Morgunblaðið - 25.05.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGSKRÁ
ÁTJÁN ára stúlka slapp ómeidd
þegar bíll sem hún ók valt í krappri
beygju við Broddanes um hálfell-
efuleytið í gærkvöldi. Stúlkan var á
suðurleið og var ein í bílnum. Að
sögn lögreglunnar á Hólmavík
björguðu beltin því að ekki fór verr,
en bíllinn má teljast ónýtur.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Bílvelta við Brodda-
nes á Ströndum
Hólmavík. Morgunblaðið.
Í DAG fagnar Sjálfstæðisflokkurinn
75 ára afmæli sínu og verður efnt til
afmælisveislu á Hótel Nordica í
Reykjavík. Verður húsið opnað kl. 17
og dagskrá hefst kl. 17.30 með tónlist
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Berg-
þórs Pálssonar við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Að því loknu
ávarpar Davíð Oddsson, formaður
flokksins, veislugesti en öllum sjálf-
stæðismönnum er boðið til hátíðar-
innar, að því segir í tilkynningu.
Afmælisins verður ekki aðeins
minnst á afmælisdeginum því mið-
stjórn flokksins hefur ákveðið að
hefja ýmis ný verkefni í flokksstarf-
inu, segir í tilkynningunni. „Flest
þeirra felast í nýjungum í flokks-
starfinu og eru nokkur þegar orðin
að veruleika og önnur í undirbúningi.
Þar ber helst að nefna eflda starf-
semi Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis-
flokksins og átak til að fjölga enn
frekar styrktarmönnum sem reglu-
lega leggja flokknum lið.“
Öll starfandi félög á vegum flokks-
ins fá af þessu tilefni hátíðarfunda-
gerðarbók merkta afmælinu með
þeim tilmælum að vernda vel skrán-
ingu fundargerða og tryggja þannig
góða varðveislu á sögu flokksins.
Einnig verður gefinn út bæklingur
um sögu og starf flokksins.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
fagnar 75
ára afmæli
Stefnufastur/Miðopna
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn er
ekki lengur keppnisskákfélag og
ætlar að einbeita sér að starfi meðal
barna. Þetta tilkynnti formaður
Hróksins, Hrafn Jökulsson, við at-
höfn í gær er hann afhenti KB
banka að gjöf safn 13 gullpeninga af
Íslandsmóti skákfélaga, sem Hrók-
urinn vann til á árunum 1998 til
2004.
Hrafn sagði félagið líta svo á að
öllum markmiðum á Íslandsmót-
unum hefði verið náð, en félagið
vann sig upp úr 4. í 1. deild á
skömmum tíma. Ákveðið hefði verið
að leggja grunninn að starfi Hróks-
ins í framtíðinni meðal barna. Þakk-
aði hann KB banka fyrir stuðning-
inn í gegnum árin og minnti um leið
á að félagið væri eingöngu að gefa
gullpeninga, það ætti einfaldlega
enga silfur- og bronspeninga.
50 þúsund börn fá skákbók
að gjöf næstu sjö árin
Liðsmenn Hróksins hafa farið í
alls 460 skólaheimsóknir á síðustu
tveimur árum og verður þeim heim-
sóknum haldið áfram næstu sjö árin
hið minnsta. Markmið Hróksins er
að allir íslenskir grunnskólanemar,
um 50 þúsund, verði þá búnir að fá
skákbókina „Skák og mát“ sem 3.
bekkingar hafa fengið síðustu tvo
vetur að gjöf frá Eddu útgáfu og
Hróknum, alls um 11 þúsund eintök.
Í þessum heimsóknum hefur einn-
ig verið efnt til skákkynninga og
fjölteflis þar sem fjölmargir þekktir
stórmeistarar og Íslandsmeistarar
með Hróknum hafa tekið þátt, m.a.
Regína Pokorna, Luke McShane,
Ivan Sokolov, Nick de Firmian og
nú síðast Tomas Oral, sem fór um
Vestfirði.
Tomas var einmitt viðstaddur af-
hendingu gullpeninganna í gær. Við
fyrstu komu sína til Íslands sagðist
hann hafa fundið fyrir mikilli virð-
ingu í garð eldri stórmeistara okkar
og nú væru að koma upp margir
efnilegir skákmenn. Sagðist hann
hafa fundið fyrir gríðarlegum skák-
áhuga hjá krökkunum á ferðum sín-
um um landið, hér væri nægur efni-
viður til að vinna úr í framtíðinni.
Hafliði Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
KB banka, tók fyrir hönd bankans
við gjöf Hróksins. Hann þakkaði
skákfélaginu fyrir ánægjulegt sam-
starf og óskaði því velgengni í kom-
andi verkefnum. Hafliði rifjaði einn-
ig upp aðkomu bankans, fyrst
Kaupþings, að skákstarfi félagsins
en bankinn var helsti bakhjarl
Hróksins á Íslandsmótum síðustu
ára.
Fjöldi verkefna framundan
Þrátt fyrir einbeitta neitun sína í
fyrstu sagði Hafliði að Hrafni og
samstarfsfélögum hans hefði tekist
að fá sig til að undirrita einn stærsta
styrktarsamning bankans.
Komandi verkefni Hróksins eru
næg því auk fyrrnefndra skólaheim-
sókna og bókagjafa ætlar félagið
m.a. að hefja útgáfu Krakkablaðs og
Árbókar Hróksins næsta haust,
setja upp skákskóla á Netinu, efna
til fjögurra alþjóðlegra skákhátíða á
landsbyggðinni á næstu tólf mán-
uðum, halda áfram landnámi skák-
arinnar á Grænlandi og aðstoða
UMFÍ við að stofna skákdeildir inn-
an ungmennafélaganna. Sú fyrsta
verður stofnuð 27. maí nk. hjá Fjölni
í Grafarvogi. Þá ætlar Hrókurinn að
halda fyrsta alþjóðlega kvennaskák-
mótið hér á landi í haust, sem helgað
verður minningu Haraldar Blöndal,
lögmanns og eins stofnenda skák-
félagsins.
Hrókurinn ekki
lengur keppnis-
félag í skák
Morgunblaðið/Sverrir
Hrafn Jökulsson afhendir Hafliða Kristjánssyni frá KB banka gullpen-
ingasafn Hróksins til varðveislu og eignar.
Gaf KB banka alla 13 gullpeninga
sína af Íslandsmóti skákfélaga
FORSÆTISRÁÐHERRA Bad-
en-Württemberg, Erwin Teufel,
kom til Íslands í gær og stendur
heimsókn hans fram á fimmtu-
dag. Baden-Württemberg er
þriðja stærsta landið í Sam-
bandslýðveldinu Þýskalandi með
ríflega tíu milljónir íbúa.
Fyrir hádegi í dag mun Teufel
eiga fundi með forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni, og
Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra. Þá mun
Teufel heimsækja Nýorku og
skoða handritasýninguna í Þjóð-
menningarhúsinu en eftir há-
degi sækir hann Alcan í
Straumsvík heim. Á morgun
mun Teufel ræða við Davíð
Oddsson forsætisráðherra og
eiga fund með Þýsk-íslenska
verslunarráðinu.
Forsætisráðherra Baden-
Württemberg á Íslandi
UM 40 þúsund þýskir ferðamenn
komu hingað til lands á síðasta ári og
fjölgaði um 19% milli ára. Horfur eru
á að ferðamönnum fjölgi töluvert í
ár. Ástæðuna fyrir þessari fjölgun
má rekja til aukinnar markaðssetn-
ingar, bættu aðgengi að upplýsing-
um um Ísland sem og auknu fram-
boði á leiguflugi. Um 90% þýsku-
mælandi ferðamanna bóka ferðir
hingað til lands á Netinu.
Til að kynnast Íslandi frá ýmsum
hliðum eru nú staddir hér á landi um
60 fjölmiðlamenn, frá Þýskalandi og
Austurríki, í boði Thomas Cook, eins
stærsta ferðaheildsala í heimi, en
dagskrá þeirra var skipulögð af
íslensku ferðaskrifstofunni Katla
Travel.
Thomas Cook stendur árlega fyrir
ráðstefnu blaðamanna á mismunandi
stöðum í heiminum en ávallt á
áfangastöðum sem fyrirtækið vill
vekja sérstaka athygli á. Pétur Ósk-
arsson hjá Katla Travel segir ástæð-
una fyrir því að Ísland varð nú fyrir
valinu vera þá að áhugi á Íslandi hef-
ur aukist mikið og Ísland er „rísandi
stjarna“ meðal áfangastaða fyrir-
tækisins. Katla Travel hefur verið
samstarfsaðili Thomas Cook hér á
landi frá árinu 1997 og segir ferðir á
vegum skrifstofunnar hingað til
lands mjög fjölbreyttar, bæði fyrir
einstaklinga sem og stóra hópa.
Listir, menning, orkumál og
stjórnmál kynnt sérstaklega
Blaðamennirnir, sem hér eru
staddir á ráðstefnunni, hafa fengið
að kynnast ýmsu sem land og þjóð
hefur upp á að bjóða. Eftir fyrir-
lestra og kynningar í gær fóru þeir í
ferðir út fyrir bæinn, t.d. að Gullfossi
og Geysi, í hvalaskoðun og á hestbak.
Þá fengu þeir að velja sér þema; list-
ir og menningu, stjórnmál eða orku-
mál og fóru í ferðir sem þessum
flokkum tengdust, t.d. á Nesjavelli.
Bjarnheiður Halldórsdóttir hjá
Katla Travel segir listir og menn-
ingu sífellt verða meira aðdráttarafl
og nefnir í því sambandi bækur Arn-
alds Indriðasonar sem slegið hafa í
gegn í Þýskalandi.
Haukur Birgisson, starfsmaður
Ferðamálaráðs í Frankfurt, segir að
náttúran sé sá þáttur sem hingað til
hafi verið auglýstur mest enda sér-
staða Íslands talin felast í. Hann seg-
ir Ísland hafa aðdráttarafl allt árið
og með átaki hefur sjónum ferða-
manna í auknum mæli verið beint að
öðru en eingöngu náttúrunni.
„Margföldunaráhrif verða svo mikil í
ferðaþjónustunni,“ segir Haukur.
„Hingað koma margir til að kynna
sér menningu og listir og Ísland hef-
ur verið kynnt á þann hátt.“
Haukur segir sjónvarpsþætti um
Ísland hafa bein áhrif á fjölda fyr-
irspurna um ferðir hingað til lands.
„Það verður að vera auðvelt að nálg-
ast upplýsingar og það er auðveldara
nú en áður, t.d. vegna Netsins og
stórra aðila í ferðaþjónustu.“
Pétur og Bjarnheiður segja ráð-
stefnur sem þá sem nú er haldin hafa
langtímaáhrif. „Umfjöllun og grein-
ar um Ísland hafa mikið að segja,“
segir Bjarnheiður. „Umfjöllun
blaðamanna er meira virði en aug-
lýsingar. Þess vegna er þetta mik-
ilvægt til lengri tíma litið.“
Erlendir blaðamenn kynna sér ferðaþjónustu á Íslandi
Aðdráttarafl lista og
menningar að aukast
Haukur Birgisson hjá Ferðamálaráði í Frankfurt ásamt Bjarnheiði Hall-
dórsdóttur og Pétri Óskarssyni hjá Katla Travel.