Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 32
S igmúnd Jóhansson hefur getið sér orð fyrir færni í listgrein sem hefur ekki notið mikillar viðurkenningar hér landi í ár- anna rás, eins og Sigmúnd hefur sjálfur bent á. Hugtakið skop- mynd er tæpast réttnefni á myndum Sigmúnds, því þótt hann bregði skoplegu ljósi á at- burði og málefni samtímans gerist það oftar en ekki að berstrípaður sannleikurinn hrópi á mann úr svarthvítum pennateikningunum. Myndir Sig- múnds sanna orðtækið um að ein mynd segi meira en þúsund orð. Hann hefur þróað list sína í meira en fjóra áratugi og í myndum hans kristall- ast það sem hefur verið efst á baugi í þjóðfélag- inu á hverjum tíma, ásamt helstu persónum og leikendum. Myndir Sigmúnds eru því sannkall- aður aldarspegill undanfarinna áratuga. Lokaðu augunum og teiknaðu Sigmúnd heitir fullu nafni Sigmúnd Johanson Baldvinsen. Faðir hans íslenskur og móðirin norsk. Sigmúnd fæddist í Noregi og kom til Ís- lands þriggja ára gamall með foreldrum sínum. Hann ólst upp fyrir norðan en eignaðist konu úr Vestmannaeyjum, Helgu Ólafsdóttur, og hefur verið búsettur þar lengi. Hann var fyrst spurður hvernig ferill hans sem teiknara hafi byrjað. „Ég byrjaði að teikna í blöð 1960 eða 1961. Þá gerði ég forsíður fyrir Vikuna og Fálkann,“ segir Sigmúnd. Hann segist hafa haft gaman af að teikna frá barnæsku, þegar hann gekk í Barna- skólann á Akureyri. „Þar var kennslukona sem kenndi mér „trixið“. Uppskriftin hennar var: Lokaðu bara augunum og teiknaðu það sem þú sérð! Ég notaði þessa að- ferð lengi en þarf ekki lengur að loka augunum til að sjá hvað ég á að teikna. Ég hef oft hugsað til þessarar konu með hlýhug.“ Það fór ekki leynt að drengurinn var drátt- hagur. Sumir töldu að þarna leyndist listamanns- efni og var Sigmúnd sendur til Reykjavíkur þar sem Kurt Zier rak Myndlista- og handíðaskólann. „Ég var þar í mánuð. Þá var verið að finna hvort menn væru hæfir til að teikna eftir módelum og alls konar hlutum. Ég teiknaði bara eins og venjulega, en blaðið nægði mér aldrei! Ég var alltaf að skreyta í kringum aðalmyndina með myndum af kennurum og fleiru. Eftir þennan mánuð var ég kallaður fyrir Kurt Zier og tilkynnt að ég hefði ekki þá hæfileika sem þyrfti til að vera listamaður. Ég eiginlega þakka Guði í dag fyrir að ég skyldi ekki vera talinn listamanns- efni.“ Þrátt fyrir þennan úrskurð blandast fáum hug- ur um að Sigmúnd er listamaður á sínu sviði. Hann segir að myndlistargrein sín hafi aldrei not- ið tilhlýðilegrar viðurkenningar hér á landi. „Menn hafa gaman af henni, en gjarnan afgreitt sem skrípamyndir. Fólk sem uppgötvar hver ég er segir: Já, þú teiknar skrípamyndir í Moggann, en hvað gerir þú annars?“ Sigmúnd segist ekki skilgreina myndir sínar sem skopmyndir, samkvæmt þess orðs hljóðan. „Þarna er bara verið að sýna daglegt líf og at- burði í þessu ljósi. Bæði til að fólk geti haft gam- an af því og skilji hvað er að gerast, jafnvel á bak við tjöldin.“ Öguð vinnubrögð Hver mynd Sigmúnds á nokkurn aðdraganda. Hann segist yfirleitt vinna að fjórum myndum samtímis. Dag hvern verður hann að skila fullbú- inni mynd til birtingar í Morgunblaðinu jafnhliða því að undirbúa næstu myndir. En hvernig verð- ur mynd til? „Fyrst geri ég eina litla skissu á pínulítið blað. Geri svo aðra á stærra blað og tíni þá til smáat- riðin. Loks teikna ég síðustu myndina fríhendis á sérstakan pappír sem er góður fyrir blekpenna. Ég hef bara þennan ferhyrning í Morgunblaðinu og verð að fylla inn í hann. Það er svolítið erfitt fyrir teiknara að þurfa að fylla inn í svona form. Það er hvorki hægt að hafa myndina á hæðina né breiddina.“ Sigmúnd stefnir að því að ljúka hreinteikningu myndar að kvöldi og byrjar svo næsta vinnudag á að tússa myndina og fullklára. Síðan hefst hann Spegilmyndir s Teikningar Sigmúnds Jóhans- sonar fyrir Morgunblaðið end- urspegla þjóðlífið í meira en fjóra áratugi. Í gær keypti ríkið 10 þúsund teikningar hans og hyggst gera þær aðgengilegar á Netinu. Guðni Einarsson heimsótti Sigmúnd í Vest- mannaeyjum. Sigmúnd Jóhansson teiknari og Halldór Ásgríms ríkisins á 10 þúsund myndum eftir Sigmúnd í Ve Fyrsta mynd Sigmúnds Jóhanssonar birtist í Morg unblaðinu 25. febrúar 1964 og var teiknuð eftir að Frakkar urðu fyrstir í land í Surtsey. Síðan eru myndir Sigmúnds orðnar um tíu þúsund talsins. 32 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TIL HJÁLPAR FISCHER Fyrsti leikurinn í fléttunni til aðfrelsa Bobby Fischer hefurverið leikinn. Utanríkisráðu- neytið tilkynnti í gær að ákveðið hefði verið að verða við beiðni Fisch- ers um dvalarleyfi á Íslandi. Framtíð hans hefur verið í fullkominni óvissu frá því að hann var kyrrsettur á flug- vellinum í Tókýó í júlí og síðan hefur hann verði hafður í haldi í Japan. Hinn 26. nóvember barst Davíð Oddssyni utanríkisráðherra umsókn um dvalarleyfi og sendi hann um- sóknina til Útlendingastofnunar til meðferðar. Georg Kr. Lárusson, for- stjóri Útlendingastofnunar, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að stofnunin hafi í samráði við dóms- málaráðherra og utanríkisráðherra tekið þá ákvörðun að veita honum dvalarleyfi án þess að skilgreint sé um hvers konar dvalarleyfi sé að ræða. Bobby Fischer hefur ávallt verið sérlundaður en snilli hans fór aldrei á milli mála. Honum skaut upp á stjörnuhimin skáklistarinnar með ógnarhraða og sigraði andstæðinga sína með slíkum yfirburðum þegar hann ávann sér réttinn til að skora á heimsmeistarann að með ólíkindum þótti. Heimsmeistaraeinvígi Borís Spasskís og Fischers á Íslandi árið 1972 vakti heimsathygli. Þar áttust ekki aðeins við tveir fremstu skák- menn heims. Talað var um einvígi aldarinnar og varð það ein birting- armynd kalda stríðsins og þar áttust við fulltrúi sovésku mulningsvélar- innar í skák og bandaríski einfarinn sem lét sér ekkert fyrir brjósti brenna og mátti einu gilda þótt veru- leikinn bæri ímyndinni ekki vitni. Fischer varði aldrei heimsmeist- aratitilinn, sem hann náði af Spasskí í Reykjavík, en 20 árum síðar féllust þeir á að leiða saman hesta sína á ný. Einvígið fór fram í Belgrad í trássi við alþjóðlegar refsiaðgerðir á hend- ur gömlu Júgóslavíu og allar götur síðan hefur Fischer verið eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum. Ákvörðunin um að veita Fischer dvalarleyfi er aðeins fyrsti leikurinn í skákinni um framtíð hans. Í Morg- unblaðinu í dag kemur fram að sam- kvæmt upplýsingum frá japanska sendiráðinu hér á landi sé það undir dómstólum í Tókýó komið hvort Fischer fái að yfirgefa Japan. Þá bendir Georg Kr. Ólafsson á að í gildi séu samningar við Bandaríkin um framsal sakamanna og íslensk stjórnvöld yrðu því skuldbundin til að framselja Fischer færu bandarísk stjórnvöld fram á það. Eftir að Fischer var handtekinn hafa lög- fræðingar hans barist gegn því fyrir dómstólum að honum yrði vísað úr landi og framseldur til Bandaríkj- anna þar sem hann er enn eftirlýst- ur. Fischer er mörgum Íslendingum kær eftir einvígið 1972 og ljóst að margir hér á landi hafa hugsað til hans í prísundinni í Japan. Hópur forustumanna í íslensku skáklífi og velunnara Fischers hefur þó gengið lengra og þrýst á íslensk stjórnvöld um að leggja honum lið. Fischer hef- ur látið ýmis ógeðfelld ummæli falla í fjölmiðlum en hann á ekki að gjalda þeirra. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að tefla djarft og það er reisn yfir þeirri ákvörðun Davíðs Oddssonar að bjóða Fischer dvalar- leyfi hér á landi. Bandarísk og jap- önsk yfirvöld eiga sömuleiðis að sýna einum mesta skáksnillingi sögunnar þá reisn og virðingu að láta af óbil- girni sinni gagnvart honum og leyfa honum að koma til Íslands. TVÍTYNGDAR HETJUR Á HVÍTA TJALDINU Það er ekki einungis mannfólkiðhér á landi sem er tvítyngt í vax- andi mæli, heldur einnig hetjur hvíta tjaldsins eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær. Hér er fyrst og fremst um að ræða talsettar teiknimyndir sem eru ætlaðar börnum eða jafnvel aðrar kvikmyndir sem einnig eru við barna hæfi. Með víðtækari dreifingu kvik- mynda, ekki síst á mynddiskum, hef- ur opnast markaður þar sem það virðist skipta miklu hvort myndir eru eingöngu á frummálinu eða líka talsettar. Á mynddiskunum er nefni- lega hægt að velja á milli frummáls myndarinnar og íslenskrar útgáfu, sem auðvitað þjónar yngstu áhorf- endunum sem hvorki búa yfir mála- né lestrarkunnáttu vel. Haft er eftir Birgi Sigfússyni hjá Sambíóunum að það skipti miklu máli fyrir mynd- diskaútgáfuna að íslensk talsetning sé í boði. Þessi þróun er ákaflega ánægjuleg og bendir til þess að foreldrar og aðrir sem kaupa mynddiska fyrir börn séu meðvitaðir um mikilvægi þess að börnin horfi á myndirnar með íslensku tali. Enda þótt full ástæða sé til að hafa efasemdir um kosti þess að talsetja allar kvik- myndir eins og víða er gert erlendis – fyrst og fremst vegna þess að það vegur mjög að listrænu framlagi leikaranna að taka frá þeim jafn- veigamikinn þátt leikrænnar túlkun- ar og sjálft málið – leikur enginn vafi á menningarlegu gildi þess fyrir yngstu aldurshópana. Vel talsett barnamynd er ekki síður til þess fall- in að örva málþroska og skilning ungviðisins en upplestur úr góðri bók og hefur því umtalsvert uppeld- islegt gildi. Miklu skiptir þó að þessi vinna sé vel unnin og augljóst er að hér á landi er mikið lagt í talsetningu kvik- mynda. Að sögn Jakobs Þórs Ein- arssonar, leikstjóra hjá Lotus-hljóð- setningum, eru kröfurnar miklar, „sérstaklega þegar kemur að því að talsetja stórar myndir frá Holly- wood, eins og t.d. frá Disney,“ en hann bætir því við að íslensk talsetn- ing hafi alltaf staðist þær kröfur og einnig hlotið lof fyrir vinnubrögðin. Það er því ekkert skrýtið og í raun ákaflega ánægjulegt að „yngri áhorf- endur, þeir sem hvorki lesa texta né skilja ensku, kjósa [...] miklu fremur að sjá íslensku útgáfuna og eru bók- staflega farnir að gera þá kröfu að hetjur þeirra á hvíta tjaldinu mæli á móðurmálinu“, eins og segir í um- fjölluninni. HALLDÓR Ásgrímsson, forsætisráðherra, byrja daginn í Vestmannaeyjum í gær á því að heim- sækja Sigmúnd Jóhansson teiknara, ásamt nokk um þingmönnum Suðurkjördæmis og embætt- ismönnum. Eftir undirritun samningsins á veitingahúsinu Fjólunni var Halldór tekinn tali o spurður hvað honum þætti um myndir Sigmúnds en Halldór hefur oft verið viðfangsefni teikn- arans. „Mér hefur ekki alltaf líkað það, ekkert frekar en öðrum,“ sagði Halldór og brosti. „Manni finns þetta vera orðinn sjálfsagður hluti af tilverunni. Hann gerir grín að okkur öllum [stjórnmálamön um] með jákvæðum hætti og hugarfari. Það er sv einstakt við Sigmúnd að hann nálgast allt sem hann gerir með jákvæðu hugarfari. Þó að við séum stundum sett í það ljós sem við vildum ef til vill ekki vera í þá vitum við að það býr góður hug ur þar að baki. Umfram allt mikil kímnigáfa og þessi einstaka gáfa að koma því í myndrænt form.“ Halldór sagðist hafa byrjað á að safna myndum Sigmúnds af sér, en svo gefist upp á því. „Ég er búinn að vera á Alþingi í 30 ár af þeim 40 sem hann hefur verið að teikna. Ég er sá stjórn- málamaður sem hefur verið lengst undir penna Sigmúnds af þeim sem nú sitja á þingi.“ Sigmúnd blandaði sér í samtalið og sagðist ald ei hafa getað teiknað Halldór. „Ég hef bara sett svona symból á hann og allir vita að þetta er Hal dór!“ „Hann teiknaði mig alltaf sem konu,“ sagði Halldór og virtist ekki alveg sáttur við það. „Já, það er symból – Framsóknarmaddaman – það tekur sig mjög vel út,“ sagði Sigmúnd. Þeir Halldór ræddu síðan hvaðan maddaman væri æt uð. Þeir fundu út að líkast til væri það úr skop- tímaritinu Speglinum. Grín með jákvæðum hætti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.