Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.05.2004, Blaðsíða 4
GERT er ráð fyrir að ferðamönnum hingað til lands fjölgi um a.m.k. 1,5–2% og gjaldeyristekjur aukist um 1,2–1,5 milljarða nái allar til- lögur nefndar um stofnun þjóð- garðs norðan Vatnajökuls fram að ganga. Umhverfisráðherra skipaði nefndina í október 2002 í tengslum við stofnun fyrirhugaðs Vatnajök- ulsþjóðgarðs sem ríkisstjórnin hef- ur haft í undirbúningi frá árinu 2000. Í áliti nefndarinnar er lagt til að ríkisstjórnin taki ákvörðun um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs á næstu fimm til átta árum sem nái til jökulsins og nærliggjandi áhrifa- svæða. Lagt er til að svæði þjóð- garðsins nái frá vatnaskilum á Vatnajökli í suðri til Tungnársvæðis vestan jökulsins, yfir Vonarskarð, Tungnafellsjökul, stærstan hluta Óðdáðahrauns, Jökulsá á Fjöllum og helstu þverár, s.s. Kreppu, Kverká, Svartá og vatnasvið, Vest- uröræfi, Snæfell og Eyjabakka- svæðið. Yrði heildarstærð þess um 10.600 ferkílómetrar og næði til sjö sveitarfélaga. Nefndin leggur til að stofnun þjóðgarsins verði gerð með sérstök- um lögum og að aðild heimamanna verði tryggð. Svæðinu norðan Vatnajökuls verði skipt í þrjú rekstrarsvæði undir sameiginlegri yfirstjórn og að núverandi þjóð- garður í Jökulsárgljúfrum heyri undir það. Á sama hátt telur nefndin að skipta mætti Vatnajökulsþjóðgarði á syðri hluta jökulsins í sex rekstr- arsvæði og yrði núverandi þjóð- garður í Skaftafelli þar á meðal. Að mati nefndarinnar yrði þjóðgarður af slíkri stærðargráðu og fjölbreyti- leika einstakur í heiminum og ætti fullt erindi á heimsminjaskrá Sam- einuðu þjóðanna yfir markverða staði. Gert er ráð fyrir að hefðbundnar landnytjar innan þjóðgarðsins norð- an Vatnajökuls haldist óbreyttar að mestu, þ.m.t. veiðinytjar og beit- arafnot á grundvelli sjálfbærrar nýtingar. Þá er lagt til að skilgrein- ingar Alþjóðlegu náttúruverndar- samtakanna, IUCN, verði lagðar til grundvallar að flokkun svæðisins. Stofnkostnaður 600 milljónir Áætlaður kostnaður við uppbygg- ingu á aðstöðu í tengslum við þjóð- garðinn er 600 milljónir og rekstr- arkostnaður á ári 130 milljónir króna. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra sagði á blaðamannafundi þar sem skýrslan var kynnt að þver- pólitísk samstaða væri um tillögur nefndarinnar. Ekki hefði verið tek- in ákvörðun um hvort farið yrði í stofnun þjóðgarðsins með nákvæm- lega þessum hætti en að tillögur nefndarinnar væru til skoðunar í ráðuneytinu. Skýrslan hefur verið kynnt á fundi ríkisstjórnar. Í máli Sivjar kom fram að nefnd- in hafði mjög víðtækt samráð við landeigendur, sveitarstjórnarmenn og hagsmunaaðila. Þá kom fram að álfyrirtækið Alcoa hefði lýst yfir áhuga á að taka þátt í stofnkostnaði vegna þjóðgarðsins og átt óform- legar viðræður við ráðuneytið vegna þessa. Engar tölur um mögu- lega kostnaðarþátttöku hafi þó enn verið nefndar. Í tengslum við tillögu að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sagði ráð- herra að enn væri óljóst um eign- arhald. Óbyggðanefnd hefði úr- skurðað að stórt svæði á sunnan- verðum Vatnajökli í sveitarfélaginu Hornafirði væri þjóðlenda en nokkrir landeigendur hefðu gert kröfur í jökulinn sjáfan. Landeig- endur hefðu svigrúm til 2. júní að kæra niðurstöðuna til Héraðsdóms. Þá ætti svæði norðan Vatnajökuls eftir að fara fyrir Óbyggðanefnd og hugsanlegt að landeigendur settu fram kröfur um að fá tiltekin land- svæði. Nefnd um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls var skipuð Arn- björgu Sveinsdóttur, Sjálfstæðis- flokki, Magnúsi Stefánssyni, Fram- sóknarflokki, Steingrími J. Sigfússyni, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Össuri Skarphéð- inssyni, Samfylkingu, og Magnúsi Jóhannessyni ráðuneytisstjóra sem jafnframt var formaður nefndarinn- ar. Nefnd um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls skilar tillögum um þjóðgarð á næstu 5–8 árum Gjaldeyris- tekjur áætl- aðar 1,2–1,5 milljarðar Morgunblaðið/Ásdís Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra kynnir skýrslu nefndar- innar um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls í Iðnó í gær.                                        !    "       #$  %    &   ' &  '      FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Dagskrá næstu daga Tónlistartorg Listahátíðar í Kringlunni Hilmar Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson Egill Ólafsson og Tatu Kantomaa Guðni Franzson KK og Guðmundur Pétursson Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen þriðjud. 25. maí kl. 17:00 miðvikud. 26. maí kl. 17:00 fimmtud. 27. maí kl. 17:00 föstud. 28. maí kl. 17:00 laugard. 29. maí kl. 14:00 Rafmögnuð nútíð Íslenska dægurlagið Sigling Þýtur í stráum Hundur í óskilum Tryggvi Felixson, fram- kvæmdastjóri Landverndar Breið samstaða hefur myndast TRYGGVI Felixson, framkvæmda- stjóri Landverndar, segir að breið samstaða hafi myndast um til- lögur um stofnun þjóðgarðs norð- an Vatnajökuls samkvæmt skýrslu þverpólitískrar nefndar um málið. Upplýst hafi verið að víðtækt samráð hafi verið haft um mótun tillagna nefndarinnar og tillög- urnar falli vel að hugmyndum sem Landvernd hafi kynnt um Vatnajökulsþjóðgarð. Náttúruverndarsamtök Íslands Ánægja með undir- búningsvinnu HÉR á eftir fer ályktun frá Náttúru- verndarsamtökum Íslands vegna þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. „Aðalfundur Náttúruverndar- samtaka haldinn í Reykjavík 15. maí 2004 lýsir ánægju sinni með þá und- irbúningsvinnu sem átt hefur sér stað að stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls er taki til alls vatna- sviðs Jökulsár á Fjöllum. Nátt- úruverndarsamtökin undirstrika að litið verði á stofnun þjóðgarðs norð- an Vatnajökuls sem fyrsta skref í þá átt að friðlýsa svæði frá strönd í norðri til strandar í suðri þar með talinn Langisjór. Mikilvægt er að reglur Alþjóðanáttúruvernd- arsamtakanna, IUCN verði lagðar til grundvallar verndun svæðisins. Við stjórn þjóðgarðsins ráði fagleg- ur metnaður með það að markmiði að þjóðgarðurinn uppfylli alþjóðleg skilyrði IUCN og hafi möguleika á að komast á heimsminjaskrá. Yfir- stjórn þjóðgarðsins verði í höndum Umhverfisstofnunar eða samsvar- andi þjóðgarðastofnunar í samvinnu við fulltrúa sveitarstjórna og frjálsra félagasamtaka. Mannvirki sem nauðsynleg eru vegna reksturs og stjórnunar þjóðgarðsins á ekki að byggja á viðkvæmum, lítt röskuðum svæðum þjóðgarðsins heldur í jaðri þjóðgarðsins eða utan hans. Vega- lagning raski ekki náttúru fyrirhug- aðs þjóðgarðs.“ Drengir rændu bíl en urðu bensínlausir TVEIR drengir á Ísafirði tóku bíl nákomins ættingja annars þeirra ófrjálsri hendi aðfaranótt laugar- dags og óku áleiðis til Reykjavíkur. Þegar þetta uppgötvaðist var haft samband við lögreglustöðvar og fann lögreglan í Borgarnesi bifreiðina bensínlausa í Norðurárdal. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var piltunum ekið til baka. Annar drengjanna hefur náð sakhæfisaldri en hinn ekki en hvorugur þeirra hef- ur náð aldri til að öðlast ökuréttindi. Máli drengjanna var komið í hendur starfsmanna skóla- og fjölskyldu- skrifstofu Ísafjarðarbæjar. Bauð 5 ára dreng upp í bíl sinn LÖGREGLAN í Hafnarfirði fékk um helgina ábendingu frá foreldri um að maður hefði boðið 5 ára gömlum dreng upp í bíl sinn og gefið honum sælgæti. Lögregla brýnir í því sambandi fyrir foreldrum að þau vari börn sín við að fara upp í bíl til ókunnugra. Ef grunsemdir vakna um að fullorðnir séu að lokka börn upp í bíla í óheið- arlegum tilgangi er rétt að láta lög- reglu vita. TORFI Lárus Karlsson fór til Boston sl. sunnu- dag, en þar á hann að fara í tvær aðgerðir. Torfi er sjö ára Borg- nesingur með sjaldgæf- an sjúkdóm sem lýsir sér með ofvexti í sog- æðum og veldur bólg- um í vefjum sem þenj- ast út. Torfi hefur farið þrisvar sinnum áður til Boston þar sem aðgerð- ir hafa verið fram- kvæmdar til þess að fjarlægja ofvöxt. Alls hafa verið gerðar átta aðgerðir á honum og þar af tvær hér heima. Þrátt fyrir að tals- vert af ofvextinum hafi verið fjarlægt þá vex vefurinn aftur. Hægri hönd Torfa er um 5 kíló að þyngd og hafa þyngslin valdið því að hryggurinn er orðinn skakkur. Um síðustu áramót uppgötvaðist að bakið er orðið skakkt, rifbein farin úr stað og valda því að minna pláss er fyrir lungun sem leiðir af sér örari öndun. Torfi byrjar því á að fara í aðgerð til þess að spengja bakið og verður það 28. maí nk. Um fjórum dögum síðar verður gerð aðgerð á hendinni og áætluð heimkoma er 4. júlí ef allt gengur vel. Foreldrar Torfa, þau Sigurbjörg Ólafsdóttir og Karl Torfason, fóru með honum út og verða bæði allan tímann hjá honum. Þegar fréttaritari kvaddi Torfa var hann orðinn spenntur en frekar þreyttur á því að þurfa sífellt að vera kveðja og kyssa bless, en margir Borgnesingar höfðu litið inn til þess að kveðja hann og óska honum góðs gengis í Boston. Torfi Lárus tilbúinn fyrir Boston-ferðina. Torfi Lárus Karls- son farinn til Boston Morgunblaðið/Guðrún Vala Borgarnesi. Morgunblaðið. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.