Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 49 LÆRISVEINAR Alfreðs Gísla- sonar hjá Magdeburg fóru illa að ráði sínu þegar Göppingen heim- sótti þá, gerðu 24:24 jafntefli og gerðu gestirnir fjögur síðustu mörkin. Garcia gerði sex mörk fyr- ir Göppingen og Sigfús eitt fyrir heimamenn. Snorri Steinn Guðjónsson gerði 3/1 mark fyrir Grosswallstadt þeg- ar liðið náði 27:27 jafntefli gegn Kronau/Österingen. Guðmundur Hrafnkelsson kom inn á og varði eitt vítakast frá gestunum. Essen vann í gærkvöldi og gerði Guðjón Valur Sigurðsson tvö mörk. Með sigrinum tryggði liðið sér rétt til að spila í EHF- bikarnum næsta ár. Garcia með sex mörk gegn Magdeburg EGGERT Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, var mjög ánægður með leikmenn Ís- lands eftir jafnteflið gegn Lettlandi í Ríga. „Stærri þjóðir en við hefðu verið ánægðar með jafntefli í Lett- landi. Það voru jafningjar sem glímdu hér og gerðu stórmeist- arajafntefli. Jafntefli var full- komlega réttlát úrslit og nú vona ég að stígandin verði rétt hjá okkur í framhaldinu. Við eigum tvo skemmtilega leiki framundan í Englandi, gegn Japan og Englandi – og síðan rætist draumurinn að fá Ítali í heimsókn á Laugardalsvöll- inn,“ sagði Eggert, sem bíður spenntur eftir framhaldinu. „Alvaran hefst í september þegar við hefjum þátttöku í undankeppn- inni fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi 2006. Ég er ekki í vafa um að íslenska þjóðin mun taka þátt af fullum krafti með okkur í þeirri baráttu. Við sýndum það á lokasprettinum í Evrópukeppninni að það er margt hægt. Við erum að byggja upp mjög góðan lands- liðshóp, sem er tilbúinn að takast á við erfið verkefni af fullum krafti og aðlaga sig þeim verkefnum sem glímt er við. Ég hef fulla trú á því að fólkið heima komið með okkur og veiti okkur öflugan stuðning. Það eru skemmtilegir tímar fram- undan,“ sagði Eggert Magnússon. Ásgeir sagði að það hefði veriðallt annað yfirbragð á leik- mönnum íslenska liðsins en í Alban- íu. „Það er gott jafn- vægi í leik liðsins og strákarnir náðu upp betra spili en oft áð- ur. Ég er þó ekki hundrað prósent sáttur við allt sem gerðist inni á vellinum, en við vörð- umst vel og náðum oft upp góðum sóknum – en náðum ekki að reka endahnútinn á þær. Það var ljóst strax í upphafi að leikmennirnir ætl- uðu ekkert að gefa eftir. Þegar upp ser staðið þá getum við ekki annað en verið ánægðir með leik okkar. Við erum að feta okkur áfram í upp- byggingu á nýju landsliði og vorum að reyna leikmenn í ýmsum stöðum. Leikir eins og hér í Ríga gefa okkur tækifæri til að láta reyna á leik- menn,“ sagði Ásgeir. Baráttan var góð hjá leikmönnum Íslands og komu varnarmennirnir Pétur Hafliði Marteinsson, sem átrti mjög góðan leik, Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson vel út í sínum hlutverkum. Indriði Sigurðsson átti góða spretti á hægri kantinum – sótti stöðugt, og þá léku þeir Arnar Þór Viðarsson og Arnar Grétarsson vel á miðjunni. Þeir voru vinnusamir og óhræddir. Það má segja þar sama um aðra leik- menn liðsins, sem voru staðráðnir að sýna sitt besta og létu knöttinn ganga vel á milli manna. Ásgeir sagði að það væri ákveðnu fargi létt af landsliðshópnum með því að ná jafntefli gegn Lettlandi. „Við fögn- um þessum áfanga og framundan er enn stærri verkefni, sem leikmenn koma í léttari í skapi. Það verður skemmtilegt að vera með strákana í tíu daga í byrjun júní í Englandi, þar sem verða stífar æfingar og tveir landsleikir – gegn Japan og Englandi. Það verður mikil upplifun fyrir leikmenn okkar að leika gegn Englendingum í Manchester. Síðan verður leikið gegn Ítölum á Laug- ardalsvellinum í ágúst. Okkur gefst frábært tækifæri að stilla saman strengi okkar fyrir alvöruna sem bíður okkar, sem er undankeppni heimsmeistaramótsins í Þýskalandi. Ég fer héðan frá Ríga sáttur með lífið og tilveruna. Við eigum eftir að læra mikið og gera miklu betur en hér,“ sagði Ásgeir. Það er óhægt að taka undir með Ásgeiri, landslið Íslands er á réttri leið og það verður skemmtilegt að fylgjast með leikmönnum í leik og starfi á næstu mánuðum. Ásgeir hrósaði Lettum í hástert á fundi með fréttamönnum eftir landsleikinn í Ríga. Lettland tryggði sér á eftirminnilegan hátt farseðilinn á EM í Portúgal, með því að leggja Tyrki að velli í Ríga og Istanbúl. Ásgeir þakkaði Lettum það fordæmi sem þeir hefðu gefið litlu knattspyrnuþjóðunum. „Lettar hafa sýnt okkur að þetta er hægt og gefa öðrum litlum þjóðum trú á að það sé ýmislegt hægt ef viljinn sé fyrir hendi. Litlu þjóðirnar geta leyft sér að hugsa stórt. Ég óska Lettum góðs gengis í Portúgal,“ sagði Ásgeir. Ljósmynd/Raitis Purins Hermann Hreiðarsson gaf að venju ekkert eftir í baráttunni í vörninni og hér liggur einn leikmaður Letta eftir átökin. Arnar Þór Við- arsson (3) og Ólafur Örn Bjarnason fylgjast með gangi mála en þeir höfðu í nógu að snúast á miðjunni gegn heimamönnum. „Ég er ánægður með strákana“ „ÉG get ekki annað en verið ánægður með strákana. Þeir léku mun betur en í Albaníu á dögunum – með smáheppni hefðum við getað lagt Letta að velli. Já, og með óheppni tapað leiknum,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir að íslenska landsliðið hafði náð jafntefli í vináttulandsleik gegn Lettum á Skonton- leikvellinum í Ríga í gærkvöldi, 0:0. Ásgeir má vera ánægður með leik íslenska liðsins, sem var miklu betri heldur en gegn Albaníu í Tirana og léku leikmenn landsliðins yfirvegað og af öryggi gegn Lettlandi. Árni Gautur Arason var hetja íslenska liðsins, en hann varði tvisvar meistaralega í leiknum og þá var vörn liðsins traust og miðjumennirnir náðu að halda knettinum vel og leika honum á milli sín. Jafntefli var sanngjörn úrslit. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar frá Ríga Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari eftir jafnteflisleik gegn Lettum í Ríga „Skemmtilegir tímar framundan“  ÞAÐ var mikill viðbúnaður fyrir leik Lettlands og Íslands í Ríga. „Það er ekki á kverjum degi sem maður ferðast um í langferðabifreiðum í fylgd lögreglu,“ sagði Viðar Hall- dórsson, fyrrverandi landsliðsmaður og stjórnarmaður Knattspyrnusam- bands Íslands. Þegar landslið Ís- lands hélt frá hóteli sínu ók lögreglu- bifreið með blikkandi ljósum á undan og fyrir aftan bifreiðina voru lög- reglumenn á mótorhjólum. Það tók landsliðið aðeins fimm mínútur að komast frá hótelinu á Skonton-leik- völlinn, sem tekur að öllu eðlilegu fimmtán mínútur.  LEIKURINN hófst kl. 20 að stað- artíma, en yfirleitt fara leikir Lett- lands fram kl. 17.30. Ástæðan fyrir þessari tímasetningu var að leikur- inn var sýndur beint til Íslands.  LEIKURINN vakti athygli, þar sem Lettar taka þátt í Evrópukeppn- inni í Portúgal. Í Ríga voru frétta- menn frá Þýskalandi, Hollandi og Tékklandi, en þessar þjóðir leika með Lettlandi í riðli á EM. Þá voru fréttamenn frá Frakklandi, Ítalíu og Portúgal mættir á svæðið, en þeir voru að vinna greinar um landslið Lettlands.  JAKOB Spangsberg, 21 árs danskur sóknarmaður, leikur með 2. deildar liði Leiknis úr Reykjavík í knattspyrnunni í sumar. Spangs- berg leikur með varaliði danska úr- valsdeildarfélagsins Esbjerg og sam- kvæmt vef Leiknis hefur hann skorað 20 mörk í 20 leikjum í dönsku 3. deildinni í vetur.  TOTTENHAM er búið að losa sig við franska miðjumanninn Stephane Dalmat. Leikmaðurinn lenti í harka- legu rifrildi við knattspyrnustjórann David Pleat fyrir leikinn gegn Ars- enal um síðustu helgi en Pleat ákvað að velja Dalmat ekki í leikmannahóp- inn og það mislíkaði Frakkanum. Í kjölfarið tók stjórn Tottenham ákvörðun um að reka Dalmat frá fé- laginu og senda hann aftur til Inter Mílanó en hann er samningsbundinn ítalska liðinu.  FJÖLMIÐLAR í Bandaríkjunum greindu frá því í gær að Doc Rivers, fyrrverandi þjálfari NBA-liðsins Or- lando Magic, yrði næsti þjálfari Boston Celtic sem sagði þjálfara sín- um, John Carroll, upp störfum fyrir fjórum dögum. Celtic tapaði 4:0 í átta liða úrslitum á Austurströndinni gegn Indiana Pacers og leitar Danny Ainge, framkvæmdastjóri Celtic, að nýjum þjálfara sem getur rifið liðið upp úr þeim öldudal sem það hefur verið í undanfarin ár.  RIVERS var útnefndur þjálfari ársins á meðan hann stýrði Orlando en það voru allir búnir að gleyma því er honum var sagt upp störfum hjá liðinu þann 1. nóvember sl. eftir að það hafði tapað 10 af 11 fyrstu leikjum sínum. FÓLK ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.