Morgunblaðið - 06.07.2004, Page 4

Morgunblaðið - 06.07.2004, Page 4
Orustuþotur lenda vegna bilunar FJÓRAR Tornado-orustuvélar ásamt DC-10 eldsneytisvél lentu á Keflavíkurflugvelli um tvöleytið í gærdag eftir að bilunar varð vart í vökvabúnaði einnar af orustuvélunum. Flug- maðurinn lýsti yfir neyðarástandi og var ósk- að eftir leyfi til lendingar á Keflavík- urflugvelli klukkan 12.58. Vélarnar tilheyra herjum Atlantshafs- bandalagsins og voru á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Goosebay (Gæsaflóa) á Ný- fundnalandi, um 500 sjómílur suður af Kefla- vík, þegar atvikið átti sér stað. Þær lentu heilu og höldnu, sú fyrsta klukkan 13.56 og sú síðasta 14.20. Ekki lá fyrir í gær hvort vél- arnar yrðu um kyrrt á meðan gert yrði við eina þeirra. FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ DA VINCI LYKILLINN EFTIR DAN BROWN 1. PRENTUN 1-2000 UPPSELD 2. PRENTUN 2001-3500 UPPSELD 3. PRENTUN 3501-6500 UPPSELD 4. PRENTUN 6501-13500 UPPSELD 5. PRENTUN Á LEIÐINNI! 66 VIKUR EFST Á METSÖLULISTA NEW YORK TIMES. MEST SELDA BÓKIN Á ÍSLANDI. „FRÁBÆRLEGA SPENNANDI SAGA ... BÓK SEM MAÐUR LES Í EINUM RYKK“ BIRTA „FYRSTA FLOKKS AFÞREYING“ MORGUNBLAÐIÐ BJARTUR VERÐ: 1.590 KR. KRIMMI ÁRSINS Danadrottning kom við á Akureyri MARGRÉT Þór- hildur Dana- drottning kom við á Akureyri í gær- morgun, ásamt Hinriki prins, eig- inmanni sínum, á leið heim til Dan- merkur eftir að hafa verið í heim- sókn á Grænlandi. Twin Otter vél Flugfélags Íslands lenti með drottninguna á Akureyri kl. 11.20 og Margrét og föruneyti hennar héldu af stað aftur um kl. 12 með flugvél danska hersins, sem flutti hana beint til Danmerkur. Tvær Twin Otter vélar Flugfélags Ís- lands fóru á föstudaginn til Grænlands. Önnur flutti Margréti og Hinrik á milli staða þar í landi um helgina og síðan til Akureyrar í gær, en hin flutti Friðrik prins og eiginkonu hans, Mary Donaldson, innan- lands í Danmörku. Friðrik og Mary flugu beint heim til Danmerkur frá Grænlandi á laugardaginn. Gæsluvarðhald framlengt HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur úr- skurðað konu, sem grunuð er um að hafa banað 11 ára dóttur sinni með hníf á heimili þeirra hinn 5. júní, í áframhaldandi gæslu- varðhald þar til dómur fellur í máli hennar, þó ekki lengur en til 27. september. Lög- reglan í Reykjavík annast rannsókn málsins og verður það sent ákæruvaldi að henni lok- inni. Konan sætti í fyrstu gæsluvarðhaldi á Landspítalanum vegna áverka sem hún er talin hafa veitt sjálfri sér, en vistast nú á Réttargeðdeildinni á Sogni. EMBÆTTI Ríkislögreglustjóra hefur tekið í gagnið öndunarsýnabifreið sem jafnframt nýtist sem eftirlitsmiðstöð við sérstök lög- regluverkefni. Bíllinn er af gerðinni Merce- des Benz Sprinter og er búinn fullkominni myndavél sem hægt er að setja sjö metra upp í loft með mastri til að veita yfirsýn yfir vettvang. Bíllinn mun standa lögregluemb- ættum víðs vegar um landið til boða í tengslum við fjöldasamkomur á hverjum stað. Bifreiðin hefur þegar komið í góðar þarfir og var hún notuð við eftirlit á Lands- móti hestamanna á Hellu um síðastliðna helgi og síðan við eftirlit við Egilshöll vegna tónleika hljómsveitarinnar Metallica á sunnu- dagskvöld. Að sögn Jóns F. Bjartmarz, yfirlög- regluþjóns hjá embætti Ríkislögreglustjóra, er bíllinn fyrsti sinnar tegundar hjá lögregl- unni en björgunarsveitir hafa margar haft yf- ir að ráða stjórnstöðvarbílum. Notaður við hátíðahöldin 17. júní Bíllinn var tekinn í notkun hjá lögreglu sem öndunarsýnabíll fyrir nokkrum árum og búið er að bæta í hann vinnuborði, tölvum og auknum fjarskiptabúnaði, þ.m.t. síma og tal- stöð, auk myndavélar. Hægt er að snúa myndavélinni á mastrinu og þysja myndina sem birtist á skjá inni í bifreiðinni. Bíllinn var notaður af lögreglunni í Reykjavík við hátíðahöldin 17. júní í mið- borginni. Einnig er ætlunin að lána bifreiðina til lögregluumdæma víðs vegar um landið í tengslum við fjöldasamkomur, sem fyrr seg- ir, meðal annars um verslunarmannahelgina. Guðmundur H. Jónsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra, er umsjónarmaður bifreiðarinnar og verður bíllinn lánaður til lögregluumdæma með áhöfn. Ríkislögreglustjóri lánar nýja lögreglubifreið við eftirlit á útisamkomum Myndavél á 7 metra háu mastri Góð yfirsýn Stjórnstöðvarbifreið Ríkislögreglustjóra kom í góðar þarfir við eftirlit við Egilshöll á sunnudagskvöld. Þórður Þórðarson, varð- stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík, og Ágúst Svansson aðalvarðstjóri fylgjast með þegar Hjálmar Björgvinsson, aðalvarðstjóri hjá Ríkislögreglustjóra, kannar svæðið. Bíllinn er búinn fullkominni upptökuvél sem hægt er að setja sjö metra upp í loft með mastri til að veita yfirsýn yfir vettvang. Morgunblaðið/Júlíus SKIPULAGSSTOFNUN hafa borist þrettán athugasemdir vegna mats á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga Sundabrautar en frestur til að skila inn athugasemdum rann út á föstudag. Að sögn Auðar Ýrar Sveinsdóttur, sérfræðings á umhverfissviði Skipulagsstofnunar, lét fólk einkum í ljós áhyggjur vegna hljóðmengunar, og þá sérstaklega íbúar í Hamrahverfi í Graf- arvogi. Tvær staðsetningar koma til greina fyrir Sundabraut. Annars vegar er leið sem hefur verið kölluð leið eitt eða innri leið en þá myndi verða lögð hábrú eða botngöng frá gatnamót- um Sæbrautar og Holtavegar (nálægt IKEA) og að höfða norðan megin. Hins vegar er leið þrjú eða ytri leið en hún myndi liggja frá Kleppsmýrarvegi, en sú brú yrði þá lægri og krefðist st landfyllingar. Í Hamrahverfi skrifuðu 64 íbúar undir bréf til Skipulagsstofnunar, umhverfisráðuneytis- ins og Reykjavíkurborgar þar sem slælegri kynningu á mati á umhverfisáhrifum Sunda- brautar er mótmælt. Að sögn Jóhanns Páls Símonarsonar, aðstandanda undirskriftasöfn- unarinnar, var illa staðið að boðun kynning- arfunda um málið og margt fólk komst ekki á fundi vegna sumarfría eða af því að það hrein- lega vissi ekki hvar eða hvenær fundirnir voru haldnir. Í bréfinu er bent á að íbúar þurfi lengri tíma til að kynna sér málið og umhverf- isráðherra er hvattur til að beita sér fyrir því að umhverfsimati verði frestað. Auður bendir á að framkvæmdaraðilar hafi staðið fyrir tveimur kynningarfundum á mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Annar var í Rimaskóla 15. júní sl. og var frekar illa sóttur og hinn í Þróttaraheimilinu 21. júní og var vel sóttur. „Fundirnir voru skipulagðir í samráði við Skipulagsstofnun og auglýstir bæði í Morgunblaðinu og á vefmiðlum,“ segir Auður. Íbúar í vestanverðu Hamrahverfi sendu Skipulagsstofnun jafnframt athugasemdir. Að sögn Steinars Helgasonar, íbúa í hverfinu, skrifuðu eigendur tíu húsa undir yfirlýsinguna þar sem því er harðlega mótmælt að leið þrjú verði farin vegna hávaða-, sjón- og loftmeng- unar. „Þetta kemur okkur mest við sem erum hérna vestast í hverfinu.“ Íbúarnir benda á að fasteignaverð muni lækka vegna lagningar brautarinnar og þeir áskilja sér rétt til skaða- bóta þar sem nánast sé um eignaupptöku að ræða ef af framkvæmdunum verður. Frestur runninn út vegna mats á umhverfisáhrifum Sundabrautar Þrettán athuga- semdir bárust Íbúar í Hamrahverfi í Grafarvogi ósáttir                         Bleika línan sýnir leið eitt sem yrði botngöng eða hábrú en gula línan sýnir leið þrjú en þá yrði um lága brú að ræða. BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra segir afturköllun ríkisstjórn- arinnar á fjölmiðlaögunum ekki það sama og hann hafi fjallað um í pistli sínum 3. júní, þegar hann sagði að Sigurður Líndal fyrrver- andi lagaprófessor léti eins og „al- þingi geti bara breytt lögunum og þannig komist hjá því, að þjóðin segi álit sitt á þeim. Ef slíkum brellum yrði beitt, er ég hræddur um, að einhvers staðar mundi heyrast hljóð úr horni,“ sagði Björn á heimasíðu sinni 3. júní. Björn sagði við Morgunblaðið í gærkvöld, en hann er staddur í Kína, að pistillinn hafi verið skrif- aður þegar menn voru rétt að byrja að átta sig á stöð- unni. Nú hafi ríkisstjórnin lagt til að lögin verði afturköll- uð og sett ný lög. „Einnig er lagt til að gild- istaka laganna verði ekki fyrr en eftir að kosn- ingar hafa farið fram, þannig að fólk hefur haft tækifæri til að segja álit sitt áður en lögin taka gildi. Nýtt þing getur tekið þessi lög upp og breytt þeim og þarna er því ekki um það sama að ræða og það sem ég kalla brellur þegar ég fjalla um þessa hugmynd Sig- urðar,“ segir Björn. „Það að ráðast í þjóðaratkvæða- greiðslu vekur miklar deilur og ágreining og ríkisstjórnin hefur með þessu valið að leita sátta og koma til móts við þau sjónarmið sem uppi hafa verið. Ég tel að það sé verið að taka málið upp á nýjum grunni með nýju frumvarpi, þannig að það er ekki verið að breyta því sem áður var og því er þetta ekki það sama og ég var að fjalla um 3. júní.“ Björn Bjarnason dómsmálaráðherra Björn Bjarnason „Ekki um það sama að ræða og það sem ég kalla brellur“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.