Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 46
ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Arnar Magnússon fékk slæm- an hnykk á bakið í fyrstu grein, 110 m grindahlaupi, á síðari degi tugþrautarmótsins í Götzis um síð- ustu helgi. Sökum þessa hnykks gat hann ekki lokið keppni. Þann- ig var að Þjóðverjinn Sebastian Knabe sem hljóp á næstu braut við Jón Arnar í grindahlaupinu, hætti keppni í miðju hlaupi og í gremju sinni hrinti hann niður grind sem hrökk í veg fyrir Jón Arnar.Við þetta fipaðist Jóni Arnari, hann missti jafnvægið, fékk hnykk á bakið og gat því ekki beitt sér í kringlunni sem var næsta grein. Lítill tími var á milli fram að stönginni en þar fór Jón örugglega yfir 4,60 m en lenti illa í tilraun við 4,80. og við nánari skoðun kom í ljós að hryggjaliður hafði skekkst. Hjálp barst frá hnykkjara sem var á staðnum og nuddara og reyndi Jón að kasta spjótinu en gat aðeins gengið í at- rennunni og hné síðan niður í út- kastinu þar sem bakið læstist. Því var ekki möguleiki að taka þátt í síðustu greininni, 1.500 m hlaupi. „Það var því miður ekkert annað að gera en hætta,“ sagði Jón Arn- ar í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég hugsa Knabe þegjandi þörfina, ég veit ekki hvað hann var að hugsa,“ sagði Jón vonsvik- inn yfir að geta ekki lokið keppni enda benti árangurinn á fyrri deg- inum til þess að hann gæti farið nærri sínum besta árangri í þraut. „Ég hugsa að þessi meiðsli dragi ekki neinn dilk á eftir sér. Það var rétt tekið á þessu á staðn- um og síðan þarf bara að ná stíf- leikanum úr með nuddi og bökstr- um,“ segir Jón Arnar sem stefnir ótrauður á keppni í tugþraut í Ratingen í Þýskalandi eftir mán- uð. Heimsmethafinn Roman Sebrle frá Tékklandi vann tugþrautina, fékk 8.842 stig. Heimsmeistarinn Tom Pappas, frá Bandaríkjunum, varð annar með 8.732 stig og Dmitriy Karpov frá Kasakstan hreppti þriðja sætið með 8.512 stig. Alls fóru 12 keppendur yfir 8.000 stig. Jón Arnar Magnússon meiddist í baki í tugþrautarkeppninni í Götzis KNATTSPYRNA Undankeppni EM kvennalandsliða: Laugardalsvöllur: Ísland – Frakkland.....17 Efsta deild karla, Landsbankadeild: Fylkisvöllur: Fylkir – Keflavík .................20 Í KVÖLD BIRKIR Krist- insson, mark- vörðurinn þrautreyndi frá Vest- mannaeyjum, jafnaði leikja- metið í efstu deild í knatt- spyrnu hér á landi í gær- kvöld. Hann varði mark ÍBV gegn KR og spilaði sinn 294. leik í deildinni en með því jafn- aði hann met Gunnars Odds- sonar, sem lék 294 leiki með Keflavík, KR og Leiftri. Birkir stefnir óðfluga að því að verða fyrstur Íslendinga til að spila 300 leiki í efstu deild hér- lendis, en hann hefur nú leikið rúmlega 15 heil tímabil á Ís- landi án þess að missa úr leik. Birkir jafn- aði met Gunnars Leikurinn byrjaði mjög fjörlegaog eftir aðeins fimm mínútur voru vesturbæingar búnir að ná for- ystu og skora þar með sitt fyrsta mark í Eyjum í fjögur ár. Þar var að verki Kristinn Hafliðason með glæsilegu skoti utan vítateigs. Gunnar Heiðar, sem átti ótrúlega auðvelt með að stinga sér inn fyrir vörn KR, komst í sitt fyrsta góða færi á tíundu mínútu en náði ekki nógu hnitmiðuðu skoti og átti Krist- ján Finnbogason ekki í vandræðum með að verja. Mínútu síðar dró svo aftur til tíð- inda. Birkir Kristinsson, markvörð- ur ÍBV, missti boltann eftir fyrir- gjöf frá Arnari Jón Sigurgeirssyni og Kjartan Finnbogason komst í sannkallað dauðafæri en Matt Gar- ner varði á marklínu Eyjaliðsins. KR fékk hornspyrnu sem Arnar Gunnlaugsson tók, Kristján Sig- urðsson skallaði að marki og Einar Hlöðver Sigurðsson varði með hend- inni. Magnús Þórisson benti um- svifalaust á vítapunktinn og sýndi Einari rauða spjaldið. Arnar skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni. Vesturbæingar voru miklum mun sterkari á næstu mínútum og hefðu auðveldlega getað bætt við fleiri mörkum. Arnar Gunnlaugsson átti til að mynda hörkuskot sem Birkir varði vel en náði ekki að halda bolt- anum sem barst til Kjartans en skot hans fór naumlega framhjá. Það tók Eyjamenn tíma að endurskipu- leggja sinn leik eftir brottrekstur Einars og skipti Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, Andra Ólafssyni inn í vörnina fyrir annan sóknarmann liðsins, Magnús Má Lúðvíksson. Gunnar Heiðar komst aftur einn inn fyrir vörn KR á 33. mínútu en Krist- ján varði vel. Fimm mínútum síðar átti Arnar Jón Sigurgeirsson góða sendingu fyrir mark ÍBV þar sem Kristinn Hafliðason var í góðu færi en skot hans var framhjá. Arnar Jón átti sjálfur svo hörkuskot tveimur mínútum síðar en Birkir, sem í leiknum jafnaði leikjamet Gunnars Oddssonar í efstu deild á Íslandi, varði vel. Þegar um mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma fékk Gunn- ar Heiðar enn eina stungusend- inguna inn fyrir vörn KR, hann lék á Kristján Sigurðsson og setti bolt- ann glæsilega í fjærhornið. Þetta var nánast síðasta spyrna hálfleiks- ins og eygðu Eyjamenn þarna von um að ná einhverju út úr leiknum. Síðari hálfleikur fór rólega af stað en á 52. mínútu átti Kjartan Finn- bogason ágætt skot að marki Eyja- manna en Birkir var vandanum vax- inn og varði vel. Fá færi litu dagsins ljós næstu tuttugu mínúturnar, gestirnir bökkuðu og létu Eyja- mönnum sem voru meira með bolt- ann eftir svæði. Þegar rúmar tutt- ugu mínútur voru eftir átti Gunnar Heiðar glæsilega sendingu á fjær- stöng þar sem Ian Jeffs kom aðvíf- andi en Kristján Finnbogason varði glæsilega. Eyjamenn efldust enn frekar við þetta en gestirnir virkuðu slakir fram á við. Það var svo á 78. mínútu sem jöfnunarmarkið kom, Mark Schulte tók þá langt innkast af vinstri kant- inum, Einar Þór Daníelsson fram- lengdi knöttinn á fjærstöng þar sem Gunnar Heiðar var mættur og setti boltann undir Kristján í mark KR. Eftir þetta sóttu KR-ingar í sig veðrið og voru greinilega ósáttir við að fara aðeins með eitt stig frá Eyj- um. Þeir náðu þó ekki að skapa sér nein afgerandi færi og niðurstaðan jafntefli, það fyrsta hjá KR í sumar en þriðja hjá ÍBV. Frábær end- urkoma ÍBV EYJAMENN sýndu mikinn karakter þegar þeir náðu stigi gegn KR á heimavelli sínum í gærkvöldi. Eftir aðeins tólf mínútur var staðan orðin 0:2 og Eyjamenn orðnir einum leikmanni færri. En með mikilli baráttu og oft á tíðum skemmtilegu spili tókst þeim að jafna metin, þökk sé besta leikmanni vallarins, Gunnari Heiðari Þorvaldssyni. Sigursveinn Þórðarson skrifar KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild ÍA - KA .......................................................2:1 Gunnlaugur Jónsson 6., Haraldur Ingólfs- son 72. (víti), - Atli Sveinn Þórarinsson 54. Grindavík - Fram......................................3:2 Grétar Hjartarson 23., 28., Sinisa Valdimar Kekic 44. - Ríkharður Daðason 69., 75. (víti) ÍBV - KR.....................................................2:2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 45., 78. - Krist- inn Hafliðason 5., Arnar Gunnlaugsson 12. (víti) Víkingur - FH............................................1:1 Vilhjálmur R. Vilhjálmsson 75., - Ármann Smári Björnsson 54. Staðan: ÍA 4 2 2 0 5:2 8 Keflavík 3 2 1 0 6:3 7 Fylkir 3 2 1 0 4:1 7 ÍBV 4 1 3 0 5:4 6 FH 4 1 2 1 3:3 5 Grindavík 4 1 2 1 4:5 5 Fram 4 1 1 2 6:6 4 KR 4 1 1 2 5:7 4 KA 4 1 0 3 3:5 3 Víkingur R. 4 0 1 3 2:7 1 Markahæstir: Grétar Hjartarson, Grindavík.................... 3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 3 Arnar Gunnlaugsson, KR........................... 2 Atli Sveinn Þórarinsson, KA ...................... 2 Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV................... 2 Ríkharður Daðason, Fram ......................... 2 Sævar Þór Gíslason, Fylki.......................... 2 Þorbjörn Atli Sveinsson, Fylki .................. 2 Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram ..... 2 Bikarkeppni karla VISA-bikarinn, 2. umferð: Höttur - Sindri .......................................... 2:4 Völsungur - Leiftur/Dalvík...................... 6:2 KS - Magni ................................................ 6:1 Reynir S. - Hvíti riddarinn ...................... 4:2 Víkingur Ó. - Víðir .................................... 0:1 Grótta - Árborg......................................... 3:1 Selfoss - Númi........................................... 3:2 Breiðablik - Drangur ............................. 13:0 Afturelding - Skallagrímur ..................... 4:3 Fjölnir - Leiknir R ................................... 5:4  1:1, Fjölnir vann vítaspyrnukeppni. ÍH - ÍR....................................................... 4:5 Hamar - Ægir ........................................... 1:2 Tindastóll - Neisti H................................. 7:0 Leiknir F. - Fjarðabyggð ........................ 1:2  Sigurliðin eru komin í 32 liða úrslit ásamt KFS og HK. Bikarkeppni kvenna VISA-bikarinn, 1. umferð: Keflavík - ÍA ............................................. 1:4  ÍA mætir Stjörnunni. Haukar - FH ............................................. 0:8  FH mætir Fjölni Fylkir - Þróttur R..................................... 0:4  Þróttur R. mætir HK/Víkingi. ÍR - Fjölnir................................................ 2:5  Fjölnir mætir FH. Manchester-mótið England - Japan....................................... 1:1 Michael Owen 22., - Shinji Ono 53. Staðan: Japan 2 1 1 0 4:3 4 England 1 0 1 0 1:1 1 Ísland 1 0 0 1 2:3 0 Undankeppni HM 2006 Suður-Ameríka: Bólivía - Paraguay....................................2:1 Cristaldo 10., Suarez. 71., - Carlos Gamarra 32. Vináttulandsleikir Kína - Ungverjaland.................................2:1 Zhou Haibin 45., Zheng Zhi, vítasp. 90. - Krisztian Kenesei, vítasp. 6. Holland - Færeyjar...................................3:0 Rafael van der Vaart 30., Roy Makaay 51., Marc Overmars 59. Noregur Odd Grenland - Molde ..............................1:1 Staðan: Tromsö 9 6 1 2 18:8 19 Odd Grenland 9 4 4 1 16:10 16 Ham-Kam 9 4 4 1 10:7 16 Vålerenga 9 3 5 1 9:8 14 Brann 9 4 1 4 13:10 13 Rosenborg 9 3 4 2 13:13 13 Lyn 9 3 3 3 8:7 12 Viking 9 2 5 2 7:9 11 Lilleström 9 2 4 3 11:11 10 Molde 9 2 4 3 10:11 10 Stabæk 9 3 1 5 10:14 10 Bodö/Glimt 9 3 1 5 10:15 10 Fredrikstad 9 2 2 5 13:19 8 Sogndal 9 1 3 5 12:18 6 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Vesturdeild, úrslit: LA Lakers - Minnesota ....................... 96:90  Lakers sigraði, 4:2, og mætir Detroit eða Indiana í úrslitum um NBA-titilinn. MAGNÚS Gylfason fagnaði vel og innilega að leikslokum. „Það er ekki annað hægt að segja en þetta hafi verið frábær endurkoma hjá mínum mönnum.“ Magnús sagði að ýmislegt hafi flogið í gegnum koll- inn á sér þegar liðið var tveimur mörkum undir og leikmanni færri. „En við náðum að endurskipu- leggja okkur og vorum í raun allt- af að ógna. Svo kom mér kannski mest á óvart að við náðum að pressa þá í seinni hálfleik og í raun vorum við nær því að stela þessu en þeir. Það var ekki að sjá að við værum einum leikmanni færri í síðari hálfleik og ætli ég verði ekki að gefa frí á æfingu á morgun,“ sagði Magnús brosandi út að eyrum í leikslok. Hefðum getað sett fjögur í fyrri hálfleik Willum Þór Þórsson var að von- um svekktur í leikslok. „Það er nú oft þannig í boltanum að ef maður nýtir ekki færin þá vill það koma í bakið á manni. Við spiluðum feyki- vel fyrsta hálftímann þar sem bolt- inn gekk vel manna á milli, fín hreyfing á liðinu og kraftur og það hefði ekkert verið ósanngjarnt að við hefðum sett fjögur á þessu tímabili.“ Gunnar Heiðar stakk sér margoft inn fyrir vörn KR og sagði Willum að þeir hefðu stopp- að fyrir þann leka í leikhléi. „Við vorum of framarlega með okkar varnarmenn en við gáfum ekki þessi færi á okkur í síðari hálfleik og þeir skoruðu sitt mark úr föstu leikatriði og það er ekkert við þessu að gera. Við verðum að reyna að líta jákvætt á þetta, við náðum þó í stig.“ Einar Þór Daníelsson leikmaður KR til margra ára lék gegn sínum gömlu félögum í ÍBV búning og stóð vel fyrir sínu. „Þetta var ein- kennileg tilfinning í upphafi en svo gleymdist það og þetta varð bara eins og hver annar leikur.“ Gátum stolið sigrinum ÍBV 2:2 KR Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla, 4. umferð Hásteinsvöllur Þriðjudaginn 1. júní 2004 Aðstæður: Logn, 13 stiga hiti. Áhorfendur: 600 Dómari: Magnús Þórisson, Keflavík, 4 Aðstoðardómarar: Hans Scheving, Einar Sigurðsson Skot á mark: 10(7) - 13(7) Hornspyrnur: 5 - 3 Rangstöður: 4 - 3 Leikskipulag: 4-4-2 Birkir Kristinsson M Bjarni Geir Viðarsson Matt Garner M Einar Hlöðver Sigurðsson Mark Schulte M Jón Skaftason Bjarnólfur Lárusson Ian Jeffs M Einar Þór Daníelsson M (Pétur Runólfsson 85.) Magnús Már Lúðvíksson (Andri Ólafsson 32.) M Gunnar Heiðar Þorvaldsson MM Kristján Finnbogason M Jökull I. Elísabetarson M Kristján Örn Sigurðsson Petr Podzemsky Bjarni Þorsteinsson Sölvi Davíðsson (Kristinn Magnússon 57.) Ágúst Gylfason M Kristinn Hafliðason M Arnar Jón Sigurgeirsson M (Sigurður Ragnar Eyjólfsson 90.) Kjartan Henry Finnbogason M (Guðmundur Benediktsson 78.) Arnar B. Gunnlaugsson 0:1 (5.) Kristinn Hafliðason skoraði með glæsilegu skoti utan vítateigs. 0:2 (12.) KR fékk hornspyrnu, Kristján Sigurðsson skallaði að marki og Einar Hlöðver Sigurðsson varði með hendinni. Magnús Þórisson benti um- svifalaust á vítapunktinn og sýndi Einari rauða spjaldið. Arnar Gunn- laugsson skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni. 1:2 (45.) Gunnar Heiðar Þorvaldsson fékk stungusendingu inn fyrir vörn KR, hann lék á Kristján Sigurðsson og setti boltann glæsilega í fjærhornið. 2:2 (78.) Mark Schulte tók langt innkast af vinstri kantinum, Einar Þór Daní- elsson framlengdi knöttinn á fjærstöng þar sem Gunnar Heiðar Þor- valdsson var mættur og setti boltann undir Kristján í mark KR. Gul spjöld: Kristinn Hafliðason, KR (30.) Fyrir að tefja  Andri Ólafsson, ÍBV (57.) Fyrir brot  Atli Jóhannsson, ÍBV (77.) Fyrir brot Rauð spjöld: Einar Hlöðver Sigurðsson, ÍBV (11.) Varði með hendi 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.