Morgunblaðið - 02.06.2004, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÓRA B. Helgadóttir, markvörður
Íslands, fær væntanlega að nóg að
gera á milli stanganna í dag þegar
Íslendingar etja kappi við Frakka í
undankeppni EM á Laugardalsvelli
kl. 17 í dag en franska liðið hefur
skorað samtals 22 mörk í leikjunum
fimm í riðlinum.
„Þetta er örugglega einn af stærri
leikjunum sem við höfum spilað og
auðvitað er mikil spenna og eft-
irvænting hjá okkur. Mér fannst í
fyrra þegar við spilum við Frakka
og töpuðum 2:0 að þeir ættu góðan
dag en við aftur á móti ekki og því
tel ég okkur eiga möguleika á sigri
svo fremi sem við hittum á góðan
leik,“ sagði Þóra við Morgunblaðið.
Þóra segir franska liðið vel mann-
að og með mikla reynslu en íslenska
liðið er aftur á móti frekar óreynt.
„Reynslan gefur þeim ákveðið for-
skot en við höfum hjartað á réttum
stað og með samstöðu og samheldni
inni á vellinum þá er ég viss um að
við getum gert góða hluti. Frakk-
arnir hafa meiri hraða en við en það
kemur sér ágætlega fyrir okkur að
þá vantar sinn besta leikmann sem
er mikill markaskorari. Það hefði
samt verið gaman að eiga við hann
en mitt takmark er að halda mark-
inu hreinu og ef það tekst þá er allt
opið. Laugardalsvöllurinn hefur
fleytt okkur langt og við vonumst til
að sjá sem flesta á vellinum. Við lof-
um að gera okkar allra besta og
meira er ekki hægt að fara fram á.“
Við lofum að gera okkar
allra besta gegn Frökkum
FÓLK
ZINEDINE Zidane er besti
knattspyrnumaðurinn í Evrópu frá
upphafi að mati hlustenda á BBC 5
á Bretlandi. Zidane hlaut 12% at-
kvæða, Johan Cryuff varð annar
með 10%, George Best þriðji með
8%, Marco Van Basten fjórði með
6% og Thierry Henry fimmti með
5%. Athygli vakti að David Beck-
ham, fyrirliði enska landsliðsins,
komst ekki á topp 40 listann yfir þá
bestu. Hlustendur voru beðnir um
að að velja fimm bestu knattspyrnu-
mennina að sínu mati og höfðu þeir
úr 40 knattspyrnumönnum að velja.
OLIVER Kahn, landsliðsmark-
vörður Þjóðverja í knattspyrnu og
leikmaður Bayern München, kann
að vera á leið til Manchester United
ef marka má fréttir í þýska blaðinu
Bild. Kahn hefur látið hafa eftir sér
að hann geti hugsað sér til hreyf-
ings og vitað er að Sir Alex Fergu-
son, stjóri United, hefur lengi verið
adáandi Kahns og reyndi að lokka
hann til félagsins fyrir tveimur ár-
um.
ULI Höness, framkvæmdastjóri
Bayern München, er ósáttur við
ummæli Oliver Kahns. „Kahn er
samningsbundinn Bayern til ársins
2006. Ef hann er óánægður hjá
Bayern á hann að tala við okkur,
hann á ekki að ræða við fjölmiðla
um þessi mál,“ sagði Höness.
Franska kvennalandsliðið í knatt-spyrnu sem mætir Íslendingum
á Laugardalsvellinum í undankeppni
Evrópumótsins í dag er ákaflega
reynslumikið og í hópi þeirra sterk-
ustu í heiminum. Tveir leikmenn í lið-
inu hafa spilað yfir 100 leiki, varnar-
maðurinn Corienne Diacre, 107, og
miðjumaðurinn Stéphanie Mugneret-
Beghe á að baki 103 A-landsleiki.
Miðjumaðurinn Sandrie Soubeyrand
hefur spilað 82 leiki en framherjinn
Marinette Pichon, sem hefur spilað 83
leiki og skorað í þeim hvorki fleiri né
færri en 67 mörk, gaf ekki kost á sér.
Til samanburðar þá er Olga Færseth
og Erla Hendriksdóttir leikjahæstar í
íslenska liðinu með 45 leiki.
Frakkar hafa unnið alla fimm leiki
sína í riðlinum, Ungverja á útivelli,
4:0, Íslendinga á heimavelli, 2:0, Pól-
verja á heimavelli, 7:1, Ungverja
heima, 6:0, og Rússa á útivelli, 3:0.
Ísland og Frakkland hafa þvívegis
mæst á knattspyrnuvellinum, alltaf í
undankeppni EM. Árið 1997 gerðu
þjóðirnar 3:3 jafntefli á Akranesi en
Frakkar höfðu betur í heimaleiknum,
3:0. Í september í fyrra mættust liðin
svo á nýjan leik í París þar sem
Frakkar sigruðu, 2:0.
Reynslu-
boltar í
franska
liðinu
Grindavík hefur haft gott tak áFram. Í níu viðureignum lið-
anna í Grindavík hefur Fram aðeins
einu sinni farið með
sigur af hólmi og í
17 leikjum liðanna
hafa Grindvíkingar
unnið níu sinnum en
Framarar aðeins þrisvar.
Fyrri hálfleikurinn var algjör
eign Grindvíkinga. Þeir léku Fram-
ara á köflum afar grátt og sýndu
mögnuð tilþrif í veðurblíðunni í
Grindavík. Zeljko Sandovic, þjálfari
Grindvíkinga, gerði stöðubreyting-
ar hjá sínum mönnum. Hann færði
Sinisa Valdimar Kekic í fremstu
víglínu á nýjan leik og Orri Freyr
Óskarsson sem jafnan leikur sem
framherji var færður í öftustu vörn.
Þessi breyting hitti í mark og var
afar gaman að sjá leik heimamanna
þar sem boltinn gekk á milli manna
og hver stórsóknin af annarri skall
á Framvörninni. Grétar Ólafur
Hjartarson opnaði markareikning
Grindvíkinga með stórkostlegu
marki. Þessi snjalli framherji var
aftur á ferðinni skömmu síðar þeg-
ar hann nýtti sér mistök í öftustu
vörn Framara og Sinisa Valdimar
kórónaði frábæran fyrri hálfleik
með skallamarki undir lok fyrri
hálfleiks. Framarar voru skelfilega
slakir í fyrri hálfleik og voru í raun
stálheppnir að vera ekki með verri
stöðu þegar þeir gengu til búnings-
herbergja í leikhléi. Andleysið var
algjört hjá þeim bláklæddu og þeir
gerðu sig seka um byrjendamistök
og þá sértaklega í öftustu vörn.
Ekki voru nein teikn á lofti í
byrjun síðari hálfleiks að Framarar
væru að vakna til lífsins en um
miðjan seinni hálfleik fóru Gestur
Gylfason og Sinisa Kekic af velli og
við það var eins og Grindvíkingar
misstu tökin á leiknum. Framarar
vöknuðu úr dái og tókst að rétta
sinn hlut með tveimur mörkum
Ríkharðs Daðasonar á lokakafla
leiksins.
Grindvíkingar léku meistaralega
vel í tæpar 70 mínútur og hefðu fá
lið staðist þeim snúning í þessum
ham. Kekic og Grétar Ólafur sýndu
að þeir eru frábærir saman og
varnarmenn Fram réðu ekkert við
þá félaga. Eysteinn Hauksson og
Paul McShane voru með yfirburði á
miðsvæðinu og vörnin var lengst af
mjög traust. Þó svo að Grindvík-
ingar hafi slakað á undir lokin
sýndu þeir að mikið er í lið þeirra
spunnið og fyrsti sigurinn hlýtur að
gefa þeim byr undir báða vængi.
„Þetta var afar kærkominn sigur
og nú liggur leiðin bara upp á við.
Við misstum töluvert dampinn þeg-
ar Kekic fór útaf en fyrri hálfleik-
urinn er það besta sem við höfum
sýnt lengi. Það fór töluvert um mig
þegar Framarar minnkuðu muninn
í eitt mark en það hefði orðið al-
gjört rán hefðu þeir náð stigi,“
sagði Grétar Ólafur við Morgun-
blaðið eftir leikinn. Spurður út í
markið glæsilega sagði Grétar; „Ég
smellhitti tuðruna og fann það
strax að boltinn myndi steinliggja í
netinu. Ég hef sett mér það mark-
mið að skora fleiri mörk en fyrir
tveimur árum þegar ég varð
markakóngur,“ sagði Grétar sem
skoraði 14 mörk það sumar en
missti af síðustu leiktíð vegna
meiðsla.
Leikur Framara var á löngum
köflum í algjörum molum og beint
framhald af leiknum við ÍA á dög-
unum. Vörn og miðja Framara var
úti á þekju og sóknin afar bitlaus að
því undanskildu að Ríkharður
Daðason stóð vel fyrir sínu og var
ávallt hættulegur í vítateig Grind-
víkinga.
,,Við skutum okkur svo sannar-
lega í fótinn með hörmulegri
frammistöðu í fyrri hálfleik. Við
vorum trekk í trekk að gera mistök
sem varla sjást hjá leikmönnum í
fimmta flokki og fyrri hálfleikurinn
var okkur til hreinnar skammar.
Það var ekki heil brú í okkar leik
og andleysið algjört og við vorum
heppnir að vera ekki 5:0 undir í
hálfleik. Þetta gat ekki annað en
skánað hjá okkur og það kom smá-
lífsmark í liðið undir lokin en með
sama áframhaldi bíður okkar ekk-
ert annað en fallbarátta,“ sagði
Ríkharður Daðason
Morgunblaðið/Sverrir
Það var oft atgangur í vítateigum liðanna í Víkinni í gærkvöldi og mikið fjölmenni þar eins og sjá má.
Grétar með
mark sumarsins
GRINDVÍKINGAR hafa jafnan haft góð tök á Frömurum á heimavelli
sínum og engin breyting varð á því í gærkvöld. Grindvíkingar fögn-
uðu 3:2 sigri og um leið fyrsta sigri sínum á Íslandsmótinu í ár. Úr-
slitin gefa kannski ekki rétta mynd af leiknum því heimamenn yf-
irspiluðu Framara í 65 mínútur en Safamýrarpiltum tókst að bjarga
andlitinu með því að skora tvö síðustu mörkin.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Grindavík 3:2 Fram
Leikskipulag: 3 5 2 Landsbankadeild karla,
4. umferð
Grindavíkurvöllur
Þriðjudaginn 1. júní 2004
Aðstæður:
Logn, skýjað og frábært
knattspyrnuveður. Völlurinn
blautur en góður.
Áhorfendur: 773
Dómari:
Ólafur Ragnarsson,
Hamar, 4
Aðstoðardómarar:
Magnús Kristinsson,
Ingvar Guðfinnsson
Skot á mark: 16(8) - 8(5)
Hornspyrnur: 2 - 1
Rangstöður: 5 - 4
Leikskipulag: 3 5 2
Albert Sævarsson M
Orri Freyr Hjaltalín M
Gestur Gylfason
(Eyþór Atli Einarsson 62.)
Óðinn Árnason
Óli Stefán Flóventsson M
Eysteinn Húni Hauksson M
(Jóhann Helgi Aðalgeirsson 76.)
Guðmundur A. Bjarnason
Paul McShane M
Ray Anthony Jónsson M
Grétar Ó. Hjartarson MM
Sinisa Valdimar Kekic M
(Óskar Örn Hauksson 64.)
Tómas Ingason
Eggert Stefánsson
Hans Fróði Hansen
Andrés Jónsson
Ómar Hákonarson
Ingvar Ólason M
Fróði Benjaminsen
Baldur Þór Bjarnason
(Heiðar Geir Júlíusson 59.)
Ragnar Árnason
(Daði Guðmundsson 70.)
Ríkharður Daðason M
Andri Steinn Birgisson
(Kristján Brooks 28.)
1:0 (23.) Orri Freyr Hjaltalín átti langa sendingu fram völlinn á Sinisa Kekic sem
skallaði til Grétars Ólafs Hjartarsonar og þrumufleygur hans með við-
stöðulausu skoti fór efst í markhornið. Glæsilegt mark.
2:0 (28.) Grétar Ólafur Hjartarson stal boltanum af Hans Fróða Hansen rétt ut-
an vítateigs. Hann lék inn í teiginn og vippaði skemmtilega yfir Tómas
Ingason markvörð Fram.
3:0 (44.) Ray Anthony Jónsson spólaði sig upp vinstri kantinn og átti góða
sendingu á stöngina fjær þar sem Sinisa Valdimar Kekic stökk hæst
allra og skallaði í netið.
3:1 (69.) Kristján Brooks átti skot að marki Grindvíkinga. Albert Sævarsson
varði en Ríkharður Daðason náði frákastinu og skoraði af stuttu færi.
3:2 (75.) Ríkharður Daðason skoraði af öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd var
þegar Fróði Benjaminsen var felldur innan teigs.
Gul spjöld: Hans Fróði Hansen, Fram (48.) fyrir brot Ríkharður Daðason, Fram (67.) fyr-
ir brot Andrés Jónsson, Fram (69.) fyrir hendi Eyþór Atli Einarsson,
Grindavík (73.) fyrir brot Heiðar Geir Júlíusson, Fram (79.) fyrir brot .
Rauð spjöld: Engin