Morgunblaðið - 29.04.2004, Síða 20
AUSTURLAND
20 FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
w
w
w. l e t t o g l a ggo t t . i s
w ww. l e t t og l a ggo t t . i s w
ww. l e
t tog
l a g
got
t . i s
ww
w.
l e t
t o
g l
a g
go
t t
. i s
ww
w.
le
tt
o g
la
gg
ot
t.
is
ww
w.
let
tog
lagg
ott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
www.lettoglaggott.is
VILTU
VINNA FERÐ
TIL ÍTALÍU? Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Egilsstaðir| Síðasti hádegisverð-
arfundur atvinnumálanefndar Aust-
ur-Héraðs í bili var haldinn í vikunni.
Þessir fundir hafa verið kallaðir „Í
heita pottinum“ og gjarnan fjallað
þar um markverð málefni.Umfjöll-
unarefni fundarins að þessu sinni
var hreindýraveiðar og afurðir. Kar-
en Erla Erlingsdóttir, starfsmaður
Umhverfisstofnunar, flutti framsögu
en síðan voru umræður um málefnið.
Fram kom í máli Karenar Erlu að
„sprenging“ hefur orðið í umsóknum
um hreindýraveiðileyfi allra síðustu
ár. Alls sóttu 1100 einstaklingar um
leyfi fyrir komandi veiðitímabil. Þar
sem aðeins 800 veiðileyfi voru til út-
hlutunar voru margir sem ekki
fengu leyfi, en alls voru um 500
manns á biðlista eftir fyrstu út-
hlutun. 100 manns fengu úthlutun
þegar endurúthlutað var og enn eru
því um 400 manns á biðlista eftir
leyfum. Karen sagði hægt að selja
tvöfalt fleiri leyfi en voru til sölu fyr-
ir veiðitímabilið næsta haust.
100% árangur við veiðarnar
Að sögn Karenar eru þeir sem
sækja mest í hreindýraveiðileyfin ís-
lenskir karlmenn á miðjum aldri, þó
konur séu að sækja í sig veðrið og
hafa þær sem ekki fengu leyfi fyrir
næsta haust jafnvel hótað að kæra
fyrir jafnréttisráði þessa úthlutun.
Karen segir nánast 100% árangur
við veiðarnar; að nær öll veiðileyfi
sem boðin eru til sölu, séu nýtt, það
er betri árangur en í öðrum löndum
og segir Karen það því að þakka
hversu góðir leiðsögumenn eru með
veiðunum hér á landi.
Karen segir athugandi hvort þessi
mikla eftirspurn muni hækka verð á
veiðileyfunum. Að mörgu leyti sé
eðlilegt að leyfin hækki um vísitölu
frá 1998, sem væri um 15 þúsund
krónur á dýrustu leyfin. Þá fer tarfs-
leyfi á svæði 2 til dæmis upp fyrir
100 þúsund krónur. Karen sagði að
Umhverfisstofnun vilji þó fara hægt
í þessar sakir.
Veltan kringum veiðarnar
um 100 milljónir
Fram kom í máli Karenar að
heildarinnkoma vegna seldra hrein-
dýraveiðileyfa sé rúmar 42 milljónir,
þar af er 36 milljónum úthlutað til
landeigenda á Austurlandi og var-
lega áætlað að heildarumsvifin
tengd þessum veiðum séu ekki undir
100 milljónum.
Í umræðum eftir framsöguna kom
fram að hægt væri að auka til muna
þjónustu við hreindýraveiðimenn.
Mikil eftirspurn er eftir úrbeining-
arþjónustu og kjötskurði fyrir veiði-
menn. Þeir vilji gjarnan fá aðstöðu
til að láta kjötið hanga og úrbeina
skrokkana og fá svo kjötið sent á eft-
ir sér heim í neytendapakkningum.
Einnig megi bæta hirðu á hrein-
dýraskinnum til ýmiss konar leður-
og skinnavinnslu.
Þá vanti aðstöðu eystra til að loð-
súta skinnin og athygli fundarmanna
var vakin á að mjög lítið er á boð-
stólum af minjagripum unnum úr
hreindýraafurðum.
Einnig kom fram áhugi á að hægt
yrði að afsetja kjöt á einum stað hér
eystra þar sem það væri unnið og
síðan selt á almennum markaði.
Unnt að selja tvöfalt fleiri leyfi á hreindýr en gert er
Hreindýr
í heita pottinum
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Burðarmenn óskast! Ýmis tækifæri eru fólgin í að auka þjónustu fyrir
hreindýraveiðimenn á Austurlandi.
Egilsstaðir | „Þegar sjúkraskrá
Heilbrigðisstofnunar Austurlands
verður sameinuð myndast ekki nýr
gagnagrunnur og það verður alls
ekki um það að ræða að persónu-
upplýsingar fólks séu samkeyrð-
ar,“ segir Stefán Þórarinsson,
lækningaforstjóri Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands. Hann segir
sjúkraskrárgögnin ekki breyta um
eðli við að vera sameinuð.
Skipt um tölvuskápa
samkvæmt öryggiskröfum
„Sjúkraskrá hvers og eins íbúa
er nú færð rafrænt,“ heldur Stefán
áfram. „Skráin er geymd í tölvu
sem kalla mætti tölvuskáp. Þessir
skápar eru nú sjö hver á sinni
heilsugæslustöð og einangraðir frá
öðrum stöðvum HSA. Það sem á
að gera er að færa skrárnar í tvo
betri og stærri skápa, annan á Eg-
ilsstöðum en hinn á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað, FSN.
Í þessum tölvuskápum eru skrárn-
ar geymdar hver út af fyrir sig en
verður ekki slegið saman í einn
grunn.
Fyrir utan það að auka öryggi
gagnanna með þessum hætti bætir
þetta möguleika íbúanna á því að
leita heilbrigðisþjón-
ustu hvar sem er inn-
an HSA. Þar sem
sjúklingur leitar
hjálpar getur viðkom-
andi læknir opnað
sjúkraskrána, séð að
hverju þarf að gæta
og fært inn í hana
þær upplýsingar sem
þarf. Þetta gerir
einnig einfaldara að
koma rannsóknarnið-
urstöðum frá rann-
sóknarstofu HSA á
FSN til baka til
læknanna sem panta
þær og sem staðfesta
þær inn í sjúkra-
skrárnar. Mikilvægt
er að rugla þessu
ekki saman við hugmyndina um
miðlægan gagnagrunn á heilbrigð-
issviði sem nú hefur dagað uppi.
Það var allt annað mál en hér um
ræðir.“
Ein stofnun, ein sjúkraskrá
Stefán segir að frá stofnun HSA
árið 1999 hafi verið unnið að því að
efla þjónustu við íbúana, sameina
kraftana á svæðinu og rífa niður
múra milli byggðar-
laga. „Þeir múrar eru
margir einungis hug-
lægir en aðrir eru
raunverulegir. Einn af
þeim er sá að sjúkra-
skrárnar eru innilok-
aðar á hverri stöð.
Íbúarnir fara hins
vegar víðar og leita
aðstoðar á fleiri en
einum stað innan HSA
og hafa til þess fullt
frelsi. Eðlilegt verður
að teljast að þær upp-
lýsingar sem eru
skráðar í sjúkraskrá
fyrir hvern og einn
sjúkling renni saman í
eina skrá um hann en
verði ekki í einangr-
uðum bútum hingað og þangað
innan HSA. Slíkt skapar vanda-
mál, tvíverknað og eykur hættu á
mistökum.
Af þessum sökum er nú unnið að
því að gera sjúkraskrá allra íbú-
anna aðgengilega fyrir lækna hvar
sem er innan HSA. Er í því verki í
hvívetna fylgt ströngum fyrirmæl-
um landlæknis, öryggisreglugerða,
Persónuverndar og tilskilinna
leyfa verið aflað.
Sá sem heldur því fram að þetta
ógni öryggi upplýsinganna gefur
sér að lækninum í næsta firði sé
verr treystandi en heimalæknin-
um. Það eru ekki gild rök“ segir
Stefán.
Hann segir það jafnframt ljóst
að það að sjúkraskráin var tölvu-
vædd hafi aukið öryggi upplýsing-
anna. Færri fari höndum um
sjúkragögn, upplýsingum á pappír
fækki og læknar hafi í auknum
mæli farið að skrá sjálfir milliliða-
laust inn í skrána. Þá fari sam-
skiptin milli staða um lokað einka-
símanet HSA, sem skipti miklu
máli út frá öryggissjónarmiði.
Ekki verið að mynda nýj-
an gagnagrunn hjá HSA
Stefán Þórarinsson,
lækningaforstjóri Heil-
brigðisstofnunar Aust-
urlands.
Sjúkraskrá hvers og eins sjúklings færð rafrænt og
geymd í svonefndum einangruðum tölvuskápum
Egilsstaðir | Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð var í söngför á Austur-
landi nýverið. Kórinn hélt tónleika í
Egilsstaðakirkju og Kirkju- og
menningarmiðstöðinni á Eskifirði.
Auk þess söng hann við guðsþjón-
ustu í Valþjófsstaðarkirkju á sunnu-
dagsmorgun og heimsótti Skriðu-
klaustur og Grunnskólann á
Egilsstöðum með söngdagskrá.
Að sögn Lárusar Hagalín Bjarna-
sonar, rektors Menntaskólans við
Hamrahlíð, fer kórinn eina góða ferð
á ári út á land og dvelur þá gjarnan í
skjóli framhaldsskóla á svæðinu sem
heimsótt er. Í þetta skipti dvaldi kór-
inn í Menntaskólanum á Egilsstöð-
um.
Efnisskrá kórsins var fjölbreytt,
allt frá íslenskum þjóðlögum og ætt-
jarðarlögum til erlendra þjóðlaga,
laga eftir Bach, trúarlegrar tónlistar
af ýmsum toga og gyðingasöngva.
Kórinn hefur skemmtilega fram-
komu, kynningarnar eru líflegar og
kórinn mjög hreyfanlegur, sem gef-
ur fjölbreytni í framsetningu.
Á sunnudagskvöldinu héldu kór-
félagar og nemendur Menntaskólans
á Egilsstöðum sameiginlega kvöld-
vöku á sal Menntaskólans, þar sem
ýmislegt var til skemmtunar, mest
þó eins og eðlilegt verður að teljast
úr heimi tónlistar og söngs með leik-
rænu ívafi.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hvítklæddur Hamrahlíðarkórinn söng sig inn í hug og hjörtu Austfirðinga.
Hamrahlíðarkór
í austurvegi
Eskifjörður | Það er líflegt í Eski-
fjarðarhöfn eins og endranær. Hér
sést Hólmaborgin renna að bryggju
með fullfermi af kolmunna, eða um
2300 tonn og síðar sama daginn
áttu hafnarstarfsmenn von á út-
troðnum Jóni Kjartans með 1500
tonn af kolmunna í lestinni.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Kolmunnanum rignir inn