,
auk þess sem fjöldi fólks starfar
óbeint við verkefni tengd fyrirtækinu.
Valgerður sagði að taka yrði á því
máli þegar þar að kæmi og m.a. væru
möguleikar í sambandi við Vinnu-
málastofnun. „Aðalatriðið er þó að af
uppbyggingu kísilduftverksmiðjunn-
ar verði og það er lán í óláni að mál
eru þó komin í þennan farveg. Bæði
ríkisvaldið og heimamenn hafa lagt
fjármagn til þeirrar verksmiðju.
Fjármögnun er þó ekki lokið en ég er
býsna bjartsýn,“ sagði Valgerður.
Kísilduftverksmiðja í Mývatnssveit
Talið líklegt að málin
skýrist í næsta mánuði
STUTT er á milli brúnna yfir Elliðaárnar við rætur
Ártúnsbrekkunnar, en ólíkar leiðirnar sem bifreið-
arnar halda. Því væri líklega með öllu ómögulegt að
segja til um hvor þessara ólíku fararskjóta myndi
vinna ímyndaðan kappakstur, þar sem áfanga-
staðirnir eru að öllum líkindum ekki þeir sömu.
Kappakstur var þó ekki inni í myndinni hjá þess-
um tveimur ökumönnum því báðir virtust gera sér
fulla grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að sitja
undir stýri.
Morgunblaðið/Sverrir
Í sömu átt að ólíkum áfangastöðum
TAP af rekstri deCODE Genetics,
móðurfélags Íslenskrar erfðagrein-
ingar, nam á fyrsta ársfjórðungi 12
milljónum dollara, eða sem svarar til
um 880 milljóna íslenskra króna. Á
sama tímabili á síðasta ári nam tapið
um 955 milljónum króna og hefur því
minnkað um
tæp 8%. Tap á
hvern hlut nam
0,23 dollurum
eða um 17
krónum.
Tekjur de-
CODE á þess-
um fyrstu
þremur mán-
uðum ársins
námu 10,3
milljónum doll-
ara eða um 757
milljónum
króna og eru
það tæplega 13% lægri tekjur en á
sama fjórðungi í fyrra. Sem fyrr og
samkvæmt bandarískum reglum telj-
ast ekki allar eiginlegar tekjur félags-
ins strax til tekna og eru þær tekju-
færðar á seinni uppgjörstímabilum.
Tekjur deCODE sem frestað er að
færa námu í lok mars 18,9 milljónum
dollara, eða tæplega 1,4 milljörðum
króna en 12,8 milljónum dollara árið
áður. Aukningin skýrist aðallega af
greiðslum til félagsins vegna nýlegra
samstarfssamninga við Merck.
Gert er ráð fyrir að tekjur de-
CODE á þessu ári í heild verði um 50
milljónir dollara en það þýðir um 6%
aukningu frá árinu 2003.
3
45$
6
!22! !22!22"
Minnkandi
tap hjá
deCODE
Tveir unnu 25,6
milljónir króna
í Víkingalottói
TVEIR höfðu heppnina með sér í
Víkingalottóinu í gærkvöld. Þeir
keyptu lottómiða sína á Íslandi og í
Noregi. Hvor um sig fær í sínar
hendur andvirði 25,6 milljóna ís-
lenskra króna. Vinningstölur í Vík-
ingalottói kvöldsins: 2, 8, 14, 20, 21,
25. Bónustölur: 43 og 47. Úrslit í Vík-
ingalottójóker: 2, 9, 3, 4, 0 – í þessari
röð.
♦♦♦