Morgunblaðið - 02.06.2004, Page 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort
5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort
Su 13/6 kl 20
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fö 4/6 kl 20,
Lau 5/6 kl 20,
Lau 12/6 kl 20,
Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ósóttar pantanir seldar daglega
DANSLEIKHÚS 10/06/2004 SAMKEPPNI
9 verk eftir 14 höfunda
Fi 10/6 kl 20
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Su 6/6 kl 20, Su 13/6 kl 20
SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson
Fi 3/6 kl 20,
Síðasta sýning
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Fi 3/6 kl 20 - UPPSELT
Fö 4/6 kl 20 - UPPSELT
Mi 9/6 kl 20,
Fi 10/6 kl 20,
Fö 11/6 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/6 kl 15
Örfáar sýningar
HUGSTOLINN - KAMMERÓPERA
Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Daníel Þorsteinsson
Í kvöld kl 20
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Á LISTAHÁTÍÐ:
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.39
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30
Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30
EFTIR tónlistarlegt gjaldþrot
Pixies fyrr í vikunni (þar sem eini
ljósi punkturinn var enduruppgötv-
un tónleikahaldarans Hr. Örlygs á
Kaplakrika sem hinum fínasta tón-
leikastað) reistu Korn rokksál mína
við á nýjan leik með framúrskarandi
tónleikum. Ég var svei mér þá farinn
að hafa áhyggjur af því að vera orð-
inn of gamall eftir Pixies-óskundann
(kominn á fertugsaldurinn!) en Korn
slökkti á slíku bulli. Rokkið var feitt
og maður fór út í kvöldbirtuna með
skínandi bros á vörum og glóð í geði;
endurnærður maður.
Mike Patton og félagar í Fantom-
as sáu um upphitun. Það má segja að
það hafi verið eins og að hleypa refi
inn í hænsnakofa því að súrt sett
Fantomas féll engan veginn hungr-
uðum Korn-krökkum í geð. Þegar
um korter var eftir tók fólkið að púa
og kallaði á ensku: „Við viljum
Korn!“ Skiljanlegt en algerlega óvið-
eigandi líka. Það er lágmark að lista-
manninum sé sýnd tilhlýðileg virðing
og þarna var frammistaða íslenskra
áhorfenda til skammar. Í litlu landi
þar sem allir eru kóngar virðist sorg-
lega stutt í barbarismann. Tónleikar
Fantomas voru engu að síður meira
flottir en góðir, meira tilkomumiklir
en að þeir hafi snert mann. Bore-
doms/Naked City eftirhermur Patt-
ons eru síst skemmtilegar en kafl-
arnir sem teknir voru af nýjustu
plötu sveitarinnar, Delerium Cordia,
voru fínir. Draugatónlist sem er í
raun hin hliðin á Kornpeningnum.
Biðin á milli Fantomas og Korn
var alltof löng, um fimmtíu mínútur,
og margir því orðnir óþreyjufullir.
Það jákvæða við hana var að maður
var minntur á hversu frábær rokk-
sveit Queens of the Stone Age er, en
plata þeirra, R, fékk að hljóma um
salinn megnið af tímanum.
Q.O.T.S.A til Íslands, einhver?
Korn átti salinn frá fyrstu mínútu
til þeirrar síðustu. Þeir hófu leikinn á
„Right Now“, fyrsta laginu af síð-
ustu plötunni sinni, Take a look in
the Mirror. Hvílík sprengja! Og ég
hef sjaldan séð áhorfendur jafn vel
með á nótunum og á sunnudags-
kvöldið. Hvort sem var í stæði eða
stúku sungu allir hástöfum með og
Korn-liðar – sem voru sýnilega í
miklu stuði sjálfir – efldust við þetta
ef eitthvað var. Lagaskráin náði yfir
allan feril Korn og var svona brot af
því besta, „Got the life“, „Freak on a
Leash“, „Here To Stay“, „Falling
Away From Me“, „Faget“, „Blind“,
„A.D.I.D.A.S.“ og svo framvegis.
Um miðja tónleika rann upp fyrir
undirrituðum hversu mikilvæg sveit
Korn í raun og veru er. Með fyrstu
plötu sinni árið 1994, sem er sam-
nefnd sveitinni, er ekki ofmælt að
Korn hafi bjargað þungarokkinu. Á
plötunni, sem hljómar ótrúlega enn
þann dag í dag, er þungarokksform-
inu snúið á einkar frumlega lund, það
framreitt fyrir nýja kynslóð hipp
hoppara og raftónlistarmanna og því
gefinn myrkur hljómur sem skír-
skotar til nýbylgju og gotarokk.
Textarnir þá ofsalega „inn í sig“ og
hefðbundin yrkisefni eins og brenni-
vín, mellur og hass skilin eftir. Allt
þetta er svo gert af gríðarkrafti en
líka melódískum næmleika. Hafa ber
hugfast að á þessum tíma var grugg-
ið allsráðandi og þungarokk sem
slíkt nánast skammaryrði. Korn
breyttu þessu öllu.
Áhrifa Korn gætir enn þann dag í
dag, eins og reyndar mátti sjá á
áhorfendum sem voru frá ca þrítugu
niður í tíu ára. Gítarleikarinn Head
ber mikla heilbrigðislega ábyrgð því
hundruð síð-Korn-sveita spruttu upp
í kjölfar vinsælda hennar og eru enn
að spretta upp, og að sjálfsögðu eru
gítarleikarnir allir með gítarinn í
gólfinu og bakið í keng!
Á „Shoots and Ladders“ tók Korn
svo smá krók og spilaði hluta úr
meistaraverki Metallica, „One“. Fín-
asta upphitun fyrir komandi
Metallica tónleika. Þessir tónleikar
sýndu þá og sönnuðu að þungarokks-
æð Íslendingsins er þykk og mikil og
án efa verður allt brjálað á Metallica
þann 4. júlí. Þegar Rammstein fyllti
Höllina tvisvar hér um árið höfðu
meðlimir á orði að þeir skildu þetta
ekki. „Heitustu aðdáendur okkar eru
í Mexíkó, Póllandi ... og á Íslandi!?“
sögðu þeir forviða. Kári, það er kom-
inn tími á að rannsaka þetta íslenska
þungarokksgen.
Keyrslan var góð allan tímann og
Korn-liðar voru virkilega að gefa sig.
Sérstaklega Munky, sem fór reglu-
lega framarlega á sviðið til áhorf-
enda og í lokin dreifðu þeir félagarn-
ir gítarnöglum í tugavís.
Allt í allt var þetta einstaklega
mettandi kvöldstund og Korn er
komin nokkrum þrepum ofar í
„uppáhalds rokksveita“-listanum
mínum.
Tónlist
Uppskera:
Góð
TÓNLEIKAR
Laugardalshöll
KORN
Korn og Fantomas í Laugardalshöll.
Sunnudagurinn 30. maí, 2004.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Árni Torfason
Jonathan Davis var í miklu stuði í Höllinni, eins og allir sem þar voru.
Sími 594 6000
Bæjarflöt 4, 112 R.vík
Fjöldi lita og gerða
Marley þakrennur
Sjáum einnig um uppsetningu
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
KVIKMYNDAGOÐSÖGNIN Audr-
ey Hepburn hefur verið valin feg-
urst allra kvenna, frá náttúrunnar
hendi, í könnun sem drykkjarvöru-
fyrirtækið Evian stóð fyrir.
Þessi stjarna mynda á borð við
Breakfast at Tiffany’s og My Fair
Lady var valin af sérstakri dóm-
nefnd, sem skipuð var fegurðar-
og snyrtiskríbentum, förð-
unarlistamönnum, fyrirsætufröm-
uðum og ljósmyndurum.
Bandaríska leikkonan Liv Tyler
og ástralska leikkonan Cate
Blanchett höfnuðu í öðru og þriðja
sæti listans.
„Konurnar voru valdar vegna
náttúrulegrar fegurðar þeirra,
heilbrigðs lífernis, innri fegurðar
jafnt sem ytri, húðarinnar og al-
mennrar útgeislunar,“ útskýrir
stjórnandi Elle-fegurðarsamkeppn-
innar, Rosie Green. Hún segir að
Audrey Hepburn sé „persónugerv-
ingur náttúrufegurðinnar“. Hún
hafi búið yfir einstæðum sjarma
og innri fegurðu sem geislaði er
hún brosti. „Húðin er fersk og
hrein í öllum hennar myndum og
hlýlegur persónuleikinn leynir sér
ekki.“
Helmingurinn af þeim tíu feg-
urstu að mati dómnefndar eru
dökkhærðar, þrjár eru ljóshærðar
og tvær rauðhærðar. Athygli vek-
án þess að þurfa að hylja það með
farða og er hraust, hamingjusamt
og ljómandi; það býr yfir nátt-
úrufegurð,“ segir Eleonore
Cropton hjá tímaritinu Heat.
ur að þrjár ástralskar konur eru á
listanum; Blanchett, söngkonan
Natalie Imbruglia og fyrirsætan
Elle MacPherson.
„Fólk sem líður vel með útlit sitt
Audrey
Hepburn
fegurst allra
1. Audrey Hepburn
2. Liv Tyler
3. Cate Blanchett
4. Angelina Jolie
5. Grace Kelly
6. Natalie Imbruglia
7. Juliette Binoche
8. Halle Berry
9. Helena Christensen
10. Elle MacPherson
NÁTTÚRUFEGURÐ:
Topp 10