Morgunblaðið - 29.04.2004, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2004 51
FALUR Harðarson, fyrr-
um leikmaður og þjálfari
Íslands- og bikarmeistara-
liðs Keflavíkur í körfu-
knattleik, hafnaði í gær til-
boði frá úrvalsdeildarliði
Grindavíkur um að taka
við þjálfun liðsins. Magnús
Andri Hjaltason, formaður
körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur, sagði í gær
að Falur hefði ekki séð sér
fært að taka að sér svo viðamikið
verkefni þar sem hann væri nýbyrj-
aður að vinna í Reykjavík og taldi
Falur að hann gæti ekki sinnt verk-
efninu í Grindavík sem skyldi þar
sem hann er búsettur í Keflavík.
„Við erum ekki farnir að örvænta
en það hafa tveir góðir valkostir
runnið okkur úr greipum,
fyrst Sigurður Ingimund-
arson og nú Falur,“ sagði
Magnús en aðspurður sagði
hann að vel kæmi til greina
að ræða við Guðjón Skúla-
son sem þjálfaði Keflavík
ásamt Fal í vetur. „Við vilj-
um ganga frá þessum mál-
um sem fyrst og erum einn-
ig farnir að þreifa fyrir
okkur með þjálfara fyrir
yngri flokka félagsins að ógleymdu
kvennaliðinu,“ sagði Magnús en
hann bætti því við að vel kæmi til
greina að leita að erlendum þjálf-
ara fyrir karlaliðið. „Við munum
halda öllum möguleikum opnum
þar til búið verður að ganga frá
þessu máli.“
Falur Harðarson hafnaði
tilboði Grindvíkinga
HOLLENDINGAR fóru á kost-
um í Eindhoven í gær er liðið
tók á móti Grikkjum í vin-
áttulandsleik í knattspyrnu.
Bæði liðin leika til úrslita á
Evrópumótinu í Portúgal en í
gær léku Hollendingar sér að
Grikkjum og skoruðu fjögur
mörk gegn engu.
Í upphafi síðari hálfleiks
skoruðu Roy Makaay, Boude-
wijn Zenden og John Heitinga
á 11 mín. kafla. Pierre van
Hooijdonk skoraði síðasta
mark leiksins.
Grískur
harmleikur
GRÉTAR Rafn Steinsson, leik-
maður bikarmeistaraliðs ÍA í
knattspyrnu, er með samnings-
tilboð frá hollenska 1. deildar lið-
inu RCK Waalwijk og hefur Grétar
gert félaginu gagntilboð og býst
hann við að fá svör frá því í byrjun
næstu viku. Í Morgunblaðinu í gær
var sagt frá því að Grétar væri til
reynslu hjá svissneska liðinu Zü-
rich en það er ekki rétt því hann
æfir þessa dagana með BSC Young
Boys sem er í öðru sæti svissnesku
deildarinnar á eftir Basel.
„Ég get ekki sagt í smáatriðum
frá tilboði Waalwijk en ég dvaldi
hjá liðinu í tvær vikur í síðasta
mánuði og lék þá einn leik með lið-
inu. Í kjölfarið buðu þeir mér
samning sem ég er að skoða ásamt
hollenskum umboðsmanni mínum.
Ég verð við æfingar hjá Young
Boys fram í næstu viku en þá býst
ég við að koma til Íslands og berj-
ast fyrir sæti mínu í ÍA-liðinu. Ég
hef gert heiðursmannasam-
komulag við ÍA um að ég leiki með
liðinu í sumar. Ef ég sem við
Waalwijk er ég ekki viss um hvert
framhaldið verður og hvort ég fái
leyfi til þess að leika með ÍA í sum-
ar,“ sagði Grétar í gær en hann
sleit krossband í hné sl. sumar og
hefur náð ótrúlega skjótum bata af
þeim meiðslum. Spurður hvernig
hann hefði það í hnénu svaraði
hinn 22 ára gamli Siglfirðingur
með einföldum hætti: „Það er ekk-
ert að mér og ég veit ekki af þessu
í dag enda er það markmiðið að
gleyma því að þetta hafi gerst,“
sagði Grétar Rafn. Þess má geta
að Jóhannes Karl Guðjónsson lék á
sínum tíma með RCK Waalwijk en
var seldur þaðan til spænska liðs-
ins Real Betis.
Grétar með
tilboð frá
Waalwijk
SRETEN Djurovic, serbneski
varnarmaðurinn sem hefur verið til
reynslu hjá knattspyrnuliði Kefla-
víkur að undanförnu er kominn með
leikheimild. Hann spilar því með
Keflvíkingum þegar þeir mæta Vík-
ingi í átta liða úrslitum deildabikars-
ins í Reykjaneshöll í kvöld.
SASA Komlenic, markvörður frá
Bosníu, bíður leikheimildar en Kefl-
víkingar hafa komist að munnlegu
samkomulagi við báða leikmennina
um að spila með félaginu.
SNORRI G. Sigurðarson, íshokkí-
maður með Birninum, hefur verið
úrskurðaður í sex mánaða keppnis-
bann af dómstól ÍSÍ. Snorri var tek-
inn í lyfjapróf hinn 5. febrúar og í
niðurstöðu þess var að of mikið
magn af efedríni. Snorri viðurkenndi
brot sitt og því var ekki tekið svo
kallað B-sýni. Í dómsorði segir að
Snorri er óhlutgengur til þátttáku í
æfingum, keppni og sýningum á veg-
um ÍSÍ, sambandsaðila ÍSÍ eða félaga
og deilda innan þeirra í 6 mánuði.
FORSVARSMENN bandaríska
landsliðsins í körfuknattleik karla
sem mun taka þátt á Ólympíuleikn-
um í Aþenu í sumar á Grikklandi eru
enn í vafa um hvort þeir leikmenn
sem nú hafa verið valdir í liðið muni
taka þátt í verkefni liðsins vegna
meiðsla og annarra skuldbindinga.
Jermaine O’Neal, Tim Duncan, All-
en Iverson, Tracy McGrady, Mike
Bibby og Richard Jefferson eru allir
vissir um að vera með. En sömu sögu
er ekki segja af þeim Jason Kidd,
Karl Malone, Elton Brand, Ray All-
en og Kevin Garnett.
FÓLK
Hermann sagði að það væri langtsíðan leikmenn Íslands hefðu
verið eins mikið með knöttinn og í
leiknum gegn Lett-
landi. „Það vantaði
aðeins herslumuninn
að við næðum að
setja knöttinn í netið
hjá Lettum. Það var margt jákvætt
sem kom fram í leiknum og það er
virkileg stígandi í leik liðsins. Vörnin
var lengstum yfirveguð og Árni
Gautur veitti okkur sjálfstraust með
frábærri markvörslu í tvígang. Við
vitum alveg hvað hann getur og það
er mikið öryggi að vita af honum fyr-
ir aftan okkur. Árni Gautur skapar
ákveðið sjálfstraust.
Þessi leikur er gott veganesti fyrir
okkur – fyrir alvöruna sem er fram-
undan. Við ætlum þó ekki að berja á
neinar bumbur, því að við munum
taka næstu skref af fullri alvöru og
reyna að gera betur í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar en við
gerðum fyrir Evrópukeppnina í
Portúgal.
Stefnan er að sjálfsögðu sett á
fyrsta eða annað sætið í keppninni
við Ungverja, Króata, Svía, Búlgara
og Möltubúa. Þetta er vonandi að-
eins byrjunin á farsælu starfi,“ sagði
Hermann.
„Hafði heppnina með mér“
Árni Gautur Arason sagðist ekki
geta annað en verið ánægður með
leikinn gegn Lettum. „Við létum þá
ekki slá okkur út af laginu þegar þeir
reyndu hvað þeir gátu til að brjóta
okkur á bak aftur. Vörn okkar var
yfirveguð, en eins og gerist og geng-
ur þá misstigu menn sig. Ég hafði
heppnina með mér tvisvar sinnum,
er ég náði að koma í veg fyrir að
Lettar skoruðu á viðkvæmum tíma –
í byrjun leiks og í upphafi seinni hálf-
leiksins. Ég er ánægður með jafn-
teflið,“ sagði Árni Gautur.
„Getum gert betur“
Arnar Grétarsson lék mjög vel á
miðjunni og sá um að láta knöttinn
ganga kantanna á milli. „Við gerðum
marga góða hluti og náðum að halda
knettinum – létum hann rúlla á milli
manna. Stundum vantaði herslu-
muninn að geta betur.
Vörnin hjá okkur var traust og tók
virkan þátt í uppbyggingu á sókn-
arlotum.
Þá lokuðu varnarmennirnir vel
ákveðnum svæðum, þannig að Lett-
ar náðu ekki að nýta sér hraðar
sóknir. Það voru margir góðir punkt-
ar í leik okkar og nú verðum við að
kappkosta að bæta leik okkar enn
betur. Við lékum vel undir pressu,
sem er mjög jákvætt. Það var
ánægjulegt að sjá hvernig leikmenn
hreyfðu sig án knattar, þannig að við
náðum að koma knettinum vand-
ræðalaust á milli leikmanna. Ég
vona að leikurinn hér í Ríga sé byrj-
unin á góðu áframhaldi,“ sagði Arnar
Grétarsson.
Ljósmynd/Raitis Purins
Hermann Hreiðarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, lét mikið að sér kveða í bar-
áttunni um knöttinn í vítateignum í Ríga gegn Lettum sem leika í úrslitum á EM í Portúgal í sumar.
„Horfum stoltir á
björtu hliðarnar“
„ÉG er stoltur og ánægður. Við horfum nú á björtu hliðarnar, sem
voru mjög margar hér í Ríga. Þetta er besti leikur okkar í langan
tíma og þá sérstaklega hvað við náðum að halda knettinum vel. Það
voru allir staðráðnir í að gera sitt besta og það var gleðilegt hvað
við náðum að halda knettinum vel á miðjunni og láta hann ganga
manna á milli. Það voru leikmenn á miðjunni sem stóðu sig frábær-
lega, eins og Arnar Grétarsson og Arnar Þór Viðarsson. Það eru
menn að mínu skapi, þegar þeir gera það sem þeir sýndu nú. Það
var lykilatriði í leiknum hvað við létum knöttinn ganga vel á milli
manna,“ sagði Hermann Hreiðarsson, fyrirliði íslenska landsliðs-
ins, sem var eins og oft áður einn af klettunum í leik íslenska liðsins
– leikmaður sem gefur ekkert eftir og er alltaf tilbúinn að fórna sér í
keppni undir merkjum Íslands.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar frá Ríga
Hermann Hreiðarsson, fyrirliði landsliðsins í knattspyrnu
Opið mót
Sunnudaginn 2. maí
Mjög góð verðlaun fyrir:
Sæti 1-5 m/forgj.
Besta skor án forgj.
Nándarverðl. á 3. og 16. braut.
Punktakeppni
Hámarksforgjöf
karlar 24, konur 28.
Ræst út kl. 9:00-15:00
Skráning á www.golf.is og í síma 421 4100
Keppnisgjald kr. 2.500
GOLFBÚÐIN Hafnarfirði
Falur J.
Harðarson