Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 47
STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert ábyrg/ur og áreið- anleg/ur á sama tíma og þú ert skapgóð/ur og létt/ur í lund. Þú þarft að taka mik- ilvæga ákvörðun á árinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Vertu opin/n fyrir nýjum leið- um til að auka tekjur þínar eða bæta hag þinn í vinnunni. Þú hefur fulla ástæðu til að trúa á sjálfa/n þin og framtíð þína. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það getur margt skemmti- legt gerst í dag. Þú gætir haf- ið nýtt ástarsamband eða far- ið í ferðalag. Gefðu þér tíma til að leika við börnin og njóta þess að vera til. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú finnur til óvenjumikillar hlýju í garð einhvers í fjöl- skyldunni. Það er gott þegar velvild ríkir innan fjölskyld- unnar því hún smitar út frá sér. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það liggur almennt vel á fólki í dag og því er þetta góður dagur til að njóta samvista við vinina. Gefðu þér tíma til að tala við fólkið í kringum þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú gætir fengið stórkostlegt tækifæri í dag. Leitaðu leiða til að koma hugmyndum þín- um á framfæri við áhrifamik- ið fólk. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þig þyrstir í eitthvað nýtt í dag. Gerðu eitthvað óvenju- legt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú munt annaðhvort njóta velvildar annarra í dag eða sýna öðrum velvild. Þetta er mjög jákvætt á hvorn veginn sem það er. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú átt auðvelt með að sjá or- sakasamhengi hlutanna og hefur því skýra sýn á heild- armyndina í dag. Þú sérð líka hvernig þú fellur inn í um- hverfi þitt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þetta er góður dagur til að gera umbætur í vinnunni. Vertu opin/n fyrir hug- myndum annarra. Þær munu koma sér vel fyrir þig. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Bjartsýni þín og jákvæðni laða að þér fólk í dag. Fólk getur fengið nóg af svartsýni og neikvæðni annars staðar og leitar því til þín. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú gætir fengið arf eða litla gjöf í dag. Einhver gæti líka boðist til að hjálpa þér eða gera þér greiða. Þiggðu það sem þér er boðið með þökk- um. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þetta er góður dagur til samningaviðræðna. Þú veist að góð viðskipti eru þau við- skipti sem koma báðum að- ilum til góða. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 47 DAGBÓK ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 29. apríl, er sextug Guðný Sig- ríður Kristjánsdóttir frá Enni, Viðvíkursveit, Skaga- firði, ræstingarstjóri, LSH, Fossvogi, til heimilis í Fells- múla 5, Reykjavík. Guðný dvelst með börnum og fjöl- skyldum þeirra á afmæl- isdaginn. 50 ÁRA afmæli. Þor-steinn Gunnarsson, skrifstofustjóri, Löngumýri 18, Garðabæ, varð fimm- tugur 16. apríl síðastliðinn. Að því tilefni tekur hann á móti gestum í Ársal, Rad- isson SAS Hótel Sögu, föstudaginn 30. apríl, kl. 18– 20. ÞAÐ er ástæða til að horfa vel og lengi á útspilið áður en ákvörðun er tekin í fyrsta slag: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠G985 ♥ÁK964 ♦6 ♣G72 Suður ♠D63 ♥-- ♦983 ♣ÁKD10965 Suður verður sagnhafi í fimm laufum dobluðum eftir þessar sagnir: Vestur Norður Austur Suður -- Pass 1 tígull 3 lauf Dobl * 5 lauf Pass Pass Dobl Allir pass Útspil: Laufþristur. Hvernig á að spila? Fyrst nokkur orð um sagn- ir. Suður á vissulega fullmikið fyrir þremur laufum, en norð- ur er passaður og þá er minni hætta á að brenna af þremur gröndum. Fyrra dobl vesturs er til úttektar, en hið síðara er hreint viðskiptadobl. Sagnhafi nær að henda tveimur spöðum niður í ÁK í hjarta, en hitt er hæpið að hægt verði að stinga tígul tvisvar í blindum. Vörnin mun trompa aftur út við fyrsta tækifæri. En ef hjartað er 4-4 má hugsanlega fríspila fimmta spilið í litnum og losna þar við einn tígul. Það mál snýst um innkomur og laufáttuna – hvort á að svína laufsjöunni eða stinga upp gosanum? Norður ♠G985 ♥ÁK964 ♦6 ♣G72 Vestur Austur ♠1072 ♠ÁK4 ♥DG82 ♥10753 ♦ÁG104 ♦KD752 ♣83 ♣4 Suður ♠D63 ♥-- ♦983 ♣ÁKD10965 Í þessari legu verður að svína sjöunni. Taka svo ÁK í hjarta (henda spöðum) og trompa hjarta. Nú eru tvær innkomur eftir til að trompa hjarta og nýta það. Ef austur hefði verið með áttuna staka hefði orðið að stinga upp gosa í fyrsta slag til að ná sömu niðurstöðu. Svíningin er betri og það má rökstyðja á tvennan hátt, með fyrirframrökum og sam- tímarökum. (1) Sláum því föstu að vest- ur sé með tvö lauf. Þau gætu verið 84, 83 eða 43. Fyrir- framlíkur á því að vestur eigi áttuna eru þar með tveir á móti einum. (2) Þristurinn er kominn út og nú er spurningin hvort út- spilið er frá 83 eða 43. Lík- urnar virðast jafnar, en af því þristur og fjarki eru jafngild spil gæti vestur spilað hvoru sem er frá 43. Frá 83 myndi hann alltaf spila út þristinum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 70 ÁRA afmæli. Í dag, fimmtudaginn 29. apríl, eru sjö-tugir Ólafur Jóhannesson, Háagerði 81, Reykjavík, og Eysteinn Þ. Jóhannesson, Kaupmannahöfn. Þeir bræð- ur, ásamt Gerðu, taka á móti gestum í Rafveituheimilinu Elliðaárdal á milli kl. 17 og 19.30 í dag. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. g3 dxc4 5. Bg2 Rc6 6. 0-0 Hb8 7. e3 Bd6 8. Rfd2 Ra5 9. Da4+ c6 10. b4 cxb3 11. axb3 Bc7 12. b4 b5 13. Dc2 Rc4 14. Rxc4 bxc4 15. Bxc6+ Bd7 16. Dxc4 Bxc6 17. Dxc6+ Dd7 18. Dxd7+ Kxd7 19. Hxa7 Hxb4 20. Bd2 Hbb8 21. Hc1 Hhc8 22. Ba5 Re8 23. Rd2 Ha8 24. Hxa8 Hxa8 25. Bxc7 Rxc7 26. Rc4 Kd8 27. h4 f6 28. Kg2 Ha6 29. Hb1 Hc6 30. Ra5 Hc2 31. Rb7+ Kc8 32. Kf3 Rd5 33. Rd6+ Kd7 34. Re4 Kc8 35. Ha1 Rc7 36. g4 h6 37. Rg3 Kb7 38. Rh5 Re8 39. Rf4 Rc7 40. Hb1+ Ka7 41. Rd3 Ra6 Staðan kom upp á atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Beer-Sheva í Ísr- ael. Heimamaðurinn Mich- ael Roiz (2.563) hafði hvítt gegn hinum óviðjafnanlega baráttujaxli Viktori Kortsn- oj (2.579). 42. Ha1! og svart- ur gafst upp enda verður hann manni undir eftir 42. – Kb7 43. Hxa6 Kxa6 44. Rb4+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. UM HEIMSINS BRIGÐLYNDI Guð bið ég nú að gefa mér ráð og greiða minn veg til bezta, hann einn mun veita hjálp og dáð, hvað sem mig kann að bresta, þó þörfin sé bæði þung og bráð og þyki oft bótum fresta, á drottins miskunn, mildi’ og náð mitt skal ég traustið festa. Mannleg aðstoð er misjafnt trygg, margir fá slíkt að reyna, trúskaparlundin laus og stygg leið gengur þeygi beina, veltur á ýmsa hlið um hrygg hamingjulánið eina, þá í nauð bjarga helzt ég hygg hægt muni verða að greina. - - - Hallgrímur Pétursson LJÓÐABROT       MEÐ MORGUNKAFFINU Konan mín segir að ég sé ekki í jarðsambandi … Verð frá kr. 995 NÝKOMIN SENDING AF KISTLUM Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ kl. 11-18 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ kl. 13-18. Mikið úrval af ódýrum fallegum kistlum í öllum stærðum FASTEIGNASALAN GIMLI EINBÝLI HLÉSKÓGAR - laust fljótlega Erum með í sölu fallegt 267 fm einbýli. Húsið skiptist í fjögur til fimm svefnherbergi, tvær stofur með útg. á stórar útsýnissvalir, rúmgott eldhús og rúmgott baðherbergi. Á jarðhæð er aukaíbúð sem býður uppá mikla möguleika. Bílskúrinn er fullbúinn með rafmagni, heitu og köldu vatni og sjálfvirkum hurðaropnara. Glæsileg lóð í rækt er umhverfis húsið. Falleg eign. Áhv. 4,0 millj. Verð 29,9 millj. DYNSKÓGAR Vorum að fá í sölu glæsilegt og vel skipulagt samtals 261 fm einbýli á tveim hæðum. Húsið skiptist í 4 svefnherb., tvær stofur, tvö snyrtiherb., bílskúr og stórt útgrafið geymslurými. Stór og glæsileg verönd og fallegur garður. Sjón er sögu ríkari. Verð 32,0 millj. 5 HERB. OG STÆRRI RAUÐALÆKUR - MEÐ BÍLSKÚR Nýtt á skrá. Björt og afar vel skipulögð 120,8 fm íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Sameiginlegur inngangur með 3. hæð, ásamt fullbúnum 28 fm bílskúr. Þrjú svefnherbergi, tvö þeirra með fataskáp, og gengt úr hjónaherbergi út á suðursvalir. Tvær samliggjandi stofur. Verð 18,5 millj. 4RA HERBERGJA HOLTSGATA - LAUS STRAX Falleg og björt 98,4 fm 4ra herbergja íbúð í vesturbænum. Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með fallegu og opnu rými sem tengir hana saman með skemmtilegum hætti. Parket er á allri íbúðinni nema nýlegur korkur á eldhúsi og flísar á baðherbergi. Gott þvottahús og rúmgóð geymsla. Búið er að endurnýja m.a. rafmagn ídregið, og rafmagnstafla end- urnýjuð. Húsið var málað að utan og viðgert sl. sumar og þak var málað. Svalir eru í suður og lítill garður, hellulagður að hluta og snýr einnig í suður. Verð 14,9 millj. Áhv. 5,3 millj. 3JA HERB. LINDASMÁRI - LAUS FLJÓTLEGA Erum með í einkasölu góða 3ja herbergja 84 fm íbúð. LÝSING EIGNAR: Hol með skápum, stofa með útg. á suðursvalir, eldhús með ljósri innréttingu, nýleg Görenje eldavél með keramikhelluborði og borðkrókur við glugga. Innaf eldhúsi er þvottahús. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað með skápum. Baðherbergið er flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu og innrétting. Gólfefni er dúkur og flísar. Sérgeymsla er í kjallara. Verð 14,5 millj. GULLENGI Rúmgóð og björt 85,3 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýli með suðursvölum. Innan íbúðar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, fataskápar í báðum. Stofan er rúmgóð og þaðan gengt út á suðursvalir. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Verð 13,5 millj. ÆSUFELL - LAUS STRAX Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. 92 fm íbúð á 5. hæð. Íbúðin skiptist í tvö herb. m. dúk, rúmgott baðh., bjarta stofu, eldhús og búr. Gólfefni eru dúkar og teppi. Eignin er laus strax - lykklar á skrifstofu Gimlis. Verð 10,5 millj. 2JA HERB. SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR - LAUSAR STRAX Sérlega fallegar og mikið endurnýjaðar 2ja og 3ja herb. tæplega 70 og 80 fm íbúðir á 2. hæð í húsi byggðu 1986. Íbúðirnar eru bjartar og afar vel skipulagðar. Íbúðunum fylgja stórar svalir í suður og vestur. Staðsetningin er sérlega góð m.t.t. verslunar og þjónustu. Stutt er í bílastæðahús Rvíkurborgar. Íbúðinni fylgir sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Verð 16,9 millj. FRAMNESVEGUR - LAUS STRAX Nýtt á skrá. Sérlega falleg 77 fm íbúð sem er hæð og ris. Allar endurbætur voru unnar af fagmönum árið 1997. Íbúðin er öll parketlögð, nema á baði, þar eru flísar. Innréttingar, tæki, lagnir, gluggar og gler endurnýjað ásamt járni og þaki. Verð 13,0 millj. Áhv. 6,6 millj. húsbréf. GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali Viltu stofna fyrirtæki? Allt, sem þú þarft að vita um félagsform, skattlagningu fyrir- tækja, frádráttarbæran rekstrarkostnað og rétt þinn í samskipt- um við skattyfirvöld. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og verður kennt mánudaginn 3. maí, miðvikudaginn 5. maí og föstudaginn 7. maí, kl. 16-19. Verð kr. 20.000. VR styrkir félagsmenn sína til þátttöku. Kennari verður Anna Linda Bjarnadóttir hdl. Kennslan fer fram í Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1. Nánari upplýsingar og skráning í símum 520 5580, 520 5588, 894 6090 eða á alb@isjuris.is .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.