Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 11
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ
hefur gefið leyfi til veiða á 25 hrefn-
um í vísindaskyni á þessu ári. Í rann-
sóknaáætlun sem kynnt var á síðasta
ári var gert ráð fyrir að veiddar yrðu
100 hrefnur á þessu ári. Ekki verða
hafnar veiðar á langreyðum og sand-
reyðum á árinu eins og til stóð. Áætl-
unin, sem var til tveggja ára, hefur
aftur á móti verið lengd um óákveð-
inn tíma.
Hvalarannsóknaáætlun Hafrann-
sóknastofnunarinnar gerir ráð fyrir
því að 200 hrefnur, 200 langreyðar
og 100 sandreyðar verði veiddar á
rannsóknatímabilinu, sem upphaf-
lega var gert ráð fyrir að gæti staðið
í tvö ár.
Í fyrra hófst framkvæmd hrefnu-
hluta áætlunarinnar, en ekki hefur
enn verið ákveðið að hefja fram-
kvæmd langreyðar- eða sandreyðar-
hlutans. Einnig var ákveðið að taka
færri dýr en upphaflega var gert ráð
fyrir og voru 36 hrefnur teknar árið
2003. Rannsóknaáætlunin er þó
óbreytt þar sem gert er ráð fyrir að
200 hrefnur verði teknar á rann-
sóknatímabilinu, sem verður þar
með lengra en upphaflega var ráð-
gert, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Við framkvæmd rannsóknaáætl-
unarinnar á þessu ári verður haldið
áfram á sömu braut og verða veið-
arnar aftur í frekar smáum stíl.
Þannig verða gefin út leyfi fyrir því
að veiddar verði allt að 25 hrefnur á
þessu ári. Veiðunum verður stjórnað
af Hafrannsóknastofnuninni.
Samkvæmt 8. gr. stofnsamnings
Alþjóðahvalveiðiráðsins fylgir rétt-
inum til að stunda hvalveiðar í vís-
indaskyni sú skuldbinding að nýta
afurðir hvalanna sem eru veiddir.
Afurðir þeirra hrefna sem verða
veiddar í ár verða nýttar eftir því
sem hægt er þótt veiðarnar séu í vís-
indalegum tilgangi, eins og raunin er
almennt með þær afurðir sem falla
til við rannsóknastarfsemi Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Í tilkynningu sjávarútvegsráðu-
neytisins kemur fram að vísbending-
ar séu um að stærð hrefnustofnsins
geti haft veruleg áhrif á afraksturs-
getu nytjafiska, þ.m.t. þorsks, en
mikil óvissa sé um þessi áhrif, eink-
um vegna skorts á gögnum um fæðu-
samsetningu hrefnu hér við land.
„Meginmarkmið þessara rannsókna
Hafrannsóknastofnunarinnar er að
kanna betur hlutverk hrefnu í vist-
kerfi hafsins í kringum Ísland. Ljóst
er að nytjafiskar eru hluti af fæðu
hrefnu, en samspil fiska og hrefnu í
vistkerfinu er lítt þekkt. Í ljósi mik-
ilvægis sjávarútvegs fyrir Ísland er
nauðsynlegt að hafa góðar vísinda-
legar upplýsingar um áhrif hrefnu á
afrakstur nytjastofna og að geta sett
hrefnu með fullnægjandi hætti inn í
fjölstofnalíkön. Rannsóknirnar hafa
jafnframt önnur markmið, sem m.a.
tengjast líffræði hrefnu og erfða-
fræði,“ segir í tilkynningunni.
Í tilefni ákvörðunar sjávarútvegs-
ráðherra hefur Hafrannsóknastofn-
unin opnað nýjan upplýsingavef um
rannsóknirnar. Þar munu upplýsing-
ar um gang rannsóknanna og nið-
urstöður birtast auk ítarlegra upp-
lýsinga um sögu hrefnurannsókna
og veiða, eðli og stöðu yfirstandandi
verkefnis.
Slóðin er: www.hafro.is/hrefna.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Alls verða veiddar 25 hrefnur í vísindaskyni í sumar en ekki 100 eins og
áætlanir gerðu ráð fyrir.
Veiðar leyfðar
á 25 hrefnum
ÁRNI M.
Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra
segir að með því
að veiða aðeins 25
hrefnur í vís-
indaskyni á þessu
ári, en ekki 100
eins og hvala-
rannsóknaáætlun
Hafrannsóknastofnunarinnar gerði
ráð fyrir, sé verið að taka tillit til
ólíkra viðhorfa til veiðanna.
„Þessar veiðar eru viðkvæmt mál,
líkt og flestir vita, og við viljum
framkvæma þær í sem mestri sátt
eða sem minnstri ósátt í því umhverfi
sem við búum við. Við komumst af
með að veiða ekki fleiri en 25 hrefnur
á þessu ári til að viðhalda vísinda-
legum grunni veiðanna.“
Árni segir að viðbrögðin við vís-
indaveiðunum í fyrra hafi hins vegar
ekki verið sérstaklega mikil. Hann
vilji aftur á móti hafa vaðið fyrir neð-
an sig í þessum efnum. Hann segir
að hvalarannsóknaáætlun Hafrann-
sóknastofnunarinnar verði framfylgt
en á lengri tíma en upphaflega var
ætlað. Aðspurður segist Árni ekki
geta gert sér grein fyrir því hvort
veiðar á 25 hrefnum veki minni við-
brögð en veiðar á 100 hrefnum. „Ég
vona aðeins að fólk bregðist við því
sem við erum að gera með skynsemi
og sanngirni. Við viljum að öllum sé
ljóst að við viljum fara eins varlega í
þessar veiðar og frekast er kostur.“
Árni segir ýmsar ástæður fyrir því
að ekki verða hafnar vísindaveiðar á
langreyði og sandreyði í sumar.
Bæði séu veiðarnar umdeildar og
ekki sé eins knýjandi að afla upplýs-
inga um stórhvelin og hrefnu.
Vilja fara
varlega
Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra
Árni M. Mathiesen
JÓHANN Sigur-
jónsson, forstjóri
Hafrannsókna-
stofnunarinnar,
segir ennþá stefnt
að því að veiða 200
hrefnur, líkt og
gert er ráð fyrir í
hvalarannsókna-
áætlun stofnunar-
innar. Aftur á
móti sé nú ljóst að þetta markmið ná-
ist ekki á tveimur árum, eins og að
var stefnt í upphafi, heldur á lengra
tímabili.
Jóhann segir að breytingum á upp-
haflegri hvalarannsóknaáætlun fylgi
bæði kostir og gallar í rannsóknalegu
tilliti. „Sýnatakan í ár mun taka
skemmri tíma en við ætluðum. Auð-
vitað hefði verið hagkvæmara að
veiða fleiri dýr í sumar en við teljum
þetta viðunandi fjölda ef heildarfjöld-
inn verður sá sami og kveðið er á um í
áætluninni. Við sjáum fram á að við
munum veiða þessi dýr á helmingi
lengri tíma en upphaflega var ætlað.
Við erum fyrst og fremst að afla upp-
lýsinga um fæðuval á mismunandi
svæðum og með því að dreifa veiðinni
yfir lengri tíma sjáum við betur
breytileika á milli ára.“
Jóhann segir að veiðarnar hefjist
við fyrsta tækifæri og framkvæmd
þeirra verði með svipuðu sniði og á
síðasta ári.
Hann segir að áætlun um veiðar og
rannsóknir á langreyði og sandreyði
standist sömuleiðis, þó að veiðarnar á
þessum tegundum hefjist ekki í sum-
ar. Ennþá sé miðað við að veiddar
verði 200 langreyðar og 100 sand-
reyðar en engin ákvörðun liggi fyrir
um hvenær þessar veiðar hefjast.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar
Ennþá stefnt á
að veiða 200 hrefnur
Jóhann
Sigurjónsson
GUÐMUNDUR
Gestsson, varafor-
maður Hvala-
skoðunarsamtaka
Íslands, segir að
hvalveiðar skaði
ferðaþjónustu á
Íslandi, burtséð
frá því hvort
veiddir séu fáir
hvalir eða margir.
Guðmundur segir að vísindaveið-
arnar muni koma mjög við kaunin á
hvalaskoðunarfyrirtækjum og skipti
þá engu máli hvort hvort veiddar
verði 25 hrefnur eða 100. Hann segir
hvalveiðar og hvalaskoðun engan veg-
inn fara saman. „Okkar helsta sölu-
vara er forvitnu hrefnurnar, sem við
köllum stundum „skoðara“ því þær
eru gæfar og koma alveg upp að skip-
unum. Þessar hrefnur liggja aug-
ljóslega best við höggi og verða því
drepnar fyrst. Það eru miklir hags-
munir í húfi, sérstaklega fyrir ferða-
þjónustuna, því ég hygg að flestir séu
sammála um að hvalveiðar verði aldr-
ei stundaðar í atvinnuskyni framar.
Það hefur auk þess aldrei fengist
skýring á því hvað tekur við þegar
vísindaveiðunum sleppir.“
Guðmundur gerir út hvalaskoð-
unarbátinn Hafsúluna og segir hann
erlenda fjölmiðla hafa sýnt áhuga á
því að fylgjast með hvalveiðum við Ís-
land. „Það hafa 3 erlendar sjónvarps-
stöðvar haft samband við mig til að
forvitnast um það hvort hvalveiðar
séu hafnar við Ísland. Þær hafa sýnt
áhuga á að koma um borð og fylgjast
með veiðunum þegar þær hefjast. Að
mínu viti eru menn að leika sér að eld-
inum, því almenningsálitið mun snú-
ast okkur í óhag um leið og erlendir
fjölmiðlar fara að sýna málinu
áhuga,“ segir Guðmundur.
Leika sér
að eldinum
Guðmundur Gestsson,
varaformaður Hvalaskoð-
unarsamtaka Íslands
Guðmundur
Gestsson
ÚR VERINU
KÚABÆNDUR samþykktu í gær
nýjan mjólkursamning sem tekur
gildi 1. september á næsta ári og
gildir til 31. ágúst 2012.
Samningurinn var samþykktur
með 961 atkvæði gegn 43. Var kos-
ingaþátttaka 67%, en 1.529 manns
eru á kjörskrá.
Meðal meginefna samningsins eru
þau að framleiðslustýring mjólkur-
framleiðslu helst óbreytt, auk þess
sem ákvæði um skiptingu heildar-
greiðslumarks mjólkur niður á lög-
býli helst einnig óbreytt.
Breytingar verða á stuðningsfyr-
irkomulagi ríkisins sem styður kúa-
bændur með föstum beingreiðslum í
stað þess að vera ákveðið hlutfall af
mjólkurverði. Meðal annarra breyt-
inga má nefna að um 20% eða um 800
milljónir kr., af heildarstuðningi rík-
isins, fara í svokallaðar „grænar“ og
„bláar“ greiðslur. Eru „grænar“
greiðslur skilgreindar sem ófram-
leiðslutengdar greiðslur en „bláar“
sem framleiðslutakmarkandi
greiðslur. Með þessu er ætlað að
undirbúa farveginn fyrir hugsanleg-
ar breytingar er varða skuldbinding-
ar Íslands gagnvart Alþjóðavið-
skipta- stofnuninni (WTO).
Á samningstímanum munu út-
gjöld ríkisins lækka um 234 milljónir
kr. eða um 1% á ári.
Bændur jákvæðir
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtakanna, segist vera
ánægður með þátttökuna í kosning-
unum en einnig með það hversu já-
kvæðir bændur voru gagnvart þeirri
formbreytingu á stuðningsforminu,
sem sé nauðsynleg til þess að mæta
alþjóðakröfum. „Sem segir okkur
það að bændur eru tilbúnir að aðlaga
sig þeim reglum sem uppi eru hverju
sinni. Kannski öfugt við það sem oft
er haldið fram,“ segir Haraldur.
Nýr mjólkursamn-
ingur samþykktur
EFTIR breytingar á lögum um lög-
menn, sem samþykktar voru á Al-
þingi á síðasta degi þingsins, geta
allir þeir, sem lokið hafa fullnaðar-
námi í lögfræði með meistaraprófi
eða embættisprófi frá lagadeild há-
skóla, sótt um réttindi til að vera
héraðsdómslögmaður. Fyrir breyt-
ingu laganna var eingöngu nemend-
um sem útskrifuðust frá Háskóla Ís-
lands heimilt að sækja um þessi
réttindi. Nú er það ekki lengur skil-
yrði. Um þetta var deilt á Alþingi
fyrir ári síðan og meðal háskóla-
manna og frestaðist afgreiðsla máls-
ins um eitt ár. Greiddi enginn þing-
maður atkvæði gegn þessum breyt-
ingum sl. föstudag og var þetta
samþykkt með 48 atkvæðum.
„Þetta þýðir að þeir sem ljúka
meistaraprófi frá lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík uppfylla almenn
menntunarskilyrði til að hljóta lög-
mannsréttindi. Þannig að hér er um
mjög þýðingarmikið réttindamál að
ræða,“ segir Þórður S. Gunnarsson,
deildarforseti lagadeildar HR.
Hann segir mikið baráttumál í
höfn. Þessi breyting hafi verið nauð-
synleg þar sem fleiri skólar en Há-
skóli Íslands bjóði upp á laganám.
Nú sé hægt að stunda laganám í Há-
skólanum í Reykjavík, Viðskiptahá-
skólanum á Bifröst og Háskólanum á
Akureyri. Í vor voru fyrstu
viðskiptalögfræðingarnir útskrifaðir
frá Bifröst og verður boðið upp á
meistaranám í haust. Fyrstu nem-
endur sem ljúka grunnnámi í lög-
fræði frá HR útskrifast vorið 2005 og
um haustið verður boðið upp á meist-
aranám við skólann.
Þórður segir nú búið að jafna
stöðu skólanna gagnvart Háskóla Ís-
lands, sem áður hafði þessa sérstöðu.
Þessi breyting skipti sköpum fyrir
nemendur skólanna og öll óvissa um
þetta efni hafi verið af hinu illa.
Reyndar hefðu stjórnendur HR allt-
af gengið út frá því að þessi breyting
næði fram að ganga. Það hefði ekki
fengist staðist að mismuna laganem-
um eftir því við hvaða lagadeild þeir
stunduðu nám.
Breytingar á lögum um lögmenn
Sérstaða laga-
deildar HÍ rofin
SAMTÖK atvinnulífsins (SA) og Fé-
lag bókagerðarmanna hafa gert með
sér kjarasamning sem gildir til árs-
loka 2007.
Almennar launahækkanir og
hækkanir á lífeyrisframlögum eru
þær sömu og í fyrri samningum sem
SA hafa gert, að því er segir í frétt
samtakanna. Þá eru kauptaxtar
bókagerðarmanna færðir nær
greiddum launum á svipaðan hátt og
gert hefur verið í öðrum samningum.
Samningurinn kveður á um 3,25%
upphafshækkun launa frá 17. maí en
einnig eru gerðar umtalsverðar
breytingar á vaktakafla kjarasamn-
ingsins og er samhliða jafnaðar-
vaktaálagi fyrir reglubundnar vaktir
kveðið á um vaktaálag ef vaktir eru
ávallt eða að verulegum hluta á sama
tíma sólarhringsins.
Þá er sérstaklega samið um yfir-
vinnukaup starfsmanna í vaktavinnu
og ákvæði um uppsagnarfrest starfs-
manna taka verulegum breytingum,
heimilt verður að færa fimmtu-
dagsfrídaga og kafli um iðnnema var
endurskoðaður að því er greint er frá
í frétt SA.
3,5% upp-
hafshækkun
launa
Bókagerðarmenn
og SA semja
TILLAGA Jó-
hönnu Sigurð-
ardóttur, þing-
manns Sam-
fylkingarinnar,
um að allir sem
kaupa sína fyrstu
íbúð fái lán sem
nemi 90% af
kaupverði, óháð
tekjutengdum
skilyrðum eins og nú gildi, var felld
á Alþingi skömmu fyrir þinglok.
„Hér er stigið lítið skref til að
koma á 90% húsnæðislánum sem
var eitt meginloforð framsókn-
armanna fyrir síðustu kosningar.
Framsóknarmenn lofuðu að frum-
varp um 90% lán yrði lagt fram í
upphafi þessa þings og enn bólar
ekkert á þessu frumvarpi. Á það
reynir nú hvort þingmenn Fram-
sóknarflokksins meina eitthvað
með því sem þeir sögðu fyrir síð-
ustu kosningar,“ sagði Jóhanna.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra sagði þingmenn vita að mál
þetta sé til skoðunar hjá Eftirlits-
stofnun EFTA „og þangað til nið-
urstaða liggur fyrir er ekki tíma-
bært að taka það hér upp og ég segi
því nei,“ sagði ráðherrann.
Tillaga um
90% íbúða-
lán felld
Jóhanna
Sigurðardóttir