Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 33
✝ Þorbjörn Pét-ursson fæddist
18. janúar 1927.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð miðviku-
daginn 26. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Pétur
Pétursson, f. 10.3.
1895, d. 14.7 1986,
og Guðrún Þor-
bjarnardóttir, f. 17.
september 1903, d.
22. maí 1931. Al-
systkini Þorbjörns
eru Hallgrímur, f.
1923, d. 1993, Guðfinna Lea, f.
1925, d. 1985 og Sigríður, f.
1929. Hálfsystkini Þorbjörns
samfeðra eru Jón, f. 1914, d.
2003, Trausti, f. 1937, Pétur, f.
1938, Elín, f. 1940, Ester, f. 1943,
Sara Ruth, f. 1945 og María
Svanhildur, f. 1955.
Þorbjörn kvæntist 22. nóvem-
ber árið 1947 eftirlifandi eigin-
konu sinni Erlu Svanhvíti Guð-
mundsdóttur, f. 9. apríl 1928, og
eiga þau fimm börn. Þau eru: A)
Guðrún Jóna skrifstofumaður, f.
eru Elvar Örn og Ingólfur Björn.
Börn Stefáns eru einnig Sigur-
laug Björg og Þórir Hall. Þor-
björn átti einnig barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Þorbjörn missti móður sína að-
eins þriggja ára að aldri og ólst
eftir það upp hjá móðurömmu
sinni Oddrúnu Bergþórsdóttur
og móðursystur Jónu Þorbjarn-
ardóttur.
Þorbjörn stundaði nám í Hér-
aðsskólanum á Laugavatni. Á
yngri árum var hann mikið í
frjálsum íþróttum og handbolta.
Þorbjörn vann lengi sem versl-
unarmaður t.d. var hann mörg ár
í herrafataversluninni Geysi.
Seinna fór hann á sjó og var til
margra ára matsveinn á togar-
anum Ögra. Þegar heilsan fór að
bila kom hann í land og endaði
sinn starfsferil í Sundhöll
Reykjavíkur. Þorbjörn sat í
stjórn ýmissa félagasamtaka og
má þar nefna stjórn Frjáls-
íþróttadeildar Ármanns og var
hann einnig varaformaður
Frjálsíþróttasambands Íslands.
Þorbjörn sat líka í Sjómanna-
dagsráði og Matsveinafélaginu,
en þar var hann gerður að heið-
ursfélaga árið 1997 fyrir vel unn-
in störf.
Útför Þorbjörns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
4. febrúar 1948, gift
Jóni Vilhjálmssyni
málarameistara og
eiga þau fjögur börn.
Þau eru Erla Þor-
björg, Vilhjálmur,
María Rós og Jó-
hannes Oddur. B)
Guðmundur hús-
gagnasmiður, f. 30.
júlí 1949, kvæntur
Ingibjörgu Þorfinns-
dóttur og eiga þau
þrjú börn. Þau eru
Þorfinnur, Erla
Svanhvít og Daníel.
C) Oddrún skrifstofu-
stjóri, f. 12. september 1953, gift
Gunnari Jónassyni og eiga þau
tvo syni. Þeir eru Jónas og Ró-
bert. D) Svanþór málarameistari,
f. 22. október 1957, kvæntist
Höllu Sveinsdóttur, d. 12. febr-
úar 2003. Synir þeirra eru Þor-
björn, Sveinn Teitur og Bjarki
Dagur. Sambýliskona Svanþórs
er Petrína Ólafsdóttir. Dóttir
Petrínu er Íris Pétursdóttir. E)
Katrín M. kennari, f. 4. júní 1962,
gift Stefáni Ingólfssyni tónlistar-
manni og eiga þau tvo syni. Þeir
Pabbi var mikill íþróttaunnandi og
mikill keppnismaður, fagnaði sigrum
og sætti sig við ósigra. Ávallt sætti
hann sig við úrskurð dómarans og
undi niðurstöðu hans.
Nú hefur dómarinn flautað til
leiksloka í lífsleik þessa mikla
keppnismanns og leyfi ég mér að
fullyrða að aldrei hafi hann verið
jafnfeginn leikslokum í nokkrum
kappleik sem þessum, enda þrek að
þrotum komið.
Ótal minningar hrannast upp við
andlát pabba og mun ég einbeita
mér að minnast þeirra bestu enda af
nógu að taka og ævinlega mun ég
verða honum þakklátur fyrir það
uppeldi sem hann gaf okkur systk-
inunum, þar sem hann lagði áherslu
á heiðarleika og standa við þær
skuldbindingar sem við gáfum.
Pabbi átti við erfiðan sjúkdóm að
etja síðustu árin en bjó engu að síður
á heimili sínu og móður minnar þar
til undir það síðasta að hann flutti að
hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Öll
þessi ár stóð móðir okkar við bakið á
honum, hjúkraði og sinnti af mikilli
ást og alúð. Eftir að pabbi flutti á
Sunnuhlíð leið ekki sá dagur að
mamma kæmi ekki og reyndi að
gera honum lífið léttara.
Elsku mamma, þú hefur unnið
mikið afrek og veit ég að pabbi mun
verða þér ævinlega þakklátur, þú ert
hetja.
Það er mín heitasta ósk að hann
hljóti frið og ró og blessuð sé minn-
ing hans.
Að lokum viljum við systkinin
þakka starfsfólki Sunnuhlíðar frá-
bæra umönnun og gott viðmót gagn-
vart pabba.
Svanþór.
Það er alltaf erfittt að kveðja sína
nánustu en þegar veikindi hafa
bankað upp á er dauðinn líkn þeim
sem þjást. Mér finnst nú að pabbi
hafi fengið þá hvíld sem hann óskaði
sér, eftir sitjum við ættingjar og
hugsum til hans með hlýju og sökn-
uði. Pabbi var heiðarlegur og rétt-
sýnn maður og kenndi mér að
standa við þá ábyrgð sem mér bar.
Hann kenndi mér líka að varast for-
dóma og hugsaði hann ávallt fallega
til allra, sama hvar í þjóðfélaginu
þeir stóðu. Mér er sérstaklega minn-
isstætt þegar hann var á togaranum
Ögra, hvað hann lagði sig fram við
að læra mál heyrnarlausra til að
geta átt í samskiptum við þá heyrn-
arlausu einstaklinga sem þar unnu
með honum, enda tóku þeir ávallt á
móti honum með bros á vör.
Lífshlaup pabba var ekki alltaf
dans á rósum og skiptust á skin og
skúrir í lífi hans. Það var þó aldrei
langt í húmorinn þegar vel stóð á og
bros hans sýndi hversu hlýr og góð-
ur maður hann var. Pabbi var stoltur
og fannst mikilvægt að búa fjöl-
skyldu sinni fallegt heimili. Hann
vann oft myrkranna á milli til að
geta byggt sitt fyrsta hús í Sólheim-
um og síðar í Hrauntungunni. Við
systkinin höfum ávallt verið í fyrsta
sæti hjá foreldrum okkar og þau allt-
af gert fyrir okkur það sem þau hafa
mögulega getað. Pabba leið vel eftir
að þau mamma fluttu í Gullsmárann
og naut sín vel í göngutúrum um
Kópavoginn meðan heilsan leyfði.
Hann hefur verið strákunum mín-
um góður og traustur afi og ávallt
hugsað vel um þá. Þeir nutu þess að
vera samvistum við hann þegar hann
kom í heimsókn til okkar á Akureyri
eða þegar við komum suður og gist-
um hjá þeim. Minning um góðan,
hlýjan og skemmtilegan pabba og
afa lifir í hjörtum okkar. Megi hann
hvíla í friði. Blessuð sé minning
hans.
Katrín M. Þorbjörnsdóttir.
Nú hefur elskulegur mágur minn
lokið lífsgöngu sinni, eftir langvar-
andi veikindi. Með þessum línum vil
ég þakka góðum vini fyrir samfylgd-
ina í þessu lífi, elsku hans og um-
hyggju.
Ég var þess aðnjótandi að alast
upp með annan fótinn á heimili Þor-
björns og Erlu systur minnar og
þeirra börnum.
Ég minnist allrar natni hans og
ljúfmennsku sem hann veitti okkur
börnunum, þegar við vorum að vaxa
úr grasi og ekki síður góðs vinar
þegar fullorðinsárin tóku við.
Þorbjörn var lánsamur, átti ynd-
islega eiginkonu Erlu Svanhvíti
Guðmundsdóttur sem lifir mann
sinn. Hún hefur alla tíð sinnt fjöl-
skyldu sinni af mikilli alúð og elsku,
ekki síst Þorbirni í hans veikindum.
Stóð hún sem klettur og annaðist
hann af kærleika og ást.
Þorbjörn átti fjölbreytta starfs-
ævi, öll störf innti hann af hendi af
trúmennsku og samviskusemi. Hann
var fríður maður og mikið snyrti-
menni, mikill unnandi klassískrar
tónlistar, af honum lærði ég að meta
góða tónlist.
Já, minningarnar streyma fram í
hugann eins og fallegir tónar úr stof-
unni í Sólheimum.
Ég kveð þig, kæri vinur, með
söknuði, hafðu þökk fyrir allt og allt
guð blessi þig.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert
eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt
látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp
í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyr-
ir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé,
tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran.)
Elsku Erla og fjölskylda, ég sam-
hryggist ykkur og bið góðan guð að
blessa ykkur.
Inga Magnúsdóttir.
Afi minn, Þorbjörn Pétursson, er
farinn. Alltaf tóku hann og amma vel
á móti mér þegar ég mætti um helg-
ar til að gista jafnvel að þeim for-
spurðum. Við áttum yndislegar
stundir, afi stundum stífur og þver,
en alltaf akkúrat. Afi var meinstr-
íðinn karl og oftar en ekki sátum við
og spjölluðum þá var alltaf hlegið.
Þessi skondni karl var nefnilega afi
minn. Það er ekki langt síðan við sát-
um í Sunnuhlíð og hlógum saman,
honum fannst svo fyndið þegar ég
var nærri dottin af stólnum sem ég
sat á. Þetta var síðasti hlátur afa í
mín eyru. Ég veit að nú hvílist hann
vel. Ég sakna stundanna með afa
mínum.
Elsku amma, mér þykir vænt um
þig og þú átt mig alltaf að. Guð
geymi hann afa minn Þorbjön og
blessi ávallt minningu hans.
Ykkar
María Rós.
ÞORBJÖRN
PÉTURSSON
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem veittu okkur
ómetanlega aðstoð og auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur og
ömmu,
ÁSDÍSAR E. GARÐARSDÓTTUR,
Sæbóli 41,
Grundarfirði.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deildar 11E á Landspítala við
Hringbraut.
Svanur Tryggvason,
Garðar Svansson, Marzena Kilanowska,
Arna Svansdóttir, Júlíus Jóhannsson,
Tryggvi Svansson, Auður G. Sigurðardóttir,
Guðrún Magnúsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
systir og amma,
HELGA BIRNA ÞÓRHALLSDÓTTIR,
Langholtsvegi 108b,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtu-
daginn 3. júní kl. 15.00.
Ragnar Blöndal Birgisson,
Oddný Sigbjörnsdóttir,
Þórhallur Viðar Atlason, Dagný Gísladóttir,
Sigurður Ágúst Marelsson,
Oddný Blöndal Ragnarsdóttir,
Valdís María Ragnarsdóttir,
Kristín Ragnarsdóttir,
Stefán Þórhallsson, Sigríður Ingvarsdóttir,
Elín Þórhallsdóttir, Ellert Eggertsson,
Emelía Rut Þórhallsdóttir,
Eyrún Aníta Þórhallsdóttir.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
EGILL ÞORFINNSSON
skipasmiður,
Suðurgötu 20,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
sunnudaginn 30. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Steinunn Egilsdóttir, Viðar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
sonur,
SIGURÐUR FRÍMANN ÞORVALDSSON,
Brautarási 14,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut laugardaginn 29. maí.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn
4. júní kl. 11.00.
Erla Margrét Frederiksen,
Sverrir Sigurðsson, Sigrún Erla Sigurðardóttir,
Elín Dagmar Guðjónsdóttir.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐJÓN M. JÓNSSON
bifvélavirki,
Barðaströnd 8,
Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut á hvíta-
sunnudag, sunnudaginn 30. maí.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstu-
daginn 11. júní kl. 13.30.
Hólmfríður Benediktsdóttir,
Magnús Benedikt Guðjónsson, Ólöf Jóna Jónsdóttir,
Ása Hrönn Magnúsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SIGURÐUR B. MAGNÚSSON
fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður,
(Siggi á Nýjalandi),
Faxabraut 13,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 4. júní kl. 14:00.
Jóhannes Sigurðsson, Soffy Þóra Magnúsdóttir,
Unnur M. Sigurðardóttir,
Magnús Sigurðsson, Guðrún Ósk Ragnarsdóttir,
Jón F. Sigurðsson, Hildur Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.