Morgunblaðið - 16.12.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 16.12.2004, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skál, þetta hafa verið góð ár, bróðir. Það eina er að maður er farinn að hafa áhyggjur af því að verða bara ellidauður. Sífellt fleiri flutninga-bílar aka nú umþjóðvegi landsins með eiturefni eða hættu- leg efni og menn virðast nokkuð sammála um að hættan á eiturefnaslysum hafi aukist á undanförnum árum og full þörf sé á að bregðast við þeirri hættu. Frá því var greint í Morg- unblaðinu í gær að meira en tuttugu tonn af mjög hættulegri og ætandi salt- sýru væru vikulega flutt landleiðina á milli Reykja- víkur og Siglufjarðar. Sýr- an, þó að hættuleg sé, er þó alls ekki það eiturefni sem er mest áberandi því bensín, olíur, ammoníak og klór eru uppistaðan í flutning- um á efnum sem valdið gætu mengunarslysi, þótt vitaskuld séu alls konar önnur hættuleg efni flutt landleiðina. Flutningarnir nær allir komnir á þjóðvegina Nú í byrjun mánaðarins hætti Eimskip strandsiglingum en megnið af vöruflutningunum var raunar þegar komið á þjóðvegina áður. Engu að síður fóru um 17% af heildarinnflutningi Eimskipa eða 140 þúsund tonn með strand- flutningum en verða nú flutt eftir vegum landsins. En það hefur fleira breyst en það eitt að meira af flutningunum fari landleiðina því ábyrgð á við- brögðum við mengunarslysum var færð á herðar slökkviliða sveitar- félaganna með lögum sem sam- þykkt voru árið 2001 og sveitar- félögin eru mjög misjafnlega í stakk búin til þess að bregðast við mengunarslysum. Gera má því skóna að fæst þeirra séu vel undir það búin, nema ef vera skyldi slökkvilið allra stærstu sveitarfé- laganna, sem þó kvarta einnig undan að fé hafi skort til mála- flokksins. Sveitarfélögin fengu ekki sérstaka fjármuni þegar ábyrgðin á þessum málaflokki var flutt til þeirra og fjárhagur margra sveitarfélaga þannig að þau hafa ekki haft fé aflögu til þess að kaupa búnað eða mennta slökkviliðsmenn. Slökkvilið höfuðborgarsvæð- isins þokkalega í stakk búið Einhver uppbygging hefur þó átt sér stað hjá sveitarfélögunum en engan veginn nóg að mati þeirra sem til þekkja. Þeir taka þó fram að veruleg vinna hafi verið lögð í þessi mál að undanförnu og hlutirnir séu smám saman að þok- ast í rétta átt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins telst þó væntanlega vera þokkalega búið til að bregðast við mengunarslysum auk þess sem það hefur glímt við þennan mála- flokk í allmörg ár. Það hefur því smám saman verið að koma sér upp búnaði og sérfræðiþekkingu en búnaðurinn mun vera bæði dýr og flókinn og eins er kostnaðar- samt að mennta og þjálfa menn á þessu sviði. Á Akureyri munu menn einnig ráða yfir sæmilegum búnaði en á smærri stöðum úti á landi er stað- an önnur. Þar hafa mörg slökkvi- lið haft búnað til þess að takast á við „venjuleg mengunarslys“, s.s. eins og að hreinsa upp olíur eða bensín og langflest sveitarfélög hafa einhvern búnað. En þau væru vafalaust vanbúin til þess að glíma við meiriháttar mengunar- slys. Þess vegna eru uppi hug- myndir um að hjá Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins verði sér- stakur aukabúnaður sem væri þyrlutækur og jafnvel einnig á Akureyri. Ef á þyrfti að halda væri þá hægt að fljúga með þenn- an búnað á önnur svæði með litlum fyrirvara. Brunamálastofnun, sem hefur yfirumsjón með eldvarnareftirliti og slökkvistarfi sveitarfélaganna, hefur um skeið unnið í þessum málum og þar á bæ telja menn ekki vafa leika á að hættan á mengunarslysum hafi aukist með auknum landflutningum. Taka málin alvarlega Hugmyndin um þyrlutækan búnað er einmitt komin frá Brunamálastofnun sem tekur þessi mál alvarlega og hefur und- anfarin tvö ár unnið að því að fá sveitarfélögin til þess að samein- ast um kaup á búnaði. Stofnunin getur veitt sveitarfélögunum styrki til þess að kaupa búnað til þess að bregðast við mengunar- slysum og fær til þess fé á fjár- lögum en skilyrði er að sveitar- félögin sameinist um kaup á slíkum búnaði; enda út af fyrir sig ekkert vit í að öll 60 slökkvilið landsins séu með slíkan búnað og það þess fyrir utan ómögulegt fyrir þau af fjárhagslegum ástæðum. Sveitarfélögn hafa fengið styrki frá Brunamála- stofnun til þess að skrifa skýrslur og gera úttekt á þessum málum og þá um leið að komast að því hvernig þau geti staðið sameigin- lega að þeim; hvaða búnað eigi að kaupa, hvar eigi að geyma hann o.s.frv. Þessi vinna er nú víða langt komin og sums staðar það langt að sveitarfélögin eru tilbúin að sameinast um kaup á búnaði. Þá eru uppi áætlanir um að sam- eina eldvarnareftirlit, sem nú er hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig, á stærri svæðum og gera það skil- virkara. Fréttaskýring | Landflutningar eiturefna Aukin hætta á mengunarslysum Hugmyndir um að koma upp þyrlutæk- um búnaði vegna mengunarslysa Slökkviliðsmenn geta þurft að fást við flutn- ing mjög hættulegra efna. Sveitarfélögin sameinist um kaup á búnaði  Hjá Brunamálstofnun eru áætlanir um að hafa þyrlutækan aukabúnað til mengunarvarna hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins og hugsanlega á Akureyri, sem flytja mætti með litlum fyrirvara ef alvarlegt mengunarslys yrði úti á landi. Þá er unnið í því að sveitarfélög á ákveðnum svæðum sameinist um að koma sér upp búnaði til þess að bregðast við mengunar- slysum. Er sú vinna víða vel á veg komin. arnorg@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.