Morgunblaðið - 16.12.2004, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 2004 25
MINNSTAÐUR
Afgreiðsla á öllum pósthúsum.
Síðustu skiladagar:*
Síðustu skiladagar á jólapökkum voru 3. og 13. desember. Tryggðu að
pakkinn þinn komist í réttar hendur fyrir jól. Nýttu þér TNT Hraðflutninga
og sendingin kemst örugglega til skila á réttum tíma.
20. des. til Bandaríkjanna og annarra landa utan Evrópu.
21. des. til Evrópu.
TNT Hraðflutningar • Stórhöfða 32 • 110 Reykjavík
Sími 580 1010 • www.tnt.is • tnt@postur.is
Hraðflutningar
Þú hefur enn tíma!
30% jólaafsláttur á hraðsendingum.
* til helstu viðskiptaborga
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti í vikunni þá breytingu á að-
alskipulagi við Baldurshaga að þar
skuli einungis fyrirhugað íbúða-
svæði. Bæjarstjórn féllst þó ekki á
áform um 12 hæða byggingu á lóð-
inni en samþykkti þess í stað að
gert verði ráð fyrir um 40 íbúða
byggð, allt að 7 hæðum á lóðinni.
Byggingafyrirtækið SS Byggir
ætlar að byggja á lóðinni og eru
átta mánuðir frá því fyrstu hug-
myndir af skipulagi svæðisins voru
kynntar, að sögn Sigurðar Sigurð-
arsonar framkvæmdastjóra. Hann
sagðist ánægður með að niður-
staða væri komin í málið. „Nú
verður hægt að fara í að teikna og
ég get farið að svara öllu því fólki
sem vill flytja á þetta svæði. “
Sigurður sagðist aldrei í 26 ára
sögu SS Byggis hafa orðið var við
jafnmikinn áhuga á íbúðum og á
lóðinni við Baldurshaga og þá
fyrst og fremst frá eldra fólki.
„Það er einn og hálfur um hverja
íbúð og það áður en farið er að
stað með framkvæmdir.“ Sigurður
sagði að þessi mikli áhugi undir-
strikaði það að fólk vildi færa sig
nær þjónustunni. Hann sagði að
vandað yrði til verka við undirbún-
ing verksins og að stefnt yrði að
því að hefja framkvæmdir sem
fyrst en þó ekki fyrr en næsta vor
eða sumar. Töluverðar umræður
hafa verið um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við Baldurshaga og sýn-
ist sitt hverjum.
Sigurður er með fleiri járn í eld-
inum en fyrirtækið er m.a. að
hefja byggingu á 16 raðhúsaíbúð-
um við Akursíðu, milli Bjargs og
Glerárkirkju. Á því svæði hefur
fyrirtækið þegar byggt átta rað-
húsaíbúðir. Þá er verið að vinna
skipulag að Sjallareitnum en þar
er hugmyndin að byggja háhýsi
með verslunarkjarna og íbúðum.
Sigurður sagði ekki endanlega
ákveðið hversu margar íbúðir yrðu
byggðar í Sjallareitnum. Í haust
voru kynntar hugmyndir um að
reisa þrjár 60 metra háar íbúða-
byggingar á Sjallareitnum, með
samtals 150–200 íbúðum, sem
hefðu orðið hæstu íbúðarhús
landsins. Af því verður þó ekki,
m.a. vegna flugöryggis, að sögn
Sigurðar. Hann sagði mögulegt að
byggja 15–16 hæða hús á svæðinu
en að óvíst væri hvort af því yrði.
Hann sagði að óskað hefði verið
eftir því af bæjaryfirvöldum að
sem flestar íbúðir yrðu byggðar á
umræddu svæði.
Bæjarstjórn samþykkir sjö hæða hús
með 40 íbúðum við Baldurshaga
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu þar sem gert er ráð fyrir um 40 íbúða
byggð, allt að sjö hæðum, á lóðinni við Baldurshaga.
Gríðarleg eftir-
spurn eftir íbúðum