Morgunblaðið - 29.04.2004, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 13
NEFND sem skipuð er þremur
fulltrúum aldraðra og þremur ráð-
herrum úr ríkisstjórn á samkvæmt
skipunarbréfi að koma saman þrisvar
á ári og fjalla um þau málefni sem
varða aldraða og vera ríkisstjórninni
til ráðuneytis um þau málefni. Það er
á valdi ríkisstjórnarinnar að kalla
nefndina saman, en það hefur ekki
gerst í heilt ár.“
Þetta sagði Davíð Benediktsson,
formaður Landssambands eldri
borgara, á sambandsstjórnarfundi
sem haldinn var á Egilsstöðum um
helgina.
„Það sem mest hefur verið í um-
ræðunni hjá okkur undanfarna mán-
uði eru hjúkrunarheimila- og heima-
þjónustumálin fyrir aldraða sjúk-
linga, sem eru í miklum ólestri,“ sagði
Benedikt í samtali við Morgunblaðið.
„Auk þess höfum við auðvitað verið
að fjalla um kjaramálin í víðum skiln-
ingi, bæði tryggingagreiðslurnar,
samspil þeirra og lífeyrisgreiðslna frá
lífeyrissjóðum og samspil trygginga-
greiðslna og skatta.“
Tilflutningur eða
heildarlækkun
Benedikt segir stjórnvöld hafa
annan skilning á hvað sé mikilvægt í
þessum málum en samtök aldraðra.
„Þau horfa til dæmis fyrst og fremst á
lyfjamálin frá þeim sjónarhóli að ná
niður kostnaði ríkisins við útgjöld til
þeirra. Heildarkostnaður í lyfjakaup-
um er sagður hafa verið fjórtán millj-
arðar á síðasta ári. Þær tillögur sem
nú liggja fyrir, segja þeir sem gerst
þekkja til, munu ekki leiða til heild-
arlækkunar á lyfjakostnaði heldur til-
flutnings, þannig að lyfsalar muni
vegna þess afsláttar á álagningu sem
þeir voru að semja um við ríkið, taka
það upp aftur með því að afnema af-
slátt gagnvart einstaklingum, þannig
að lyfjaverðið hækki til einstaklinga
en lækki til ríkisins. Það er auðvitað
skilningur sem við teljum ekki góðan
og gildan í því markmiði að ná niður
lyfjaverði.“
Ráðgjafarnefnd um málefni
aldraðra ekki kölluð saman
Um það hver raunveruleg áhrif
aldraðra séu á málefni sín segir Bene-
dikt að Landssamband eldri borgara
hafi formlega samráðsnefnd með rík-
isstjórninni, sem í sitja þrír fulltrúar
frá öldruðum og þrír ráðherrar. „Sú
nefnd á samkvæmt skipunarbréfi að
koma saman þrisvar á ári og fjalla um
þau málefni sem varða aldraða og
vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um
þau málefni,“ segir Benedikt. „Það er
á valdi ríkisstjórnarinnar að kalla
nefndina saman, en hún hefur ekki
kallað hana saman í heilt ár. Það er
hreint ekki verið að hlusta á okkur.
Við reynum að vekja athygli á því
að aldraðir eru mjög ört stækkandi
hópur í þjóðfélaginu og meira stækk-
andi en aðrir aldurshópar. Sam-
kvæmt spám sem fram koma í
skýrslu stýrihóps um málefni aldr-
aðra og kom út árið 2003, er gert ráð
fyrir að það verði meira en tvöföldun
á aldurshópnum á næstu tuttugu og
fimm árum, á sama tíma og þjóðinni
fjölgar ekki nema um 20%. Það þýðir
að meira þarf að leggja miðað við
þjóðarframleiðslu til málaflokksins
árlega, heldur en gert hefur verið til
þessa. Í það minnsta sem nemur
fjölguninni, þótt þjónustan sé ekki
aukin. En þvert á móti er verið að
draga úr framlögum til málefna aldr-
aðra.“
Benedikt segir Íslendinga koma
illa út í samanburði við Norðurlöndin
hvað varði málefni aldraðra.
„Einkum hvað varðar ríkisgeir-
ann,“ segir Benedikt.
„Við komum hins vegar betur út
hvað varðar almenna lífeyrissjóða-
kerfið. Það er þó svo ungt hér ennþá
að það getur ekki yfirtekið Trygg-
ingastofnunarþáttinn.
Nú munum við knýja mjög fast á
um að fá fund með ríkisstjórnar-
fulltrúunum í nefndinni til þess að
koma sjónarmiðum okkar á fram-
færi.“
Samráðs-
nefnd verði
kölluð saman
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Telja tímabært að stjórnvöld leggi eyrun við brýnustu málefnum aldraðra:
Sambandsstjórn eldri borgara hélt fund sinn á Egilsstöðum.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar og
veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •