Morgunblaðið - 29.09.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2004 41
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir,18 ára, Eydís Ýr Rosenkjær,19 ára, Huld Hafsteinsdóttir,
20 ára, og Sandra Jónsdóttir, 15
ára, eru allar fiðluleikarar og hafa
verið í tónlistarskóla í mörg ár, síð-
an þær voru börn. Þær stunda nám
við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
fóru saman til Stade í norðurhluta
Þýskalands í tvær vikur í sumar til
að taka þátt í alþjóðlegri æsku-
sinfóníuhljómsveit. Allar nema
Sandra fóru líka sumarið á undan
og líkaði vel en hljómsveitin hefur
verið starfrækt frá árinu 1988. Í
sumar tóku þær líka þátt í heimild-
armynd kvikmyndagerðarmannsins
Jans Harlans, sem er mágur hins
þekkta leikstjóra Stanleys Kub-
ricks. Harlan er meira en mágur
hans því hann vann með Kubrick að
þekktum myndum leikstjórans eins
og Eyes Wide Shut og The Shining.
Í boði vinabæjar
„Þetta er alþjóðleg sinfón-
íuhljómsveit fyrir ungt fólk á aldr-
inum 14–25 ára,“ segir Huld. „Við
erum í tónlistarskóla Hafnarfjarðar
en vinabær Hafnarfjarðar, Cuxhav-
en, sem er rétt hjá Stade, býður
okkur að taka þátt í þessari hljóm-
sveit,“ segir hún.
„Þeir sem koma þarna eru allir úr
bæjum sem eru vinabæir Cux-
haven,“ segir Sigrún en fólk frá tólf
þjóðum tók þátt, allt frá Suður-
Kóreu til Serbíu með viðkomu á Ís-
landi. Um er að ræða fullskipaða
sinfóníuhljómsveit með um 70
manns.
Þær segja þetta hafa verið
skemmtilegt en um leið krefjandi
og ekki síst gaman að kynnast fólki
frá svona ólíkum löndum. Þær
spiluðu á þrennum tónleikum verk
eftir Daniel Hess, Hero og Lean-
der, og svo sellókonsert eftir Ant-
onin Dvorák en þar var sólóisti
sellóleikarinn Alexander Baillie,
sem þær voru mjög hrifnar af.
Baillie, sem er þekktur tónlist-
armaður, tók þátt ekki síst fyrir til-
stilli Harlans og kalla þær hann
nöfnum eins og „guðsgjöf“ og segj-
ast ekki hafa komist í kynni við
„annan eins atvinnumann“.
„Við vorum að æfa í um átta tíma
á dag samtals með matarhléum inn
á milli,“ segja þær en æfingarnar
fóru fram í skóla í bænum og gist
var á farfuglaheimili.
Þær segja það mjög hvetjandi að
taka þátt í verkefni af þessu tagi.
„Hér er svo lítið af tækifærum fyrir
okkur að spila í svona hópi.“ Huld
einbeitir sér sem stendur að fiðlu-
náminu en hún útskrifaðist úr MR í
vor, Sigrún og Eydís eru í Flens-
borg og Sandra er í Víðistaðaskóla
auk þess að leggja stund á fiðlunám.
Myndaðar allan daginn
Ekki síður var spennandi fyrir
þær að taka þátt í gerð heimild-
armyndarinnar. „Það var verið að
taka myndir af okkur á æfingum og
svoleiðis,“ segir Eydís. „Þeir voru
allan liðlangan daginn með mynda-
vélina á okkur,“ bætir Huld við og
útskýrir frekar um myndina. „Harl-
an vill gera mynd sem gerir áhorf-
endur ástfangna af klassískri tón-
list. Hann segir að þetta sé svo
mikill fjársjóður og vill fanga áhorf-
andann. Hann vill að áhorfandinn
taki tónlistina með heim í huganum
eftir að hafa horft á myndina.“
Harlan tók viðtöl við allt tónlist-
arfólkið unga í hljómsveitinni. „Það
á að koma brot úr öllum viðtölunum
í myndinni. Hann spurði okkur um
allt í þessum viðtölum, ekki bara
tónlistina heldur líka viðhorf til lífs-
ins,“ segja þær. „Hann hugsar
þetta ekki bara sem heimildarmynd
um þessa hljómsveit heldur meira
til að vekja athygli á klassískri tón-
list.“
Þær segjast fyrst hafa verið
feimnar við myndavélina en það
hafi vanist. Tilgangurinn var líka
góður og vildu þær gjarnan sjá
fleira ungt fólk hlusta á klassíska
tónlist. „Þetta er svo yndislegt,“
segir Eydís. „En maður verður að
vilja það sjálfur.“ „Mörgum finnst
þessi tónlist svo fáránleg,“ segir
Sandra, sem er ósátt við það og vill
að fleiri læri að meta klassískar list-
greinar.
Þær segja að Harlan hafi búist
við því að myndin yrði tilbúin í des-
ember en vita þó ekki fyrir víst hve-
nær tækifæri gefst að sjá myndina.
„Ef þetta gengur vel verður þetta
stórt verkefni.“
Tónlist | Tóku þátt í þýskri sinfóníuhljómsveit æskunnar og heimildarmynd eftir mág Stanleys Kubricks
Klassíkin er yndisleg
Morgunblaðið/Kristinn
Huld, Eydís, Sigrún og Sandra hafa allar spilað lengi á fiðlu.
ingarun@mbl.is
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 Ísl tal.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15.
G.E.
Ísland í bítið/Stöð 2
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
Lífið er bið
Frábær og eftirminnileg kvikmynd eftir
meistaraleikstjórann, Steven Spielberg.
Með Óskarsverðlaunahöfunum Tom
Hanks og Catherine Zeta Jones.
r r ftir i il i ftir
ist r l i stj r , t i l r .
r r l f
s t ri t J s.
S.V. Mbl.
DV
Ó.H.T. Rás 2
Tom HanksT s Catherine Zeta Jonesi
GEGGJUÐ GRÍNMYND
Kvikmyndir.comvi y ir.c
Rómantísk spennumynd
af bestu gerð
Ástríða sem deyr aldrei
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frá leikstóra The Princess Diaries og Pretty Woman
JULIE ANDREWS ANNE HATHAWAYJ I
Hún þarf að
setja upp
hringinn til
að taka við
rf ún a að
tj se a u
ri i tilh ng nn
t iað aka v ð
Frá leikstóra The Princess Diaries og Pretty Woman
JULIE ANDREWS ANNE HATHAWAYJ I
Hún þarf að
setja upp
hringinn til
að taka við
rf ún a að
tj se a u
ri i tilh ng nn
t iað aka v ð
Ein
steiktasta
grínmynd
ársins
ÁLFABAKKI
kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
KRINGLAN
kl. 5.45, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sigurjón Kjartansson