Morgunblaðið - 16.12.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 19
ERLENT
Mikið úrval af fallegum sófum til afgreiðslu fyrir jól
Ný sending af gjafavöru
Opið til kl. 22 alla daga til jóla
Laugavegi 95 – Sími 552 1844
www.seatingconcept. is
Opið t i l k l . 22 al la daga t i l jó la
HAMAS og Íslamska jíhad, rót-
tækar hreyfingar Palestínumanna,
ítrekuðu í gær andstöðu sína við
að horfið yrði frá hinni vopnuðu
uppreisn, intifata, gegn hernámi
Ísraela. Daginn áður hafði leiðtogi
Frelsissamtaka Palestínu, PLO,
hvatt samtök þessi til að leggja
niður vopn og beita í þeirra stað
friðsamlegu andófi.
Talsmaður Hamas sagði yfirlýs-
ingu Mahmuds Abbas, leiðtoga
PLO,
í ósamræmi við vilja palestínsku
þjóðarinnar sem teldi andspyrnu
lögmæta í ljósi hernáms Ísraela.
„Vandinn er ekki fólginn í and-
spyrnunni, hann er tilkominn sök-
um hernámsins,“
sagði talsmaður-
inn, Sami Abu
Zuhri.
Einn helsti
leiðtogi Íslamska
jíhad í Gaza-
borg, Mohamm-
ed Al-Hindi,
lýsti yfir því að
Palestínumenn
þyrftu „vopn í baráttu sinni gegn
hernámi Ísraela“. „Órökrétt er að
við séum drepin án þess að við
getum gripið til lögmætrar sjálfs-
varnar,“ bætti hann við.
Mahmud Abbas, sem trúlega
verður næsti forseti Palestínu-
manna, lýsti yfir því í viðtali sem
birtist á þriðjudag að hin vopnaða
uppreisn gegn hernámi Ísraela,
intifatan, hefði verið mistök og
henni bæri að hætta. Beita bæri á
hin bóginn lögmætu og friðsam-
legu andófi. Intifatan hófst í sept-
embermánuði árið 2000 og hefur
kostað mikið blóðbað í Ísrael og
Palestínu. „Það skaðar okkur að
beita vopnum og því verður að
linna,“ sagði Abbas m.a. í áður-
nefndu viðtali. Hann vísaði til
fyrstu uppreisnar Palestínumanna
á árunum 1987 til 1993 en þá var
vopnum lítt beitt. Fullvíst þykir að
Abbas fari með sigur af hólmi í
forsetakosningunum í Palestínu 9.
næsta mánaðar.
Hamas og
Jíhad hundsa
ákall Abbas
Segja vopnaða uppreisn réttmæt
viðbrögð við hernámi
Gazaborg. AFP.
Mahmud Abbas
EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær
ályktun þar sem leiðtogar aðildar-
ríkja Evrópusambandsins (ESB)
eru hvattir til að ákveða á fundi sín-
um í Brussel í dag og á morgun að
hefja viðræður við Tyrki um aðild
þeirra að sambandinu. Ályktunin,
sem er ekki bindandi, var samþykkt
með 407 atkvæðum gegn 262. Þing-
menn halda hér á spjöldum með
áletruninni „Já“ á nokkrum tungu-
málum við atkvæðagreiðsluna.
Reuters
ESB hvatt til viðræðna við Tyrki
JACK Straw, utanríkisráðherra Bretlands, til-
kynnti í gær að nítján sendiráðum Bretlands eða
ræðismannsskrifstofum á erlendri grundu yrði
lokað í sparnaðarskyni. Breytingarnar eiga að
hafa gengið um garð í lok ársins 2006.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu kom fram
að á árlegum grunni myndu þessar aðgerðir spara
sex milljónir punda, tæpar 740 milljónir króna, og
verður þeim peningum framvegis varið til annarra
þátta í utanríkisþjónustunni, s.s. baráttunnar
gegn hryðjuverkum, útbreiðslu kjarnorkuvopna
og til orku- og loftslagsmála.
Á undanförnum árum hefur Bretland opnað
stór ný sendiráð eða ræðismannsskrifstofur í
Bagdad og Basra í Írak, Kabúl í Afganistan og
Pyongyang í Norður-Kóreu.
Engar breytingar á starfsemi
sendiráðsins í Reykjavík
Áætlanirnar nú gera ráð fyrir að þremur sendi-
ráðum í Afríkuríkjum verði lokað, í Lesotho,
Swazilandi og Madagaskar. Á Kyrrahafssvæðinu
verður sendiráðunum í Vanuatu lokað, sömuleiðis
í Tonga, Austur-Tímor og Kiribati. Ennfremur á
að loka sendiráði Bretlands í Asuncion í Paragvæ
og Nassau á Bahama-eyjum.
Alls verður tíu ræðismanns- og viðskiptaskrif-
stofum lokað, m.a. í nokkrum borga Bandaríkj-
anna og Evrópu. Þá er stefnt að því að fækka
nokkuð í starfsliði ræðismannsskrifstofa víðs veg-
ar í heiminum.
Í tilkynningu sem barst frá breska sendiráðinu í
Reykjavík í gær segir að engar breytingar séu
ráðgerðar á starfsemi þess.
Bretar loka níu sendiráðum
London. AFP.
Meira á mbl.is/itarefni